Morgunblaðið - 08.05.1980, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
Ljósm. Mbl. Emilía.
íslenzkar sýningarstúlkur á æíingu fyrir tízkusýninguna á „ítölskum vordögum“. Hjá standa hinn
frægi italski tizkufrömuður Róberto Beghi og Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Útsýnar.
Maria Loredan
Pietro Botazzo
mest orð fer af, s.s. tízkuvarningi
ýmiss konar, skóm og leðurvörum,
húsgögnum, keramik, leikföngum
o.s.frv. Um 100 ítalskir framleið-
endur taka þátt í sýningunni, sem
opnuð verður formlega að kvöldi 8.
maí og verður síðan opin almenn-
ingi til sunnudagskvölds 11. maí.
Veizluhöld með
ítölsku sniði
Italskur matur og vín er orðlagt
fyrir gæði. Það geta gestir Loft-
leiðahótelsins sannreynt á „ítölsku
vordögunum", því að matreiðslu-
meistarar frá einum þekktasta
matsölustað Feneyja munu stjórna
matseldinni. Lystaukar verða
veittir við komuna á undan kvöld-
verði í Víkingasal. Meðan gestir
gæða sér á ítölskum krásum og
vínum fara fram skemmtiatriði.
Tízkufrömuðurinn Roberto Beghi
mun stjórna sýningum á itölskum
tízkufatnaði frá framleiðendunum
Marchiol, Piubello, Miola, Pierre
Þegar uppselt á
föstudags- og
laugardagskvöld
Manteau Téllini og Dr. Job.
Fatnaðurinn kom til landsins í
vikubyrjun og hann hefur vakið
mikla hrifningu hjá þeim sem séð
hafa, en Beghi mun vera í hópi
þekktustu tízkuhönnuða Ítalíu í
dag.
Frægir söngvarar
ítalski tenórinn Pietro Bottazzo
og sópransöngkonan Maria Lored-
an ásamt píanóleikaranum og
hljómsveitarstjóranum Luigi Toff-
olo munu skemmta gestum með
flutningi vinsællar tónlistar úr
ítölskum söngleikjum. Bæði eru í
tölu færustu söngvara Ítalíu í dag.
Pietro Bottazzo hefur t.d. sungið
öll helstu tenórhlutverk í óperum
Rossinis, í Rómaborg, La Scala,
Mílanó, Vínaróperunni og auk þess
í Mozartóperum Glynderbourneóp-
erunni í Englandi, og Grand
Metropol óperunni í New York.
Maria Loredan er í tölu færustu
sópransöngkvenna Itala um þessar
mundir og hefur hún unnið til
fjölmargra tónlistarverðlauna og
komið víða við í sjónvarpi og
útvarpi.
Að sögn Ingólfs Guðbrandssonar
forstjóra Utsýnar er í undirbún-
ingi að efna til sérstakra hljóm-
leika með listafólkinu vegna hinn-
ar miklu aðsóknar að ítalska
vorinu. Sa^ði Ingólfur að stefnt
yrði að því að halda tónleika í
Háskólabíói á sunnudag svo að
fleiri eigi þess kost að heyra
raddlist þessara ítölsku heims-
söngvara.
Land, þjóð og
þjóðhættir
„Italskt vor á Islandi“ markar
tímamót í samskiptum þjóðanna,
því að jafn ítarleg kynning á Ítalíu
hefur ekki áður farið fram hér á
landi. Aðstandendur sýningarinn-
ar vænta þess að sem flestir
borgarbúar taki þátt í henni með
einhverju móti, bæði með því að
sækja hana og innflytjendur
ítalsks varnings eru hvattir til að
hafa hann sérstaklega í frammi í
fyrirtækjum sínum þessa daga,
skreyta á ítalska vísu og draga
ítalska fánann að húni.
Dagana 10. og 11. maí verður
Italía kynnt í máli og myndum
með kvikmyndasýningum í ráð-
stefnusal Loftleiðahótelsins og
sunnudaginn 11. maí verður sér-
stök barnahátíð síðdegis með
skemmtiatriðum og leikfanga-
happdrætti. Auk þess fá allir
gestir „vordaganna" ókeypis happ-
drættisnúmer, sem dregið verður
úr í lokin og er vinningurinn ferð
til Gullnu strandarinnar Lignanö
fyrir tvo með Utsýn.
„ÍTALSKA vorið“ hefst á Hótel Loftleiðum í kvöld og þessari
ítölsku kynningu og skemmtun mun ljúka á sunnudaginn. Mikill
áhugi er fyrir „Itölsku vikunni“ sem sést bezt á þvi að nú þegar eru
allir miðar uppseldir á föstudags- og laugardagskvöid en enn er
hægt að fá nokkra miða á opnunarhátiðina i kvöld. Það eru ítölsk
ferðamálayfirvöid ásamt Ferðaskrifstofunni Útsýn og Hótel
Loftleiðum sem standa að itölsku vordögunum, en eins og mönnum
er kunnugt er Ítalía eitt vinsælasta ferðamannaland heimsins og
hefur Útsýn haldið uppi reglubundnu leiguflugi þangað í 6 ár og
flutt þangað 10 þúsund islenzka ferðamenn.
