Morgunblaðið - 14.02.1980, Síða 35
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980
EYJARAÐSTEFNAN
„Vel búið skip af
heppilegri stærð
í upphafi máls Hilmars
Rósmundssonar útvegs-
bónda og skipstjóra á
Eyjaráðstefnunni gagn-
rýndi hann þingmenn
Suðurlandskjördæmis
mjög harðlega fyrir það að
mæta ekki á ráðstefn-
unni þar sem þeim hefði
verið boðin þátttaka. Fer
ræða Hilmars hér á eftir:
Hvað er að gerast
í Eyjum?
Ráðstefnu þá, sem nú er að
hefjast um stöðu og stefnu Vest-
mannaeyja, hefði að skaðlausu
mátt boða fyrr, betra er þó seint
en aldrei og hafi þeir þökk fyrir er
að standa. Tilefni hennar er ef-
laust fyrst og fremst sú óheilla-
þróun, sem hér hefur orðið á
síðustu missirum þegar hvert
fiskiskipið af öðru hefur ýmist
verið selt úr byggðarlaginu, eða
verið sökkt í sæ og ekkert komið í
staðinn, þannig að nú er svo komið
að um fjórði hluti þess flota sem
sigldi undir eikennisstöfunum
V.E. gerir það ekki lengur. Trú-
lega megna þessi fundahöld ekki
að snúa þessari öfugþróun við, en
orð eru þó til alls fyrst, og vel
hefði mátt vekja athygli á þessu
stóra vandamáli fyrr, þar sem
strax haustið 1978 tóku sig saman
allmargir útvegsbændur hér, unnu
upp ítarlega skýrslu um rekstur
og afkomu bátaflotans og auglýstu
báta til sölu. Skýrslan sú þó góð
væri og vel uppfærð vakti enga
athygli út fyrir raðir útvegsbænda
sjálfra, en ýmsir sem sáu heilsíður
dagblaðanna, skreyttar myndum
af bátum af ýmsum stærðum
hugsuðu með sér, hvað er að
gerast í Eyjum? Margir töldu að
hér væri engin alvara á ferðum,
útvegsbændur væru aðeins að
vekja athygli á erfiðri stöðu með
þessum auglýsingum. En sann-
leikurinn er sá að þá strax var
orðið uppgjafarhljóð í mörgum, og
mér er ekki kunnugt um að einn
einasti af þeim er þarna auglýstu
hafi hafnað sölu á bát sínum hafi
hún boðist og nokkurt vit verið í
og þó nokkrir bíða enn tilbúnir að
undirrita sölusamning.
Varðar hvert einasta
mannsbarn í Eyjum.
Það er vel við hæfi þegar þetta
vandamál okkar er rætt, að um
leið sé gerð heildarúttekt á fram-
tíðarstöðu Vestmannaeyja, því að
það vita allir sem hér hafa búið,
að verulegur samdráttur í þeim
afla er á land berst, bitnar ekki
einvörðungu á þeim er fiskinn
fanga og vinna heldur nánast á
hverju einasta mannsbarni er
þetta ból byggir.
Hér stenst ekki sú kenning, sem
sett hefur verið fram af ýmsum
spekingum, sem rætt, ritað og
reiknað hafa út æskilegasta stærð
fiskiskipaflotans, að þó að skipun-
um fækkaöi um helming, bærist
;afn mikill afli á land, þar sem
au skip er eftir yrðu myndu bæta
ið sig þeim afla, er hin fengu
r. Hér er því ekkert minna í
en framtíð þessa bæjarfélags
a slíks, því haldi á sem horfir
hlýtur að koma að því fyrr en
síðar að atvinna dragist verulega
eru
skilyrði
fyrir
framtíð
Vestmanna-
eyja.“
—segir Hilmar
Rósmundsson
útvegsbóndi
og skipstjóri
Ililmar Rósmundsson
saman og þar með kaupgeta og
afkomumöguleikar almennings,
með þeim afleiðingum er slíkt
gæti haft fyrir byggðarlagið.
Hvernig má það annars ske að í
bæ sem um áraraðir gat státað af
því að vera stærsta verstöð lands-
ins skuli sú staða koma upp, sem
hér blasir við.
