Morgunblaðið - 08.05.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
5
Síðustu tónleikar Tónmenntaskólans
Búnaðarfélag Dyrhólahrepps:
Mótmæla harðlega fram
leiðslukvóta búvara
TÓNMENNTASKÓLI Reykja-
víkur er nú að ljúka 27. starfsári
sínu. í skólanum voru um 420
nemendur í vetur. Kennarar
voru alls 30. Meðal annars starf-
aði 45 manna hljómsveit við
skólann og einnig lúðrasveit með
Garíli. 7. maí.
FYRIR nokkru var gengið frá kaup-
um á síðutogaranum Rán GK 42.
Kaupandi er ísstöðin hf. í Garði en
fyrirtækið á fyrir 80% í skuttogaran-
um Erlingi. Seljandi var Gnoð hf. í
Hafnarfirði en það fyrirtæki hefir
30 meðlimum. Mikið hefur verið
um tónleikahald á vegum skól-
ans í vetur og vor.
Síðustu vortónleikar Tón-
menntaskólans verða haldnir i
Austurbæjarbíói nk. laugardag
10. maí kl. 2 e.h.
keypt annan togara sem einnig ber
nafnið Rán.
Gamla Ránin er 348 rúmlesta skip,
smíðað í Englandi 1961 og er með 1000
hestafla vél. Verður það afhent hinum
nýju eigendum í kring um 20. maí og
verður Ásgeir Gíslason áfram skip-
Á þessum tónleikum koma
einkum fram eldri nemendur
skólans. Á efnisskránni verður
einleikur, samleikur og hópat-
riði. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
stjóri á skipinu.
Að sögn forsvarsmanna Isstöðvar-
innar búast þeir við að vinna verði
jafnari og stöðugri með tilkomu Rán-
arinnar en ísstöðin hefir í langan
tíma verið í baráttu við kerfið að fá 5.
annan togara til fyrirtækisins. Arnór.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svohljóðandi ályktun frá Búnað-
arfélagi Dyrhólahrepps:
Almennur fundur í Búnaðarfé-
lagi Dyrhólahrepps, haldinn í Ket-
ilsstaðaskóla 21. apríl 1980, gerir
eftirfarandi ályktun:
1. Fundurinn mótmælir harðlega
framleiðslukvóta þeim til
stjórnunar á framleiðslu búvara
sem koma á til framkvæmda á
þessu ári, og vísar í því sam-
bandi til fyrri samþykkta fé-
lagsins’ um þetta mál.
2. Fundurinn telur 300 ærgilda bú
of lága viðmiðun hjá þeim
bændum sem lifa eingöngu á
búvöruframleiðslu. Fundurinn
telur vísitölubú algert lágmark
þess, sem bændur þurfi til að
lifa af, og mótmælir því sér-
staklega skerðingu á 300 ær-
gilda búi hjá þeim bændum sem
hafa enga möguleika á að afla
sér annarra tekna.
3. Fundurinn skorar á stjórn
Stéttarsambands bænda að
fylgja fast eftir við stjórnvöld
að aðlögunartími, allt að 5
árum, fáist til að draga úr
áhrifum kvótans eða öðrum
þeim aðgerðum, sem farið væri
út í. Fundurinn mælir með
fóðurbætisskömmtun eða fóður-
bætiskvóta sem álitlegri leið til
stjórnunar búvöruframleiðsl-
unnar.
4. Fundurinn vítir að ekkert er
gert til stjórnunar á framleiðslu
svína- og alifuglakjöts, sem þó
er nær eingöngu byggð á inn-
fluttum aðföngum.
Fundurinn álítur einnig að ábú-
endur lögbýla, sem hafa meiri-
hluta tekna af öðru en búvöru-
framleiðslu geti tekið á sig allt
að 20% framleiðsluskerðingu.
Hið sama gildir um ríkisbúin.
6. Fundurinn bendir á að skipu-
leggja beri landið í framleiðslu-
svæði með það að markmiði að
framleitt sé á hverjum stað það
sem hagkvæmast þykir gagn-
vart markaðsmöguleikum.
7. Það er einnig álit fundarins að
óviðunandi sé að einhleypingar
sem b úa félagsbúi á lögbýli hafi
hver um sig sama rétt og bóndi
sem býr með fjölskyldu sinni, og
telur fundurinn slíkt grófa
mismunun.
Kóramót í
Skagafirði
Bæ, 7. maí.
LAUGARDAGINN 10. maí n.k.
verður haldin sönghátíð í Mið-
garði í Skagafirði. Þar munu
koma fram fimm skagfirskir
kórar, en þeir eru Rökkurkór-
inn, Karlakór Sauðárkróks.
Kirkjukór Sauðárkróks. Karla-
kórinn Heimir og Samkór Sauð-
árkróks.
