Morgunblaðið - 08.05.1980, Qupperneq 48
Síminn
á afgreiöslunni er
83033
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
3n«ristint>lflt>ib
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1980
Iceland Seafood:
8% magnaukning og
15% verðmætaaukning
- fyrstu þrjá mánuði ársins
„EFTIR fyrstu þrjá mánuði
ársins er um aukningu að ræða
hjá Iceland Seafood; 8% aukn-
ingu í seldu magni og 15%
verðmætaaukningu í dollurum
taiið,“ sagði Sigurður Markús-
son, framkvæmdastjóri sjávar-
afurðadeildar Sambandsins, er
Mbl. spurði hann í gær, hver
væri þróun mála á Bandaríkja-
markaði hjá dótturfyrirtæki
Sambandsins i Bandaríkjunum.
Hagdeild VSI:
51% verðbólga
1. maí 1981
- ef samið er um óbreytt grunn-
kaup og vísitölufyrirkomulag
HAGDEILD Vinnuveitendasam-
bands íslands hefur gert athug-
un á verðbólguþróun út frá
þremur forsendum við gerð
kjarasamninga. Þorsteinn Páls-
son, framkvæmdastjóri VSÍ,
sagði í samtali við Mbl. að
loknum aðalfundi sambandsins í
gær, að niðurstöður þessarar
athugunar væru m.a. þær, að ef
samið verður um óbreytt grunn-
kaup og óbreytt vísitölufyrir-
komulag verður verðbólgan 55%
1. nóvember og 51% 1. maí á
næsta ári. Ef gengið verður að
sameiginlegum kröfum ASÍ og
kröfum sérsambanda um óskert-
ar kaup- og ákvæðisvinnuálögur,
verður verðbólgan 77% 1. nóv-
ember n.k. og 94% 1. maí á næsta
ári, en ef samið verður á grund-
velli krafna VSÍ verður verðbólg-
an 46% 1. nóvember og 35% 1.
maí á næsta ári.
„Þetta segir okkur, að kröfur
Alþýðusambandsins myndu leiða
til þess, að fljótlega á næsta ári
yrði verðbólgan nálægt 100% og
það er ástæða þess, að við neitum
alfarið að ræða endurnýjun kjara-
samninga á þessum grundvelli,"
sagði Þorsteinn. „Við teljum að
þessi leið kalli í reynd á verulega
meiri kjaraskerðingu launþega,
heldur en sú leið, sem vinnuveit-
endasambandið vill fara, þegar til
lengri tíma er litið.“
Sjá kjaramálaályktun aðal-
fundar VSÍ bls. 3.
„Engu að síður teljum við mark-
aðinn mjög erfiðan, samkeppn-
in hefur harðnað mjög og óviss-
an er mjög mikil,“ sagði Sigurð-
ur, „þannig að við teljum óvíst,
hvort myndin verður sú sama,
þegar niðurstöður fyrstu sex
mánaðanna liggja fyrir.“
„Öll sölumálin á Bandaríkja-
markaði hafa verið endurskipu-
lögð á síðustu 4-5 árum og það
átak skilaði sér vel í söluaukningu
1979. Ég býst við, að við njótum
ennþá góðs af þessu átaki,“ sagði
Sigurður, er Mbl. spurði hann,
hverjar hann teldi helztu ástæður
aukningar hjá Iceland Seafood á
sama tíma og minnkandi sala og
samdráttur í rekstri hefur orðið
hjá ýmsum öðrum fiskverksmiðj-
um í Bandaríkjunum.
„Árið 1979 stóð fiskréttasala í
Bandaríkjunum í stað; magnið
varð það sama og selt var 1978,“
sagði Sigurður. „Fiskréttasala Ice-
land Seafood jókst þó á árinu um
14% að magni og flakasalan um
12%, en aukningin á innflutningi
og neyzlu flaka í Bandaríkjunum
var á bilinu 1-2%.“
Forseti íslands. dr. Kristján Eldjárn, ritaði í gær
naín sitt í minningarbók um Tító íorseta Júgó-
slavíu, en bókin hefur legið frammi í Hótel Borg sl.
tvo daga. Hjá stendur Milutan Kojic, ræðismaður
JÚgÓslaVÍU. Ljósm. Vlhl. ÓI.K.Mau.