5. nóv. sl. kaus bæjarráð Vest-
mannaeyja þriggja manna nefnd
er kanna skyldi orsakir þeirrar
óheillaþróunar sem fækkun báta-
flotans og samdráttur í útgerð
hefði í för með sér fyrir byggðar-
lagið. Nefnd þessi vann bæði fljótt
og vel, viðaði að sér allskyns
gögnum, ræddi við marga aðila er
hlut áttu að máli, og skilaði
sameiginlegu áliti til bæjarráðs
þann 17. des. sl.
Gífurlegur
aflasamdráttur
megin vandinn
Ég verð að segja það eins og er
að ég varð fyrir vonbrigðum með
þetta nefndarálit. Þar er ekki í
einu orði minnst á það, sem ég tel
vera orsök þessa vanda númer
eitt. Það er að segja, sá gífurlegi
aflasamdráttur sem orðið hefur
hér, sem stafar af stórminnkandi
fiskigengd á Vestmannaeyja- og
reyndar suðurmið. Á áratugnum
1961—1971 komu nær árvisst
sterkar fiskigöngur á miðin hér í
kring, þá þótti það aðeins þokka-
legur vertíðarafli að fá 7 til 800
tonn á 50—60 lesta bát, sem reri
með línu framan af en 7 til 8
netatrossur síðari hluta vertíðar.
Aflinn fékkst nær allur í netin, en
línan var svona til uppfyllingar
þar sem í þann tíð var talið
óráðlegt og nánast orðin hefð að
net voru ekki lögð fyrr en í lok
febrúar eða síðar. Ég leyfi mér að
álíta að með þeirri tækniþróun,
sem orðið hefur síðan, sér í lagi í
veiðihæfni veiðarfæranna, og þar
sem nú er almennt verið með
miklu meiri veiðarfæri en þá
tíðkaðist, að engin goðgá væri þó
sæmilegur vertíðarbátur bæri að
landi 1500—2000 lestir á vertíð,
væri fiskimagnið á miðunum hlið-
stætt því er þá var. Ég held að
óhætt sé að fullyrða, að væru
aflabrögðin á þann veg er hér um
ræðir, væri mikil gróska í útgerð
og öllu athafnalífi hér. En hver er
ástæðan fyrir hinni miklu afla-
rýrnun sem hér hefur orðið.
Sjálfsagt er rétt það álit fiski-
fræðinganna að hrun hafi orðið í
hrygningarstofni þorsksins á
síðustu árum vegna ofveiði og þess
vegna gangi svo fáir fiskar á sínar
hefðbundnu hrygningarslóðir.
Ymsir og þar á meðal ég hafa
talið, að ekki væri ofveiðinni einni
um að kenna hvernig komið væri
heldur hlytu einhver þau skilyrði
að hafa skapast í sjónum hér við
suöurströndina sem yllu því að
fiskurinn kynni ekki eins vel við
sig og áður. Höfum við bent á,
þessu til sönnunar að ufsinn, sem
að sögn hefur aldrei verið ofveidd-
ur hefur jafnvel forðast þetta
svæði ennþá fremur en þorskur-
inn, nú allra síðustu ár.
Hvar er ofveitt
og hverjir ofveiða?
Fiskifræðingarnir fullyrða að
öll skilyrði hér séu ókjósanleg til
hrygningar, og að engin breyting
hafi á orðið frá því að fiskur var
hér og hét, ofveiðinni einni sé um
að kenna, en hvar er þá ofveitt og
hverjir ofveiða. Um þetta hafa
staðið deilur og sýnist sitt hverj-
um eftir því hvar búseta þeirra er.
Vestfirðingar og norðlendingar
sem aldrei segjast fá annað en
stóran og fallegan þorsk í sín
veiðarfæri halda því fram að við
drepum hrygnuna í allt of stórum
stíl áður en hún nær að gegna því
mikilvæga hlutverki sínu að auka
kyn sitt, við héi teljum hinsvegar
að á Vestfjarða- og norðurmiðum
eigi sér stað svo gegndarlaust
dráp á smáþorski að aðeins lítið
brot af þeim fiski sem kemst af
kviðpokastiginu ná þeim aldri að
verða kynþroska. Hvorir tveggju
hafa eflaust nokkuð til síns máls,
en mér finnst vægast sagt óhugn-
anlegar þær aflatölur er ég hef
nýjastar heyrt af Vestfjarðamið-
um.
