Morgunblaðið - 08.05.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
Sænskir sérfræðingar
kanna hagkvæmni fram-
leiðslu með kolum hjá
Sementsverksmiðjunni
GUÐMUNDUR Guðmundsson,
tæknilegur framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðju rikisins á
Akranesi, sagði í samtali við Mbl.
að hingað til lands kæmu um
mánaðamótin sænskir sérfræð-
ingar til þess að gera athugun á
því hvort hagkvæmt muni reyn-
Sjónvarpið
kosninganótt-
ina 29. júní
ÍITVARPSRÁÐ hefur ákveðið
að gengist verði fyrir kosn-
ingasjónvarpi í sumar vegna
forsetakosninganna og verður
sjónvarpað fram eftir nóttu
hinn 29. júní meðan beðið er
eftir atkvæðatölum víðs vegar
að af landinu. Forsetakosn-
ingar fara fram sunnudaginn
29. júni, og einnig verður
sjónvarpað daginn eftir,
mánudaginn 30. júní. Miðviku-
daginn 1. júli verður hins
vegar ekkert sjónvarp þar sem
sjónvarpsútsendingar leggjast
niður i júlimánuði vegna
sumarleyfa.
Ekki hefur enn verið gengið
nákvæmlega frá tilhögun sjón-
varpsútsendingarinnar á kosn-
inganóttina, en gert er ráð fyrir
að tilhögun verði með líku sniði
og þegar sjónvarpað hefur ver-
ið frá atkvæðatalningu við
sveitarstjórnar- og alþingis-
kosningar.
ast fyrir Sementsverksmiðjuna
að breyta orkunotkun sinni úr
olíu yfir i kol, en unnið hefur
verið að rannsóknum i þvi máli
undanfarna mánuði.
Guðmundur sagði ennfremur að
það væru engir tæknilegir van-
kantar á því að kaupa notuð
kolatæki til framleiðslunnar og
setja þau upp með stuttum fyrir-
vara. Það þyrfti hins vegar að bíða
í nokkur ár ef kaupa ætti ný tæki.
Þá kom það og fram hjá Guð-
mundi að sænsku sementsverk-
smiðjurnar hafa undanfarna mán-
uði verið að breyta hjá sér yfir í
kolaframleiðslu og hefðu þessir
sænsku sérfræðingar unnið að
þeim breytingum.
ÍSLENZKA Jan-Maycn nefndin við komuna til Ósló í gærdag. Fremstir á myndinni, f.v. Ólafur
Jóhannesson utanríkisráðherra. Knut Frydelund, utanríkisráðherra Noregs og Steingrímur Hermannsson
sjávarútvegsráðherra. Simamynd
Knut Frydenlund um Jan Mayen-viðræðurnar:
„Höfum sem fyrr
áhuga á samkomulagi
Kröfur Alþýðubandalagsins skapa vandræði segja norsku blöðin
Engar nýjar kröfur - segir Ólafur Jóhannesson
Hafnargjöld
hækka um 8%
GJALDSKRÁR hafnarsjóða hafa
verið hækkaðar um 8% með
þeirri undantekningu að afla-
gjald er áfram óbreytt.
7. mai. (rá Árna Johnsrn. blaðamanni Mbl. i Osló
„VIÐ HÖFUM sem fyrr áhuga á að ná samkomulagi um Jan
Mayen-svæðið, en kröfur Alþýðubandalagsins auka ekki á líkurnar,“
sagði Knut Frydenlund, utanríkisráðherra Noregs, í samtali við Mbl.,
— i þessum kröfum koma fram alveg ný atriði og það daginn fyrir
fundinn hér í Osló. Fréttir höfðu borizt af því, að hér væri um að ræða
kröfur íslenzku nefndarinnar, en svo mun ekki vera. En við þekkjum
kröfur íslenzku viðræðunefndarinnar frá siðasta fundi okkar i
Reykjavik og reiknum með að halda viðræðunum áfram út frá þeim,
þ.e. kröfum um fiskveiðar íslendinga og yfirráðarétt yfir hafsbotnin-
um,“ sagði Knut Frydenlund ennfremur.
Morgunblaðið ræddi við Ólaf samþykkt íslenzku nefndarinnar og
Jóhannesson, utanríkisráðherra, og því væri ekki um neinar nýjar
kvaðst hann lítið geta sagt á þessu kröfur að ræða frá því síðast var
stigi málsins nema hvað samþykkt fundað. Ólafur svaraði fyrirspurn-
Alþýðubandalagsins væri ekki um blaðamanna við komuna til
Osló og var hann m.a. spurður að
því hvort hann væri bjartsýnn eða
svartsýnn. Kvaðst hann heldur
svartsýnni á samkomulag en áður.
Blöð hér í Osló skrifa flest um
Jan Mayen-deiluna í dag og telja
þau að nýjar hugmyndir Alþýðu-
bandalagsins muni skapa veruleg
vandræði við lausn málsins. Þar er
sérstaklega fjallað um tvö atriði,
annars vegar þá kröfu að Norð-
menn viðurkenni yfirráðarétt
íslendinga yfir landgrunninu við
Jan Mayen og hins vegar að engar
olíuboranir verði leyfðar á Jan
Formaður gjaldskrárnefndar:
Hitaveitan hefur mun meira fjármagn til
ráðstöfunar en gefið hefur verið í skyn
„Gjaldskrárnefnd byggði til-
lögu sína á þeim gögnum. sem
fyrirtækið lagði fram. auk þess
sem tekið var mið af stefnumörk-
un ríkisstjórnarinnar í verð-
lagsmálum á þessu ári," sagði
Georg Ólafsson verðlagsstjóri og
formaður gjaldskrárnefndar í
samtali við Morgunblaðið í gær
er hann var spurður um forsend-
ur þess að hækkunarhciðni Hita-
veitu Reykjavíkur var lækkuð úr
58% niður í 10%.
