Morgunblaðið - 14.02.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.02.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980 Hörður Ólafsson hrl.: Æran á Alþingi Núverandi forsætisráðherra kenndi á sínum tíma stjórnlaga- fræði í Háskólanum og skrifaði doktorsritgerð sína um æruna og vernd hennar. Er vafalaust ekki fjarri lagi að halda því fram, að stjórnarmyndunin nú í febrúar hafi hjá mörgum komið inn á báðar þessar sérgreinar ráðherr- ans: — Forsætisráðherra sagði skilið við félaga sína í Sjálfstæðis- flokknum og gerðist hvatamaður þess, að fleiri flokksmenn gerðu slíkt hið sama. — í máli ráðherrans hefur komið fram, að við vissar ástæður á Alþingi verði ekki að því fundið, þótt einstakir þingmenn segi þannig skilið við félaga sína og gangi í lið með andstæðingunum. Hann hefur nefnt í því sam- bandi: — Að heiður Alþingis þurfi að vera í veði, e.t.v. einnig þjóðar- heill, þótt það atriði hafi ekki verið sérstaklega nefnt til réttlæt- ingar þeim óvenjulegum aðferð- um, sem beitt var við stjórnar- myndunina að þessu sinni. — Að fyrir hendi þurfi að vera tiltekið hugarástand viðkomandi alþingismanns — sannfæring hans um það, að hann geri eins og ástatt er réttast í því, að fara á bak við félaga sína og semja við andstæðingana. Þetta huglæga skilyrði hefur hann einnig orðað svo, að þingmenn megi, þegar þannig er ástatt, ekki vera „slegn- ir flokksblindu", að undir þessum sérstöku kringumstæðum sé þann- ig réttlætanlegt og heimilt að víkja frá þeirri almennu reglu, að menn skuli styðja félag sitt og félaga og víkja ekki frá því umboði, sem kjósendur hafa veitt þeim með kosningu þeirra til Alþingis. Ljóst er, að fyrsta og annað atriðið hér að ofan tvinnast sam- an: Hafa óvenjulegar aðferðir við stjórnarmyndun að sjálfsögðu ekki í för með sér neins konar æruskerðingu þátttakenda, ef unnt er að réttlæta þær um allt, sem máli skiptir. Hins vegar getum við í þessum þönkum látið hverjum og einum eftir að gera upp við sjálfan sig um skömm sína eða sóma, enda má e.t.v. í þessu sambandi taka undir það, að sá einn sé sekur, sem tapi. Hitt er aftur veigameira, hvaða lærdóm megi draga af því, sem gerzt hefur, en slíkur lærdómur hefur einkum og sér í lagi þýðingu til leiðbeiningar og eftirbreytni fyrir þá 60 þingmenn, sem á Alþingi sitja hverju sinni. Getur könnun á þessum atriðum þannig leitt í ljós, hvenær — og með hvaða skilyrðum — þeim hverjum og einum og fleirum í senn, hvar í flokki, sem þeir standa, sé heimilt að beita við stjórnarmyndun sams konar aðferðum. Skilyrðin sýnast vera þessi: Heiður Alþingis. Um þarf að vera að tefla heiður Alþingis. Þetta hugta!: er nokkuð skýrt, a.m.k. ef það er eingöngu skoðað í Ijósi þeirra kringumstæðna,sem fyrir hendi foru: Eitthvað það ástand þarf að hafa skapazt, sem skerðir heiður Alþingis, svo fremi að endi sé ekki bundina á það ástand með skjótum hætti. Tíma- :engdin skiptir þannig meginmáli. í því tilviki, sem hér er um fjallað, var talið nægilegt, að Alþingi hafði ekki tekizt að mynda ríkisstjórfi, innanþings stjórn, í tvo mánuði. Var þetta atriði talið skerða heiður Alþingis. Spurning verður um það, hvort heiður Alþingis af þessum sökum hafi e.t.v. ekki þegar verið orðinn nokkuð skertur, þegar svo langt var liðið frá alþingiskosningum, með öðru orðum, hvort ekki væri réttara að leyfa hinar óvenjulegu í ðferðir fyrr, jafnvel miklu fyrr. : á til sanns vegar færa, að heiður . Iþingis sé þegar orðinn allskert- ur af þessum sökum t.d. eftir svo sem tvær vikur. Hér sýnist þó verða að fara eftir almenningsáliti og varlegra þannig að kanna það eins og kostur er — áður en látið er til skarar skríða um viðskilnað við flokksfélaga og samninga við andstæðinga. Þó mætti einnig hafa það í huga, að sá möguleiki er jafnan fyrir hendi, að unnt muni verða að sveigja almenningsálitið til fylgis við verknaðinn, — veldur sá, er á heldur. Rétt er að gefa gaum að því, að utanþings stjórn var ekki talin hafa getað bjargað heiðri Alþingis í þessu tilviki. Mun flokks klofn- ingum því ekki verða fundið það til foráttu, að forseta íslands hefði Hörður ólafsson. verið unnt að skipa þess konar stjórn. Það er