151 þús. smáfiskar
í 322 tonnum
af Vestfjarðamiðum
Hér í Eyjum hefur á þessu ári
verið landað þremur togaraförm-
um frá þessu svæði. Afli þessara
skipa hefur verið þokkalegur, en
þó lítill miðað við það sem oft
gerist á þessum miðum. Uppistaða
aflans var þorskur, eins og jafnan
er þar vestra og var samanlagður
afli þessara þriggja skipa 321 tonn
858 kg af þeirri fisktegund.
Nú hefur verið tekin upp sú
aðferð í sambandi við stærðarmat
á fiski, að þyngd fisks er látin ráða
í stað lengdar áður. Sýni eru tekin
á sama hátt og fyrr, þau vegin og
deilt í heildarviktina með fiska-
fjöldanum sem metinn er. Með
þessari aðferð fæst út meðalþungi
hvers fisks í farmi. Samkvæmt
niðurstöðum ferskfiskmatsins var
meðalþungi hvers þorsks í þessum
förmum 2.31 kg., 2.1 kg. og 2.08 kg.
og sé reiknað áfram kemur í ljós
að þessi 321 tonn 858 kg. eru
samtals 150.741 þorskur, ef hægt
er að nefna þessi kóð því nafni.
Það fara semsagt 468 stk. í hvert
tonn, og að auki er það opinbert
leyndarmál að meira og minna af
undirmálsfiski fer dautt í sjóinn
aftur.
Þegar þess er gætt að nú skafa í
kringum 80 skuttogarar þessi
smáfiskmið, stærstan hluta úr
árinu, og margir þeirra miklu
afkastameiri en þeir þrír er hér
um ræðir, hlýtur heildar dánar-
tala þorsksins af þeirra völdum að
vera óhugnanleg. En ennþá er
hugmyndin að auka skuttogara-
flotann og það verulega. Ef til vill
er ekkert við þessu að segja, þetta
er víst það sem þjóðin lifir á öðru
fremur. Eins dauði er annars
brauð. Skuttogararnir hafa reynst
veruleg lyftistöng í atvinnulífi
ýmissa byggðarlaga en þeir eiga
trúlega stærstan þátt í því hvert
hér stefnir, því að þó á þessum
áratug sem nú er að enda hafi
þorskklak heppnast vel tvisvar
sinnum þá er allt útlit fyrir að
togararnir séu langt komnir með
að veiða upp árganginn frá 1973
sem ókynþroska fisk og greinilega
eru þeir komnir á fulla sókn í
árganginn frá 1976; það1 sýnir
meðalstærðin á þeim fiski sem nú
berst á land.
1 dag lifum við
á bullandi rányrkju
Bjartsýnismenn halda ennþá í
þá von, að við eigum eftir að fá
góðar vertíðir hér, en þeim fjölg-
ar, sem telja að möguleikarnir á
því að hér fyllist allt af stórum og
fallegum þorski minnki stöðugt,
vegna hins gengdarlausa og vax-
andi smáfiskadráps, sem látið er
viðgangast. í dag lifum við á
bullandi rányrkju en spurningin
er hvort það getur gengið til
frambúðar. Eflaust fáum við svar
við þeirri spurningu þegar for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar
flytur erindi sitt hér síðar á
ráðstefnunni. Ég er því miður
hræddur um að Jón Jónsson verði
ekki eins bjartsýnn nú og hann
var á fundi með okkur 1965. Við
vorum þá uggandi um hve mikið
drepið var af stóru hrygnunni í
nótina. Hann tjáði okkur að við
mættum drepa eins mikið og við
gætum af hvaða fisktegund sem
væri í hvaða veiðarfæri sem væri
nóg væri til. Nú er það ekki svo að
ekkert hafi verið gert til verndar
smáfiskinum. Allstór svæði hafa
verið alfriðuð, önnur tímabundið,
skyndilokunum svæða verið beitt
og möskvi í vörpum stækkaður til
muna og er sú aðgerð talin hvað
áhrifaríkust, þar sem smáfiskur-
inn er í vörpunni lendir á auð-
veldlega að geta synt út um
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980
35
■h
Ljósm. Mbl. SÍKurifOÍr.
möskvana. Staðreyndin er hins-
vegar sú, að stærð möskva í vörpu
skuttogara skiptir akkúrat engu
máli. Þar háttar svo til að allt frá
því að togið hefst og þar til leyst
er frá pokanum um borð í skipinu,
slaknar aldrei á netinu, skipið er
alltaf á ferð og möskvinn alltaf
ílangur en opnast aldrei. Enda
kemur það í ljós að þau þrjú skip
er ég vitnaði til eru öll með mjög
stórriðnar vörpur, svokallaðan
Færeying en þar er möskvastærð í
öllum efri hluta vörpunnar 200
millim. og 155 millim. niður úr.
