Morgunblaðið - 14.02.1980, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.02.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL. 10— 11 FRÁ MÁNUDEGI ny ujajttíPí * U£3 'u if ofnota þær, ekki má éta yfir sig af dýrafitu (fremur en annarri fitu) og til þess að taka enga áhættu hættum við með öllu að leggja okkur þetta til munns. Að því leyti má kenna okkur sjálfum um hvernig komið er, en ekki þeim mönnum er gagnrýnt hafa mis- notkun fæðunnar. Má líka segja varðandi allan mat, hollan sem óhollan, að sé hann snæddur óhóflega þá getur hann vissulega leitt til alls kyns kvilla fyrir utan óhagræðið, sem hlýzt af því að bera með sér öll aukakílóin. En um auglýsingaher- ferðina vildi ég segja að hún á nokkurn rétt á sér, þótt ekki megi gera of mikið úr þessum vörum, því við megum heldur ekki fá andúð á blessaðri sveitafæðunni. Hún er holl og góð og nauðsynleg hverjum manni, sé hennar neytt í réttu hlutfalli við önnur nauðsyn- leg efni, sem líkaminn vill fá. Sveitavargur." • Hvað kosta olíumálin? Ofangreinda spurningu hefur bréfritari borið fram hér á eftir: „Við íslendingar höfum haft all-verulegar áhyggjur af þróun olíumála í heiminum og ekki þorað annað en fylgjast vel með þar og kanna hvort við séum að sitja af okkur einhverja möguleika til ódýrari olíukaupa en gerst hafa. Sjálfsagt er það gott og blessað og við höfum sent olíuviðskipta- nefnd okkar út um allar jarðir í leit að olíu og virðist sem nokkur árangur hafi orðið af starfi henn- ar þar sem hún hefur náð ódýrari tilboðum en hingað til hafa þekkst. Nýjasta fréttin í olíumál- unum er tilboð Saudi—Araba um óhreinsaða olíu okkur til handa, en ekki veit ég hvort olíunefndin hefur nokkuð komið þar nærri. En þetta var ekki málið, sem ég vildi ræða, heldur hitt að spyrja hversu mikið hefur starf nefndarinnar kostað okkur á síðasta ári og hinu nýbyrjaða. Menn hennar hafa farið nokkrar ferðir til útlanda og sitthvað fleira hefur þurft að leggja til starfa hennar eins og gengur. Mig langar að fá það upplýst og á sama tíma væri gaman að vita hverjum augum nefndin lítur á þá gagnrýni, sem forstjórar olíufélaganna hafa við- haft um nefndina, m.a. talað um að starf hennar skaði sambönd okkar erlendis o.s.frv. Ég er ekki sérfræðingur í olíu- málum, en sem leikmaður finnst mér vera nokkuð andstæð sjón- armið á ferðinni og má ekki spyrja sem svo hvers vegna er olíufélög- unum ekki gert að kanna sjálfum önnur mið, fremur en að stofna til nýs „aðila" sem sinnir svipuðum málaflokki. Vona að þessar spurn- ingar séu svaraverðar við tæki- færi- Spurull.“ • Góðir barnatímar Nokkur börn höfðu samband við Velvakanda á dögunum og vildu koma ábendingu til sjón- varpsins varðandi barnaefni: —Við höfum alltaf haft gaman af öllu barnaefni, sem sjónvarpið sýnir og viljum helzt alltaf hafa sem mest af því. Þess vegna fannst okkur mjög sniðugt hjá sjónvarpinu þegar farið var að sýna á kvöldin stutta þætti um Múmínálfana. Þótt þeir séu kannski ekki skemmtilegir fyrir eldri krakkana, þá höldum við að það sé nauðsyn- legt að halda áfram að sýna barnaefni á þessum tíma á kvöld- in, strax eftir fréttir og það hlýtur að vera til eitthvert efni sem komið getur í staðinn. Ef það SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Þessi tvísýna staða kom upp á skákmóti í Decin í Tékkóslóvakíu í sumar í viðureign heimamannsins Trapl og júgóslavneska stórmeist- arans Racevics, sem hafði svart og átti leik: 36.... Bg4?, 37. H5xg4 og svartur gafst upp, því að eftir 37.... e2, 38. h7+ - Kxh7, 39. g8-D+ - Hxg8, 40. Hhl er hann mát. Rannáoknir eftir skákina leiddu hins vegar í ljós að svartur hefði getað unnið taflið með því að leika 36.... Kh7! T.d. 37. g8-D - Hxg8 38. Hxg8 - Bf5+, 39. Kal - e2, eða 37. He5 — e2!, 38. Hxe2 — Bf5+, 39. Kal — Hcl+. verður áfram, þá er barnaefni í sjónvarpinu á sunnudögum, mánudögum og þriðjudögum eftir fréttir, á miðvikudögum klukkan sex og annan hvern föstudag eru Prúðuleikararnir. Sennilega hefur sjónvarpið aldrei gert betur við börn en einmitt nú og vonum við að það haldi áfram. Velvakandi getur tekið undir þessar óskir barnanna og leyfir sér að minna á að þótt barnaárið sé búið eru skyldur okkar við börnin enn til staðar. Þessar stuttu myndir fyrir börnin eftir fréttirnar (eftir hitt barnaefnið, sem eru auglýsingar!), hafa mælst vel fyrir og væri óskandi að slíkt efni héldi áfram. HÖGNI HREKKVÍSI „MÖ6/JI .'H'MReÆ lúðucinn minn. . V Sumarbústaða- eigendur Hjón meö 3 stálpuö börn, óska eftir aö taka á leigu sumarbústaö í sumar, eöa hluta af sumri, viö lofum góðri umgengni. Þeir sem heföu áhuga, vinsamlegast hringi í síma 43565. Almenningshlutafélag um fiskeldi Fundur til undirbúnings undir stofnun almennings- hlutafélags um fiskeldi veröur haldinn í Kristalsal Hótel Loftleiða í kvöld fimmtudag 14. febrúar kl. 20.30. Gerö veröur grein fyrir stööu fiskeldismála og störfum undirbúningsnefndar, lögö fram og af- greidd drög aö stofnsamningi og kosin nefnd til aö undirbúa stofnfund almenningshlutafélagsins. Áhugamenn. Fjölmenniö. Undirbúningsnefnd. Cybernet Frábært hljómtæki á hagstæöu veröi CRD 15 Hljómstúdlo. 5 einingar í einni. Samanstend- ur af formagnara — aöalmagnara — Hljóöblöndun- arboröi — útvarpi FM-MW-LW og segulbandi (Metal) Electronisk takkastýring, 2x46 W DIN. 0.09% THD. Aðskilnaöur aöalmagnara og formagnara gefur möguleika á aö nota 200W kraft magnara viö þetta tæki. Verö kr: 445.069.- CP 1050 Plötuspilari í hæsta gæöaflokki IC stýröur, beintengdur drifi, hæggengur jafnstraums mótor. Rafeindastýrö hraöanákvæmni upp í 10%. Sjálfvirkur rofi rífur straum aö lokinni spilun. „Pick up“ innifaliö. Verö kr: 169.200.- Benco, Bolhoiti 4, símar 21945 — 84077.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.