Morgunblaðið - 08.05.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
23
Bahram Deghani Tafti
Biskups-
sonur
myrtur
í Iran
Teheran, 7. mai — AP.
TUTTUGU og fjögurra ára
gamall sonur yfirmanns ensku
biskupakirkjunnar í íran, Bah-
ram Dejfhani Tafti, var veginn
úr launsátri í dag. Hann var
túlkur erlendra fréttamanna i
Teheran.
Honum var veitt fyrirsát
þegar hann ók til hótels i
miðborg Teheran frá háskóla i
norðurhverfi borgarinnar þar
sem hann var fyrirlesari. Árás-
armennirnir munu hafa neytt
hann til að fara út úr bilnum
áður en þeir skutu hann.
Tafti sagði erlendum frétta-
mönnum kvöldið áður en hann
lézt að brotizt hefði verið inn í
íbúð hans og að hann óttaðist
um öryggi sitt.
í söfnuði föður hans, Deghani
Tafti biskups, eru 4.000 manns.
Fyrir einni viku særðist skozkur
ritari biskupsins, Jean Waddell,
alvarlega þegar vopnaðir menn
réðust inn í íbúð hennar og
skutu hana. Ensk kona biskups-
ins, Margaret, var skotin í
annan handlegginn þegar ráðizt
var á hús þeirra í Isfahan í
fyrra.
Ritari byltingarráðsins, Aya-
tollah Muhammed Beheshti,
hvatti í dag til algerrar endur-
dreifingar einkaauðs í íran til
að tryggja jafna tekjuskiptingu.
Hann sagði einnig að lyktir
umsátursins um sendiráð Irans
í London mundu ekki flýta fyrir
því að bandarísku gíslarnir í
Iran yrðu látnir lausir. Hann
sagði að þingumræður um örlög
Bandaríkjamannanna mundu
ekki fara fram fyrr en um
miðjan júní.
Bandaríkjaforseta
saknað í Belgrad
BrlKrad. 7._mai. AP.
í KJÖLFAR Walter Mondale varaforseta Bandaríkj-
anna, Margaret Thatcher forsætisráðherra Bretlands
og Filipusar drottningarmanns kom voldugasti útfar-
argesturinn, Leóníd Brésneff, til Belgrad í dag. Við
komuna til Júgóslavíu lögðu bæði Mondale og Thatcher
ríka áherzlu á áhuga þjóða sinna á að styrkja tengsl við
Júgóslava.
Sú ákvörðun Carters forseta
að vera ekki við útför Títós
hefur valdið vonbrigðum og
ýmsir telja hana óviturlega,
ekki sízt þar sem Brésneff
forseti Sovétríkjanna er meðal
gestanna. I Lundúnablaðinu The
Times er veitzt harkalega að
Carter af þessu tilefni, og segir
m.a. i forystugrein að ákvörðun
hans sé enn eitt dæmið um að
Bandaríkjunum sé stjórnað af
manni, sem sé ekki aðeins ráð-
villtur heldur beinlínis blindur á
einföldustu staðreyndir í ýms-
um málum. „Hann hefði ekki
getað gefið Júgóslövum skýrar
til kynna að Rússar láta sig þá
meira varða en hann gerir,"
segir hið virta blað.
Meðal útfarargesta eru Indira
Gandhi forsætisráðherra Ind-
lands, Zia Ul-Haq forseti Pak-
istans, Hua Kuo-Feng forsætis-
ráðherra Kína, Helmut Schmidt
kanslari V-Þýzkalands, svo
fáein nöfn séu nefnd, en alls
verða 34 þjóðhöfðingjar við út-
förina, auk 34 forsætisráðherra.
Brésneff var studdur niður
stigann er hann sté út úr flugvél
sinni í dag, en tekið var eftir því
að hann gekk hjálparlaust eftir
rauða dreglinum að bifreið sem
flutti hann á áfangastað í
Belgrad. í för með Mondale
varaforseta eru m.a. Lillian
Carter forsetamóðir og Averell
Harriman, sem á árum áður var
sendiherra Bandaríkjanna í
Júgóslaviú.
