Morgunblaðið - 17.05.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ1980
23
jr
Israelsmenn gera
árásir á Líbanon
Tel Aviv, 16. maí. AP.
ÍSRAELSMENN gerðu árásir
með þyrlum og fallbyssubátum á
palestínsk skotmörk í Suður-
Líbanon i nótt og að minnsta
kosti 11 biðu bana og 17 særðust.
Sjö skæruliðar ú Saiqa-samtök-
unum sem Sýrlendingar styðja
biðu bana af völdum tíma-
sprengju sem ísraelskur árásar-
flokkur skildi eftir að sögn tals-
manna yfirvalda i Sidon. Arásar-
flokkurinn kom með þyrlu til
skæruliðastöðvar nálægt
libönsku þorpi inni i landi 16 km
frá israelsku landamærunum.
Sprengjan sprakk þegar Saiqa-
skæruliðarnir rannsökuðu gripinn
nánar í Sidon og sjö biðu bana og
fjórir særðust.
Talsmaðurinn sagði að fallbyssu-
þyrla hefði gert árás á flutninga-
bifreið nálægt Kfarwa-stöðinni, 35
ára gamall ökumaður bílsins beið
bana og bifreiðin varð eldi að bráð.
Stórskotaliðsárás var einnig gerð
á Nabatiyeh frá ísraelsku landa-
mærunum og yfirráðasvæði her-
sveita Saad Haddad majórs.
ísraelskir eldflaugabátar gerðu
eldflaugaárásir á hafnarborgina
Tyros og þrjár búðir Palestínu-
manna umhverfis borgina. Einn
Palestínumaður og tvær konur
biðu bana og 10 særðust.
Verðbólgan yfir
20% í Bretlandi
Það var þungbúinn forsætisráðherra, sem sté inn í bifreið sína fyrir utan
þinghúsið í Tókýó síðdegis í gær. Vantrauststillagan á Ohira og stjórn
Frjálslynda demókrataflokksins, sem hefur ráðið ríkjum í Japan frá stríðslokum,
var borin fram af Sósíalistaflokknum. (AP-símamynd)
London, 16. mal. AP.
VERÐBÓLGAN í Bretlandi
hækkaði um tvo af hundraði í
21,8% í apríl miðað við næsta
mánuð á undan og hefur aldrei
verið hærri siðan í febrúar 1976
samkvæmt tölum sem voru birtar
í dag.
Verðlag hefur rúmlega tvöfald-
azt síðan ríkisstjórn Margaret
Thatcher kom til valda fyrir
rúmu ári. Verðbólgan var 10,3% í
maí 1979.
Verðbólga er meiri í Bretlandi en
í nokkru öðru iðnaðarríki oc eina
hliðstæðan er Ítalía þar sem verð-
bólgan er 20,5%.' Verðbólga í
Bandaríkjunum er 14,7%, í Vestur-
Þýzkalandi 5,8%, Frakklandi 13,7%
og í Japan 8%.
Á tveimur síðustu mánuðum hafa
auk þess orðið miklar hækkanir á
eignasköttum, húsaleigu, bensín-
verði (nú 3 dollarar gallonið), far-
gjöldum, rafmagni og gasi, meðul-
um og matvælum. En kaupgjald
helzt nokkurn veginn í hendur við
verðbólguna og hefur hækkað um
20.1% að meðaltali.
Larsen efstur
Bugojno, Júgóslaviu, 16. maí. AP.
SOVÉZKU stórmeistararnir Lev
Polugaevsky og Mikhail Tal sigr-
uðu júgóslavnesku stórmeistar-
ana Ljubojevic og Bojan Kurajica
i Bugojno í gær. Skák heims-
meistarans Anatoly Karpov og
Júgóslavans Borislav Ivkov fór í
bið, en Karpov hefur betri stöðu.
Bent Larsen gerði jafntefli við
Jan Timman frá Hollandi og
Daninn heldur því forystu sinni á
mótinu. Skák Horts og Andersons
frá Svíþjóð fór í bið, en Kavalek og
Gligoric sömdu jafntefli.
Staðan: Larsen 3Vz, Timman,
Polugaevsky 3, Tal, Ljubojevic,
Kavalek 2xk, Karpov, Anderson,
Tvkov 2 (1 biðskák) Gligoric 2,
Hort xk (1 biðskák), Kurajica 1 xk.
ttent Liarsen geroi jainiein vio oon, -rz u oiosaaK;, tvurajica i‘/2.
}ýrt að hringja í Nor-
gi - og hækkar enn
iló. 16. mai. Frá Jan Erik Laurie.
Ó8ló, 16. mai. Frá Jan Erik Laurie,
tréttaritara Mbi.
