Morgunblaðið - 08.05.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
11
Gísli Jónsson.
Myndina tók Sæmund-
ur ljósmyndari í Hafnar-
firði árið 1911.
Gísli Jónsson
listmálari
1878—1944
UM ÞESSAR mundir er í Lista-
safni alþýðu sýning á málverk-
um Gísla Jónssonar frá Búr-
fellskoti. Eftirfarandi grein
Ingveldar Gísladóttur, dóttur
málarans, hefur Morgunblað-
inu borizt:
Allir hinir mörgu aðdáendur mynd-
verka Gísla Jónssonar listmálara fagna
sýningu þeirri, sem Listasafn alþýðu
stendur nú fyrir.
Ég vil gjarnan segja frá því, sem mér
er efst í huga varðandi Gísla Jónsson og
list hans, meðfædda listþrá hans, sem oft
mun hafa verið honum þungur fjötur um
fót við brauðstritið í íslenzku þjóðlífi í
lok nítjándu aldar og byrjun þeirrar
tuttugustu.
En á síðari æviárum Gísla var fólkið í
landinu orðið þess megnugra að geta
dálítið svalað fegurðarsmekk sínum og
þá meðal annars með því að prýða
heimili sín með myndum, sem því fannst
að gætu gegnt því hlutverki. Þá varð það,
að Gísli hafði varla við að mála myndir
fyrir aðdáendur þeirra, þótt hann þá
helgaði sig málaralistinni eingöngu.
Er Gísli hélt síðustu málverkasýningu
sína 1943, (árið fyrir andlát hans) í
Miðbæjarbarnaskólanum við Tjörnina í
Reykjavík, fylltu myndir hans þrjár
stórar kennslustofur þar. Sýning þessi
vakti almenna aðdáun allra þeirra, sem
hana sáu. Allar seldust myndirnar, og
fengu færri en vildu.
Mér er kunnugt um, að Gísli vænti
þess fastlega, að á þessa sýningu hans
kæmi fulltrúi frá íslenska ríkinu að
athuga, hvað þar væri að sjá og þá
gjarnan að leggja drög að því, að
Listasafn íslands eignaðist, þótt ekki
væri nema eina af þeim mörgu myndum,
sem þar gat að líta, að margra áliti
listrænna verka, eftir íslenskan lista-
mann. En enginn slíkur fulltrúi kom
þangað.
Ég hefði oft undrast, að Listasafn
íslands skuli ekki eiga mynd eftir Gísla
Jónsson og þá gjarnan hugsað í spurn:
Hvernig má það vera? Raunar hefi ég oft
undrast viðbrögð ýmissa, sem falið hefur
verið og tekið hafa að sér að safna saman
listaverkum og standa vörð um þau, bæði
íslensk og erlend, í Listasafni íslands.
Ekki minnkar undrun mín þar um nú,
þegar fram hafa komið viðbrögð þeirra
mörgu listunnenda, sem eiga myndir
eftir Gísla Jónsson og vilja gjarnan lána
þær til sýningar í Listasafni Alþýðu, að
sem flestir fái séð þær þar. Þar er um að
ræða nær tvö hundruð myndir. En það er
miklu meira en mögulegt er að sýna
samtímis á veggjum sýningarsalarsins
þar. Þessar myndir eru í eigu fólks á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Víða úti á
landsbyggðinni prýða myndir Gísla veggi
híbýla manna og nokkrar munu vera
erlendis.
Það er víst satt og rétt, sem gamall
málsháttur segir: „Sínum augum lítur
hver á silfrið".
Magnús Gíslason skáld orti til Gísla
Jónssonar listmálara eftirfarandi ljóð,
skrifaði það framan við ljóðin í ljóðabók
sinni, „Rúnir", er út var gefin árið 1916,
og sendi síðan Gísla þessa bók.
— (V U e (ji c
' ' -v, ' J
Þetta litla ljóð segir svo mikið um
baráttu og þrautseigju Gísla við að
sinna sínum meðfæddu hæfileikum
til myndlistar, að ekki verður það
betur gert í stuttu máli, enda var
Magnús vel kunnugur því, sem hann
þarna yrkir um í ljóði sínu.
Ég tel að Listasafn alþýðu hafi ráðist í
verðugt verkefni, sem verði því til sóma,
þar sem það nú setur upp sýningu á
verkum eftir Gísla Jónsson listmálara.
Þetta framtak stjórnenda listasafns
þessa gæti trúlega orðið til þess, að
íslenska þjóðin fengi í nútíð og framtíð
að vita meira um Gísla Jónsson listmál-
ara og verk hans en ella hefði orðið.
Margir listunnendur telja, að með
þessari sýningu komi til sögunnar einn
af hinum hreinu skæru frumtónum í
listasögu íslensku þjóðarinnar, sem þá
fengi að hljóma þar að verðleikum í
framtíðinni.
Ég þakka þetta framtak Listasafns
alþýðu og óska því til hamingju með hinn
nýja sýningarsal í von um að því megi
vel vegna í hlutverki því sem það var
stofnað til.
Ingveldur Gísladóttir.
Á því byggist öryggi þitt.
barða á fólksbílinn ættirðu að hafa
samband við næsta umboðsmann
okkar.
öryggi GOODYEAR hjólbarðanna
felst í öruggu gripi og afburða slit-
þoli, þar sem átak við hemlun lendir ^ *rmsr Æ fl
jafnt á öllum snertifleti hjólbarðans. Illf m wMW
Sértu að hugsa um nýja sumarhjól-
fr
-geíuiréttagripiö
HEKIAHF
Hjólbaróaþjónustan
Laugavegi 172, símar 28080 og 21240