Morgunblaðið - 08.05.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1980
Norðmenn
taka Rússa
Frá íréttaritara Morgunblaósins í Ósló.
SOVÉZKIR fiskibátar hafa
enn verið staðnir að ólögleg-
um veiðum í norskri land-
helgi.
Strandgæzluskipið „Mögst-
erfjord" kom nýlega að þrem-
ur sovézkum togurum þar sem
þeir voru að ólöglegum veiðum
og þeir skáru togvírana áður
en unnt reyndist að kanna
veiðarfærabúnað þeirra.
Norskur eftirlitsmaður var
um borð í einum togaranna
þegar höggvið var á vírana.
Staðhæft er að möskva-
stærð vörpunnar í einu skip-
inu hafi verið aðeins 55 milli-
metrar í stað 125 sem samn-
ingar kveða á um.
Norsk yfirvöld segja að upp-
lýsingar strandgæzlunnar
bendi til skýlausra brota á
ákvæðum um möskvastærð.
Yfirvöld líta það mjög alvar-
legum augum að skorið var á
togvíra því að það jafngildir
eyðileggingu sönnunargagna.
— Lauré.
Framleiðsla stýri-
flauga er
WashinRton — AP.
BANDARÍSKA varnarmálaráðu-
neytið hefur ákveðið að hafin
skuli framleiðsla á svonefndum
stýriflaugum (cruise missiles).
Höfðu þá tekist samningar við
Boeing-flugvélaverksmiðjurnar
um að þær skyldu framleiða allar
flaugarnar 3418, sem áætlanir
hafa verið gerðar um.
Á fundi sínum í desember sl.
ákváðu utanríkisráðherrar Atl-
hafin
antshafsbandalagslandanna, að
stýriflaugar skyldu verða hluti af
eldflaugavarnarkerfi bandalags-
ins á meginlandi Evrópu til and-
svars við kjarnorkueldflaugum
Sovétmanna þar. Stýriflaugar eru
að eðli litlar mannlausar flugvél-
ar, sem knúnar eru þotuhreyfli.
Eftir að þeim hefur verið skotið á
loft má breyta stefnu þeirra og
flughæð úr fjarlægð, flaugarnar
draga um 2500 km.
Misheppnuð bvlt-
ingartilraun í Irak
Símamynd AP.
Afganskur flóttamaður ásamt syni sínum i Nangarharfjöllum á landamærum Afganistans og
Pakistans, eftir flótta frá Afganistan.
FRÉTTASTOFA Mið-Austur-
landa í Kaíró hefur skýrt frá því
um helgina að gerð hafi verið
tilraun ti að steypa Saddam
Hussein forseta íraks af stóli
fyrir um það hil viku. Tilraunin
Hætta frá
njósnahnetti
WashinKton.
BANDARÍSKA utanríkis-
ráðuneytið hefur gagnrýnt
Rússa fyrir að skjóta á loít
karnorkuknúnum gervihnetti
svipuðum þeim og steyptist til
jarðar á heimskautssvæðum
Kanada fyrir tveimur árum
og lýsti áhyggjum sínum út
frá mannúðarástæðum.
Rússar segja að þetta sé
könnunargervihnöttur til nota
yfir úthafssvæðum, en talið er
að hann geti fylgzt með um-
svifum bandarískra herskipa á
Persaflóa.
Aðfarir írana
vekja viðbjóð
Frá íréltaritara MorRunhlaðsins
()nnu Bjarnadóttur í WashinKton.
MISIIEPPNUÐ tilraun Iianda-
rikjanna til að hjarga gíslunum 50 í
Teheran með valdi í síðustu viku er
enn efst í huga handarísku þjóðar-
innar. Jimmy Carter forseti varði
tilraunina á fundi með frétta-
mönnum á þriðjudagskvöld. Ilann
sagðist vera mjög vonsvikinn yfir að
hjorgunarferðin hafi mistekizt. en
sagði. að það myndi þo vera enn
verra. ef hún hefði ekki verið farin.
Mikil óþolinmæði hafði gripið um
sig hér, áður en tilraunin var gerð,
með árangurslausar tilraunir Carters
að frelsa gíslana með friðsamlegum
hætti. Ferð herliðsins til íran hefur
því fallið í góðan jarðveg, þótt hún
hafi mistekizt. Meðferð ayatollah
Khalkhali á leifum hermannanna 8,
sem létust, eftir að hætt hafði verið
við ferðina í árekstri þyrlu og flutn-
ingavélar, hefur vakið fullkominn
viðbjóð með þjóðinni. í sjónvarps-
fréttum á sunnudagskvöld voru sýnd-
ar myndir af honum gleiðbrosandi
yfir líkum mannanna, en orðin ein
voru látin lýsa því, þegar hann tók
upp ólíka líkamshluta og hampaði
þeim tii sönnunar illmennsku Banda-
ríkjamanna. Carter sagði á fundi
sínum, að þessar aðfarir sýndu bezt
við hvers konar menn Bandaríkin
ættu að etja í íran.