Kórarnir munu syngja hver
fyrir sig og síðan sameiginlega.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt
innanhéraðssöngmót fer fram og
telst það því töluverður viðburð-
ur hér í héraðinu. Alls munu
180—190 manns koma fram á
þessu móti.
— Björn.
ísstöðin hf. í Garði kaupir Rán GK:
Skipið afhent um 20. maí
Ador jan -
Eftir sigur Hiibners í fimmtu
skákinni var einvígið hálfnað.
Yfirburðir Þjóðverjans í þessum
hluta keppninnar voru augljósir.
Flestir álitu að einvíginu lyki
fljótlega með sigri hans. En í
síðari hlutanum virtist hann
heillum horfinn. Þetta hófst allt
með sjöttu skákinni.
Sjötta einvígisskákin.
Hvítt: Andras Adorjan.
Svart: Robert Húbner.
Caro Kann vörn.
1. e4 - c6,2. d4 - d5,3. Rd2 -
dxe4, 4. Rxe4 — Rf6, 5. Rxf6+
— gxf6. Hubner reynir enn að
koma andstæðingi sínum á óvart
með því að tefla afbrigði, sem
hann hefur aldrei teflt fyrr á
ævinni. I þetta sinn reyndist
þessi taktík illa. 6. c3 — Bf5, 7.
Re2 - Rd7,8. Rg3 - Bg6,9. h4
— h6. Algengara er 9.... h5.10.
h5 - Bh7,11. Bd3 - Bxd3.12.
Dxd3 — Dc7, 13. Df3! Oflugur
leikur. Hvítur hótar 14. Bf4. 13.
Skák
eftir Guðmund
Sigurjónsson
... e6, 14. Bf4 - Da5 111
nauðsyn. Eftir 14. ... Bd6 15.
Bxd6 — Dxd6,16. Re4 - De7,17.
Df4 — Kf8, 18. g4 hefur svartur
erfitt tafl. 15. 0-0 — Dd5, 16.
De2 - Bd6, 17. Bxd6 - Dxd6.
18. Ha-dl - 0-0-0,19. c4 - Kb8.
20. Re4 - Dc7, 21. d5! Með
þessum leik heldur hvítur frum-
kvæðinu 21. ... f5, 22. dxe6 —
fxe6, 23. Rd6 - Rc5. 24. b4!.
Líklega betra en 24. De5 — Re4,
25. c5 — Ha-g8! ásamt Dg7 og
svartur losnar úr prísundinni.
24. ... Hxd6, 25. bxc5 - Hxdl,
26. Hxdl - He8, 27. Ild6 -
De7.
Htibner IV
28. De5 Adorjan var nú kominn í
mikið tímahrak, en Hubner átti
að venju nægan tíma. Þrátt fyrir
þessa staðreynd teflir Hubner
framhald skákarinnar mun verr
en andstæðingurinn. Reyndar
átti hvítur þó völ á sterkari leik
en 28. De5 það er 28. Dd2! með
hótuninni Hd7 og auk þess Dxh6
28.... Kc8, 29. Hd3 - Df7, 30.
Dd6 f4? Ljótur leikur, sem veikir
peðastöðu svarts á kóngsvæng
enn meir. Ekki er ljóst hvernig
hvítur bætir stöðu sína eftir 30.
... a6! Að sjálfsögðu gekk ekki
30. ... Dxh5? vegna 31. Dd7+ —
Kd8, 32. Hb2 og svartur er
varnarlaus. 31. De5 — Hf8?
Betra var 31... Hg8. ásamt Hg5.
32. Hd6 - He8, 33. Hd4 - Df5?
Tapar strax. Reynandi var 33.
... Hf8 t.d. 34. He4 - Dd7, 35.
Dxe6 — Hf5. 34. Dxf5 — exf5,
35. Hd6 - f3. 36. Hxh6 Staða
svarts er algjörlega vonlaus
vegna þess hve frelsingi hvíts á
h-línunni er öflugur. 36 ... fxg2,
37. Hg6 - Kd7, 38. h6 - Ke7,
39. Hg7+ - Kf6,40. Hxb7 - a5,
41. H7 - Kg6, 42. Kxg2 og
hvítur gafst upp.
Eftir þennan sigur Adorjans
var staðan í einvíginu þessi:
Húbner 3 V2 vinningur.
Adorjan: 2 '/2 vinningur.
Nú gat allt gerst.
Keilulegur
Kúlu- og rúllulegur
H§H precision
“ Hjöruliðir
<onlinentaI
Viftureimar
Einnig eru tímareimar og tímakeðjur fáanlegar í flestar gerðir bifreiða og vinnuvéla.
Stærsta sérverzlun landsins með legur, ásþétti, hjöruliði og skildar vörur. Sendum um
land allt.
SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670