Morgunblaðið - 08.05.1980, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAI 1980
47
• íslenska landsliðið i köríuknattleik fær mörg verkefni við að glíma
í sumar og næsta keppnistimabil. Á myndinni er liðið i landsliðsbún-
ingi sinum kyrfilega merktum Sambandsmerkinu. En SÍS hefur
nýlega styrkt KKÍ um 5,5 milljónir króna.
Úrslit UEFA-keppninnar:
Borussia vann
fyrri leikinn 3:2
BORUSSIA Mönchengladbach
sigraði Eintrackt Frankfurt 3:2 í
fyrri úrslitaleik liðanna í UEFA-
keppninni. en hann var leikinn á
heimavelli Borussia, sem er nú-
verandi handhafi UEFA bikars-
ins. Seinni leikurinn fer fram í
Frankfurt eftir hálfan mánuð, en
tvö þýzk lið hafa ekki áður leikið
til úrslita i keppninni.
Leikurinn í gærkvöldi var mjög
fjörugur og skemmtilegur og 25
þúsund áhorfendur voru vel með á
nótunum. Karger skoraði fyrsta
markið fyrir Frankfurt á 37.
mínútu en Kulik jafnaði metin á
41. mínútu. Gamla kepman Holz-
enbein skoraði gott skallamark
fyrir Frankfurt á 71. mínútu en
stuttu síðar jafnaði Mattheus leik-
inn 2:2. Sigurmark Borussia skor-
aði Kulik á 88. mínútu eftir að
hafa fengið knöttinn frá Dananum
Thychosen.
Maradona fer hvergi
KNATTSPYRNUSAMBAND Arg-
entínu neitaði í gær að gefa
knattspyrnusnillingnum unga
Diego Maradona leyfi til þess að
leika með spænska liðinu Barce-
lona næsta vetur, en Barcelona
vildi kaupa kappann fyrir litlar
2700 milljónir króna.
í tilkynningu sambandsins
sagði að Maradona yrði að hlíta
sömu reglum og aðrir argentínskir
landsliðsmenn, sem ekki verður
leyft að fara til erlendra liða fyrr
en eftir heimsmeistarakeppnina á
Spáni 1982, en þar mun Argentína
verja heimsmeistaratitilinn. Félag
Maradona hefur mótmælt harð-
lega ákvörðum knattspyrnusam-
bandsins og segist ætla í mál til
þess að fá ákvörðuninni hrundið.
Danir unnu
DANIR unnu Svía 1:0 í landsleik
i knattspyrnu, sem leikinn var i
Gautaborg i gærkvöldi. Markið
skoraði bakvörðurinn Jens Steff-
ensen á 14. mínútu, en hann
leikur með þýzka liðinu Beyer
Uerdingen. Þetta var annað tap
Svía á skömmum tíma, þeir töp-
uðu nýlega fyrir Rússum á
heimavelli 1:5.
Walshans viðar í
klípu en hérlendis
ÝMSIR muna eflaust eftir banda-
ríska körfuknattleiksmanninum
Walshans sem gómaður var með
eiturlyf hér á landi í vetur. Lék
kappinn um tíma með IBK, en
eftir eiturlyfjamálið var ferill
hans hér á landi allur.
Walshans lék í Finnlandi áður
en hann hélt til íslands og finnska
körfuknattleikssambandið sendi
því íslenska skeyti þess efnis, að
Walshans væri 100 prósent áhuga-
maður í körfu. Það sem finnska
sambandið þagði um skipti öllu
meira máli. Walshans var nefni-
lega stöðugt í klandri í Finnlandi,
var m.a. gripinn með eiturlyf og
lenti einu sinni í svo heiftarlegum
stympingum við finnska landsliðs-
þjálfarann, að sá lá rotaður á
hallargólfinu tíu mínútur á eftir.
Hlaut Walshans umfangsmikið
leikbann fyrir vikið en þjálfarinn
slapp með nokkur spor í vörinni og
tilheyrandi ör. Er spurning hvort
að nokkurt félag hefði haft áhuga
á Walshans vitandi þessa hluti.
2 milljónir fyrir sigur
SEM kunnugt er sigraði hollenska liðið Feyenoord nágrannalið sitt
Spörtu 4—0 i undanúrslitum hollensku bikarkeppninnar i knatt-
spyrnu. Skoraði Pétur Pétursson tvivegis í þeim leik.