Mikið er rætt hvað gerðist við
björgunartilraunina, þegar 3 af 8
þyrlum ferðarinnar biluðu. Þetta hef-
ur leitt til umræðu um ástand
varnarmála Bandaríkjanna og sumir
segja, að þetta sýni bezt, að allt of
litlu sé eytt af almannafé til varn-
armála. Carter og Harold Brown,
varnarmálaráðherra, hafa báðir neit-
að að það sé hægt að draga þá
ályktun af ferðinni. Þeir segja, að
aðstæðurnar hafi verið svo erfiöar, að
það sé ekki að undra þótt þyrlurnar
hafi bilað. Á þriðjudag kom í Ijós, að
sandhlífar höfðu verið teknar af
þyrlunum fyrir ferðina til að létta
þær um 3%. Starfsmenn varnarmála-
ráðuneytisins neita að það hafi haft
nokkur áhrif á bilun þyrlanna.
Fréttir herma að gíslarnir hafi
verið fluttir úr sendiráðinu og dreift
á ýmsa staði eftir björgunartilraun-
ina. Starfsmenn Carters segja, að
þetta sé góð þróun og það verði
auðveldara að fá þá lausa nú. William
Branigin skrifar í The Washington
Post í dag frá Teheran, að þetta sé
ekki talin heppileg þróun þar og
gíslarnir séu í meiri hættu nú en
áður.
Það heyrist nú æ oftar, að rétt sé að
Carter hverfi frá ákvörðun sinni að
vera í Hvíta húsinu þar til gíslunum
verður sleppt. Hann fór i fyrstu ferð
sína síðan í nóvember á mánudag til
að hitta hermenn sent særðust í
björgunarferðinni og eru á sjúkrahúsi
í Texas. Sagt er, að á meðan hann
heldur sig innan veggja Hvíta hússins
sé hann einnig gísl ofstækismann-
anna í íran og þeir hafi þar með áhrif
á stjórn Bandaríkjanna.
ab.
32% kjósenda kunna
að kjósa Anderson
New York. AP.
32% Bandaríkjamanna segja að
verið geti að þeir kjósi óháða
frambjóðandann John Ander-
son í forsetakosningunum i
nóvember samkvæmt skoðana-
könnun AP og NBC.
65% þeirra sem spurðir voru
kváðust ekki vita nógu mikið um
Anderson til að hafa skoðun um
hann. 35% kváðust kannast vel við
hann. 62% kváðu ólíklegt að þeir
kysu hann og 6% voru ekki vissir.
42% óháðra kváðu líklegt að þeir
kysu Anderson, 29% demókrata og
25% repúblikana. Af þeim sem
þekktu Ánderson töldu 40% hann
frjálslyndan, 29% sögðu hann
hófsaman og 20% töldu hann
íhaldssaman.
24% töldu Jimmy Carter forseta
frjálslyndan, 34% hófsaman og
33% íhaldssaman.
20% töldu repúblikann Georg
Bush frjálslyndan, 33% hófsaman
og 37% íhaldssaman.
62% töldu Ronald Reagan
íhaldssaman, 17% hófsaman og
14% frjálslyndan.
Cronkite varaforsetaefni?
Fréttaþulurinn Walter Cronkite,
einn vinsælasti maður Bandaríkj-
anna, segir í tímaritinu New Re-
public að hann muni taka þátt í
kosningabaráttu Andersons en
seinna sagði hann, að ummæli sín
hefðu verið rangtúlkuð.
Haft er eftir Cronkite að hann
muni fallast á tilnefningu í vara-
forsetaframboð ef Anderson bjóði
honum upp á slíkt. „Mér þætti það
svo mikill heiður að verða beðinn
um það að ég mundi ekki hafna
því,“ sagði Cronkite. En seinna
neitaði hann því harðlega að hann
tæki í mál að gefa kost á sér.
Cronkite mun láta af störfum á
næsta ári eftir 30 ára feril hjá
CBS. Hann sagði í yfirlýsingu að
hann hefði oft verið spurður hvort
hann hefði ekki áhuga á stjórn-
málaafskiptum en alltaf sagt nei.
Samkvæmt skoðanakönnun 1972
hlaut Cronkite 73 stig á
„traustsvísitölu", 17 fleiri en Rich-
ard Nixon. Á árunum 1975—77 var
hann tilnefndur einn af 10
áhrifamestu mönnum Bandaríkj-
anna í könnun U.S. News & World
Report.
mistókst, en 137 hermenn féllu í
átökum.
Fréttastofan segir að tilraunin
hafi mistekizt aðallega vegna
samvinnuleysis milli tveggja
sveita úr stórskotaliðinu, sem báð-
ar ætluðu sér að ná yfirráðum yfir
hernaðarlega mikilvægum svæð-
um í höfuðborginni Bagdad án
þess að hafa nokkur samráð sín í
milli. Leiddi það til átaka og
mannfalls á báða bóga.
Hersveitir hliðhollar forsetan-
um komu þá á vettvang, og tókst
þeim að skakka leikinn og yfir-
buga uppreisnarsveitirnar. Fylgir
það fréttinni að fjöldi yfirmanna
úr stórskotaliðinu hafi verið hand-
tekinn.
ERLENT