Morgunblaðið - 08.05.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
33
Mand
verðbólgukóngur
OECD
EFNAHAGS- og framfara-
stofnun Evrópu, OECD,
hefur að venju gert spá um
verðbólgustigið í aðildar-
löndunum á yfirstandandi
ári. Þessi spá er gerð sl.
haust eins og sést af þeirri
tölu, sem notuð er um
ísland, 42%, en engu síður
gefur hún mynd af afstöð-
unni milli landa. Nú er
verðbólgustigið hér á
landi að nálgast 70%,
þannig að ólíklegt er, að
nokkurri þjóð takist að slá
okkur við á þessu sviði og
við höldum því sæti verð-
bólgukonungsins á lista
OECD, sem fer hér á eftir:
Sviss 3,5%
Austurríki 4,5%
Þýskaland 5%
Luxemburg 5,7%
Holland 5,75%
Noregur 6,25%
Belgía 6,25%
Japan 7,25%
Kanada 8,5%
Ástralía 8,5%
Svíþjóð 9%
Bandaríkin 9,5%
Finnland 10%
Frakkland 11,5%
Danmörk 12%
írland 13,5%
Spánn 14,25%
Nýja-Sjáland 14,75%
Bretland 15,5%
ftalía 16,5%
Portúgal 26%
ísland 42%
Fjárfesting
í fiskiskipum
FÉLAG dráttarbrauta og skipasmiðja hefur löngum bent
á það, að meðan erlendir keppinautar íslenskra skipa-
smíðastöðva hafi framleitt skip af fullum krafti fyrir
íslendinga, hafi þeir aðilar, sem vildu fá skip smíðuð
innanlands, þurft að heyja harða og oft vonlitla baráttu
við opinbera aðila til þess eins að fá smíðasamningana
samþykkta. Þessi mynd um fjárfestingu í fiskiskipum
árin 1938—1978 segir meira en nokkur orð um innflutning
fiskiskipa í hlutfalli við innlenda nýsmíði á þessu
tímabili.
Brúttó
rúmlestir
Bréfkorn
Ágæti rithöfundur, Helgi Hálfdanarson.
Úr því Morgunblaðið birtir bréf þitt til Dungals í dag með
viðhöfn væri því kannske til trúandi að birta þetta bréfkorn
mitt til þín einhvers staðar.
Þú segir að íslendingar séu einkum frægir fyrir tvennt
meðal þjóða heims og annað sé að geta ekki bragðað vín án
þess að tapa velsæmisglórunni.
Nú veit ég lítið um heimsfrægð en hitt veit ég að það er
ekkert sérkenni íslendinga hver áhrif áfengi hefur á
mannfólk. Það er a.m.k. samþjóðlegt og fjölþjóðlegt einkenni
áfengis að það sviptir menn velsæmisglórunni, ef það er þá
ekki alþjóðlegt lögmál.
Eg hirði ekki að þessu sinni að fara að telja upp dæmi um
áhrif áfengis meðal framandi þjóða, en þar hef ég þó af ýmsu
að taka. Hér læt ég nægja að áminna um að vera ekki að vaða
í blöð með svona vanhugsaðan þvætting. Leó Tolstoj og Jack
London þekktu t.d. lítið til drykkjuláta á íslandi. En þeif
vissu báðir um áhrif áfengis á venjulegt fólk.
Vinsamlegast
Halldór Kristjánsson
Tímarit Gigtar-
f élags Islands
Blaðinu hefur borist tímarit
Gigtarfélags íslands, 2. tbl. 2. árg.
í tímaritið skrifar Magnús B.
Einarsson læknir um endurhæf-
ingu með íþróttum og íþróttir
fatlaðra og Ingvaldur Benedikts-
son um stofnun gigtarfélaga.
Einnig er í tímaritinu sagt frá
norskum rithöfundi, sem þjáðst
hefur af gigt frá unga aldri, og
greint er frá ferðatilboði Gigtar-
félags íslands 1980.
í tímaritinu er boðað til kaffi-
og skemmtifundar, sem haldinn
verður i samkomusal Domus Med-
ica, Egilsgötu 3, Reykjavík, laug-
ardaginn 10. maí. nk. kl. 15. Á
fundinum verður boðið upp á góð
skemmtiatriði og heimabakaðar
kökur. Ágóði af skemmtuninni
mun renna til stofnunar endur-
hæfingarstöðvar fyrir gigtveika.
(Fréttatilkynning).
Bókageróarmenn
Heilbrigöis- og hollustuhættir
og tækniframfarir í prentiönadi
Á yfirstandandi námskeiöi fyrir trúnaöarmenn neö-
angreindra félaga koma tveir fulltrúar frá Grafiska
Fackforbundet í Svíþjóö til aö fjalla um ofangreinda
málaflokka.
Fimmtudaginn 8. maí, kl. 13.30—18.00, veröur
fjallaö um heilbrigöis- og hollustuhætti í prentiðnaði.
Föstudaginn 9. maí, kl. 9.00—12.00 og 13.30—18.00
veröur fjallað um tækniframfarir í prentiönaöi og
áhrif þeirra.
Fyrirlesararnir eru Áke Rosenquist og Stig Vestberg
og túlkur veröur Jóhanna Jóhannsdóttir.
Á eftir veröa fyrirspurnir og umræöur.
Ákveðið hefur veriö aö gefa fleiri félagsmönnum en
trúnaöarmönnum tækifæri til aö hlýöa á umfjöllun
Svíanna um þessi mál sem verður í ráðstefnusal
Hótels Loftleiöa á ofangreindum tíma.
Bókbindarafélag íslands
Grafíska sveinafélagiö
Hid íslenzka prentarafélag
Prófessor Carl-Erik Thors frá Helsingforsháskóla
heldur fyrirlestur í Norræna húsinu fimmtudaginn 8.
maí kl. 20:30 og nefnir fyrirlestur sinn: „Svenskan í
Finland. Dess varianter och stálling í samhállet.“
Veriö velkomin.
NORRíNA HUSIO POHjOLAN TAIO NORDENS HUS
Útgerðarmenn — skipstjórar
Kynniö yður veröiö á þorskanetum frá okkur, áöur en
þér pantiö annarsstaðar kraftaverkanet frá Japan, og
eingirnisnet.
Veröiö er alveg sérstakt.
Kristján G. Gísiason
Hverfisgötu 6,
sími 20000.
V E RZLUNIN
GEYSiBi
AIGLYSINGA-
SÍMLNN EH:
22480
NÝTT - NÝTT
Vorum að taka upp
nýjar gerðir af dömu-
og herratréklossum.