NOREGUR er að verða eitt dýr-
asta land i heimi fyrir símnotend-
ur og enn mun verðið hækka. Frá
1. júli hækka afnotagjöldin um
átján prósent. Samtímis því að
setja mikinn kraft í að byggja
upp simakerfi landsins, vegna
þess að óeðlilega löng bið þykir
þar eftir að fólk geti fengið síma.
Nú eru á biðlista eitt hundrað
þúsund manns.
Hvert skref nú kostar 67 norska
aura eða um sjö krónur ísl. og
varir það í 180—200 sekúndur
eftir því hvar í Noregi er hringt.
Frá og með 1. júlí hækkar gjald á
skref í 83 aura.
Veður
víða um heim
Akureyri 14 skýjað
Amsterdam 16 heiörikt
Aþena 35 mistur
Barcelona 20 léttskýjað
Berlín 17 lóttskýjað
BrUssel 18 heiöríkt
Chicago 16 skýjað
Frankfurt 16 heiöríkt
Genf 14 heiöríkt
Helsinki 21 heiðríkt
Jerúsalem 31 heiðríkt
Jóhannesarborg 23 heiðríkt
Kaupmannahöfn 13 heiðríkt
Las Palmas 22 léttskýjað
Lissabon 24 heiöríkt
London 19 heiðríkt
Los Angeles 20 skýjað
Madríd 21 heiðríkt
Malaga 17 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjaö
Miami 29 skýjað
Moskva 6 skýjað
New York 20 heiðríkt
Ósló 25 heiðríkt
París 20 skýjað
Reykjavík 9 skýjað
Rio de Janeiro 31 heiðríkt
Róm 16 skýjað
Stokkhólmur 20 heiðríkt
Tel Aviv 29 heiðríkt
Tókýó 19 rígning
Vancouver 18 skýjað
Vínarborg 15 heiðríkt
Greenpeace
dæmt í sekt
London. 15. maí — AP.
GREENPEACE hefur verið dæmt í 800 punda sekt fyrir að reyna að
koma í veg fyrir að skipið „Pacific Fisher", hlaðið kjarnorkuúrgangi.
legðist að bryggju í Barrow-in-Furness á austurströnd Englands 25.
marz sl. Samtökin verða og að greiða málskostnað.
Þrír forystumenn Grænfrið- ætluðu að halda áfram baráttu
unga, Allan Thornton, Pete Wil-
kinson og David McTaggart,
sluppu við fangelsisdóm vegna
loforðs um að trufla ekki eða
hindra skip í höfninni í Barrows.
Það voru Grænfriðungar úr
„Rainbow Warrior" sem reyndu að
hindra „Pacific Fisher“ með því að
sigla fyrir skipið í gúmbátum.
En þrímenningarnir lýstu því
yfir eftir réttarhöldin að þeir
Þetta geröist
1970 — Norski landkönnuðurinn
Thor Heyerdahl fer frá Marokkó í
papýrusbátnum Ra II og gerir aðra
tilraun til að sanna að Forn-
Egyptar hafi farið til Nýja heimsins
fyrir 4—5.000 árum.
1961 — Fidel Castro býður skipti á
föngum, sem voru teknir í Svína-
flóa-innrásinni, og bandarískum
dráttarvélum.
1949 — Bretar viðurkenna sjálf-
stæði Eire, en ítreka stöðu Norður-
írlands.
1940 — Þjóðverjar taka Brussel.
1939 — Svíar, Finnar og Norðmenn
hafna boði Þjóðverja um griðasátt-
Fimm forsetar hafa notað
almannafé til eigin þarfa
London, 16. mai. AP.
KYNHVÖT Lyndon B. Johnsons forseta var
sterk með ólíkindum og hann naut ásta við
ritara sína á legubekk í herbergi við hliðina
á forsetaskrifstofunni og minnstu munaði
að komið væri að Leonid Brezhnev, forseta
Sovétríkjanna, með flugfreyju. Frá þessu
segir í nýrri bók, „Breaking Cover“ eftir Bill
Gulley, yfirmann hermálaskrifstofu Hvíta
hússins um 11 ára skeið, að sögn brezkra
blaða í dag.
Gulley sakar síðustu fimm forseta Banda-
ríkjanna um að nota milljónir dollara úr
ríkissjóði til eigin þarfa — allt frá kvenna-
fari upp í endurbætur á húsum sínum, og
Jimmy Carter er þar með talinn.
Hann segist hafa farið til heimabæjar
Carters, Plains, Georgíuríki, til að ræða
kaup á jarðnæði í eign Billy Carter
forsetabróður, handa Bandaríkjaher og seg-
ir að Miss Lillian forsetamóðir hafi sam-
þykkt viðskiptin. „Taktu allt sem þú getur
því að þú færð aldrei aftur annað eins
tækifæri," segir Gulley að Miss Lillian hafi
sagt.