einungis innanþings stjórn, sem getur bjargað heiðri Alþingis, og skiptir ekki máli, hvað henni er ætlað að gera, sbr. síðar. Þjóðarheill. Eins og vikið er að hér að framan, var þetta atriði ekki sérstaklega nefnt til réttlæt- ingar aðferðinni. Sýnist það því ekki skipta máli um lögmæti hennar. En með því skilyrði af þessu tagi hefði verið mjög erfitt að uppfylla, verður þannig mikl- um mun auðveldara fyrir þing- menn alla að taka ákvörðun um viðskilnað við félaga sína og samninga við andstæðingana. Nauðsynlegt hefði sem sé verið að sýna fram á, að þær ráðstafanir, sem hin nýja ríkisstjórn síðan gerði, hafi í raun og veru bjargað þjóðinni. Þetta er vitaskuld ekki hægt, — tíminn á eftir að leðia það í ljós. Með sama hætti er ekki unnt að bera fyrir sig jafnvel vandlega saminn málefnasamning hinnar nýju ríkisstjórnar, þar sem þjóð- inni er t.d. sýnt það sæluríki ríkisafskipta, sem fram undan er. Það er sem sé ekki þess konar samningur, sem bjargar þjóðinni, heldur framkvæmd hans, þegar allt tekst vel. En um það getur einungis tíminn borið. Sem betur fer mun þannig unnt að slá því föstu, að þingmönnum sé unnt að horfa algjörlega fram hjá þjóðarheill, þegar þeir taka ákvörðun um viðskilnað við félaga og samninga við andstæðinga. Sannfæring og flokksblinda. Augljóst er, að ekki verða gerðar strangar kröfur að þessu leyti, enda er hér um huglægt atriði að ræða, annars vegar sálarástand þingmannsins sjálfs en hins vegar sljóleiki og skilningsleysi hinna, sem í kringum hann standa. Þann- ig hlýtur þingmaðurinn jafnan að geta átt mat um það sjálfur, hvort honum sé unnt að lýsa því yfir, að sannfæring hans og samvizka sé nú orðin annars konar og öðruvísi en hún áður var — þegar hann var kosinn á vegum félaga sinna til Alþingis. Verður ekki að því fund- ið með neinum haldbærum rökum þótt menn skipti um eða breyti sannfæringu eða samvizku, þegar mikið liggur við. Má jafnan halda því fram, að það sé skynsamra manna háttur, að skipta stundum um sannfæringu og samvizku. Þá er sjálfsagt að leggja á það áherzlu, að um lítilræði sé að tefla, að sannfæringin hafi í engu breytzt um veigamikil atriði, að markmið og leiðir hinnar nýju ríkisstjórnar séu svo til í algjöru samræmi við stefnumál þeirra félaga, sem við var skilið, — að um algjöran misskilning sé að ræða, þegar því sé haldið fram, að andstæðingunum hafi orðið veru- lega ágengt í samningsgerðinni — á kostnað fyrri félaga þingmanns- ins. Um þetta atriði má að sjálf- sögðu lengi deila eða allt að því eins lengi og nokkur þörf er á. Þau skilyrði fyrir aðferðinni, að um sé að ræða sannfæringu þing- mannsins og flokksblindu félag- anna, eru þannig það auðveld viðfangs — úr því að þessi atriði eru ekki sjáanleg, búa aðeins innra með mönnum sjálfum —, að jafnvel er unnt að orða það, hvort nokkur nauðsyn sé á, að um nýja eða breytta sannfæringu sé að ræða, — hvort ekki sé fullnægj- andi einungis að lýsa því opinber- lega yfir, þótt samvizkan sé í rauninni slæm. Frekari könnun á þessu atriði hefur þó sýnilega lítið gildi, þar eð — eins og áður segir — einungis er um að ræða orð af vörum þingmannsins, sem geta verið rétt eða röng eftir atvikum. Þó er nauðsynlegt að standa ekki við orðin tóm heldur fylgja þeim vel eftir, t.d. með samþykkt- um á fundum í flokksfélögum, ef einhver tök eru á, upplýsingum til fjölmiðla um fjölmargar sím- hringingar til þingmannsins, sem hlut á að máli hverju sinni, um eindregin stuðning almennra kjós- enda við hinn nýja málstað. Sýnist ekki skipta hér máli, hvort það eru félagar eða andstæðingar, sem hringja til að láta í ljósi fögnuð sinn yfir framgöngunni. Þá væri rétt að nefna símskeyti, bréf og skilaboð, sem þingmanninum kynnu að hafa borizt, er allt þetta til sönnunar því, að einnig kjós- endur þingmannsins og flokks- bræður víða um landið hafi nú skipt um sannfæringu, öðlast sömu sannfæringu og þingmaður- inn hefur nú, ýmist áður en, samtímis því eða eftir að þing- maðurinn öðlaðist sína. Vel má vera, að heppilegt væri að halda því fram, að kjósendur þing- mannsins hafi orðið fyrri til að öðlast nýja sannfæringu, er síðan hafi breytt sannfæringu þing- mannsins, nema