Fjölþætt dagskrá
Um 20 ítalir munu koma til
landsins til að vinna að undirbún-
ingi „ítalska vorsins" og uppsetn-
ingu ferða- og vörusýningar í
tengslum við það. Eru í þeim hópi
ferðamálafrömuðir, tízkuhönnuð-
ur, matreiðslumenn og þekktir
tónlistarmenn. Það verður því suð-
ræn stemmning ríkjandi á Loft-
leiðahótelinu á þessum ítölsku
vordögum, þar sem reynt verður að
bregða upp ítalskri þjóðlífsmynd á
íslenzkri grund.
Sýning á ítölsk-
um tízku- og
iðnaðarvarningi
Sett verða upp í Kristalssal
Loftleiða sýnishorn af þeim teg-
undum ítalsks iðnvarnings, sem
„ítalska vorið“ hefst í kvöld
Frá umræðunum í Lýðháskólanum I Skálholti. Ljósm. Maitnús Karei.
Ræddu um tengsl milli
skálda og kirkjunnar
KIRKJURITIÐ stóð um síðustu
helgi fyrir umræðum um efnið
skáld og kirkja og fékk menn úr
hópi skálda og presta til að taka
þátt í umræðum, Fór samtals-
fundur þessi fram í Lýðháskólan-
um í Skálholti, en ætlunin er að
efnið birtist í Kirkjuritinu, sem
út kemur í júní. Sr. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur á
Reynivölium var umræðustjóri
og flutti hann jafnframt inn-
gangserindi.
Sr. Gunnar Kristjánsson sagði
að ákveðið hefði verið að taka til
umræðu tengsl milli kirkju og
skálda og gera eins konar úttekt á
því hvort og þá hvernig íslenzk
skáld og rithöfundar fjölluðu um
trúmál, spurningar um tilveru
Guðs, tilgang lífsins o.fl. Kvað
Gunnar greinilegt að fjallað væri
mikið um þessi efni og oft væri
leitað mynda í Biblíunni og efni úr
henni notað sem bakgrunnur. Sem
fyrr segir hélt sr. Gunnar Krist-
jánsson inngangserindi og var það
flutt á föstudagskvöld og hófust
þá umræður, sem var fram haldið
næsta dag.
Úr hópi skálda tóku þátt í
umræðum þessum þau Guðmund-
ur Steinsson, Ingimar Erlendur
Sigurðsson, Hjörtur Pálsson, Jón
úr Vör, Kjártan Ragnarsson,
Matthías Johannessen, Vilborg
Dagbjartsdóttir og Þóra Jónsdótt-
ir. Auk sr. Gunnars tóku þeir sr.
Bolli Gústavsson, sr. Bernharður
Guðmundsson, sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson og sr. Heimir
Steinsson þátt í umræðunum og
bókmenntafræðingarnir Jón Sig-
urðsson og Árni Bergmann. Sagði
sr. Gunnar að skáldin hefðu lesið
úr verkum sínum, óbirtum eða
útkomnum og hefðu fylgt fróðleg-
ar umræður í kjölfarið um verkin
og hvaða skilning skáldin legðu í
þau. Þá sagði sr. Gunnar að
þátttakendur hefðu sungið gregor-
ianskan kvöld- og morgunsöng og
á laugardagskvöldinu kom sr. Sig-
urbjörn Einarsson biskup í heim-
sókn og annaðist morgunbæn á
sunnudagsmorgun.
Sr. Gunnar Kristjánsson kvað
umræður þessar hafa verið hinar
gagnlegustu og ljóst væri að
fróðlegt væri að halda slíku starfi
áfram. Mætti t.d. hugsa sér að
sams konar umræður færu fram
milli kirkjunnar manna og mynd-
listarmanna eða arkitekta, sem
oft störfuðu með kirkjunnar
mönnum og ættu stóran þátt í
kirkjusmíði og skreytingum.
Aðalfundur VSÍ:
Ríkið fái
aðeins lán
úr lífeyris-
sjóðum með
samningum
1 ályktun aðalfundar
Vinnuveitendasambands
íslands sem lauk á Hótel
Loftleiðum í gær segir, að
ríkisvaldið geti ekki ákveðið
hvar lífeyrissjóðir ávaxti
fjármuni sína.
„Ríkisstjórnin hefur nú
lagt fram á Alþingi frumvarp
til lánsfjárlega, þar sem gert
er ráð fyrir, að lífeyrissjóðum
verði skylt að kaupa skulda-
bréf af ríkissjóði, Bygg-
ingarsjóði ríkisins og Fram-
kvæmdasjóði íslands.
Vinnuveitendasamband ís-
lands mótmælir harðlega
þessari íhlutun ríkisvaldsins
í málefni lífeyrirssjóðanna og
leggur áherzlu á það grund-
vallarsjónarmið, að lán úr
lífeyrissjóðum fáist aðeins
með samningum við þá,“ seg-
ir í ályktuninni.
■I