Morgunblaðið - 08.05.1980, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
Vopnafjörður:
Kaupfélagið hélt fund
með húsmæðrum staðarins
Vopnafirði, 7. maí.
KAUPFÉLAG Vopnfirðinga hélt
í gær fund með húsmæðrum á
staðnum. Var þar matvælakynn-
ing á Goðavörum, auk þess sem
sýndur var fatnaður. Boðið var
upp á kaffi og meðlæti á eftir. Þá
voru ýmis önnur málefni rædd og
svöruðu kaupfélags- og deildar-
stjóri fyrirspurnum sem fram
voru bornar.
Mjög góð þáttaka var á fundin-
um eða liðlega eitthundrað konur
og er í ráði að halda slíkan fund
aftur á næsta ári.
Undanfarið hefur verið unnið að
stækkun kaupfélagsins og er hún
á lokastigi. Komnar eru nýjar
kæli- og frystigeymslur auk ýmis-
legs annars til hagræðingar.
— Katrín.
Skýrsla um öryggi
á Norðurslóðum
Á vegum þingmannasambands Atlantshafsbandalagsins er nýlega
komin út skýrsla, sem ber heitið öryggi á Norðurslóðum (Security in
the Northern Region). Skýrslan er samin á grundvelli samþykktar á
fundi þingmannasambandsins 1977 og var gerð hennar lokið á siðasta
hausti og hún þá lögð fyrir ársfund sambandsins í Ottawa.
í skýrslunni er fjallað um hern- samskipti Norðmanna og Sovét-
aðarlegu stöðuna á varnarsvæði
Atlantshafsbandalagsins í Noregi,
Danmörku og Slesvík — Holtseta-
landi. Þá eru þar einnig könnuð
umsvif Sovétmanna í lofti og á legi
á Atlantshafi og þáttur Islands,
Grænlands, Færeyja og Norður—
Skotlands í vörnum bandalagsins.
Gerð er grein fyrir framlagi
Bandaríkjanna, Kanada og Bret-
lands til varna á Norðurslóðum,
sem byggist fyrst og fremst á
liðsflutningum á hættutímum.
Metin er þýðing Barentshafs og
heimskautssvæðisins með tilliti til
langdrægra kjarnorkuvopna. Gerð
er grein fyrir gildi Svíþjóðar og
Finnlands fyrir öryggið á Norður-
slóðum. Fjallað er um breytt við-
horf vegna útfærslu lögsögu ríkja á
þessum slóðum og þá einkum
FEGURÐARSAMKEPPNI — Um síðustu helgi fór fram
fegurðarsamkeppni í Hnífsdal og varð Lára Guðrún
Jónsdóttir frá Bolungarvík hlutskörpust. Ljósmyndari Mbl.
Gunnar tók þessa mynd af Láru við höfnina í Bolungarvík.
Ný malbikunarstöð
keypt til Akureyrar
GENGIÐ hefur verið frá kaup-
um á malbikunarvél fyrir Ak-
ureyrarbæ frá Danmörku og
er kaupverð hennar um ein
milljón danskra króna eða
tæpiega 80 milljónir íslenzkra
króna að því er segir í Akur-
eyrarblaðinu Degi fyrir
skömmu.
Malbikunarstöðin er þegar til-
búin til afhendingar ytra og má
vænta þess að hún verði komin í
gagnið fyrri hluta sumars.
Að undanförnu hefur verið unn-
ið að bráðabirgðaviðgerðum á
gömlu malbikunarstöðinni vegna
mikillar eftirspurnar eftir mal-
biki.
Hestamenn ríða fylktu liði til kirkju á Bolungarvík.
Ljósmynd Mbl. Gunnar.
Bolungarvík:
Hestamenn riðu til kirkju
manna. Loks er leitast við að
skilgreina hvaða auðlindir kunni
að verða unnt að nýta á heim-
skautssvæðinu.