„Bókin mun valda pólitísku fjaðrafoki
þegar hún kemur út í sumar," segir eitt
brezku blaðanna.
í bókinni segir að Brezhnev hafi smyglað
vinstúlku sinni — ónafngreindri flugfreyju
Aeroflot, inn í svefnherbergi sitt þegar hann
dvaldist í Camp David í forsetatíð Richard
Nixon. En Pat Nixon „leit undan" til þess að
gera þetta ekki að milliríkjamáli að því er
segir í bókinni.
Gulley segir að Johnson hafi fengið mikla
kynorku sína frá B—12 vítamínsprautum.
Hann á að hafa greitt ritara nokkrum kaup
fyrir 55 tíma yfirvinnu þegar hann tók hana
með sér í fjögurra daga embættisferð.
Peningarnir segir Gulley að hafi komið úr
sérstökum sjóði sem síðustu fimm forsetar
hafi haft til ráðstöfunar og þingið viti ekki
um þar sem þeir séu faldir á lið fjárlaga um
útgjöld til hervarna. Gulley játar að hafa
séð um þessar greiðslur.
Því er haldið fram í bókinni að Johnson
hafi notað sjóðinn til að gera endurbætur að
upphæð fjórar milljónir dollara á búgarði
sínum í Texas og að John F. Kennedy hafi
eytt fimm milljónum sem engin grein var
gerð fyrir þegar hann var í Hvíta húsinu.
Ekki kemur fram í fréttum brezkra blaða
hvort Richard Nixon og Gerald Ford hafi
notað sjóðina.
Sjóðurinn er til staðar til að gera forseta
kleift að gera það sem hann þarf að gera eða
langar til.
Gulley, höfundur bókarinnar, er fyrrver-
andi liðþjálfi úr landgönguliðinu og var
forstöðumaður hermálaskrifstofu Hvíta
hússins 1966 til 1977. Hann kveðst hafa sagt
af sér þar sem hann hafi fyllzt viðbjóði á
þeirri hræsni sem komið hafi fram hjá
Cafterstjórninni þegar um það var rætt að
reisa hernaðarmannvirki á landi Billy
Carter.
sinni gegn því að kjarnorkuúr-
gangur komi til Bretlands.
McTaggart sagði fréttamönnum
að í loíorðinu fælist ekki að þeir
mundu ekki hafa í frammi frið-
samleg mótmæli, í því fælist
aðeins að þeir trufluðu ekki skip-
in. ,
Grænfriðungar telja að Iífi fólks
í Barrow stafi hætta frá flutning-
um með kjarnorkuúrgangsefni.
17. maí
mála, en Danir, Eistlendingar og
Lettar taka því.
1900 — Bretar leysa Mafeking úr
umsátri í Suður-Afríku.
1885 — Þjóðverjar innlima Norð-
ur-Nýju-Guineu og Bismarck-eyja-
klasann.
1848 — Ferdinand I af Austurríki
flýr til Innsbruck.
1814 — Norðmenn lýsa yfir sjálf-
stæði.
1809 — Napoleon Bonaparte fyrir-
skipar innlimun Páfaríkjanna.
1803 — Bretar kyrrsetja frönsk og
hollenzk skip í brezkum höfnum.
1756 — Bretar segja Frökkum stríð
á hendur — Frakkar taka Minorca.
1632 — Gústaf Adolf sækir inn í
Munchen og kjörfursti Saxa tekur
Prag.
1579 — Arras-friður.
1536 — Cranmer erkibiskup
ómerkir giftingu Hinriks VIII og
Önnu Boleyn.
1521 — Edward Stafford, kröfuhafi
ensku krúnunnar, tekinn af lífi fyrir
landráð.
Afmæli — María Theresía, aust-
urrísk keisaradrottning (1717—
1780) — Edward Jenner, enskur
læknir (1749-1823) - Birgit Nils-
son, sænsk óperusöngkona (1922—).
Andlát — 1510 Sandro Botticelli,
myndlistarmaður — 1799 Pierre de
Beaumarchais, leikritahöfundur —
1838 Talleyrand, stjórnmálaleiðtogi.
Innlent — 1941 Alþingi samþykkir
ályktanir um sambandsslit — 1841
d. Thomas Sæmundsson — 1207 d.
Herdís Ketilsdóttir og Halla — 1311
d. Sig. Seltjörn — 1341 d. Styrkárr
Gizurarson í Nesi — 1724 Eldgos í
Mývatnssveit — 1913 Eimreið ekur
eftir nýrri járnbraut frá Öskjuhlíð
— 1959 Ásmundarsalur opnaður —
1974 Gengislækkun — 1898 f. Einar
Guðfinnsson útgm. — 1912 f. Robert
A. Ottósson — 1924 f. Haukur
Morthens.
Orð dagsins — