Morgunblaðið - 08.05.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1980
29
Árni G.
85 ára í
Það var mikil hamingja og
uppörvun fólgin í því fyrir
íslenska búfræðinga að hefja starf
fyrir bændastéttina hér á landi á
þriðja áratug þessarar aldar.
Aldrei áður hafði á svo skömmum
tíma verið brotið upp á svo
mörgum nýjungum í málefnum
landbúnaðarins eins og þá, nýj-
ungum sem horfði til framfara
fyrir bændur landsins og höfðu
mikil áhrif á næstu áratugum og
allt fram á okkar dag. Margir
lögðu fram lið sitt í þessu efni, en
ókrýndur foringi þeirra var án efa
Sigurður Sigurðsson, áður skóla-
stjóri á Hólum í Hjaltadal, síðar
búnaðarmálastjóri.
Einn í þessari sveit var Arni G.
Eylands. Eftir búfræðipróf frá
Hólum 1913 dvaldi hann við nám í
Noregi og Þýskalandi og var
meðal annars verkstjóri og bú-
stjóri í Noregi 1915—1921. Var
hugur hans og starf fyrst og
fremst helgað bútækni og hvers-
konar búnaðarvélum og verkfær-
um.
Frá Noregi kom Árni heim til
íslands vorið 1921. Varð hann þá
einn af starfsmönnum við Búsá-
haldasýninguna, sem haldin var í
Reykjavík þá um sumarið. Var
hún mikið sótt af bændum, sem
Eylands
dag
margir í fyrsta sinn fengu að sjá
margs konar ný verkfæri, sem
nota mátti við búskapinn. Þessi
sýning var sótt af 5000 manns og
hafði vissulega mikil áhrif á hug
bænda til bútækni, ef til vill meiri
áhrif en flestar aðrar sýningar,
sem haldnar hafa verið hér á
landi.
Sama ár (1921) var fluttur inn
Þúfnabani, lang stórvirkasta tæk-
ið, sem hér hafði verið notað við
jarðvinnslu. Var Árni valinn sem
einn fyrstu stjórnandi þeirrar
vélar. Sumarið 1921 var sléttað
með vélinni 70 ha í nágrenni
Reykjavíkur, en næsta sumar 116
ha. Fleiri þúfnabanar voru keypt-
ir, sumir til Eyjafjarðar.
Þúfnabanarnir skópu stórhug
hjá bændum og öðrum ræktunar-
mönnum og urðu fyrirrennarar
dráttarvélanna, sem reyndust
liprari og handhægari, einkum við
minni framkvæmdir.
Tveimur árum eftir að þúfna-
banarnir voru teknir í notkun hér,
voru samþykkt á Alþingi Jarð-
ræktarlögin, sem með margs kon-
ar breytingum gilda enn í dag.
Með þeim var styrkur til ýmissa
framkvæmda bænda aukinn til
mikilla muna. I ræktun og bygg-
ingum til sveita urðu nú stórstígar
framfarir og miklu meiri en áður
hafði þekkst.
Árni G. Eylands fékk þvi strax
nóg að starfa. Hann varð 1921
verkfæraráðunautur Búnaðarfé-
lags íslands og naut tækniþekk-
ingar sinnar í því starfi til 1937.
Hann var um langt árabil formað-
ur Verkfæranefndar (1921—1945)
og á sama tíma starfsmaður hjá
S.Í.S. Réði hann um þetta leyti
miklu um það, hvaða landbúnað-
arverkfæri og vélar voru fluttar
til landsins og seldar bændum.
Þótti bændum gott að fara eftir
ráðum hans í þeim efnum, sem og
í mörgu öðru.
Þegar Áburðareinkasala ríkis-
ins var sett á stofn 1929, varð Árni
fyrsti forstjóri hennar og gegndi
því starfi til 1945. Hann var einnig
fyrsti forstöðumaður Grænmetis-
verslunar ríkisins, en það fyrir-
tæki var stofnað 1936 (til 1943).
Árin 1946 til 1958 var Árni G.
Eylands stjórnarráðsfulltrúi í
Reykjavík og ólaunaður starfs-
maður við sendiráð íslands í Oslo
1960-1964.
Árni er mjög vel ritfær. Hefur
hann skrifað margar bækur og
fjölda af ritgerðum í tímarit og
blöð innanlands og utan (vafa-
laust yfir 100). Stærsta ritverk
hans er bókin „Búvélar og rækt-
un“, sem kom út 1950 og var í
fremstu röð bóka um það efni á
Norðurlöndum, 475 bls. að stærð.