Norska Dagblaðið skýrir frá leiknum i töluverðu máli. enda er einn
Norðmaður í liði Feyenoord, Roger Albertsen. Sá hefur nú farið fram
á sölu frá félaginu, enda lítið fengið að spreyta sig. Beerschot í Belgíu
hefur sýnt áhuga, en Albertsen er jafnvel að hugsa um að fara bara
heim. En Norska Dagblaðið segir einnig frá því, að hver einasti
leikmaður Feyenoord hafi fengið um 20.000 norskar krónur fyrir að
sigra i leiknum. Það er nálægt tveimur milljónum islenskra króna.
Góður skildingur það fyrir 90 minútur ...
C-keppnin í körfuknattleik að ári:
22 manna hópur farinn að æfa
LANDSLIÐSNEFND KKÍ hefur
valið 22 manna landsliðshóp sem
hefur þegar hafið æfingar til
undirbúnings fyrir þau verkefni
sem framundan eru. Hámarkið er
C-keppnin i körfuknattleik i
apríl 1981. Hópur þessi mun æfa
5 sinnum í viku i allt sumar með
nokkurra daga frii um mitt
sumarið. Þetta verða ekki ein-
ungis æfingar í hinni þröngu
merkingu orðsins, allmargir
landsleikir eru á dagskrá og
hefur raunar verið greint frá því
áður í Mbl. en það eru leikir gegn
Skotum. Englendingum og Kin-
verjum. Eitthvað kann að bætast
við i þann hóp, en ekki er unnt að
fullyrða um það enn sem komið
er. Landsliðshópinn skipa eftir-
taldir leikmenn.
Gunnar Þorvarðarson, Guð-
steinn Ingimarsson, Jónas Jó-
hannesson, Valur Ingimundarson
og Júlíus Valgeirsson frá UMFN,
Torfi Magnússon, Kristján Ág-
ústsson og Ríkharður Hrafnkels-
son frá Val, Jón Sigurðsson, Geir
Þorsteinsson og Garðar Jóhanns-
son frá KR, Pétur Guðmundsson
og Flosi Sigurðsson frá bandarísk-
um háskólaliðum sínum, Kristinn
Jörundsson, Kolbeinn Kristinsson
og Jón Jörundsson frá ÍR, Símon
Ólafsson og Þorvaldur Geirsson
frá Fram, Gunnar Thors frá ÍS,
Valdemar Guðlaugsson frá Ár-
manni og þeir Einar Steinsson og
Axel Nikulásson frá Keflavík.
í þessum flokki eru fimm nýlið-
ar, Einar Steins og Axel frá ÍBK,
Valdemar frá Ármanni, Gunnar
Thors frá ÍS og Valur Ingimund-
arson frá Njarðvík. Eigi að síður á
þessi hópur 499 landsleiki að baki
sér, eða 22,7 á mann að meðaltali.
Jón Sig. er sem fyrr leikreyndast-
ur með 77 landsleiki, Gunnar
Þorvarðarson hefur 53 leiki að
baki og Kristinn Jörundsson 52
stk.
Sem fyrr segir er þegar að
hefjast undirbúningur fyrir
C-keppnina sem fer annað hvort
fram í Sviss eða Englandi í apríl
1981. Þar stefna íslendingar að
sigri og að sögn Einars Bollasonar
landsliðsþjálfara, þarf það ekki að
vera fjarlægur draumur.
— gg.
IA efst að stigum - Valur
skorað flest mörkin - KR
hefur hlotið flesta titla
ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu
sem heíst á laugardaginn verður
það 69. í röðinni. Fyrstu ís-
landsmeistararnir í knattspyrnu
voru krýndir árið 1912 og voru
það KR-ingar. Síðan hefur mótið
farið fram á hverju ári. Árið 1955
var deildaskipting samþykkt hjá
KSÍ og þá voru 6 lið i 1. deild og
leikin var einföld umferð. Árið
1959 er í fyrsta skipti leikin
tvöföld umferð heima og heiman.
Árið 1968 fjölgar liðunum i 1.
deild í átta og 1976 eru þau níu
og nú leika tíu lið í deildinni.