Hvíta húsið hefur svarað
gagnrýninni á Carter forseta
fyrir að fylgja Tító ekki til
grafar á þá lund, að forsetinn
telji „utanlandsferð við núver-
andi aðstæður ekki við hæfi“.
Ónafngreindur ráðamaður í
Washington segir að hér sé átt
við gíslamálið, en forsetinn líti
það mál svo alvarlegum augum
að hann telji útilokað að hafa í
frammi „sýndarmennsku í
Belgrad á meðan Róm brennur",
eins og það var orðað.
16 ára piltur
rændi flugvél
Lissabonn, 7. maí. AP.
16 ÁRA piltur kom fyrir
rétt í Lissabon í dag, en í
gær rændi hann flugvél
rétt fyrir lendingu í Faro,
sem er syðst í Portúgal. I
vélinni voru 83 farþegar,
auk áhafnar, en drengur-
inn krafðist þess að flogið
yrði til Madrid til að taka
þar eldsneyti áður en hald-
ið skyldi til Sviss. Hann
var vopnaður skammbyssu
og krafðist 10 milljón dala
lausnargjalds fyrir
sleppa farþegunum.
að
Portúalska vélin lenti í Madrid,
en eftir alllanga viðdvöl á flugvell-
inum þar tókst portúgalska sendi-
herranum í borginni að telja
flugræningjann á að láta af kröf-
um sínum og gefast upp. Hann var
síðan fluttur til Lissabon og var
handtekinn við komuna þangað.
Talið var í fyrstu að unglinga-
dómstóll mundi fjalla um mál
hans, en í dag var úrskurðað að
hann skyldi koma fyrir almennan
dómstól.
Þetta gerðist
1979 — Vinstrisinnar leggja undir
sig dómkirkju og tvö erlend sendiráð
í E1 Salvador.
1973 — Uppgjöf Indíána í Wounded
Knee, Suður-Dakota, eftir 70 daga
umsátur.
1972 — Skipun Nixons forseta um
að tundurduflum verði komið fyrir í
höfnum Norður-Víetnam.
1965 — Sheik Abdullah, leiðtogi
Kasmírbúa, handtekinn.
1958 — Aðförin gegn Nixon vtrafor-
seta í Lima, Perú.
1945 — Friður í Evrópu — Þjóðverj-
ar gefast upp fyrir Rússum nálægt
Berlín — Oeirðir þjóðernissinna í
Alsir.
1942 — Orrustunni á Kóralhafi
lýkur með sigri Bandamanna.
1926 - Frönsk flotaárás á Beirút
vegna uppreisnar Drúsa.
1921 — Dauðarefsing lögð niður í
Svíþjóð.
1916 — Anzac-her Ástralíu og
Nýja-Sjálands kemur til Frakk-
lands.
1897 — Grikkir fara fram á íhlutun
stórveldanna gegn Tyrkjum.
1895 — Japanir láta Port Arthur af
hendi við Kínverja.
1886 — Stórveldin setja hafnbann á
Grikkland.
1864 — Orrustan við Spottsylvan-
ia-dómhúsið hefst.
1852 — Fullveldi Danmerkur tryggt
með samningi Breta, Rússa, Prússa,
Austurríkismanna og Svía í Lundún-
um.
1846 — Zachary Taylor sigrar Mexí-
kana við Palo Alto.
1811 — Wellington sigrar Frakka
við Fuentas de Onoro.
1704 — Sókn Marlborough til Dónár
hefst.
1541 — Hernando de Soto finnur
Mississippi-fljót nærri þar sem nú er
Memphis, Tennessee.
Afmæli: Ruggiero Leoncavallo,
ítalskt tónskáld (1858 - 1917) -
Harry S. Truman, bandarískur for-
seti (1884 — 1973) — Henri Dunant,
svissneskur stofnandi Rauða kross-
ins.
Andlát: 1873 John Stuart Mill,
heimspekingur — 1880 Gustave
Flaubert, rithöfundur.
Innlent: 1636 Heklugos hefst — 1739
f. Hannes Finnsson biskup — 1319 d.
