Morgunblaðið - 14.02.1980, Side 36

Morgunblaðið - 14.02.1980, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980 Ný starfsemi mála- skólans Mímis MÁLASKÓLINN Mímir hefur ný- lega fengið umboð fyrir EF-skólana á Norðurlöndunum. Skammstöfun- in EF merkir Europeiska Ferieskol- an og stendur stofnunin fyrir námi í mörgum löndum Evrópu. Skólinn var upphaflega sænskur en skipu- leggur námsferðir til Englands, Frakklands. Þýskalands. Austur- ríkis og Bandarikjanna. Fyrstu ferðirnar sem EF skipu- leggur fyrir Mími eru hópferðir til Hastings í Englandi, 1. júní til 1. júlí. Dvelja nemendur í fjórar vikur á völdum enskum heimilum og stunda nám í ensku jafnframt því sem þeir njóta sumarleyfis. Áætl- aður kostnaður við hvora ferð er 464.000 krónur. Innifalið í verði er uppihald og fæði, flugfar báðar leiðir, ferð frá flugvelli ytra á skólann og til baka, tvær skoðunar- ferðir til London, ein skoðunarferð um Suður-England, 18 kennslu- stundir á viku, afnot af tómstunda- aðstöðu EF og aðstoð fararstjóra. Ferðir þessar eru einkum ætlaðar unglingum 14—18 ára. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, INGIBJÖRG AUSTFJÖRD, er andaöist aö Kristneshæli föstudaginn 8. febrúar, veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju, laugardaginn 16. febrúar kl. 13.30. Ásgeir Rafn Bjarnason, Anna Steinsdóttir, Áslaug Eínarsdóttir, Haraldur Helgason, Stefán Einarsson, Guómunda Jóhannsdóttir, Helga Einarsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn. t Móöir okkar, GRÓA SIGURRÓS SIGURBJÖRNSDÓTTIR, Kleppsvegi 66, sem lézt aö heimili sínu miövikudaginn 6. febrúar, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 14. febrúar kl. 3.00. Fyrir hönd aöstandenda, Sigríöur Kristjánsdóttir, Sigurbjörn Kristjánsson, Margrét Kristjánsdóttir, Guörún Kristjánsdóttir, Birna Kristjánsdóttir, Dagbjört Kristjánsdóttir. t Eigínmaður minn og faðir okkar, EINAR SIGURÐSSON, Hverfisgötu 106 A, verður jarösettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. febrúar kl. 10.30. Blóm og kransar afþakkaö. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Asma- og ofnæmisfélagið. Rannveig Konráós og börn. + Eiginmaöur minn, sonur og faðir, ÖRN SIGURDSSON, vélstjóri, Kelduhvammi 5, Hafnarfiröi, veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi laugardaginn 16. febrúar kl. 10.30. _. .. Sigriöur Jónsdóttir, og börn hins látna. Oddfríöur Ingólfsdóttir Faöir okkar og tengdafaðir, GUNNAR VIGFÚSSON, frá Flögu, Árveg 6, Selfossi, er andaöist i Landakotsspítala 6. febrúar s.l., veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 15. febrúar kl. 15. Karl Jóh. Gunnarsson, Oddný G. Þórðardóttir, Sveinn P. Gunnarsson, Sigrún Gísladóttir. + Þökkum af alhug auösýnda samúð viö andlát og jaröarför sonar okkar, KRISTJÁNS VIGNIS. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd annarra vandamanna, Rósa Hálfdánardóttir, Jón Jensson. + Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GUÐRÚNAR ERLENDSDÓTTUR, frá Noröurgaröi í Mýrdal Jón Guömundsson, Siguröur Jónsson, Rannveig Jónsdóttir, Elías A. Karlsson, Ólafía Jónsdóttir, Theódór Vosk, Erlendur Jónsson, Sesselja Þórðardóttir, Valdimar Jónsson, Auöur Pedersen og barnabörn. Sólskinið er aldrei elskað heit- ar en í skammdegi Þorrans og febrúarstormanna. Fáar lýsingar í fáum orðum hafa orðið mér hugstæðari en þessar ljóðlínur Davíðs frá Fagraskógi. „Sólskinsbarn og systir allra er syrgja og þjást." Sumir hafa alltaf sólskin í för með sér. Það er sannarlega ein af náðargjöfum Guðs. Og Kristur var bjartsýnn og skyggn á þessa birtu, þegar hann sagði við vini sína og samferða- fólk: „Þér eruð ljós heimsins." Og Páll postuli talar um sitt bezta safnaðarfólk sem „himin- ljós í heiminum." Alltaf finnst mér einhver ljómi leika um þau sæti í safnaðarheimilinu, þar sem sól- skinsbörnin sátu. Eins þótt þau hafi kvatt þennan heim fyrir löngu eða komi þangað ekki framar. Samt er ekki svo að skilja að ekki verði raunir og skuggar á vegi þessa sólskinsfólks. „Getur undir glaðri kinn grátið stundum hjarta," sagði einhver hagyrðingur í gamla daga. En sigrandi birta hækkandi sólar sigrar þar hverja stormi þrungna skammdegisnótt. Og sólskinsbörn eru helztu heillagjafar heimsins. Gott er að geta tekið sig upp frá áhyggjum, lífleiða og argi hversdagsins og sezt um stund í sólskinsblett. Það hlýnar og birtir, hlánar og skánar. í stað biturleika og beizkju finnur þú að „eitthvað himneskt og hlýtt kom við hja- rtað í þér.