Morgunblaðið - 08.05.1980, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAI1980
+
AGUST GUOMUNDSSON,
prentarí, Frakkastíg 14,
andaðist 26. apríl s.l. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey aö ósk
hins látna.
Þökkum auösýnda samúö.
Gunnar Svan Ágústsson,
systkini og mágkonur.
+
Móðir okkar og tengdamóöir
ÁSFRÍÐUR ÁSGRÍMS,
Bergstaóastræti 3,
sem andaöist hinn 2. þ.m., veröur jarösungin frá kirkju Óháða
safnaöarins við Háteigsveg föstudaginn 9. maí kl. 2.
Edda Ragnarsdóttir, Árni Guöjónsson,
Valva Fuller, Thomas G. Fuller.
+
Astkær móðir okkar,
MARGRÉT MARKÚSDÓTTIR ÍSAKSEN,
Ásvallagötu 63,
frá Kírkjulækjarkoti í Fljótshlíó,
lézt í Landspítalanum aö morgni 7. maí.
Fyrir hönd okkar systkinanna og annarra vandamanna,
Erla ísaksen.
+
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
BALDVIN SIGURÐSSON,
Drápuhlíö 31,
lézt á sjúkrahúsi á Kanaríeyjum, 6. maí.
Kristín Siguróardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Faöir okkar
BRAGI JÓNSSON,
frá Hoftúnum,
er lést 4. maí, verður jarösunginn frá Staöarstaö, laugardaginn 10.
maí kl. 2 e.h.
Börnin.
+
Jarðarför bróöur okkar,
ÞORSTEINS JÓNSSONAR,
frá Steig í Mýrdal,
sem lézt aö Sólvangi síöastliöinn sunnudag
Fossvogskirkju föstudag 9. maí kl. 10:30 árdegis.
fer fram frá
Systur hins látna.
+
Þökkum auösýnda samúð og vináttu við andlát og útför fööur
okkar, tengdafööur og afa
BENEDIKTS SVEINSSONAR,
húsasmíöameistara,
Austurbrún 2.
Valur Benediktsson,
Kristborg Benediktsdóttir,
Lára Benediktsdóttír,
Áslaug Benediktsdóttir,
og barnabörn.
Þorbjörg Ólafsdóttir,
Kristján Oddsson,
Þórarinn Jóhannsson,
Sigurður Guðmundsson
Minning:
Jón Ottó
Rögnvaldsson
Fæddur 17. október 1906.
Dáinn 29. apríl 1980.
Ávallt er maöur óviðbúinn burt-
för samferðamannanna úr jarð-
lífsreisunni, jafnvel þótt maður
viti að sá er kveður hafi ekki
gengið heill til skógar. Þannig fór
mér, er ég heyrði lát Jóns Rögn-
valdssonar.
Jón var fæddur á Bíldudal 17.
október 1906, sonur Rögnvalds
Jónssonar sjómanns og Sigríðar
Oddnýjar Níelsdóttur konu hans.
Sigríður missti mann sinn 20. nóv.
1918 og stóð þá uppi með 3 börn,
það elsta, Jón 12 ára. Má geta því
nærri að lífsbaráttan væri erfið og
sjálfsagt hefur Jón, þótt ungur
væri, veitt móður sinni allan þann
styrk er hann mátti.
Jón hóf nám í blikksmíði í Nýju
blikksmiðjunni árið 1926 og hjá
því fyrirtæki starfaði hann svo
lengi sem kraftar entust eða í
röska hálfa öld. Ég sem þessar
línur rita hóf blikksmíðanám hjá
sama fyrirtæki 1942 og vann þar í
7 ár og kynntist því Jóni mjög vel
sem vinnufélaga. í verklegu námi
mínu var Jón minn besti lærifaðir,
ávallt reiðubúinn að segja mér til
og ávallt með sömu ljúfmennsk-
unni. Eftir að starfsleiðir skildust
hittumst við Jón oft og alltaf var
viðmót hans hið sama.
Jón var gerður að heiðursfélaga
í Félagi blikksmiða á 30 ára
afmæli þess 1965 og sæmdur
gullmerki þess 10 árum síðar, það
segir sína sögu um hug Jóns til
stéttarfélags síns og mat þess á
honum.
Hinn 25. október 1930 kvæntist
Jón Rögnvaldsson eftirlifandi
konu sinni Stefaníu Ástrós Sig-
urðardóttur, f. 8. sept. 1909, dóttur
Sigurðar Björnssonar trésmiðs og
Sigríðar Árnadóttur konu hans.
Ég hygg að þau hafi bæði stigið
sín mestu gæfuspor þá, enda bar
heimili þeirra þess ljósastan vott,
þar virtust allir hlutir hafa líf, en
slíkt finnur maður ekki nema
ástríki og samheldni ríki og virð-
ing fyrir sameiginlegum verðmæt-
um bæði lifandi og dauðum. Að
vera samvistum við slík hjón
eykur manni trú á lífið og allt það
besta, sem það hefur að bjóða,
gerir þá sem samvistanna njóta að
betri mönnum.
Jón og Stefanía eignuðust 4
börn: Sigurð fæddan 1930,
Kristínu fædda 1933, Rögnvald
fæddan 1937, og Þóri fæddan 1947.
