Morgunblaðið - 08.05.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
3
Tillaga um 74 ára aldurshámark borgarstarfsmanna:
„Æskilegt að fólk fái að
vinna svo lengi sem unnt er“
- segir Birgir Isleiíur Gunnarsson, annar fulltrúi Sjálfstaeðisflokks-
ins í nefnd þeirri er endurskoðaði reglur um hámarksstarfsaldur
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
Reykjavíkur fluttu um það tillögu á síðasta ári, að
skipuð yrði nefnd til þess að endurskoða þær reglur
sem nú gilda um hámarksaldur starfsmanna borgar-
innar, en þær reglur eru nú þær, að menn eiga
skilyrðislaust að láta af störfum við 70 ára aldur.
Tillagan var samþykkt á sínum tíma og skipuð nefnd.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins voru skipaðir í nefnd-
ina Birgir ísleifur Gunnarsson og Davíð Oddsson.
Nefndin hefur nú skilað áliti sem fer fyrir borgarráð.
Morgunblaðið innti Birgi ísleif Gunnarsson nánar
eftir tillögum nefndarinnar.
„Nefndin hefur gert þrjár
tillögur. Fyrsta tillagan fjallar
um hvernig haga skuli verklok-
um, þ.e. starfsmaður skal láta
af störfum um fyrstu mánaða-
mót eftir að hann nær 71 árs
aldri. Þetta er því nokkur leng-
ing frá því sem verið hefur. Þá
hefjist lífeyrisgreiðslur þegar
starfsmaður lætur af störfum.
Síðan koma undntekningar-
ákvæði, þegar starfsmaður sem
náð hefur 70 ára aldri fer úr
starfi sínu er heimild til að ráða
hann á tímavinnukaup í allt að
hálft starf hjá Reykjavíkurborg
án þess að það hafi áhrif á rétt
hans til þess að taka lífeyri.
Jafnframt er heimilt að ráða
starfsmann á tímakaupi í fullt
starf, enda fresti hann þá töku
lífeyris án þess að það hafi
áhrif til hækkunar.
Starfsmaður sem óskar að
ráða sig í starf eftir sjötugt
samkvæmt þessum skilmálum
skal sækja um það skriflega til
yfirmanns viðkomandi stofnun-
ar með sex mánaða fyrirvara og
hann skal hafa fengið svar
innan þriggja mánaða. Ef unnt
er að verða við þessari ósk
starfsmannsins þá skal ráðn-
ingin gilda til tveggja ára, eða
til fyrstu mánaðamóta eftir að
73 ára aldri er náð. Við þau
aldrsmörk skal svo vera heimilt
að framlengja starf hans um
eitt ár til viðbótar. Þannig að
menn hafa samkvæmt þessum
tillögum möguleika á að starfa
þar til 74 ára aldri er náð. Gert
er ráð fyrir því að endanleg
ákvörðum skuli tekin af borgar-
stjóra að fenginni umsögn yfir-
manns viðkomandi stofnunar
ásamt umsögn sérfræðinga sem
rétt þykir að leita til hverju
sinni.
Þá var gerð önnur tillaga sem
gerir ráð fyrir meiri sveigju í
hina áttina. Hún gengur út á
það að borgarráð hefji viðræður
við Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar um möguleika á að
breyta reglum lífeyrissjóðsins
þannig, að starfsmenn geti hætt
störfum að hluta til við 65 ára
aldur. Jafnframt tekið þann
hluta lífeyris sem jafngildir
vinnunni sem lögð er niður.
Markmið þeirrar tillögu er fyrst
og fremst að stuðla ennfrekar
að aflíðandi verklokum og að-
lögun að eftirlaunatímabili.
Þriðja tillagan er þannig að
nefndin beinir því til borgar-
ráðs, að athuga möguleika á því
að Ráðningarstofu Reykja-
víkurborgar sé gert kleift að
hafa á hverjum tíma upplýs-
ingar um starfsmenn sem hinar
nýju reglur taka til og stöðu
einstakra stofnana með tilliti
til hlutastarfa og starfa fyrir
aldrað fólk.
Það má segja að það séu þrír
meginþættir sem liggja að baki
þessum tilögum. Það er í fyrsta
lagi að æskilegt sé að fólk fái að
starfa svo lengi sem unnt er
hverju sinni, en að því tilskildu
að það sé við hæfi og vilja hvers
og eins og vinnutími sé hófleg-
ur. I öðru lagi, að æskilegt sé að
stuðla að aflíðandi verkalokum
og milda þannig þær breytingar
sem óhjákvæmilega verða við
verkalok og í þriðja lagi að
æskilegt sé að þreikka það bil
þar sem möguleiki er á minnk-
andi og/eða breyttri vinnu og
verkalokum, þannig að ákveðið
var að verða meira við óskum
hvers og eins um verkalok."
