Morgunblaðið - 14.02.1980, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980
47
Norðmenn sigursæl
astir í gegn um árin
HÉR AÐ neðan má sjá skiptingu allra verðlauna á Vetraról-
ympiuleikum frá árinu 1924 til ársins 1976. Norðmenn hafa
hlotið flest verðlaun, 142 talsins.
Þjóðir gull silfur brons samanlagt
Noregur 49 51 42 142
Rússland 49 34 35 118
Bandaríkin 30 36 28 94
Austurríki 22 31 27 80
Finnland 23 34 21 78
Svíþjóð 22 21 25 68
Sviss 15 17 16 48
A-Þýskaland 12 10 16 38
X-Þýskaland 14 11 10 35
Frakkland 12 9 12 33
Kanada 11 7 14 32
IloIIand 9 10 9 28
Ítalía 10 7 7 24
V-Þýskaland 7 8 7 22
Ath. X-Þýskaland keppti sem ein þjóð frá árinu 1952 til 1964.
Stórar tölur í íshokkí
KEPPNIN í íshokkí i Lake
Placid hófst strax í fyrradag.
Rússar, Tékkar og Kanadamenn
sýndu snilldartakta gegn sér
mun lakari liðum. Þannig sigr-
uðu Rússar Japani 16—0, Tékkar
Norðmenn 11—0 og Kanada-
menn sigruðu Hollendinga 11 — 1.
{ öðrum leikjum sigruðu Rúm-
enar Vestur-Þjóðverja 6—4,
Bandarikin og Sviþjóð skildu
jöfn, 2—2, og Pólverjar sigruðu
Finna 5—4.
Keppnin í göngunni
verður afar hörð
GANGAN á Ólympíuleikunum í
Lake Placid hefst í dag. Er þetta
í fyrsta skiptið í sögu ÓL, að
gangan fer fram á gervisnjó. Svo
verður að vera, því að lítið hefur
snjóað í Lake Placid að undan-
förnu. Ógerlegt er að segja til um
hverjir hreppa hin eftirsóttu
verðlaun, en talið er að a.m.k. 10
af 58 keppendunum gætu komið
fyrstir i mark.
Einn þeirra er Thomas Wass-
berg, 23 ára gamall Svíi, sem var
svo heppinn að draga síðasta
rásnúmerið, nr. 58. Næstur á
undan honum fer Nikolai Zimya-
tov, 24 ára gamall Sovétmaður,
einnig sigurstranglegur. A rás-
númeri 56 er Pólverjinn Jozef
Luszczek, sigurvegarinn í 15
kílómetra göngunni á HM 1978.
t Með mjög há rásnúmer eru
einnig þrír af bestu göngumönn-
um veraldar, sem vert er að veita
athylgi. Það eru Norðmennirnir
Lars Erik Eriksen og Oddvar Bra
og Bandaríkjamaðurinn Bill Koch.
Bra sigraði á HM 1979 og Koch
var silfurverðlaunahafi á
Ólympíuleikunum 1976. Álitið er
að einhver þeirra sem þegar er
getið hremmi gullið, en ekki er það
þó alveg víst.
Knut Aaland frá Noregi varð
sjötti í Innsbruck 1976, hann hefur
rásnúmerið 8 og gæti komið á
óvart. Einnig má geta Sovét-
mannsins Evgeny Belayev. Hann
varð annar í 15 km göngunni í
Innsbruck um árið og aftur í öðru
sæti í 15 og 50 km göngunni á HM
1978. Landi Belayef, Nikolai
Barzhukov, sigraði í 15 km göngu
á HM 1978, þannig að þar er
enginn aukvisi á ferðinni. Norður-
landabúarnir Oves Aunli frá Nor-
egi, Stig Jeader frá Svíþjóð og
Jorma Aalto frá Finnlandi eru
einnig í fremstu röð og gætu
hæglega hreppt verðlaun.
Brunbrautin í Lake Placid þykir bæði vera erfið og hættuleg.
Brunmennirnir geta náð allt að 150 km. hraða i brautinni. Það er eins
gott að jafnvægið sé í lagi. Keppnin í bruni fer fram í dag.
Ted Bee reynir að komast framhjá Ágústi Lindal í leiknum í gærkvöldi. Ljósm. Mbl. Emilía.
KR-ingar úr leik
— VIÐ getum nánast afskrifað
íslandsmeistaratitilinn eftir
þetta tap og verðum því að
einbeita okkur að bikarkeppn-
inni, sagði Jón Sigurðsson prim-
us motor KR-Iiðsins eftir tapið
gegn Njarðvíkingum í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi 71:61,
eftir að staðan hafði verið 39:21 í
hálfleik. Já, þetta er ekki prent-
villa, KR-ingarnir skoruðu að-
eins 21 stig í fyrri hálfleiknum
og muna elztu menn ekki jafn
lága stigaskorun hjá KR-liðinu.
KR-ingarnir hafa með þessum
ósigri tapað 8 stigum meira en
Valur og 4 stigum meira en
UMFN og það er óhætt að taka
undir það með Jóni að íslands-
bikarinn verður varla geymdur i
Frostaskjólinu næsta árið.
— Þetta var sanngjarn sigur
hjá Njarðvíkingum, bætti Jón
Taiwan
varpað
á dyr
28 kínverskir íþróttamenn eru
meðal þátttakenda á ólympiu-
leikunum í Lake Placid og er það
í fyrsta skiptið sem fulltrúi Kína
kemur frá móðurlandinu, áður
hefur Taiwan gengt því hlutverki
vegna stjórnmálaflækju í heims-
hlutanum.