“ Jafnvel í stuttri ferð með strætisvagni gæti vorblærinn allt í einu fengið völd. Og í barmi þar sem skuggar og frost höfðu setzt að er komið vor með blíðu og söng. Samt gæti það komið fyrir að nokkur höfug tár læddust óboðin fram á hvarm, meðan setið var í sólargeislanum. Það var hélan í sálinni að þiðna líkt og frostrós á gluggar- úðu í gamla daga. En bezt er samt, að svo virðist oft að unnt sé, að varðveita þetta sólskin um stund. Sólskinsbörnin eiga oftast einnig þann undursamlega hæf- ileika, að geta skilið eftir geisla, þegar þau kveðja eða eru kvödd. Þau hafa sama eðli og ungi maðurinn sem sagt er frá í fyrstu bókum biblíunnar. Hann Jósef Jakobsson. Hann var sendur í ánauð jafnvel af eigin bræðrum, og var landflótta í framandi landi. Samt varð hann gleðin á heimili harðstjórans, geislinn í myrkr- Sól- skins- barn astofu fangelsisins. Samt var hann sjálfur útlagi vinaraugum fjær, svikinn og seldur í ánauð. Hafði sannarlega ástæðu til beizkju og haturs. Svipað mætti segja um annan ungan mann, sem hét Davíð og var smali frá litlu en frægu þorpi, sem enn heitir Betlehem og oft er nefnt um jólin. En hann kom til konungshirð- ar með hörpu sína, söngva og bros til að hrekja myrkrið úr sál ógæfusama konungsins, sem barðist við eigin ógæfu, syngja fyrir hann og leika á hörpuna sína. Um þetta er allt hægt að lesa í Gamla-testamentinu, sem er frægasta rit fornaldar. Og þótt grjót sé þar nóg, glitra perlur og gimsteinar ævarandi speki og sannleika í hverju spori, ef vel er gáð. En satt að segja þurfum við ekki svo langt að leita sólskins og sannleika, þótt allir hafa gott af að gefa sér tíma til helgilestr- ar á hljóðri stund. Sólskinsbörn eru hvarvetna sem vagn á vegi, ef við eigum augu, sem sjá dýrð Guðs og geisla dags með hækkandi sól. Ég man aldna konu, sem lá árum saman í rúminu. Samt átti hún alltaf sólbros að veita, auðlegð af huggun, blíðu, sögum og gjöfum. Einn sykurmoli hennar gat gjörbreytt hörðum heimi, líkt og töfrar í ævintýri. Eitt bros, eitt orð, ein snerting hlýrrar handar og skuggar bernskunnar fuku út í buskann á örskotsstund. Hún dó á jólanóttina. Og mér finnst enn þá, eftir áratugi, að það hafi verið eina stund ársins valin við hæfi hennar til að kveðja heiminn. Hjá henni var eiginlega alltaf jólaljós og jólanótt. Mikið vildi ég hafa getað borið bros hennar og ljós með mér út í myrkrin. Nú eru jólin að baki. En ættum við ekki að bera birtu þeirra, ljósin sem þau kveiktu, með okkur allar götur ársins 1980. Þannig gætum við öll orðið sólskinsbörn í hörðum, dimmum, köldum og grimmum heimi, líkt og systir Theresa, frægasta kona ársins 1979. Hvað gæti verið sælla en geyma vor um haust? Geyma jólaljós og vorbirtu, hvað sem mæta kann á villuvegum von- brigða, rauna og heimsku. Þannig er bezt að svala þrá samferðafólksins eftir birtu og yl. Allir þrá að setjast að um sinn í sólskinsbletti. Og þar jafnast engin birta á við helgi þá, sem nefndist hjartafriður. Það er sumar Guðs í hörðum heimi. Þaðan stafa bros og speki, söngur og gjafir sólskinsbarnanna, ungu mann- anna og gömlu konunnar, sem getið er í þessum orðum: „Sól- skinsbarn og systir allra, er syrgja og þjást." Göngum þannig um í Guðs friði. Reykjavík, 7. jan. 1980. Árelíus Níelsson + Þökkum innilega vináttu og hlýhug vegna andláts fööur okkar, ‘ tengdafööur og afa, BALDURS ÖXDAL Jóhanna Guörún Baldursdóttir, Kjartan Haraldsson, Gunnar Baldursson, Svala Guömundsdóttir, Kristveig Baldursdóttir, Halldór S. Sveinsson og barnabörn. + Sendum öllum alúöarþakkir fyrir samúö og vinarhug viö fráfall eiginkonu minnar, JÓHÖNNU SIGURÐARDÓTTUR, Gunnar Kristófersson, Hrafnistu, og aörir aöstandendur. Skrifstofa mín veröur lokuð föstudaginn 15. febrúar vegna jaröarfarar. Jón Ólafsson, Lögg. endurskoðandi, Grandagarði 11. Ættarmót í Hróarsdal í Skagafirði NIÐJAR Jónasar Jónssonar bónda og smáskammtalæknis, sem bjó í Hróarsdal í Hegra- nesi, Skagafirði, efna til ætt- armóts laugardaginn 9. ágúst i sumar. í ár eru liðin 140 ár frá fæðingu Jónasar. Hann átti mörg börn og afkomendur hans eru fjölmargir. Ættarmótið verður haldið í Hróarsdal. Nánari upplýsingar eru gefnar hjá Þórarni Jónas- syni í Hróarsdal, Páli Jónas- syni, Rauðagerði 26, Reykjavík, sími 82505, og Sigurði Jónas- syni, Möðruvallastræti 1, Ak- ureyri, sími 96-22529. Þeir, sem ætla að taka þátt í ættarmótinu, eru beðnir að tilkynna þátttöku fyrir 1. júní. AUGLYSINGASIMINN ER: ..... = JWorounblobib

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.