Morgunblaðið - 08.05.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAI 1980
19
Félag ísl. stórkaupmanna:
Tollkrít talin geta gefið
miiljarða árlegan sparnað
Einar Birnir formaður Félags ísl. stórkaupmanna er hér staddur i
einni vöruskemmu Eimskips, en hann segir að aukið hagræði i
meðferð vöru myndi verða ef tekin verður upp tollkrít og ýmis
hagræðing í sambandi við hana. Ljosm. EmíHa.
FÉLAG ísl. stórkaupmanna telur
að með því að taka upp tollkrít.
greiðslufrest á aðflutningsgjöld-
um, og ýmis konar hagræðingu í
því sambandi megi spara allt að 3
milljörðum króna á ári og komi sá
sparnaður að mestu leyti fram í
lækkuðu vöruverði. Matthías A.
Mathiesen, íyrrum fjármálaráð-
herra, skipaði tollanefnd, sem m.a.
athugaði þetta mál og hefur hún
skilað áiiti, en næstu daga mun
Matthías leggja fram á Alþingi
frumvarp til laga um tollkrit, sem
byggist að nokkru á starfi nefnd-
arinnar.
Á fundi með fréttamönnum í
vikunni kynntu forráðamenn Fé-
lags ísl. stórkaupmanna fyrirkomu-
lag tollkrítar og sagði Einar Birnir,
formaður félagsins, að Gunnar
Guðmundsson verkfræðingur hjá
Rekstrarstofunni, sem starfaði með
tollanefndinni, hefði reiknað út
ofangreindan sparnað og greindi
hann þar frá útreikningum sínum.
Það helzta sem fram kom á fundin-
um um tollkrít og þá hagræðingu og
sparnað, sem af henni gæti leitt, er
eftirfarandi:
Hagræði að tollkrít er fyrst og
fremst skjótur flutningur vöru frá
flutningsaðila til kaupanda, heild-
verzlunar eða iðnaðar, geymslutími
hjá farmflytjanda styttist, en með-
algeymslutími hérlendis er 5 vikur
og í Danmörku 4—7 dagar. Skil á
tolli myndu verða hraðari og reglu-
bundnari, en gert er ráð fyrir að
einungis atvinnuinnflytjendur njóti
tollkrítar og myndu þá setja nauð-
synlegar tryggingar. Algengt er nú
að fluttar séu inn litlar vörusend-
ingar eða stærri sendingar leystar
út í smáum skömmtum og taki það
alllangan tíma, auk þess sem inn-
kaup geta verið óhagstæðari í
litlum einingum. Þá er gert ráð
fyrir sparnaði vegna minni með-
höndlunar vöru og geymslu, en
vörurnar yrðu fyrr fluttar frá
flutningsaðila til innflytjanda,
líkur eru á minni skemmdum vöru,
vextir vegna erlendra lána myndu
lækka og ýmis kostnaður vegna
hagræðingar í skjalameðferð myndi
lækka.
í Noregi og Danmörku hefur
tollkrítarfyrirkomulag verið í gildi
um 12 ára skeið og var það tekið
upp samhliða því að innflytjendur
hófu sjálfir að fylla út tollskýrslur,
en ekki tollayfirvöld eins og áður.
Siík tollmeðferð var einnig tekin
upp hér í byrjun þessa áratugs, en
skrefið ekki stigið til fulls að því er
innflytjendur segja, m.a. vegna
hárra tolla og tregðu banka til að
veita þær ábyrgðir, sem tollayfir-
völd töldu nauðsynlegar.
Miðað við 120 þúsund vörusend-
ingar á ári hefur verið reiknað út
hver sparnaður að tollkrít yrði og
eru helztu liðir þessir: Vegna með-
höndlunar og geymslu og minni
skemmda á vörum, 9.000 á hverja
sendingu eða um 1,1 milljárður.
Vegna lækkunar erlends vaxta-
kostnaðar 4.500 á sendingu eða um
600 milljónir. Vegna minni kostnað-
ar við skjalameðferð á hverja
sendingu, en hún er nú talin um
35.000 kr., en gæti lækkað um 7.500
á hverja sendingu eða um 900
milljónir. Samtals eru þetta 2,6
milljarðar, en auk þessa beina
útreiknanlega sparnaðar er talið að
tollkrít skapi möguleika til al-
mennrar hagræðingar, sem skilaði
sér á lengri tíma, og hún metin um
3 milljarðar þegar allt sé talið, sem
sé svipuð upphæð og ríkið verji á
ári til utanríkisþjónustunnar eða til
rekstrar Landhelgisgæzlunnar eða
lögreglunnar í Reykjavík.