„Nefndin telur,“ sagði Georg
ennfremur, „að þótt varlega hafi
verið farið í tillögugerð muni
fyrirtækið hafa mun meiri fjár-
magn til ráðstöfunar á þessu ári
en það gefur í skyn í fjölmiðlum
og því lagði nefndin til að beiðni
þess yrði skorin niður. Að öðru
leyti tel ég það ekki vera í
verkahring gjaldskrárnefndar að
ræða þessi mál opinberlega, þar
sem endanlegt ákvörðunarvald í
þeim er i höndum ríkisstjórnar-
innar“ sagði verðlagsstjóri að
lokum.
„Ég veit hreinlega ekki hvað
maðurinn á við,“ sagði Jóhannes
Hitaveitustjóri:
Zoéga hitaveitustjóri er Morgun-
blaðið bar þessi ummæli undir
hann, „er hann að bera okkur það
á brýn að við höfum verið að Ijúga
í fjölmiðla?“ Jóhannes kvaðst
ekki vita hvaða upplýsingar
gjaldskrárnefndin hefði haft til
grundvallar, en hvorki formaður
né aðrir nefndarmenn gjaldskrár-
nefndar hefðu haft samband við
Jóhannes Zoega
Georg Ólafsson
Hitaveituna vegna þessa máls. Að
öðru leyti kvaðst hann hafa litlu
við það að bæta sem hann hefði
áður sagt um þessi mál, en
fyrirsjáanlegir væru miklir erfið-
leikar hjá fyrirtækinu. Bæði yrði
erfitt að dreifa heitu vatni og
leggja í ný hverfi, slíkt yrði ekki
gert án nauðsynlegs fjármagns.
Hagnað af rekstri fyrirtækisins
síðastliðið ár sagði Jóhannes hafa
verið um það bil 1,6 milljarðar
króna, en framkvæmdir hefðu
verið upp á 1,5 milljarða króna
rúmlega. Hins vegar hefði þurft
að framkvæma fyrir um það bil
2,5 milljarða króna ef vel hefði átt
að vera. I ár hefði þurft að vinna
að framkvæmdum fyrir um það
bil fjóra milljarða króna, en ekki
yrði unnt að ráðast í framkvæmd-
ir fyrir meira en tvo til þrjá
milljarða, jafnvel minna ef verð-
bólgan héldi áfram eins og hún
hefur gert.
Afskriftir á síðasta ári sagði
hitaveitustjóri að hefðu numið um
það bil einum milljarði króna, en
þar á móti kæmu afborganir og
vextir af lánum upp á um það bil
1,2 milljarða króna.
Þá leitaði Morgunblaðið einnig
til þeirra Hjörleifs Guttorms-
sonar iðnaðarráðherra og dr.
Gunnars Thoroddsen forsætisráð-
herra, en þeir vísuðu báðir á
Georg Ólafsson og Tómas Árna-
son viðskiptaráðherra. Svar verð-
lagsstjóra er hér að framan en
ekki tókst að ná í viðskiptaráð-
herra.
Segir maðurinn okkur ljúga í fjölmiðlum?
Mayen-svæðinu án samþykkis ís-
lendinga.
Kröfur íslendinga, sem fram
komu á síðasta viðræðufundi í
Reykjavík, byggjast á því, að
íslendingar ákveði hámarksafla
loðnunnar við Jan Mayen. Gert
verði ráð fyrir því, að Norðmenn
fái fyrsta árið að veiða ákveðinn
tonnafjölda, en síðan næstu fimm
ár fái þeir að veiða upp í ákveðna
prósentutölu hámarksaflans. í
þessu sambandi má geta þess að
aflahlutfall Norðmanna við Jan
Mayen þau tvö ár, sem þeir hafa
stundað loðnuveiðar þar, er 12—
15%. Þá vill íslenzka viðræðu-
nefndin tryggja rétt íslendinga til
þess að veiða jafnmikið og Norð-
menn á Jan Mayen-svæðinu utan
200 mílnanna. Komið hefur fram
að Norðmenn geta fallizt á það.
Þá er það krafan um botnmálið,
þ.e. að jafnræði ríki í þeim efnum
með þjóðunum, ella verði ákveðin
skipting milli þeirra á svæðinu.
íslenzka viðræðunefndin kemur
saman til fundar hér í fyrramálið
klukkan níu og síðan hefjast fundir
viðræðunefndanna klukkan tíu og
er búizt við að þeim fundum verði
fram haldið til kvölds og síðan
verði áframhaldandi viðræður á
föstudag.
Aðalfundur VSÍ:
Páll Sigurjóns-
son endurkjör-
inn formaður
AÐALFUNDI Vinnuveitenda-
sambands íslands lauk síðdegis í
gær. Páll Sigurjónsson var end-
urkjörinn formaður sambandsins
og Hjalti Einarsson, varafor-
maður.
Aðrir í framkvæmdastjórn voru
kjörnir: Davíð Sch. Thorsteinsson,
Gísli Ólafsson, Guðlaugur Björg-
vinsson, Gunnar S. Björnsson,
Gunnar J. Friðriksson, Haraldur
Sveinsson, Hjörtur Hjartarson,
Jón Ingvarsson, Jón Páll Hall-
dórsson, sem kjörinn var í stað
Gunnars Guðjónssonar, sem ekki
gaf kost á sér til endurkjörs,
Kristján Ragnarsson, Magnús
Gústafsson, Ragnar Halldórsson,
Valtýr Hákonarson og Þórður
Gröndal.