Morgunblaðið - 08.05.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8r MAÍ1980
15
Heimsmeistarakeppnin í skák:
Fyrstu einvígislotuimi
„VIÐ MUNUM nú bráðlega óska eftir tilboðum í einvígi þeirra
Húbners og Portisch og Korchnois og Polugaevsky og ég á von á
því að það gangi betur en með fyrstu einvígin fjögur,“ sagði
Friðrik Óiafsson forseti FIDE í samtali við Mbl., en á
sunnudagskvöld lauk í Mexíkóborg einvígi þeirra Portisch og
Spasskys með sigri þess fyrrnefnda og þar með lauk fyrstu 4
eikvígjunum í heimsmeistarakeppninni. Friðrik sagði, að þessari
fyrstu einvígislotu hefði lokið nokkuð seinna. en ætlað var, en þó
ekki svo, að það ætti að hafa áhrif á framhaldið, en næstu
einvígislotu á að vera lokið fyrir 1. ágúst og einvíginu um
áskorendaréttinn á Karpov heimsmeistara á að vera lokið 1.
desember n.k.
Friðrik sagði, að úrslit fyrstu
fjögurra einvígjanna hefðu i
sjálfu sér ekki komið honum
sérstaklega á óvart. „Ég hefði þó
haldið að Tal myndi standa sig
betur en raun varð á, en það var
greinilegt, að hann var ekki við
fulla heilsu í einvíginu og sigur
Polugaevskys því auðveldur,"
sagði Friðrik. „Einnig var ein-
vígi þeirra Korchnois og Petrosj-
an rólegra en margir bjuggust
við eftir það sem á undan var
gengið, en ég býst við að flestir
hafi spáð Korchnoi sigri, eins og
reyndin varð.
Einvígi þeirra Húbners og
Adorjan var það einvígi, sem
menn fyrirfram voru ef til vill
ákveðnastir með sigurvegara úr.
Húbner tókst að vinna, eins og
allir bjuggust við en það varð
miklu knappara en menn áttu
von á. Einvígi þeirra Portisch og
Spasskys var ákaflega jafnt, eins
og menn máttu 'búast við.
Spassky vann Portisch í síðustu
heimsmeistarakeppni, en nú
sigraði Portisch á því að vinna
skák á svart. Þessi úrslit sýna í
sjálfu sér, hversu fáránlegar
einvígisreglurnar eru; keppend-
ur eru jafnir að vinningum, unnu
sína skákina hvor og gerðu
jafntefli í hinum. En Portisch
stóð betur að vígi, því hann vann
sinn sigur í annarri skákinni
með svörtu mönnunum og þurfti
ekki að vinna fleiri skákir, en
Spassky hins veear vann níundu
Friðrik
skákina með hvítu mönnunum
og þurfti að vinna aðra skák til
að verða sigurvegari.
Ég gerði tilraun til að breyta
þessu, en þegar til kom tókst það
ekki, bæði vegna andstöðu
þeirra, sem einvígin héldu, og
eins hins, að þegar á reyndi voru
skákmennirnir ekki samstiga í
Karpov
þessu. Á fundi með flestum
keppenda fyrir einvígin báðu
þeir mig um að breyta reglunum
þannig, að úrslit yrðu að fást á
skákborðinu, en ekki, eins og
reglurnar segja til um, að ef
keppendur séu jafnir að loknum
14 skákum, þá er sá sigurvegari,
sem vinnur fleiri skákir á svart
lokið
og ef það ekki sker úr málum, þá
er sá sigurvegari sem síðast
vann skák og loks ef það dugar
ekki, þá ræður hlutkesti.
Vegna beiðni skákmannanna
freistaði ég þess að fá þessu
breytt, þannig að keppendur
yrðu að tefla til úrslita, en þegar
til kom strandaði það á keppend-
um sjálfum, því Húbner taldi
lengra einvígi en 14 skákir
ástæðulaust. Hann slapp með
það, en hins vegar hefði einvígi
þeirra Portisch og Spasskys orð-
ið lengra, ef reglunum hefði
verið breytt og þeir þá teflt, þar
til annar stóð uppi sem sigurveg-
ari á taflborðinu.
Ég hef einnig frétt að Kor-
chnoi hafi skipt um skoðun,
þannig að þessu verður ekki
breytt, nema reglunum verði
formlega breytt á FIDE-þingi.
Þetta varð hálf kjánalegt mál
fyrir mig og eitt er víst, að ég fer
ekki aftur af stað með svona
mál, nema fyrir liggi undir-
skriftir allra, sem í hlut eiga. Að
öðru leyti tel ég að framkvæmd
þessarar fyrstu einvígislotu hafi
heppnast ágætlega."
Kjólamir voru tryggð-
ir fyrir 8 milljónir
MJÖG óvenjuleg tízkusýning var
á Hótel Sögu s.l. sunnudagskvöld
þegar 10 módelkjólar frá Gi-
venchy í París voru sýndir gest-
um á skemmtun sem Samvinnu-
ferðir og Landsýn efndu til.
Fatnaður frá þessu fyrirtæki
fæst ekki hérlendis en framleið-
andinn, Hubert Givenchy, féllst á
að lána kjólana á sýninguna. Voru
kjólarnir tryggðir fyrir hvorki
meira né minna en 8 milljónir
króna í þá fimm daga, sem
ferðalag þeirra til íslands og
„heim aftur" stóð yfir. Ilmvötn frá
fyrirtækinu eru hins vegar seld
hér og fengu gestir kvöldsins
gjafir frá því.
Þetta er lokaskemmtun Sam-
vinnuferða og Landsýnar í vetur
en fyrirtækið hefur eins og Útsýn
staðið fyrir skemmtunum á
sunnudagskvöldum í vetur og
njóta þessar skemmtanir ferða-
skrifstofanna vinsælda. Á sunnu-
daginn voru 680 matargestir í
Súlnasal, eins margir og þar
rúmast og hafði það sitt að segja
að Ivan Rebroff skemmti gestum
með söng sínum.
Myndin sýnir stúlkur úr Módel-
samtökunum sýna kjólana frá
Givenchy.
★ Kosin veröur ungfrú á hverjum staö
★ Þórskabarett
★ Halli — Laddi — Jörundur
★ íslenzki dansflokkurinn
★ Feröakynning — Feröaskrifstofan L
★ Hljómsveit Stefáns Þ
Ólafsfirði, föstudaginn 9. maí kl. 21.00.
Húsavík, laugardaginn 10. maí kl. 21.00.
Akureyri, sunnudaginn 11. maí kl. 19.00 og þá fer fram
úrslitakeppnin um Ungfrú NORÐURLAND.
Borðapantanir í Sjálfstæðishúsinu.
FERÖASKRfFSTQFAN
HLJÓMPLÖTUÚTG4MN hf.