Á fundinum með fréttamönnum
töldu forráðamenn stórkaupmanna
líklegt að yfirvöld samþykktu að
taka upp þetta kerfi, það myndi
vissulega kalla á ákveðnar skipu-
lagsbreytingar bæði \ tollmeðferð
og meðhöndlun vörunnar hjá flutn-
ingsaðilum og innflytjendum, en
tollkrítin myndi hafa slíka hagræð-
ingu í för með sér að menn þyrftu
ekki að vera í vafa um ágæti
hennar.
Kennaraháskólinn:
14 námskeið í sumar
fyrir starfandi kennara
í SUMAR verða á vegum Kennaraháskóla íslands 14 námskeið fyrir
starfandi grunnskóiakennara. Námskeiðin eru fjölbreytt að inntaki —
nýtt námsefni er kynnt — einnig nýir starfshættir — fjallað er um ný og
gömul viðhorf í kennslumálum. Námskeiðin eru einnig mikilvæg vegna
þess að þar hittast kennarar og miðla hver öðrum af starfsrey.islu sinni.
Kennarar sýna endurmenntun
mikinn áhuga, en hennar er sífellt
þörf bæði vegna breytinga á náms-
efni og breyttra starfshátta í
kennslu. Umsóknarfrestur um
námskeiðin var til 20. apríl og um
mörg námskeiðin sækja töluvert
fleiri en hægt er að taka á móti,
ennþá komast samt nokkrir að á
eftirtalin námskeið:
Námskeið fyrir málakennara í
6.-9. bekk grunnskóla, 30. júní—2.
júlí. Námskeiðið er haldið í tengsl-
um við ráðstefnu norrænna mála-
kennara í Reykjavík 23.-29. júní.
Stærðfræði fyrir kennara 4.-6.
bekkjar 9.—14. júní.
Náms- og starfsfræðsla 12.—22.
ágúst.
Námskeið í Danmörku fyrir
dönskukennara í 4.-6. bekk
grunnskóla 12,—28. ágúst.
Námskeið í stjörnufræði 25,—30.
ágúst. Námskeiðið er einkum ætlað
kennurum í eðlisfræði og landa-
fræði í 5.-9. bekk grunnskólans.
Námskeið fyrir íþróttakennara
23.—27./28. júní.
Námskeið í heimilisfræði 25,—30.
ágúst.
Heimspekingurinn Robert Noz-
ick hefur hlotið mikið lof fyrir
bók sína, Anarchy, State and
Utopia. Pöntunarþjónusta Fé-
lags frjálshyggjumanna, póst-
hólfi 1334, 121 Reykjavík, sér
um að útvega hana áhugam-
önnum.
Réttlát væri þannig sú tekju-
skipting, sem yrði til úr viðskipt-
um frjálsra einstaklinga á mark-
aði.
Nozick tæki mörg skemmtileg
dæmi í bók sinni til að sýna það,
að stjórnvöld yrðu alltaf að
grípa til óæskilegra afskipta af
lífi einstaklinganna, ef þau ætl-
uðu að neyða einhverri forskrift
um réttláta tekjuskiptingu upp á
þá. Hann benti einnig á, að galli
væri í sjálfri þeirri hugmynd, að
ríkið ætti að koma nálægt skipt-
ingunni. Kjarni málsins væri sá,
að ekkert væri til neinna skipta,
því að einstaklingarnir hefðu
þegar skipt öllu með sér. Ekki
væri til neinn haugur af lífsgæð-
um, sem biði þess eins, að komið
yrði að honum og lífsgæðunum
dreift til einstaklinganna. Það
sem einn væri látinn fá, væri
tekið frá einhverjum öðrum, og
réttlæta yrði þá töku, en það
tækist ekki.
Nozick benti á það í bók sinni,
að vitanlega væru kostir manna
á viðskiptum takmarkaðir, en
ekki væri um að ræða ranglæti,
ef takmörkunin væri vegna
frjáls vals annars. Það væri ekki
ranglæti, þótt kona hafnaði biðli
eða vinnuveitandi umsækjanda
um starf, heldur frjálst val.
Nozick er að sögn Hannesar
Hólmsteins einn snjallasti tals-
maður afdráttarlausrar mann-
réttindastefnu, sem nú lifir, þótt
kenning hans hljóti að vera
umdeild. Hannes sagði, að
stjórnmálaumræður á íslandi
einkenndust af fremur óskýrri
nytjahyggju, en gegn henni hefði
Nozick margvísleg rök.
Fyrirlesturinn var fjölsóttur,
og urðu fjörugar umræður eftir
hann.