Morgunblaðið - 08.05.1980, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
íslenskir
FÁNAR
Allar stæröir
Fánastangakúlur
Fánalínur
SÓLÚR
GARÐYRKJU-
ÁHÖLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
RISTUSPAOAR
KANTSKERAR
GARÐHRÍFUR
GREINAKLIPPUR
GREINASAGIR
mjög handhægar
GIRÐINGA-
STREKKJARAR
GRASAKLIPPUR
GIRÐINGAVÍR, GALV.
GARÐKÖNNUR
Járnkarlar
Jarðhakar
Sleggjur
SLÖNGU-
KLEMMUR
nota hinir vandlátu.
Stærðir frá %“—12“.
Einnig ryðfríar
GARÐSLÖNGUR
VATNSÚÐARAR
SLÖNGUKRANAR
SLÖNGUTENGI
HANDFÆRA-
VINDUR
HANDFÆRAÖNGLAR
NÆLONLÍNUR
HANDFÆRASÖKKUR
PIKLAR M. ÚRVAL
SIGURNAGLAR
HÁKARLAÖNGAR
KOLANET
SILUNGANET
•
ÁRAR
ÁRAKEFAR
BJÖRGUNARVESTI
VÍRKÖRFUR
PLASTKÖFUR
•
FERNISOLÍA
BLAKKFERNIS
KOLTJARA
PLASTTJARA
HRÁTJARA
KARBÓLÍN
MINKAGILDRUR
OPIÐ LAUGARDAGA
9—12
Pólthólf 1415.
Helga Bachmann.
Edda Þórarinsdóttir.
Þorsteinn Gunnarsson.
Jón Sigurbjörnsson.
XJtvarpsleikrit í kvöld:
Síðasta kvöldið í maí
í kvöld kiukkan 21.15 verður
flutt í útvarpi leikritið „Síðasta
kvöldið í maí“ eftir Elvi Sinervo.
Þýðinguna gerði Ásthildur Eg-
ilson, en leikstjóri er Helga
Bachmann. Magnús Pétursson
samdi tónlist, sem Olafur Hauk-
ur leikur á gítar. Með hlutverkin
fara Bryndís Pétursdóttir, Edda
Þórarinsdóttir, Hanna María
Karlsdóttir, Þorsteinn Gunn-
arsson og Jón Sigurbjörnsson.
Flutningur leiksins tekur rúma
klukkustund. Tæknimaður: Sig-
urður Hallgrímsson.
Frú Aalto býr með tveimur
dætrum sínum. Sú yngri, Helvi,
er nýorðin stúdent og ætlar út að
skemmta sér „síðasta kvöldið í
maí“ með vini sínum. Á
skemmtistaðinn koma líka eldri
systirin, móðirin og Lahtinen
bílstjóri sem leigir hjá þeim
mæðgum. Hann hefur undir
niðri verið hrifinn af Helvi og
bíður eftir henni í íbúðinni um
nóttina, staðráðinn í að tjá
henni ást sína ...
Elvi Sinervo er finnsk skáld-
kona, sem hefur skrifað nokkur
útvarpsleikrit. Ekkert hefur áð-
ur verið flutt eftir hana í
íslenska útvarpinu.
Skeggræður á göngum Alþingis
Þingfréttir
i útvarpi
Þingfréttir eru á dagskrá út-
varps í dag klukkan 9.45, en í
þætti þessum er sagt frá nýjum
málum er fram koma á því háa
Alþingi, sagt er hvað var til
umræðu daginn áður, og einnig
er birt dagskrá dagsins í dag.
Þættir þessir geta verið fróð-
legir fyrir þá sem vilja fylgjast
með málatilbúnaði á löggjafar-
þinginu, og hafi menn áhuga á
að fara á áheyrendapallana og
fylgjast með geta þeir heyrt í
útvarpinu hvaða mál verða á
dagskrá.
Utvarp Reykjavík
FIM41TUDKGUR
8. maí
MORGUNINN_____________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbi. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Sigríður Eyþórsdóttir les
fyrri hluta sögunnar „Rekst-
ursins“ eftir Líneyju Jóhann-
esdóttur.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morguntónleikar.