Til gamans og fróðleiks er hér
að neðan birt tafla yfir öll þau
félög sem leikið hafa í 1. deild
síðan það fyrirkomulag var tekið
fyrst upp, og hefur félögunum
verið raðað niður eftir því hversu
mörg stig þau hafa hlotið í
deildinni frá upphafi. Þá kemur
leikjafjöldi hvers liðs í 1. deild frá
upphafi. Sigrar, jafntefli og töp,
skoruð mörk og loks stig. Síðan er
greint frá því hversu oft liðið
hefur hlotið íslandsmeistaratitil-
inn frá upphafi, árið 1912, og
hversu oft liðið hefur sigrað í
bikarkeppni KSÍ.
Þegar taflan er skoðuð kemur í
ljós að IA hefur forystu í stigum,
hefur hlotið 352 stig en Valur
fylgir fast á eftir. Valsmenn hafa
hins vegar skorað flest mörk, 506.
Lið KR hefur hins vegar sigrað
oftast í gegn um árin á íslands-
mótinu eða tuttugu sinnum og
sigrað oftast í bikarkeppninni eða
sjö skipti. En hér að neðan er
taflan. — þr.
Félög árí l.d. leikir s.j.t. mörk stig sigr.í l.d. bikarm.
1. ÍA 24 256 136-47-73 419-353 352 10 1
2. Valur 24 266 127-69-70 506-387 350 16 4
3. KR 24 248 97-59-92 456-368 280 20 7
4. Fram 24 256 87-69-90 384-394 279 15 3
5. ÍBK 20 246 106-58-100 400-348 273 4 1
6. ÍBV 11 160 69-37-54 271-212 175 1 2
7. ÍBA 15 148 48-32-68 252-300 132 0 1
8. Víkingur 10 126 42-25-59 156-190 113 2 1
9. UBK 6 94 28-15-51 118-192 71 0 0
10. FH 4 66 14-19-33 70-111 47 0 0
11. Þróttur 7 82 14-18-50 89-185 46 0 0
12. KA 2 36 5-11-19 35-75 23 0 0
13. Þór 1 18 2-2-14 21-48 6 0 0
14. ÍBH 3 20 0-6-14 6-35 6 0 0
15. ÍBÍ 1 10 0-1-9 2-35 1 0 0
90% líkur á því að ég
verði áfram h já Standard
- segir Ásgeir Sigurvinsson
— Hamburger SV, Bayern Munchen
og Arsenal hafa sýnt honum áhuga
— ÉG TEL 90% líkur á þvi að ég
verði áfram hjá Standard, sagði
Ásgeir Sigurvinsson er Mbl.
hafði tál af honum i gærkvöldi.
Ásgeir staðfesti fréttir um að
enska liðið Arsenal hefði „njósn-
að“ um hann á dögunum og gert
um hann fyrirspurnir hjá forráða-
mönnum Standard. Hins vegar
kvaðst hann lítið vita um það mál,
það eitt að tveir menn frá félaginu
hefðu fylgst með honum í leik en
stjórnendur Standard hafa ekki
rætt málið við hann. — Mér skilst
að stjórn Standard sé mjög mót-
fallin því að selja mig núna enda
hefur hún í hyggju að styrkja liðið
enn meira í sumar með því að
kaupa 2—3 sterka leikmenn.
Þjálfarinn Ernst Happel hefur að
undanförnu verið á þönum um
Evrópu til þess að líta á nýja
leikmenn. Ef 2—3 sterkir leik-
menn bætast í liðið ættum við að
standa vel að vígi næsta vetur og
ættum loksins að geta tryggt
okkur Belgíumeistaratitilinn,
sagði Ásgeir.
Eins og fram hefur komið hafa
fjölmörg fræg knattspyrnufélög
haft áhuga á Ásgeiri í vetur og
nægir í því sambandi að nefna
nöfn eins og Hamburger SV,
Bayern Munchen og Arsenal.
Standard á ekki möguleika leng-
ur á meistaratitlinum eftir að FC
Brugge vann um sl. helgi og
Standard gerði jafntefli við And-
erlecht. í þeim leik náði Standard
forystunni með marki Wellens en
Anderlecht jafnaði skömmu fyrir
leikslok með marki Ari Haan úr
vítaspyrnu. Standard stefnir að
sigri í bikarkeppninni, mætir Bev-
eren í undanúrslitunum en í hin-
um leiknum eigast við Waterschei
og Courtrai. Urslitaleikurinn fer
fram 1. júní, svo að Ásgeir getur
ekki leikið með íslenzka landslið-
inu gegn Wales 2. júní ef Standard
kemst í úrslit.
- SS.