Því miður þekki ég börnin ekki
nema lítillega 2 þau elstu, en efast
ekki um að þau séu öll nýtir
þjóðfélagsþegnar.
Ég vil að lokum þakka Jóni
samfylgdina í leik og starfi og
sendi konu hans og börnum inni-
legar samúðarkveðjur.
Sveinn A. Sæmundsson.
Hafsteinn Hannesson
Minningarorð
Fæddur 29. apríl 1924.
Dáinn 21. mars 1980.
Hinn 31. marz síðastliðinn, var
til moldar borinn Hafsteinn
Hannesson. Eftir 10 ára kynni
langar okkur í örfáum orðum að
minnast hans.
Á skilnaðarstundu rifjast, upp
margar endurminningar, sem vert
er að þakka og ljúft er að minnast.
Efst í huga okkar eru þakkir fyrir
samfylgdina við móður okkar sem
hann reyndist stoð og styrkur og í
alla staði hinn besti lífsförunaut-
ur.
Yngri systur okkar gekk hann í
föður stað, það vandasama hlut-
verk ræktaði hann af samvisku-
semi, alúð og kostgæfni, sem og
heimilið, þann akur ræktaði Haf-
steinn stjúpfaðir okkar, og kom
þar glöggt fram snyrtimennska
hans og dugnaður. Okkur bræðr-
unum reyndist hann sannur vinur,
og börnum okkar var hann góður
afi, sem þau hændust fljótt að. í
brjósti sínu átti hann dýrmætan
fjársjóð; hjartahlýju, heiðarleika
og tryggð og úr þeim sjóði veitti
hann ætíð ríkulega. Nú er við
stöndum á vegamótum og leiðir
Fööursystir mín
+
PÁLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR
lést að Ási í Hverageröi 24. apríl. Jaröarförin hefur fariö fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aöstandenda.
Þóra Krístinsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug vegna fráfalls
eiginmanns míns,
ÞORGRÍMS EINARSSONAR,
garðyrkjubónda.
Sigríöur Guöbjartsdóttir.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö, hlýju og vinarhug viö fráfall eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, GUNNARSJÓNATANSSONAR, Laugateig 17. Hildur Vigfúsdóttir, Anna Gunnarsdóttir, Vigfús Gunnarsson, Óskar H. Gunnarsson, Unnur Agnarsdóttir, Gunnhildur Óskarsdóttir, Agnar Óskarsson.
+ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og jarðarför fööur míns, stjúpfööur, tengdaföður og afa, ANDRÉSAR T. KARLSSONAR frá Kollsvík, Strandgötu 1, Patreksfiröi. Kristín Andrésdóttir, Ingimundur Jónsson, Daníel Jónsson, Sigríöur Vilhjálmsdóttir og barnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför BJARNA BJARNASONAR, fyrrverandi Vegaverkstjóra ríkisins, Kálfafelli. Halldóra Gunnarsdóttir, Eiöur O. Bjarnason, Soffía Sigurjónsdóttir, Garðar Bjarnason, Jóhanna Júlíusdóttir, Bjarni S. Bjarnason, Jóna Ingólfsdóttir.
+ Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur vináttuhug og samúö viö fráfall eiginmanns míns og fööur okkar, JÓNS E. REIMARSSONAR, Suöurgötu 46, Akranesi. Lilja L. Gísladóttir, Gísli Baldur, Jóhanna og Kristinn.
skiljast, viljum við þakka stjúp-
föður okkar samveru- og gleði-
stundir sem því miður urðu alltof
fáar.
Blessuð sé minning hans.
Far þú í friði. Friður Guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Stjúpborn.
Samþykkir
vegi yfir Kolla-
fjarðarheiði
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beð-
ið að birta eftirfarandi fundarálit
sveitarstjórnarmanna í Austur-
Barðastrandarsýslu:
„Fundur sveitarstjórnarmanna í
Austur-Barðastrandarsýslu haldinn
á Reykhólum 1. maí 1980 fagnar því,
að Vegagerð ríkisins hefur gert
ákveðnar tillögur um hvernig hagað
verði tengingu Inndjúps við aðal-
vegakerfi landsins.
Lýsir fundurinn fullu samþykki við
þá niðurstöðu Vegagerðarinnar, að
Kollafjarðarheiði verði valin sem
aðalleið. Má í því sambandi benda á
það augljósa hagræði, sem að því er
að umferðin til Vestfjarða bæði
norður í Djúp og vestur á firði eigi
sem lengst samleið. Auk þess er það
skoðun fundarins, að Kollafjarðar-
heiði sé auðveldasta leiðin til vetrar-
umferðar.
Einnig vísar fundurinn til sam-
þykktar fundar um samgöngumál á
Patreksfirði 21. apríl 1979.
Treystir fundurinn því, að alþing-
ismenn og aðrir, sem um málið fjalla,
gangi þar ekki á móti áliti Vegagerð-
arinnar."
Halldór D. Gunnarsson,
Karl Árnason,
Aðalheiður Hallgrímsdóttir,
Hallgrímur Jónsson,
Grímur Arnórsson,
Kristinn Bergsveinsson,
Vilhjálmur Sigurðsson,
Guðmundur Ólafsson,
Kristján S. Magnússon.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
|R«v0tmt>IobiÖ
R:@