Auðvitað ætti lítill hluti þess fisks
er þessi skip veiða að nást í þessi
veiðarfæri ef möskvinn væri op-
inn, en sannleikurinn er sá að
möskvinn er það lítill í drætti að
nánast ekkert dýr sem inn í
vörpunni lendir, sleppur þaðan út
fyrr en pokinn er opnaður.
Óheyrilegar byrðar á
útgerð landsmanna
Þó að aflinn sé að sjálfsögðu
stóra málið í sambandi við rekstur
á fiskiskipi þá er þó ýmislegt
fleira sem inní spilar. Nefndin
sem ég gat um fyrr í þessu spjalli
minnist réttilega á srauknar olíu-
verðhækkanir. Það getur ekki ver-
ið neitt smámál fyrir alla þá er
verða að kaupa mikið af olíu,
þegar hver lítri hækkar á einu ári
um nærfellt 100 kr. 1. jan. 1979 var
verð á hverjum gasolíulítra kr.
57.55 en sama dag 1980 kostar sá
sami lítri kl. 155.25, hækkunin er
kr. 97.70 á lítra eða 169.8%. Það er
ekki svo að sjá að blessaðir
alþingismennirnir okkar telji.nú
orðið að þetta sé verulegur baggi á
útgerðinni.
Eftir að olía fór að hækka
verulega var með lögum sett á
svonefnt olíugjald, til þess að létta
þeim byrðarnar er kaupa þyrftu
þessa rándýru orku, og var þetta
svona hliðstætt þeim olíustyrk
sem verið hefur á landi í nokkur
ár. Þetta gjald sem tekið var af
óskiftu aflaverðmæti var upphaf-
lega 15% en af því komu í upphafi
3% til skipta. í september á sl.
hausti var þetta gjald lækkað
niður í 9% og nýjasta afrek
lagasmiðanna 60 var að lækka
þetta enn og nú niður í 5% þrátt
fyrir stöðugar hækkanir:
Ég trúi vart öðru en að samtök
Útvegsmanna mótmæli þessu
harðlega.
Það stenst ekki að óeðlilegar
erlendar verðhækkanir á vöru,
sem hluti þjóðarinnar kemst ekki
hjá að kaupa, en aðrir losna við,
bitni einungis á þeim er neyðast
til þess að nota þessa vöru. Þetta
hlýtur að vera mál þjóðarinnar
allrar, sér í lagi ef varan er notuð
beint til þess að afla dýrmæts
gjaldeyris En þeir eru sjálfsagt
ekki sammála um þetta sextíu-
menningarnir frekar en annað.
Ofan á þetta bætist svo að flest
þau veiðarfæri sem skipin nota í
dag eru gerviefni frarnleidd að
meira og minna leiti úr olíu og
hækka því óeðliega eins og olían.
Einn er sá þáttur enn sem mjög
þungt vegur í rekstri fiskiskips en
það er hinn gífurlegi fjármagns-
kostnaður sem orðinn er vegna
beinna aðgerða stjórnvalda.
Okurvextir henging-
aról á útgerðina
Ég fær engan veginn skilið þá
skýringu nefndarmanna á því að
vaxtakostnaður sé meiri hjá okkur
en annar staðar gerist, vegna þess
að fyrirgreiðsla útvegsbankans
hér sé hraðari en víða tíðkast. Ég
hélt að þetta væri þveröfugt,
vaxtakostnaður myndi lækka við
að fá lánin fljótt, því að þó að það
sé dýrt að taka víxil eða vaxta-
aukalán sem eru vinsælust í dag, í
banka þá er ennþá meiri kostn-
aður samfara því að geta ekki
greitt sínar lausa- eða veðskuldir
þegar svo er komið að nánast öll
fyrirtæki sem útgerðin þarf að
skipta við hvort sem eru verslun-
ar- eða þjónustufyrirtæki, hafa
tekið upp þann hátt að reikna
dráttarvexti á skuldir sem ekki
eru greiddar innan eins mánaðar
frá því til þeirra var stofnað.