Skýrslan er rúmar 70 blaðsíður
með kortum. 16 þingmenn voru í
nefndinni, sem sömdu hana og laut
hún formennsku Lasse Budtz frá
Danmörku. Jón G. Sólnes og John
C. Culver voru tilnefndir til að hafa
ritstjórn skýrslunnar með höndum,
en að ritun hennar störfuðu tveir
starfsmenn hermálanefndar þing-
mannasambandsins, þeir Simon
Lunn og Robert Bell.
í störfum sínum ferðaðist nefnd-
in eða undirnefndir á hennar veg-
um um það svæði, sem til athugun-
ar var, og efndi hún meðal annars
til funda hér á landi.
BoiunRarvík, 7. maí.
FÉLAGAR úr Hestamannafélag-
inu Gný fjölmenntu síðastliðinn
sunnudag til kirkju og hlýddu á
messu hjá séra Gunnari Björns-
syni.
Fyrir hestamannafylkingunni
riðu presthjónin séra Gunnar og
Veronicka Björnsson, en þau eru
bæði félagar í hestamannafélag-
inu.
Hestamannafélagið Gnýr var
stofnað árið 1973 og eru félagar nú
um 40. Áformað er að hluti félaga
sæki fjórðungsmót á Snæfellsnesi
í byrjun júlí og verður farið
ríðandi þangað. Formaður félags-
ins er Jón G. Guðmundsson.
Gunnar.
Úr kvikmyndinni frá ólymp-
íuleikunum í Tókýó sem sýnd
verður í Tjarnarbíói í kvöld,
laugardag og sunnudag.
Fjalakötturinn:
Kvikmynd
frá Ólympíu-
leikunum í
Tókýó 1964
í KVÖLD, fimmtudagskvöld,
kl. 21, á laugardag kl. 17 og
sunnudag kl. 17, 19:30 og 22
sýnir Fjalakötturinn í Tjarn-
arbíói kvikmyndina Olympiu-
leikarnir í Tókýó, Tokyo 01-
ympical, eftir Kon Ichikawa.
Er þetta japönsk mynd, sem
var tekin á Olympíuleikunum í
Tókýó árið 1964 og ættu engir
íþróttaáhugamenn né kvik-
myndaáhugamenn að láta
myndina framhjá sér fara, seg-
ir í frétt frá Fjalakettinum.
Útfærslan við Grænland:
Viræður við Dani
og EBE nánast haf nar
- sagði sjávarútvegsráðherra
Engar ákvarðanir hafa verið
teknar um breytingu á veiðiheim-
ildum erlendra skipa innan fisk-
veiðilögsögu okkar, sagði Stein-
grímur Hermannsson, sjávarút-
vegsráðherra, á Alþingi er hann
svaraði fyrirspurn Eiðs Guðna-
sonar um það efni. Þau mál eru í
ítarlegri endurskoðun sagði ráð-
herra. Hann sagði viðræður við
Dani eða EBE í undirbúningi,
vegna væntanlegrar útfærslu fisk-
veiðilögsögu við Grænland, sem
skiptu íslenzka hagsmuni verulega
miklu. Væru þær umræður
skammt undan og nánast hafnar,
þó ekki væru formlegar ennþá.
Matthías Bjarnason, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, fagnaði því,
að þetta mál væri loks komið á
umræðustig, en langt væri síðan
hann hefði kvatt Alþingi til að
taka upp viðræður við viðkomandi
aðila um íslenzka hagsmuni, varð-
andi þessa ráðgerðu útfærslu, en
þeir væru mjög mikilvægir. Fyrir-
spyrjandi, Eiður Guðnason, efaði,
að raunhæft eftirlit væri með
veiðum útlendinga hér við land.
Vel mætti skylda þá til að koma í
íslenzka höfn, til eftirlits með
afla, áður en þeir sigldu til
heimahafnar. Veiðiskip Norð-
manna væru frekar fljótandi
frystihús en línuveiðarar, eins og
vera ætti. Ástæða væri til að
endurskoða veiðiréttindi bæði
Norðmanna og Færeyinga hér við
land.
Erlend skátamót 1980
FERÐIR íslenskra skáta á erlend
skátamót hafa alltaf verið vinsælar
og margir eiga bestu endurminningar
frá skátastarfinu, þegar þeir ungir
fóru utanlands.