„Getur orðið til þess að
draga verði úr framkvæmd-
um við Hrauneyjafoss“
- segir Eiríkur Briem forstjóri Landsvirkjunar um niðurskurð á gjaldskrárbeiðni
„ÞESSI hækkun er ekki nægileg,
og mun valda auknum vanda
síðar, og svo getur farið að draga
verði úr framkvæmdum við
Ilrauneyjafossvirkjun," sagði
Eiríkur Briem forstjóri Lands-
virkjunar í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær er
hann var spurður álits á þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
leyfa aðeins 10% hækkun á taxta-
verði Landsvirkjunar. Stjórn
Landsvirkjunar hafði áður farið
fram á 30% hækkunarheimild.
Kafsnjór í
Vestmanna-
eyjum
Vestmannaeyjum. 7. maí/
ÍBÚUM hér í Vestmannaeyjum
brá heldur í brún er þeir litu út i
morgun, hér var allt á kafi í
snjó, þannig að illfært var um
götur bæjarins.
Það byrjaði að snjóa hér í
gærkvöldi og því linnti ekki fyrr
en undir hádegi í dag og var þá
um 20 sentimetra jafnfallinn
snjór yfir öllu, auk þess sem á
mörgum stöðum hafði fennt í
skafla.
Fólki gekk mjög erfiðlega að
komast leiðar sinnar nema þeim
sem hreinlega settu keðjur undir
bíla sína, en fljótlega var þó
hafist handa við snjóruðning
þannig að greiðfært er hér um
götur bæjarins.
Það voru þó ekki allir sem
tóku þessum veðrabrigðum illa.
Yngri kynslóðin var fljót að
kippa við sér og dró fram
snjóþotur og skíði.
Sigurgeir
Eiríkur sagði ennfremur, að það
væri mjög alvarlegt mál, ef draga
þyrfti úr framkvæmdum við
Hrauneyjafoss, ekki hvað síst með
tilliti til þeirrar staðreyndar að í
haust munu Vestfirðir tengjast
kerfi Landsvirkjunar. Allt landið
ætti því mikið undir því að
virkjunin kæmist sem fyrst í
gagnið. „Þá er það einnig okkar
skoðun," sagði Eirikur, „að þó
vandinn sé nú mikill, þá verði
hann enn stærri ef vandamálinu
er velt áfram án þess að það sé
leyst."
Eiríkur sagði þá hættu yfirvof
andi, að lánveitendur hreinlegi
gæfust upp á því að lána fyrirtæk
inu. Hingað til hefðu þeir sýn
skilning á vandamálum fyrirtæk
isins, en að því kæmi að sí
skilningur yrði að engu ef Lands
virkjun yrði rekin með halla eim
og gerst hefur undanfarin ár
„Landsvirkjun er komin í stór
hættulega stöðu gagnvart sínun
lánsveitendum og er augljós
hvaða erfiðleika það mun haf;
fyrir fyrirtækið ef lánstraustii
glatast," sagði Eiríkur að lokum.
Rauðasandshreppur:
íbúðarhús skemmd-
ist mikið í eldsvoða
- Fólkið bjargaðist naumlega
vegna hávaða í reykskynjara
Látrum. 7. maí.
í NÓTT kom upp eldur i íbúðarhús-
inu að Neðri-Tungu í Rauðasands-
hreppi. Fólkið, sem allt var í fasta
svefni, vaknaði við garg í reykskynj-
ara, sem settur var í húsið í haust.
Þegar fólkið vaknaði var eldur laus í
eldhúsinu og var þá allt að fyllast af
reyk. Gripið var til handslökkvi-
tækja og símað tii slökkvistjórans.
Ólafs Egilssonar, auk þess sem farið
var eftir aðstoð á næsta bæ, Efri-
Tungu.
Egill Ólafsson kom fyrstur slökkvi-
liðsmanna á vettvang á flugvallarbíln-
um, sem er búinn slökkvibúnaði. Síðan
dreif að fólk og tókst að slökkva
eldinn mjög fljótlega.
Talið er að kviknað hafi í út frá
rafmagni í uppþvottavél. Verulegar
skemmdir urðu á húsinu, sérstaklega
þó í eldhúsinu, og er það óíbúðarhæft
sem stendur.
Bóndinn, Árni Helgason telur ekk-
ert vafamál að reykskynjarinn hafi
þarna bjargað miklum verðmætum og
fólkinu frá fjörtjóni og til gamans má
geta þess að síðast liðið haust voru
settir upp allmargir reykskynjarar
víða um sveitina. _ Þórður.