Þetta eru engir smávextir eða
54% á ári, þeir útvegsmenn sem
ekki geta greitt þær vörur og þá
þjónustu er þeir þurfa á að halda
nánast kontant, greiða því vextina
fyrir fyrirtækin sem þeir skipta
við og líklega ríflega það. Þegar
það svo bætist við að aflinn er
ekki greiddur fyrr en eftir dúk og
disk og ákvörðun þeirra er hann
kaupa þá verða dráttarvextirnir
oft æði erfiðir mörgum. í þessu
sambandi vil ég taka það skýrt
fram, að hér í Eyjum hefur aflinn
alltaf verið greiddur nánast strax,
en það er meira en hægt er að
segja um ýmsa aðra fiskkaupend-
ur, þeir sem landa sínum afla hér
sitja því við betra borð en aðrir
hvað þetta varðar. Ég vil einnig
láta í ljós það álit mitt varðandi
fyrirgreiðslu Útvegsbankans hér,
að ég tel að hún hafi verið fyllilega
eðlileg og að bankinn sem slíkur
verði ekki með réttu sakaður um
það hvernig hér er komið. Þeir
menn sem mest hafa barist fyrir
hávaxtastefnunni og hafa nú náð
að innleiða hana, hafa sagt að ef
ekki væru greiddir háir innláns-
voxtir á verðbólgutímum, myndi
enginn Ieggja inn fé, og þar með
yrði ekkert til þess að lána út.
Þetta á auðvitað nokkuð til síns
máls, en það ættu þeir að athuga í
leiðinni, að svo er hægt að sauma
að atvinnufyrirtækjunum með ok-
urvöxtum að þau lognist út af eitt
af öðru, af því leiddi þann sam-
drátt í atvinnu að þeim gæti
fækkað verulega sem hefðu ein-
hvern afgang til þess að leggja í
banka, jafnvel þó innlánsvextir
væru háir.
Keyrt um þverbak
í gengismálum
Þá er ég kominn að gengismál-
unum. í langan tíma hefur það
verið vinsælasta úrræði valda-
manna, að lækka gengið þó um
þverbak hafi keyrt á síðustu
tímum. Þetta er gert að því er sagt
er til bjargar útgerðinni. Þetta er
auðvitað algjör þversögn, því að
fátt virkar verr á rekstur skips,
þar sem flest er þarf að kaupa er
innflutt. Þegar ég var að láta
breyta skipi mínu í Danmörku á
sínum tíma, hækkaði verkið um 50
millj. ísl. króna, eingöngu vegna
breytinga á gengi á þeim tíma er
verkið tók, svo eru öll lán er
Fiskveiðisjóður íslands veitir
gengistryggð lán að verulegum
hluta og hækka þau því sjálfkrafa
við hverja gengisbreytingu en í
þeirri lánastofnun eru lánakjör
ákaflega misjöfn eftir því hvenær
lánið er tekið og er það tæpast
vansalaust að svo skuli vera í
opinberum sjóði. Þeir sem ef til
vill hagnast á gengisfellingu í bili,
eru að sjálfsögðu þeir sem mikið
flytja út. Þeir fá þá eitthvað fleiri
en verðminni krónur fyrir fram-
leiðslu sína, til þess meðal annars
að greiða þær kostnaðarhækkanir
er gengisfellingin orsakar. Það
ættu þeir að hugleiða sem vinna
og flytja út afurðir, áður en næsta
gengisfelling verður gerð, eða hert
ennþá á gengissigi, að við hverja
slíka aðgerð eykst sá verðmunur
sem er á ferskfiski hérlendis og
Hiuti af
Eyjahöfn
og byggð.
erlendis. Það eitt gæti auðveldlega
orðið til þess að auka enn sigling-
ar skipanna með eigin afla, en
Vestmannaeyjabátar hafa aldrei
gert eins mikið af því og á síðasta
ári. Og á þessu ári, nú þegar hafa
þrír Eyjabátar haldið á erlendan
markað með afla sinn og fleiri
farið ef aflatregða hefði ekki
komið í veg fyrir það.
Ný og fullkomin skip
stuðla fyrst og fremst
að lausn málsins
Ég hefi nú lýst því hverjar ég tel
höfuðástæður þess hruns, sem
orðið hefur í þátaflotanum hér.
Eflaust mætti nefna fleiri atriði,
en þar sem ég er kominn yfir þau
tímamörk er mér voru ætluð læt
ég þetta 'nægja að sinni. En
hvernig er þá hugsanlegt að snúa
þessari öfugþróun við?
