Morgunblaðið - 08.05.1980, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1980
45
15 ^7 /-» „
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
var þessi búbótarpistill birtur án
athugasemdar, en allnokkru síðar
var honum þó mótmælt af einni
eða tveimur bóndakonum. Ef til
vill er það nokkuð útbreiddur
misskilningur meðal kaupstaðar-
búa, að bændum sé hagur að því
og búbót að nota afurðir eigin bús
heima fyrir, án milligöngu sölufé-
lags. Þó er víst flestum kunnugt,
að mjólk og kjöt er í sölubúðum
niðurgreitt með háum fjárhæðum
úr sameiginlegum sjóði allra
landsmanna. Greiðslur þessar
ætla ég að séu nú kr. 99.00 á hvern
lítra mjólkur og kr. 669.00 á hvert
kíló dilkakjöts. Þessara niður-
greiðslupeninga fá bændur ekki
notið nema í gegnum afurðasölu-
félög (sláturhús, mjólkursamlög).
Sá bóndi, sem fæðir fólk sitt á
mjólkurdreitli beint úr fjósinu eða
á kjöti af heimaslátruðu fé borgar
þá kr. 388.00 fyrir mjólkurlítrann
og kr. 2618.00 fyrir eitt kíló
dilkakjöts, en vegna niður-
greiðslna fær kaupstaðarbúinn
mjólkurlítrann á kr. 289.00 og
kjötkílóið á kr. 1949.00 í heilum
skrokkum. Vera má, þar sem
samgöngur og flutningaleiðir eru
hvað greiðastar, að bændur selji
hvern mjólkurdropa og hvert ein-
asta kjötkíló sem þeir framleiða
og kaupi það svo aftur niðurgreitt
í kaupstaðnum. Ég hygg þó, að
slíkur verzlunarmáti sé hvorki
almennur meðal bænda né að
honum verði alls staðar komið við,
þótt vilji til þess væri fyrir hendi.
22.4.1980
J.Hj.
• Þakkir til
Þorvaldar
Garðars
Ég get ekki látið hjá líða, þótt
seint sé, að þakka þingmanninum
fyrir drengilega og djarflega til-
raun til að opna augu annarra
þingmanna fyrir þeim óheillavæn-
legu breytingum sem að mínu
mati hafa verið gerðar á fóstur-
eyðingarlöggjöfinni með því að
fela konum sjálfdæmi um að eyða
fóstri eftir eigin geðþótta. Þeir
sem hlustuðu á rökfastan mál-
flutning Þorvalds Garðars um
þetta mál í Morgunpóstinum ný-
lega ættu að skilja hvað hér er að
gerast.
Hermann Guðbrandsson.
• Til vega-
gerðarmanna
Kirkjugarðsgestur hringdi:
Mig langar að biðja umsjón-
armenn vega á höfuðborgarsvæð-
inu að taka velviljað tillit til
eftirfarandi ábendingar. Þannig
er, að örlítill vegarspotti, sem aka
þarf eftir til að komast að neðsta
hliði í Fossvogskirkjugarðinum, er
mjög illa farinn. Vegarspottinn er
illa holóttur og í mínum leik-
mannsaugum þyrfti ekki mikið til
að kippa hlutunum í lag, veghefill
gæti komið miklu til leiðar.
Margir eiga leið þarna um og
því kem ég þessu á framfæri, að ég
veit að ástæðan fyrir þessu
ástandi vegarins er e.t.v. sú, að
viðkomandi umsjónarmenn eru
ekki meðvitaðir um ástand þessa
stutta vegarkafla.
• Þakkir til Páls
Hallbjörnssonar
M.G. hringdi:
Mig langar að koma á fram-
færi þakklæti til Páls Hallbjörns-
sonar fyrir erindi hans um „Dag-
inn og veginn" 28. apríl sl. Þetta
var að mínu áliti mjög gott erindi
og orð í tíma töluð. Þakka þér
fyrir Páll.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á opnu skákmóti í Lugano í
Sviss í fyrra kom þessi staða upp í
skák heimamannsins Danner, sem
hafði hvítt og átti leik, og Danans
Berg.
21. RÍ5+! - exf5, 22. Dxf5
(Hvítur hótar nú 23. c5 mát) Dd7,
23. Df4 mát.
HÖGNI HREKKVÍSI
„ 30% ÓLV0A V^(?©A'l V(£> At/AllLlN . .
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar SjálfstæðisflokksinS
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
boöið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 10. maí veröa til viðtals Markús Örn
Antonsson og Elín Pálmadóttir. Markús er í félags-
málaráöi, heilbrigöismálaráöi, framkvæmdanefnd
vegna byggingastofnana í þágu aldraöra. Elín er í
fræösluráði og umhverfismálaráöi.
Kassettur
beztu kaup landsins
1 spóla 5 spólur
60 mínútur kr. 900 kr. 4000
90 mínútur kr. 1100 kr. 5000.
Heildsölu
birgðir
Verslióisérverslun með
LITASJÓNVÖRPog HUÓMTÆKI
Innrettingar
í sendibíla
Viö getum utvegaö, á mjög hagstæöu veröi,
tilbúnar fullkomnar innréttingar þ.á m. rúm, borö,
bekki, eldhús, ísskáp og fleira fyrir t.d. Volkswag-
en sendibíl, Ford Transit, Bedford, Dodge og fleiri.
Vinsamlega pantiö sem fyrst.
Gísli Jónsson & Co hf.
Sundaborg 41, sími 86644.