Morgunblaðið - 08.05.1980, Qupperneq 37
Barentshaf:
Ekki hefur
þokazt í sam-
komulagsátt
Ósló, frá Jan Erik Lauré.
fréttaritara MorgunblaÖsins.
ÞRÁTT fyrir yfirlýstan vilja
bæði norsku og sovézku stjórn-
arinnar um að stefna að mála-
miðlunarlausn varðandi
ágreining ríkjanna um skipta-
línu í Barentshafi hefur ekki
þokazt í samkomulagsátt. í
viðræðum, sem Sovétmenn
höfðu óvænt frumkvæði að og
haldnar voru í Moskvu síðast í
apríl, héldu þeir enn sem fyrr
fast við kröfu sína um að
póllína yrði látin ráða skipt-
ingu Barentshafs, en Norð-
menn hafa ætíð viljað leggja
miðlínureglu til grundvallar í
þessu ágreiningsmáli ríkjanna.
Sagt er að Sovétmenn hafi hug á
að þoka þessu máli áleiðis til þess
að hægt verði að hefja olíuboranir
í Barentshafi, en í því skyni hafa
þeir látið smíða borpalla í Finn-
landi. Eftir heimkomuna frá
Moskvu sagði Jens Evensen, for-
maður norsku samninganefndar-
innar, að hann hefði ekki trú á því
að samkomulag næðist á næsta
viðræðufundi, sem haldinn verður
í Ósió í haust. Taldi hann að
stjórnir beggja ríkjanna þyrftu
meiri tíma til að íhuga malið.
Hins vegar kvaðst Evensen þeirr-
ar skoðunar að Moskvu-fundurinn
hefði verið gagnlegur. Búizt er við
því að samningurinn um „gráu
svæðin" í Barentshafi, þ.e. bráða-
birgðatilhögun sú sem í gildi hefur
verið, verði framlengdur um eitt
ár er hann rennur út 1. júlí n.k.
500 létust úr
matareitrun
Lima. 6. mai — AP.
MENGAÐUR matur og
mengað vatn, einkum í fá-
tækrahverfum umhverfis
Lima, áttu þátt í því að
rúmlega 10.000 veiktust af
taugaveikibróður að sögn
heilbrigðisyfirvalda í dag.
Að minnsta kosti 500
hafa beðið bana. Fimm
þúsund götusalar sem seldu
vegfarendum mengaðan
mat báru út veikina.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
37
Símamynd AP.
JÓHANNES PÁll PÁFI ANNAR er um þessar mundir á ferðalagi um sex Afríkuríki. Meðfylgjandi mynd var tekin er páfi ók um götur
borgarinnar Kisangani í Zaire á þriðjudag. Hermenn á bifreiðum og mótorhjólum umkringja bifreið páfa, og á það að heita gert í
öryggisskyni, að því er segir í myndatexta.
Sellers íékk
hjartaáfall
Dublin, 6. maí — AP.
BREZKI gamanleikarinn Peter
Sellers fékk vægt hjartaáfall í
gærkvöldi en er á batavegi á St.
Vincent’s-sjúkrahúsinu í Dublin að
sögn talsmanns spítalans i dag.
Leikarinn fékk alvarlegt hjarta-
áfall fyrir 16 árum í Kaliforníu
þegar hjarta hans hætti að slá átta
sinnum og læknar börðust við að
halda í honum lífinu. Gangráður var
settur í hann í London til að örva
hjartsláttinn og stjórna honum með
rafmagnsboðum.
Víetnamski herinn í
mótbyr i Kambódíu
Tokyo. 6, maí — AP.
FORSETI og forsætisráð-
herra Kambódíu, Khieu Sam-
phan, segir í viðtali við
kínversku fréttastofuna að
sókn, sem víetnamska herlið-
ið í landinu hafi staðið fyrir
síðan þurrkatíminn hófst,
hafi farið út um þúfur.
Hann segir að staða Kam-
bódíska hersins hafi styrkzt
og Víetnamar eigi undir högg
að sækja.
Samphan segir að her og þjóð
Kambódíu hafi hrundið sókn
Víetnama í þremur áföngum síðan
í október:
• í fyrsta áfanga stríðsátak-
anna, í október og nóvember, segir
hann að átta víetnömsk herfylki
hafi reynt með aðgerðum í Mið- og
Norðaustur-Kambódíu að leita
uppi kambódíska herliðið og bæla
niður andspyrnuna þar áður en
sótt yrði þaðan í vestur.
