Morgunblaðið - 08.05.1980, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1980
41
félk f
fréttum L "T* )bL
Öllum þeim, sem glöddu mig á sextugsafmæli
mínu meö heimsóknum og á annan hátt,
þakka ég af alhug og vinsemd.
Sérstakar þakkir færi ég samstarfsfólki mínu
hjá Hrafnistu.
Fanny Þorbergsdóttir.
Forseta-
brúðkaup
+ í ÞESSUM mánuði mun forseti
Haiti. hinn tuttugu og sjö ára
gamli Jean-Claude Duvalier,
ganga að eiga fráskilda konu að
nafni Michelle Bennett. — Jean
Claude, sem Vesturlandablöð
kalla oft „Lilla Doc“ (Baby) er
sonur Francois (Papa Doc) Du-
valier. Tók Lilli við forsetaemb-
ættinu af föður sínum. sem lézt
árið 1971. — Hann hefur ekki
áður gengið í hjónaband, en
væntanleg forsetafrú á Haiti var
áður gift kaupsýslumanni þar.
Hún er tveggja barna móðir, og
eru börn hennar ung að árum.
Jean-Claude Duvalier
Ég var aldrei
í neinum vafa
+ HÉR má sjá fyrrum fjárlagaráðherra í stjórn Carters
Bandaríkjaforseta, Bert Lance, og konu hans Le Belli yfirgefa
réttarsalinn í Atlantaborg á dögunum, er fylkisdómstóllinn í
Georgiafylki hafði sýknað hann af ákærum um bankasvik. Lance
er náinn vinur Carters og þótti það talsvert áfall fyrir forsetann,
er þessi náni samstarfsmaður hans og vinur var kærður. Þegar
Lance og kona hans komu úr réttarsalnum, sagði hann við
blaðamenn að þau hjónin væru vissulega ánægð með úrslitin. —
Sjálfur var ég aldrei í neinum vafa um hver þau yrðu. — Ég vissi
að ég var sannleikans megin í máli þessu, sagði Lance.
Heilsar — Kveður
+ HOLLENDINGAR, sem nú eru 13
milljónir talsins, hafa fengið nýjan
þjóðhöfðingja, sem kunnugt er af frétt-
um. — Beatrix drottning, sem er 42ja
ára gömul, tók við hásæti þjóðhöfðingj-
ans af móður sinni Júlíönu drottningu,
sem nú hefur dregið sig í hlé. — Myndin
er tekin af mæðgunum er þær komu út á
svalir konungshallarinnar í Amsterdam,
að lokinni innsetningarathöfninni, sem
fram fór í Nýju kirkjunni, sem er frá 15.
öld og heitir á hollensku Nieuwe Kirk.
Meðan á athöfninni stóð áttu lögreglu-
menn fullt í fangi með að halda
óróaseggjum í skefjum. Varð hún að
grípa til táragass og beita vatnsbyssum
gegn þeim. Konungsætt Beatrix drottn-
ingar hefur setið á konungsstóli við
Hollandi í 165 ár.
Kennaraboð
til Danmerkur
Norræna félagiö danska og dönsk kennarasamtök
bjóöa 18 íslenskum kennurum af öllum skólastigum
til dvalar í Danmörku 13.—30. ágúst. Dvaliö veröur
bæöi í Kaupmannahöfn og úti á landi. Dvölin í
Danmörku og feröakostnaöur innanlands er ókeypis.
Umsóknarfrestur til maíloka. Nánari upplýsingar
gefur skrifstofa Norræna félagsins í Norræna húsinu,
sími 10165. Samatarfsnefnd Norræna félagsins
og kennarasamtakanna.
Nýkomin sending af hinum heimsþekktu, skosku
alullarpeysum frá Pringle, unnar úr sérstaklega
mjúkri ull (Lamaine).
Bceði V-hálsmáls- og rúllukrágapeysur.
Mikið úrval.
Bankastrarti7
herrtr
.húsiðy
Aialstrætí4
...hér er rétti staðurínn!