Hákon kgr háleggur — 1719 Sýslu-
maður Skagfirðinga, Benedikt
Magnússon Bech, drukknar í Hér-
aðsvötnum ásamt fylgdarmanni —
1860 Kötlugos hefst — 1865 Hilmari
Finsen veitt stiftamtmannsembætt-
ið — 1883 Thomsen bíður ósigur í
Elliðarármálum í Hæstarétti — 1908
Alþingi rofið — 1926 Taugaveiki á
ísafirði — 1929 Jan Mayen verður
norskt yfirráðasvæði — 1945
Óspektir við brezka sjóliða á Friðar-
deginum — 1965 Magnús Jónsson
skipaður fjármálaráðherra — 1974
Þingrof — 1953 d. Oddur af Skagan-
um — 1895 f. Árni Eylands.
Orð dagsins: Ef mannkynið hefði
óskað sér þess sem er rétt kynni það
að hafa öðlazt það fyrir löngu —
William Hazlitt, enskur rithöfundur
(1778 - 1830).
MONDALE KEMUR — Walter Mondale.varaforseti Bandarikjanna,
kannar heiðursvörð ásamt Vidoje Zaekovic úr júgóslavneska rikisráð-
inu við komuna til Belgrad þar sem hann verður viðstaddur útför
Titos forseta.
BREZHNEV KEMUR — Leonid Brezhnev lyftir upp þumalfingri í
samræðum við Mijatovic, varaforseta Júgóslaviu, er hann kom til
Belgrad i gær til að vera viðstaddur útför Josip Broz Tito forseta.
Obote heim
til Uganda
I)ar Es Salaam. 7. maí. AP.
MILTON Obote fyrrverandi forseti Uganda, sem Idi Amin steypti af stóli
fyrir níu árum tilkynnti í dag að hann hygðist snúa aftur til Uganda frá
Tanzaníu. þar sem hann hefur dvalizt í útlegð. 27. maí og að hann kynni að
gefa kost á sér til forseta.
Obote sagði fréttamönnum á heimili sínu í Dar Es Salaam að hann
sæktist ekki eftir völdum en va*ri reiðubúinn að gegna hvers konar
hlutverki í stjórnmálalifi Uganda.
Hann gaf í skyn að stjórn Godfre.v
Binaisa í Kampala yrði ekki ánægð
með heimkomu hans, en sagði að
óbreyttir borgarar í Uganda hefðu
beðið sig að koma aftur til landsins.
Fréttir um byltingu
Obote harðneitaði nýlegum frétt-
um um að hann og stuðningsmenn
hans skipulegðu byltingu og kvað
það orðróm sem ráðamenn hefðu
komið á kreik til að dreifa athyglinni
frá vandamálum sem þeir ættu við
að stríða.
Hann sagði að hann færi fyrst til
Bushenyi í Vestur-Uganda nálægt
landamærum Tanzaníu þar sem
hann hefur mikið fylgi þótt hann sé
ekki ættaður þaðan.
Obote sagði að flokkur hans, UPC,
hedli ráðstefnu bráðlega til að velja
forsetaframbjóðanda þótt Binaisa-
stjórnin hefði lýst því yfir að
stjórnmálaflokkar fengju ekki að
heyja kosningabaráttu fyrir kosn-
ingarnar sem fyrst um sinn er stefnt
að því að fari fram í nóvember eða
desember. Frambjóðendur eiga að
gefa kost á sér sem einstaklingar
undir merki Þjóðfrelsisfylkingarinn-
ar.
Ákveðið að hef ja
í sumar
boranir
Ósló, 7. maí — AP.
STÓRÞINGIÐ hefur samþykkt að
hefja skuli oliuboranir norðan 62.
breiddarbaugs i sumar. Við um-
ræður kom fram tillaga um að
fresta borunum, en hún féll með 97
atkvæðum gegn 43.
Framkomin vantrauststillaga
Sósíalíska vinstriflokksins gegn
ríkisstjórninni fékk aðeins fimm
atkvæði, þ.e.a.s. þingmanna Sósíal-
íska vinstriflokksins, sem eru tveir,
tveggja miðflokksmanna, auk þess
sem einn þingmaður Vinstriflokks-
ins greiddi atkvæði með tillögunni.