• Annar áfangi aðgerðanna
stóð í aðra tvo mánuði, í desember
og janúar. Víetnamar drógu sam-
an lið sitt á svæðunum við landa-
mæri Thailands og Kambódíu og
■ ■■
ERLENT
reyndu að brjóta á bak aftur her
Kambódíu í vestri og norðvestri.
• Þriðji áfangi aðgerðanna hef-
ur staðið yfir síðan í febrúar.
Vindurinn er farinn úr seglum
Víetnama, segir Khieu Samphan,
og óvininum tókst ekki að brjótast
gegnum varnarlínur kambódíska
hersins.
Hann segir, að „árásarstríð“
Víetnama hafi verið „þjóðar-
morðsstyrjöld" og þeir hafi drepið
mikinn fjölda Kambódíumanna
með venjulegum vopnum, ban-
vænum efnum og eiturgasi. „Þeir
ollu hungursneyð og margir dóu
úr hungri," sagði hann.
Samphan segir, að stjórnmála-
ástandið í Kambódíu hafi batnað
með yfirlýsingu um nýja hernað-
arstefnu og stjórnmálastefnu og
endurskipulagningu stjórnarinn-
ar.
Skorað á Kennedy og Carter
að hætta kosningabaráttunni
Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. i Washington 6. maí.
BARÁTTA Jimmy Carters og Edwards Kennedy um forsetaútnefn-
ingu Demókrataflokksins veldur mörgum áhyggjum. Verulegur
klofningur er innan flokksins og óttast er, að sárin grói ekki fyrir
forsetakosningarnar í nóvember og flokkurinn tapi kosningunum.
Hugh Carey, ríkisstjóri New
York, lagði til í gær, að frambjóð-
endurnir gæfu fulltrúm sínum á
landsþingi flokksins í sumar
frelsi til að kjósa þann, sem þeim
lystir strax við fyrstu atkvæða-
greiðsluna. Carter hefur gengið
betur í forkosningunum en
Kennedy, en kjósendur eru ekki
alls kostar ánægðir með hann.
Það verður því æ algengara, að
aðrir séu nefndir og ber nafn
Walters Mondale, varaforseta,
oftast á góma í þessu sambandi.
Ríkisstjóri Texas lagði til við
aðra ríkisstjóra í gær, að þeir
beittu sér fyrir því, að Kennedy
hætti kosningarbaráttunni.
Dagblaðið Des Moines Sunday
Register skoraði á Carter á
sunnudag að helga sig starfi
forseta út þetta kjörtímabil og
ekki sækjast eftir endurkjöri í
nóvember. Og Paul Kirk, starfs-
maður Kennedys, skoraði í gær á
John C. White, formann Demó-
krataflokksins, að segja af sér
embætti vegna yfirlýsingar hans
um, að Kennedy ætti að hætta
kosningabaráttunni og ráðningar
tveggja f.v. starfsmanna Carters
til flokksins.
White sagðist ekki ætla að
hætta, og Carter og Kennedy
hafa oft lýst því yfir, að þeir verði
í baráttunni til endaloka.
Flokkarnir halda forkosningar
í District of Columbia (Washing-
ton), Indiana, North Carolina og
Tennessee í dag.
Ronald Reagan er ekki í fram-
boði í District of Columbia. Að-
eins 1/10 hluti kjósenda þar, sem
eru alls um 250.000, eru skráðir
repúblikanar. Reagan er spáð
sigri í hinum þremur ríkjunum.
George Bush er ekki í framboði í
Indiana.
Edward Kennedy gæti unnið í
District of Columbia, en Carter er
spáð sigri í ríkjunum þremur.
Borgarstjóri Washington, Marion
Barry, styður Carter, en hann
hefur sjálfur átt í erfiðleikum
undanfarið, og stuðningur hans
er því ekki talinn mjög mikils
virði. í District of Columbia er
meiri áhugi á atkvæðagreiðslu
um, hvort leyfa eigi veðmál og
happdrætti í borginni, en for-
kosningum flokkanna.
ab