Auk bóka hans og ritgerða um
landbúnað, mest um verkfæri,
tilbúinn áburð og ræktun, hafa
komið út eftir Árna þrjár ljóða-
bækur. Hann var ritstjóri búnað-
arblaðsins Freys 1924—1925 og
1939-1945.
Fyrir mikið og farsælt starf
hefur Árni G. Eylands oftlega
hlotið margskonar viðurkenningu.
Hann er heiðursfélagi Þjóðrækn-
isfélags íslands í Vesturheimi,
Búnaðarsambands Suðurlands,
búvísindafélagsins N.J.F. og Ark-
itisk Forening í Tromsö. Þá hefur
hann verið sæmdur Fálkaorðunni
íslensku og riddarakrossi hinnar
norsku St. Olavs orðu.
Árni G. Eylands er fæddur á
Þúfum í Óslandshlíð í Skagafirði
8. maí 1895. Kona hans er af
norskum ættum, Margit, f. 5. ág.
1896, dóttir hjónanna Ingeborg og
Eirik Larsson Fosstveit húsa-
meistara og bónda að Sauda í
Ryfylke.
Hin stutta lýsing hér að framan
á æviferli og starfi Árna G.
Eylands sýnir, að skólaganga hans
var ekki löng. því olli enganveginn
áhugaleysi eða skortur á hæfileik-
um til skólanáms, heldur var
ástæðan fyrst og fremst sú, að
hann vantaði fjármuni til þess að
geta klofið langa og dýra skóla-
vist. En þeim mun betur notaði
hann fræðslu í skóla lífsins. Hann
hefur átt og á enn í dag mikið af
ágætum bókum, sem hann hefur
sótt menntun sína í. Og hann
hefur ekki þurft að líta niður fyrir
fætur sér, þó að hann hafi mætt
mönnum, sem voru langskóla-
gengnir og gátu sett á nafnspjöld-
in sín háa titla um menntunarstig.
Árni G. Eylands vann um 40 ára
skeið mikið og gott starf fyrir
íslenskan landbúnað. Honum not-
aðist vel byrinn, sem þriðji ára-
tugurinn gaf honum undir vængi.
Honum voru fengin veigamikil
verkefni og stundum settur í
fremstu víglínu. Hann á því drjúg-
an þátt í þeim miklu framförum,
sem orðið hafa í íslenskum land-
búnaði á tímbilinu 1920—1960.
Eitt fyrsta kvæði, sem ég hef
séð á prenti eftir Árna G. Eylands,
birtist í Frey 19. árg. bls. 20. Mun
það vera ort um það leyti, sem
hann flytur heim frá Noregi 1921.
Síðasta vísa þessa kvæðis er
svona:
Svo vil ég eyða ævidögum
við önn og störf á feðragrund.
Við hljóm af íslands æðaslögum
jeg augum loka á banastund.
Guðmundur Jónsson
frá Hvanneyri.
Um þessar mundir dvelst Árni
sér til hressingar í heilsuhæli
N.L.F.Í. í Hveragerði.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Lestrar- og föndur-
námskeiö fyrir
4ra—5 ára börn
Byrjar 9. maí. Sími 21902.
Ung barn-laus hjón
óska eftir 2ja—3ja herb. íbúö til
leigu. Uppl. í s: 31795.
Matreiðslumaöur
óskar eftir vinnu.
Uppl í síma 20952.
Pípulagnir — s: 30867.
Tek aö mér
aö leysa út vörur
fyrir verzlanir og innflytjendur.
Tilboö sendist augld. Mbl.
merkt: „Ú—4822".
Keflavík
Eldra einbýlishús, steinsteypt,
ásamt 85 ferm bílskúr á mjög
góöum stað. Skipti á íbúö í
Reykjavík kæmu til greina.
2ja herb. íbúð í tvíbýli á góöum
staö. Sér inngangur. íbúð í mjög
góöu ástandi.
3ja herb. íbúð í séflokki viö
Mávabraut.
2ja herb. nýleg íbúö í fjölbýli,
aöeins 6 íbúöir.
Njarðvík
115 ferm efri hæð í tvíbýli. Sér
inngangur. Gott verð. 106 ferm
neöri hæð í tvíbýli. Sér inngang-
ur.
Eignamíölun Suðurnesja
Hanfargötu 57, sími 3868.
sem ná frá gólfi til lofts eru
komnar. Sendum í póstkröfu.
Blómaglugginn,
Laugavegi 30.
Sími 16525.
Bútasala — Útsala
Teppasalan, Hverflsgötu 49, sími
19692.