Margumtöluð nefnd ályktar að
með því að setja á stofn sameigin-
lega beitustöð megi verulega
draga úr rekstrarerfiðleikum
þeirra báta, sem eftir eru. Ég er
aftur á móti þeirrar skoðunar að
ekki gerðust stórir hlutir þó að
slíku fyrirtæki yrði komið upp.
Línuútgerð er ákaflega dýr í dag
og það sem meira er að Vest-
mannaeyjamið hafa aldrei verið
og eru síst nú gott línuveiðisvæði,
og þá sjaldan góður afli fæst er
það fiskur í lægstu verðflokkum.
Fyrir tveimur árum hljóp nokkur
gróska í þessa útgerð, 8 eða 10
bátar keyptu sér línuveiðarfæri en
hverjir nota þau í dag? Þeir eru
þrír, og einn þeirra er ekki á
Vestmannaeyjamiðum.
Ef íslendingar ætla áfram að
lifa á því að sækja gull í greipar
Ægis, þá dugir ekki að láta
Vestmannaeyjaflotann eða annan
fiskiskipaflota drabbast niður,
honum verður að halda við, ég tel
það hinsvegar fjarstæðu eins og
staðan er nú, að bæta enn við
skuttogaraflotann eða svonefndan
loðnuflota. Það hefur sýnt sig að
þrátt fyrir mjög verulegan sam-
drátt í afla hér, hafa harðduglegjr
aflamenn getað borið að landi
mikið af úrvalsfiski, hafi þeir í
höndunum vel búin skip af þeppi-
legri stærð. Hér eru þó nokkrir
úrvals skipstjórar, sem fullan hug
hafa á að komast yfir slík at-
vinnutæki. Ég held að besta lausn-
in á þessu vandamáli, væri að
aðstoða þá til þess að eignast slík
skip.
Það er hinsvegar staðreynd að
ekkert skip hvort sem það heitir
togari eða trilla sem byggð eru nú
á tímum getur staðið undir halla-
lausum rekstri, með þeim lána-
kjörum er nú gilda. Það yrði því
einnig að vinna að því í leiðinni að
stefnu okurvaxta og gengishruns
yrði varpað fyrir borð.
Ekki gefur sú erfiða fiskverðs-
fæðing, sem nú hefur séð dagsins
ljós ástæðu til að ætla að áhugi
fyrir útgerð aukist, því hér er
greinileg lækkun á, miðað við
tilkostnað, og enn bólar ekkert á
verði sumra fisktegunda.
Bátarnir halda áfram að afla,
ekkert er greitt og dráttarvextirn-
ir hlaðast upp. Það verður að
greiða fyrir fiskinn, það sem
sannanlega kostar að afla hans
hverjir sem það greiða, og sú
greiðsla verður að eiga sér stað á
eðlilegum tíma.
Miðstýring sjávar-
útvegsins taki við sér
Nú er svo illa komið íslenskum
sjávarútvegi að honum er nær
öllum miðstýrt frá hinu háa sjáv-
arútvegsráðuneyti og/eða Alþingi.
Hér búa um 2% af þjóðinni, en
við erum, eigum við ekki að segja,
það vel sett, að þrír alþingismenn
eiga hér lögheimili þ.e.a.s. 5% af
þeim 60 sem ferðinni ráða. Þeir
eru að vísu út þremur stjórnmála-
flokkum og hafa þess vegna ef-
laust þrjár skoðanir á hverju máli.
Við verðum skilyrðislaust að gera
þá kröfu til þeirra, að þeir brjótl
odd af oflæti sínu og sameinist um
viðhlítandi lausn á þeim vanda er
að okkur steðjar þannig að við
getum hér eftir sem hingað til
unað glöð á okkar fallegu Heima-
ey-
Bragakaffi
Waitrose tegrisjur
Bulgar jaröarber
Waitrose
bakadar baunir
Appelsínur .....
Klementínur . . . .
Greip ..........
Sykur ..........
Hagkaups
W.C. pappír . . . .
819 pr. pk.
799 100 stk.
959 1/1 dós
479 1/2 dós
495 pr. kg
795 pr. kg
495 pr. kg
275 pr. kg
245 2 rúllur
Opið til 10 föstudag
í Skeifunni 15
og til hádegis á laugardag
HAGKAUP
Kjörgarði, Lækjargötu og Skeifunni