Birgir sagðist gera sér vonir
um að málið hlyti afgreiðslu um
næstu mánaðamót.
Gisli Halldórsson
Ólympíuleikar
með nýju sniöi:
Lízt vel á
hugmyndina
- segir Gísli Ilalldúrs-
son forseti ISI
„MÉR lfzt aö mörgu leyti vel á
hugmyndina, en viö höfum ekki efni á
þvi að senda mann á þennan fund og
þvi hef ég ekki séð tillögurnar i heild
og viö i ólympiunefndinni þvi ekki
fjallað um þær. En mér list vel á
hugmyndina," sagöi Gisli Halldórs-
son, forseti ISÍ og formaður islenzku
óiympiunefndarinar, er Mbl. leitaði i
gær álits hans á þeim tillögum
leiðtoga ólympiunefnda 18 Evrópu-
ríkja, að þátttakendur verði sendir á
Ólympiuleikana i Moskvu, en að
ýmislegt verði þar með öðrum hætti
en tíðkast á Ólympiuleikum.
„Þetta yrði nokkuð óvenjulegt og i
þvi fælust viss mótmæli, sem undir-
strikuðu aö okkur er ekki sama um
allt sem gerist hjá þeim,“ sagði Gisli.
Ekkert vörugjald af
íslenzkum hljómplöt-
um og hljóðfærum
Tillaga Birgis ísleifs Gunnarssonar um að allar
hljómplötur verði undanþegnar gjaldinu felld
TIL atkvæðagreiðslu kom á Alþingi í gær um frumvarp
um að staðfesta bráðabirgðalögin um tímabundið
vörugjald, sem er í tveimur flokkum 24% og 30%. í
frumvarpi því sem ríkisstjórnin lagði fram er gert ráð
fyrir því að fella út úr 30%-flokknum hljóðfæri og
hljómplötur með íslenzku efni og var það frumvarp
samþykkt.
Birgir ísleifur Gunnarsson al-
þingismaður flutti hins vegar til-
lögu til .breytingar um að allar
hljómplötur yrðu undanþegnar
vörugjaldinu en sú tillaga var
felld við nafnakall. I því sambandi
sagði Birgir ísleifur í samtali við
Mbl. að það hefði gert það að
verkum að almennt verð á
hljómplötum hefði farið úr 11
þúsundum í 8500 krónur.
Aðalfundur VSÍ:
Ekki verður unað skerðingu á
samningsrétti vinnuveitenda
varðandi félagsmálapakkana
I ályktun aðalfundar Vinnuveitendasambands íslands um kjaramál er
því mótmælt að stjórnvöld og ASÍ semji án aðildar vinnuveitenda um
félagsmálapakka. „Stjórnvöld hafa ítrekað skert samningsrétt
vinnuveitenda með þessum hætti og við það verður ekki unað,“ segir í
ályktuninni og eru stjórnvöld vöruð við „áframhaldandi viðræðum af
þessu tagi, enda hafa þær neikvæð áhrif á viðræður launþega og
vinnuveitenda.“ Aðalfundur VSÍ skorar á rikisstjórnina „að svara án
frekari tafa óskum um þríhliða viðræður, enda eru þær eini sjáanlegi
farvegur samvinnu og sátta í þeim erfiðu og margslungnu
kjaraákvörðunum, sem fyrir dyrum stendur að taka.“
I ályktun fundarins segir að við
þær aðstæður, sem nú ríkja, sé ekki
unnt að taka neinar ákvarðanir í
nýjum kjarasamningum sem auka
heildarkostnað, „án þess að til
komi meiri gengisfellingar og verð-
hækkanir en fyrirsjáanlegar eru.“
Þá er í ályktuninni rætt um
„stefnuleysi launþegafélaganna í
kjaramálum" og sagt, að meðan
launþegafélög séu margskipt í af-
stöðu sinni auki þau verulega á
óvissuna í kjaramálum „og taka á
sig ábyrgð á því að hvorki gengur
né rekur í samningaviðræðunum."
Sparíbaukurínn frá Mitsublshi
er ekki einungis fjölskyldubfll
SEIKO
ARMBANDSÚRIN
Mest selda alvöruúríð —
úrið sem gengur árum saman
ánstillingar