Dráttarbeisli og kúlur
fr. aftanívagna, hjólhýsi, báta
o.fl. Bátavindur m/sveif og ýmis
verkfæri.
Haraldur Snorrabraut 22.
Ferguson 185
Til sölu er Ferguson 185 meö
húsi árgerö 1975, keyröur 2.565
vinnustundir. Vélin er í góöu
standi og útlit gott.
Einnig er til sölu 70 tommu
Howard jarötætari. Upplýsingar í
síma 99-5815.
IOOF 5 = 162587 = LOKAF.
IOOF 11 — 1620508714 = 1f.
Fíladelfía
Gúttó Hafnarfiröi
Almenn samkoma í kvöld kl.
8.30. Söngur og vitnisburðir.
Kvenfélagið
Keðjan
heldur fund kl. 20.30 aö Borgar-
túni 18. Kynning veröur á garö-
rækt, sýndar myndir og svaraö
verður fyrirspurnum.
Krossinn
Almenn samkoma í kvöld kl.
8.30, aö Auöbrekku 34, Kópa-
vogi.
Frjálsir vitnisburöir.
Allir hjartanlega velkomnir
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Sumarfundur félagsins veröur í
kvöld 8. maí kl. 20.30 í félags-
heimilinu. Fjölbreytt dagskrá.
Stjórnin.
Samhjálp
Almenn samkoma veröur í
kvöld, aö Hverfisgötu 44 kl.
20.30.
Söngur og vitnisburöir. Ræöu-
maöur Óli Ágústsson.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Grensáskirkja
Almenn samkoma veröur haldin
í safnaöarheimilinu í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Halldór S. Gröndal.
Fíladelfía Reykjavík
Almenn samkoma í kvöld kl.
8.30.
Ræöumaöur Gunnar Lindblom.
Kvennadeild
styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra
Vorfundur félagsins verur aö
Háaleitisbraut 13, fimmtudaginn
8. maí kl. 8.30.
Á fundinum veröur Goða mat-
arkynning undir leiösögn Jennýj-
ar Siguröardóttur. Rætt veröur
um sumarferöalagið. Mætum
allar á þessum síðasta fundi fyrir
sumarleyfi.
GEOVERNOARFÉLAG ISLANDS
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
Utboð
Bolungarvíkurkaupstaður óskar eftir tilboð-
um í byggingu áhaldahúss. Útboðslýsing og
teikningar fást á bæjarskrifstofunni, Bolung-
arvík, gegn 20.000 kr. skilatryggingu. Réttur
er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Bæjartæknifræðingurinn í Bolungarvík.
Útboð
Hitaveita Akureyrar óskar eftir tilboðum í
lagningu 16. áfanga dreifikerfis (miðbær).
Útboösgögn verða afhent á skrifstofu hita-
veitunnar, Hafnarstræti 88 b. frá 8. maí 1980
gegn 50 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu hitaveitu
Akureyrar þriðjudaginn 20. maí 1980 kl.
11-00. Hitaveita Akureyrar.
Utboð
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboöum í
lagningu dreifikerfis á Keflavíkurflugvelli 2
áfanga.
Allar pípur í verkinu eru einangraðar stálpíp-
ur í hlíföarkápu úr plasti Ö-25 til Ö-200 mm.
víðar. Öll pípulögn er tvöföld og heildar-
skurðlengd um 4,4 km.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja Brekkustíg 36, Njarðvík og
á Verkfræðistofunni Fjarhitun hf. Álftamýri 9,
Reykjavík gegn 50 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja fimmtudaginn 22. maí 1980 kl.
14.00.
Verslunarhúsnæði óskast
til leigu 40—80 ferm. Allir staðir í bænum
koma til greina. Tilboð sendist augld. Mbl.
merkt: „Verslunarhúsnæði — 6108“.
íbúð óskast til leigu
Einhleyp reglusöm eldri kona óskar eftir íbúö
útaf fyrir sig í Reykjavík (ekki úthverfi) 2 herb.,
eldhús og bað, helst á hæð. Sem fyrst eða
fyrir næstu mánaöamót.
Vil borga vel fyrir góða, hlýja íbúð hjá
heiðarlegu fólki. Fyrirframgreiðsla 2 mán.
Uppl. í síma 33495.
Til sölu
Til sölu er vörubifreið Scania Vabis Super 50
árg 1971. Bifreiðin er í góöu ástandi. Uppl.
gefur undirritaöur í síma 94-7113.
Bæjartæknifræöingurinn í Bolungarvík.