I sumar ætla íslenskir skátar að
efna til 3ja ferða, til Danmerkur,
Englands og Skotlands, en það eru
eftirtalin mót:
„Nauðsynlegt
svartbaki enn
að fækka
frekar46
- segir Árni Jónasson, erindreki hjá Stéttarsambandi bænda
Þrenn lög voru
samþykkt frá
Alþingi í gær
Þrenn lög voru samþykkt frá
Alþingi í gær; staðfesting á
bráðabirgðalögum frá í sumar
um 2% hækkun söluskatts; lög
um lögskráningu sjómanna
(frumvarp Péturs Sigurðssonar
um bótaskyldu ríkissjóðs ef
tryggingarákvæði eru vanrækt)
og lög um lífeyrissjóð bænda.
NOKKRAR umræður hafa spunn-
ist um réttmæti aðferða við fækk-
un svartbaks, en undanfarin ár
hefur verið heimilt samkvæmt
reglugerð að reyna svokallaða
svæfingaraðferð. Hún er þannig
að fuglinn er svæfður og síðan
skotinn með haglabyssu. Reglu-
gerð þessi rennur nú út innan
tíðar og rætt hefur verið um
setningu laga um þessi mál á
Alþingi og sýnist sitt hverjum.
Árni Jónsson, erindreki Stéttar-
sambands bænda sagði að þeir
aðilar sem á sínum tíma feflgu
reglugerðina setta, þ.e. Búnaðarfé-
lag íslands, Stéttarsamband
bænda, Landsamband veiðifélaga
og Æðarræktarfélag íslands væru
sammála um að þessi aðferð hefði
gefið mjög góða raun þau ár sem
þetta hefur verið leyft, en það hafa
verið trúnaðarmenn veiðimála-
stjóra Sveins Einarssonar, sem
leyfi hafa haft til þessara aðgerða.
Árni sagði að reynslan hefði sýnt
að þessa aðferð væri mjög gott að
nota á staðbundna fugla eins og
svartbakinn og hrafninn. Eini ann-
markinn væri kannski sá að ekki
væri hægt að beita aðferðinni í
námunda við sjó, þar sem fuglarnir
flygju þá út á sjóinn og drukknuðu
þar, í stað þess að vera skotnir.
Þessari fækkun hefur aðallega ver-
ið beitt í námunda við sláturhús,
sorphauga og sveitabæi og sagði
Árni að sem dæmi um mátt aðferð-
arinnar þá hefðu verið svæfðir á
annað hundrað fuglar í einni svæf-
ingu.
Þá kom það ennfremur fram hjá
Árna að með mikilli fjölgun svart-
baksins að undanförnu væri fuglinn
orðinn mun grimmari en áður þar
seirr þeir færu saman í stórum
flokkum og gætu þess vegna lagst á
mun stærri og máttugri dýr en áður
tíðkaðist.
1. Landsmót dönsku K.F.U.M.
skátanna LANGESKOVLEJREN
1980, sem haldið er nálægt Odense á
Fjóni dagana 8,—16. júlí.
2. Alþjóðlegt skátamót (Jambor-
ette) í Derbyshire í Englandi, sem
heitir PEAK ’80 og er dagana 26.
júlí—2. ágúst.
3. Alþjóðlegt flokkamót í BLAIR
ATHOLL í Skotlandi dagana 22. júlí
til 1. ágúst.
Eins og venja hefur verið er boðin
vikudvöl á heimilum skáta viðkom-
andi lands.
Til þess að geta tekið þátt í þessum
mótum þurfa skátar að vera orðnir 13
ára (fædd 1967).'
Upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu Bandalags íslenskra skáta (kl.
9—13) og þarf umsókn að hafa borist
fyrir 1. júní.
(Frá Bandalagi ísl. skáta)
Vilja formlegar
viðræður við
Dani
ÞINGFLOKKUR Alþýðu-
flokksins hefur samþykkt
áskorun þess efnis að ríkis-
stjórnin óski þegar eftir form-
legum viðræðum við Dani
vegna útfærslu efnahagslög-
sögunnar við Grænland.