Halldór Haraldsson. Magnús
Blöndal Jóhannsson og
Reynir Sigurðason leika
„Sonorities 111“ eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson / Ro-
bert Aitken, Hafliði Hall-
grímsson, Þorkell Sigur-
björnsson og Gunnar Egils-
son leika „Verse 11“ eftir
Hafliða Hallgrímsson /
Christer Torgé og Michael
Lind leika „Double Por-
traits“ fyrir básúnu og túbu
eftir David Uber.
11.00 Verzlun og viðskipti.
Umsjón: Ingvi Hrafn Jóns-
son. Fjallað um áhrif niður-
talningar verðlags á við-
skiptalifið.
11.15 Tónleikar.
Þulur velur og kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa
Léttklassísk tónlist, dans- og
dægurlög og lög leikin á
ýmis hljóðfæri.
14.45 Til umhugsunar.
Þuriður J. Jónsdóttir stjórn-
ar þætti um áfengismál.
15.00 Popp.
Páll Pálsson kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Tónlistartími barnanna
Egill Friðleifsson sér um
timann.
16.40 Síðdegistónleikar
Paul Crossley leikur á píanó
tvö Næturljóð op. 74 og 99
eftir Gabriel Fauré / Suk-
tríóið leikur Píanótríó í a-
moll op. 50 eftir Pjtr Tsjaí-
kovský.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDID
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Mælt mál
Bjarni Einarsson flytur þátt-
inn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.00 Víða farið
Ásdis Skúladóttir ræðir við
Ástríði Eggertsdóttur um líf
hennar og störf; — fyrri
þáttur.
20.30 Tónleikar Sinfóniu
hljómsveitar íslands i Há-
skólabiói; — fyrri hluti efn-
isskrár útvarpað beint.
Stjórnandi: Guido Ajmone-
Marsan frá Bandaríkjunum.
Einleikari: Hafliði Hall-
grimsson.
a. „Sorgarslagur“ eftir Paul
Hindemith.
b. Sellókonsert í C-dúr eftir
Joseph Haydn.
21.05 Leikrit: „Síðasta kvöldið
i maí“ eftir Elvi Sinervo
Þýðandi: Ásthildur Egilson.
Leikstjóri Helga Bachmann.
Tónlist eftir Magnús Pét-
ursson. Ólafur Gaukur leik-
ur á gítar.
Persónur og leikendur: Frú
Aalto/Bryndís Pétursdóttir,
Karin/ Edda Þórarinsdóttir,
Helvi/Hanna Maria Karls-
dóttir, Lahtinen leigubíl-
stjóri/Þorsteinn Gunnars-
son, Götusöngvari/Jón Sig-
urbjörnsson.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Að vestan
Umsjónarmaður þáttarins,
Finnbogi Hermannsson
kennari á Núpi, á Vestfjörð- I
um, fjallar um náttúru- I
vernd.
23.00 Vaisakvöld
a. Sinfóníuhljómsveit Berlín- 1
ar leikur „Estudiana“ og
„Skautavalsinn“ eítir Wald-
teufel.
b. Fritz Wunderlich og Mel-
itta Muszely syngja sög úr
„Brosandi landi“ eftir Le-
hár.
c. Valsahljómsveitin í Vín
leikur „Suðrænar rósir“ og
„Dónárvalsinn“ eftir Johann
Strauss.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
mnmmm
FÖSTUDAGUR
9. maí
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
gkrá
20.40 Skonrok(k).
Þorgeir Ástvaldsson kynn-
ir vinsæl dægurlög.
21.10 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Um8jónarmaður Ómar
Ragnarsson fréttamaður.
22.15 Heiiabrot.
(Shell Game)
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá árinu 1975.
Aðalhlutverk John David-
son og Tommy Atkins.
Max Castle starfar hjá fast-
eignasölu. Hann er að
ósekju dæmdur fyrir mis-
ferli, en látinn laus gegn
því skilyrði, að hann vinni
næstu árin á lögfræði-
skrifstofu bróður síns.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.25 Dagskrárlok.