þingmaðurinn sé þannig skapi farinn, að hann vilji með engu móti verða neins konar eftirbátur annarra. Vert er að hafa hugfast í þessu sambandi, að ekki er nauðsynlegt, að ofangreindar upplýsingar til fjölmiðla séu réttar, — þær gera það gagn, sem að er stefnt, allt að einu. Hér er engin hætta á ferð- um, með því að sannleiksgildi upplýsinganna er aldrei kannað. Spurning kynni einungis að verða um samþykktir á félags- eða flokksfundum, en því er til að svara, að þegar til á að taka, eru menn jafnan mjög ósammála um, hvað þar hafi verið samþykkt. Og vitaskuld má jafnan lengi deila um, hvað meint hafi verið með jafnvel bókuðum samþykktum. Um upplýslngar allar til fjöl- miðla ber að fylgja þeirri almennu reglu, að nefna ekki nöfn nema skjallegar sannanir séu fyrir hendi, svo sem bréf eða símskeyti, ef vera kynni að nafngreindur maður eða kona fyndi upp á því að bera af sér fréttina. Persónulegur metnaður. Hér að framan hefur eingöngu verið rætt um þau skilyrði, sem fyrir hendi þurfi aðvera til að viðskiln- aður við fyrri félaga og samningar við andstæðinga séu leyfilegir. Má þannig segja, að hér sé um að ræða jákvæð skilyrði. Hins vegar hefur það komið í ljós í fram- kvæmdinni, að einnig er um að ræða neikvæð skilyrði: §umar ástæður mega alls ekki vera fyrir hendi, og gildir þetta raunar um báða, viðsemjandann og andstæð- inga. Svo að þeir séu nefndir fyrst — með því að það er styttra mál — má þeim með engu móti ganga það eitt til, að kljúfa félag eða flokk viðsemjandans. Á hinn bóginn verður það efst á blaði í fari viðsemjandans, að ferðinni hafi einungis ráðið mál- efnalegar tilfinningar en ekki per- sónulegar. Má hér helzt nefna metnað alls konar, lítt viðráðan- lega löngun til að verða forsætis- ráðherra eða annars konar ráð- herra, óvild í garð eldri eða yngri manna, vonleysi yfir því að vera sífellt í minnihluta á einhverjum vettvangi, o.s.frv., o.s.frv. Verður jafnan að hafa hugfast, að skiln- ingslitlir menn, verri parturinn af almenningsálitinu, kann að halda því fram, að hér liggi fiskar undir steini og hundar grafnir. En þegar að er gáð, er ljóst, að þessi neikvæðu skilyrði valda eng- um erfiðleikum, hvort sem í hlut á, viðsemjandinn eða andstæð- ingarnir. Er jafnan nægilegt að lýsa því yfir, að fyrir engu þessu sé nokkur fótur. Nær það mál þá ekki lengra úr því að sönnun fyrir tilteknu hugarfari manna getur tæpast verið fyrir hendi. - O - Þegar farið hefur verið yfir ofangreinda sviðsetningu, er ljóst, að hér hafa verið ruddar nýjar og athyglisverðar brautir í störfum Alþingis, sem öllum þingmönnum, hvar í flokki sem þeir standa, ætti að vera auðvelt að rata eftirleiðis, sjálfum þeim og Alþingi til heið- urs og frama. Þannig er ljóst, að alls konar stjórnarkreppur munu hér eftir verða úr sögunni, heyra til liðinni tíð eins og svo margt annað. Þó verða menn að sjálf- sögðu að gæta jafnan fyllst vel- sæmis. Þannig má kapphlaupið úr einum flokki í anna, í annan flokk úr öðrum, ekki hefjast of snemma, þannig t.d. alls ekki þegar fyrir fyrsta samkomudag Alþingis eftir kosningar. Sennilega mundi þó ekki að því fundið, þótt málið yrði kannað í kyrrþey fyrstu fundar- daga Alþingis, ef menn gættu þess að láta ekki til skarar skríða fyrr en seinna. Er hér um að ræða viðkvæmt matsatriði og verður jafnan að fylgjast vel með, hvað líður þolinmæði almennings gagn- vart stjórnleysinu. Þá er að síðustu ljóst, að með öllu hefur verið bundinn endi á hina leiðu flokksblindu. Geta nú allir þingmenn, ótrauðir og al- sjáandi, gengið hinar nýju frelsis- brautir. Hörður ólafsson, hrl. Nýtt mötuneyti Ishúsfélags Bolvíkinga Bolungarvík. 11. íebrúar. Um síðastliðin áramót var tekið í notkun nýtt og fullkomið mötuneyti í Ishúsfélagi Bolung- arvíkur. Þar rúmast allt að 80 matar- gestir í einu, en í hinu fullkomna eldhúsi mötuneytisins er hægt að elda fyrir á annað hundrað manns. Nú eru milli 20 og 30 matar- gestir sem að mestu leyti er vertíðarfólk við frystihúsið. Forstöðukona mötuneytisins er Kristín Ólafsdóttir. Gunnar Frá hinu nýja mötuneyti íshúsfélags Bolvíkinga. Ljósmynd Mbl. Gunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.