Morgunblaðið - 08.05.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
103. tbl. 67. árg.
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Killanin reynir
að bjarga OL
Moskvu. 7. maí. AP.
KILLANIN lávarður, íormaður Alþjóða ólympíunefndarinnar
(IOC). ræddi í dag við Lconid Brezhnev, for.seta Sovétríkjanna, til
þess að reyna að bjarga Ólympíuleikunum í Moskvu á síðustu
stundu og sagði að viðra'ðurnar hefðu vcrið hreinskilnislegar.
Ilann sagðist vilja láta öðrum eftir að túlka ummælin þegar
hann var inntur eftir þeim frekar. Killanin sagði að hann hefði
átt mörg samtöl í síma við Jimmy Carter forseta og sagt honum
íyrirfram að hann ætlaði til Moskvu.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum hvatti Killanin Rússa til að
bæta pólitísk skilyrði þannig að
kapplið gætu tekið þátt í leikunum
og haft að engu ákvörðun Banda-
ríkjamanna um að hundsa þá.
Eftir fund framkvæmdanefndar
IOC í Lausanne í síðasta mánuði
bauðst Killanin til að hitta bæði
Brezhnev og Carter. I dag gaf
hann í skyn að hann kynni að
hitta Carter, en sagði að það hefði
ekki verið ákveðið. Hann kvaðst
fara frá Moskvu í fyrramálið til
Sviss þar sem mikilvægir fundir
væru ráðgerðir.
Areiðanlegar heimildir herma
að Killanin hafi skýrt Brezhnev
frá tillögum nokkurra Evrópu-
landa um að dregið verði úr áróðri
á leikunum. Samkvæmt tillögun-
um er meðal annars gert ráð fyrir
að íþróttamenn gangi inn á leik-
vanginn án þjóðfána sinna, að
aðeins Ólympíufáninn blakti við
hún á leikunum og að aðeins
Ólympíusöngurinn verði leikinn.
Rússar lögðust eindregið gegn
þessu í fyrstu, en seinna er sagt að
þeir hafi fengið bakþanka þegar
Killanin hélt því fram að valið
stæði á milli þess að breyta
hefðum Ólympíuleikanna eða
leggja þá niður.
Bush og Kennedy
gefast ekki upp
Frá fréttaritara Morgunblaðsins,
Önnu Bjarnadóttur í Washington mið-
vikudag:
FORKOSNINGAR bandarísku
stjórnmálaflokkanna á þriðjudag
fóru eins og við var búizt. Ronald
Reagan og Jimmy Carter unnu
auðveldlega i Indiana. Norður-
Karólínu og Tennessee og Edward
Kennedy og George Bush unnu í
District of Columbia.
Samkvæmt tölum CBS sjón-
varpsstöðvarinnar hefur Reagan
nú 885 fulltrúa á landsþingi re-
públikana í sumar, en 998 er þörf
tii að hljóta útnefningu flokksins.
Hann þarf aðeins að sigra i
heimariki sinu, Kaiiforníu, 3. júni
n.k., til að vera öruggur um
útnefninguna. Þar verða 165 full-
trúar kjörnir og þeir falla allir
sigurvegaranum i skaut.
Bush er hvattur í sífellu til þess
að hætta baráttunni, en hann ætlar
að halda henni áfram til endaloka,
eins og James Baker, framboðs-
stjóri hans sagði í gær, „óperunni er
ekki lokið fyrr en feita konan er
búin að syngja".
„Milli manns og hests og hunds, hangir Ieyniþráður.“
Kennedy er einnig hvattur í
vaxandi mæli til að hætta baráttu
sinni. Carter hefur nú 1381 fulltrúa
af 1666 nauðsynlegum til að vinna
útnefningu demókrata. Kennedy
ætlar að halda baráttunni áfram og
vonast til að ganga vel í New Jersey
og Ohio 3. júní, en það verður
síðasti dagur þessa hluta kosn-
ingabaráttunnar. Ef Kennedy geng-
ur vel þar, gæti hann haft mikil
áhrif á stefnumótun flokksins á
landsþinginu, en varla komið í veg
fyrir útnefningu Jimmy Carters.
. . . _ c\tr. SlKW.
Ljosm.
Muskie tekur vel í
Afganistan-tillögu
Washington, 7. maí. AP.
ÖLDUNGADEILD Bandarikja-
þings samþykkti í dag með 12
atkvæðum gegn 1 tilnefningu Ed-
mund Muskie öldungadeildar-
manns í embætti 58. utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og hann lýsti
því yfir að hann yrði aðaltals-
maður Jimmy Carters forseta i
utanrikismálum.
Eina mótatkvæðið var frá Jesse
Helms, repúblikana frá Norður-
Karólínu, sem sagði að þótt honum
væri vel við Muskie fyndist mörg-
um Bandarikjamönnum að stefna
hans hefði verið „algert ólán“ .
Búizt er við að öldungadeildin
staðfesti tilnefninguna með yfir-
gnæfandi meirihluta.
Áður hafði Muskie hrósað tillögu
Evrópuríkja um að Afganistan verði
gert hlutlaust og sagt að hann væri
ekki úrkula vonar um að takast
Ný mótmæli í Afganistan
Nýju Delhi, 7. maí. AP.
AFGANSKUR námsmaður lét lífið
þegar mótmælaaðgerðir hófust á
ný i Kabúl á laugardag.
Tölur um fjölda þeirra ungl-
inga, sem látið hafa lífið að
undanförnu eru á reiki. Margir
telja að yfir 200 unglingar 12 til 17
ára hafi fallið, en heimildarmenn í
Kabúi segja að varlega áætlað hafi
tæplega 80 fallið.
Samkvæmt fréttum frá Kabúl
hafa yfir þúsund manns verið
handteknir frá því að unglingamót-
mælin hófust 21. apríl. í þeim hópi
eru stjórnarhermenn, sem neitað
hafa að hlýða fyrirmælum sovézkra
og afganskra yfirmanna um að
skjóta á mótmælagöngu 4000 skóla-
nemenda, samkvæmt heimildunum.
mætti að leysa gíslamálið í íran.
Hann kvað Carter forseta hafa
skýrt tekið fram að hann ætlaði
honum það hlutverk að vera aðal-
talsmaður sinn í utanríkismálum.
Hrós Muskie um Afganistan-
tillöguna virðist tákna breytingu á
utanríkisstefnunni með hliðsjón af
fréttum um aukin áhrif „hauksins
Zbigniew Brzezinski, ráðgjafa for-
setans í þjóðaröryggi. Muskie kall-
aði tillöguna „gagnlega hugmynd"
og kvað hana bjóða upp á bezta
tækifærið til að útkljá deiluna.
Hins vegar er ekki ijóst hvort
hann hyggst vekja máls á tillögunni
þegar hann hittir Andrei Gromyko,
utanríkisráðherra Rússa, við há-
tíðahöld í Vín 15.—16. maí þegar
liðin verða 25 ár síðan Austurríki
varð fullvalda og hlutlaust ríki.
Muskie kvaðst vilja lita svo á að
um kynningarfund yrði að ræða í
Vín, en fundurinn hefur enn ekki
verið opinberlega ákveðinn.