Hins vegar voru 18 íþórtta-
menn frá Taiwan mættir á vett-
vang og var ætlun þeirra að
keppa fyrir hönd Kína eins og
vcnjulega. En þeim var ekki
hleypt inn í Ólympíuþorpið.
Sigurðsson við og það voru orð að 1
sönnu. Þeir léku mun betur en
íslandsmeistararnir í gærkvöldi ef
undanskilinn er fyrri helmingur
seinni hálfleiksins. Aðeins Garðar
Jóhannsson lék af fullum styrk-
leika og Birgir Guðbjörnsson tók
mikinn sprett í seinni hálfleiknum
en aðrir voru langt frá sínu bezta,
jafnvel Jón Sigurðsson, sem sjald-
an bregst. Að þessu sinni urðu
honum á ótrúlega mörg mistök.
Njarðvíkingarnir voru mun jafn-
ari með þá Gunnar Þorvarðarson
og Guðstein Ingimarsson sem
jafnbeztu menn, svo og Ted Bee,
sem var geysisterkur á lokamínút-
unum. Þá vakti kornungur nýliði,
Smári Traustason, verulega at-
hygli fyrir yfirvegaðan leik í
bakvarðarstöðunni og frábærar
sendingar.
En snúum okkur að leiknum.
Hann var nokkuð jafn til að byrja
með en síðan tóku Njarðvíkingar
afgerandi forystu enda hittni
SVO sem frá var greint í Mbl.
fyrir skömmu, átti knattspyrnu-
deild KA von á vestur-þýskum
þjálfara. Átti hann að koma til
landsins í dag. Var búið að ganga
svo frá hnútunum, að KA-menn
töldu aðeins formsatriði að skrifa
undir samning og ráða manninn.
Ætlaði hann að dveljast hér í
viku og koma siðan alkominn um
miðjan apríl. Nú er maðurinn
KR-inga með ólíkindum slök.
Staðan í hálfleik 39:21 eða eitt stig
á mínútu hjá KR og það var ekki
nema von að hörðustu KR-aðdá-
endur hristu hausinn.
En í upphafi seinni hálfleiksins
komu KR-ingarnir mjög ákveðnir
til leiks og náðu sínum langbezta
leikkafla og eftir 9 mínútur voru
þeir svo gott sem búnir að jafna
44:45 og eftir 13 mínútur jöfnuðu
þeir loks 55:55. En upp úr því sigu
Njarðvíkingar fram úr að nýju og
sigur þeirra var öruggur og verð-
skuldaður.
Stig KR: Garðar Jóhannsson 24,
Birgir Guðbjörnsson 12, Jón Sig-
urðsson 9, Geir Þorsteinsson 6, Árni
Guömundsson 6 og Þröstur Guö-
mundsson 4 stig.
Stig UMFN: Ted Bee 20, Guð-
steinn Ingimarsson 14, Gunnar
Þorvarðarson 13, Júlíus Valgeirsson
6, Jón Viðar Mathiesen 6, Smári
Traustason 6, Jónas Jóhannesson
3, Brynjar Sigmundsson 2 og Ingi-
mar Jónsson 2 stig. __ss
hins vegar hættur við allt saman
og kom það fram er forráðamenn
KA hringdu til hans í fyrrakvöld.
Þetta kemur sér vægast sagt
illa fyrir KA. þar sem dýrmætur
timi er farinn til spillis. Knatt-
spyrnumenn félagsins eru þó
byrjaðir að æfa og sér Magnús
ólafsson sjúkraþjálfari um æf-
ingarnar til bráðabirgða.
—sor.
KR — Garðar Jóhannsson 4, Birgir Guðbjörnsson 2, Jón Sigurðsson 2, Árni
Guðmundsson 2, Geir Þorsteinsson 2, Þröstur Guðmundsson 2, Ágúst
Líndal 1, Bjarni Jóhannesson 1.
UMFN — Gunnar Þorvarðarson 3, Guðsteinn Ingimarsson 3, Smári
Traustason 3, Júlíus Valgeirsson 2, Jónas Jóhannesson 1, Jón Viöar
Mathíesen 1, Brynjar Sigmundsson 1, Valur Ingimundarson 1, Ingimar
Jónsson 1.
Þjóöverjinn hættur við KA!
Kanadamaðurinn tal-
inn sigurstranglegur
í brunkeppninni
BRUNKEPPNIN á Ólympíuleik-
unum í Lake Placid hefst í dag,
en hún fer fram á hinu svokall-
aða Whiteface-mountain. Enginn
islensku keppendanna tekur þátt
í bruni, en göngumennirnir
islensku verða í sviðsljósinu í
dag.
I æfingaferðunum fyrir brunið
náðj Ken Read frá Kanada lang-
besta tímanum. Read hefur sigrað
í 2 af síðustu þremur brunkeppn-
um heimsbikarsins og hann varð í
öðru sæti í þriðju keppninni. Hann
er þess vegna talinn sigurstrang-
legastur í brunkeppninni í Lake
Placid.
„Peter Múller frá Sviss og
Austurríkismennirnir Leonerd
Stock og Peter Wirnsberger verða
líklega helstu keppinautarnir, en
hver sem er úr 15 manna hópi
gæti tryggt sér verðlaun, svo jöfn
verður keppni", sagði Read nýlega.
„Meira að segja hver sem er úr
kanadíska liðinu", bætti hann við,
en liðið skipa auk hans þeir David
Irwing, David Murrey og Steve
Podborski.
Annars eru blikur á lofti hjá
austurríska liðinu, þar sem vara-
maður liðsins hefur slegið aðal-
mönnunum gersamlega við í æf-
ingaferðum upp á síðkastið. Það er
því óljóst hverjir keppa fyrir hönd
Austurríkis í dag.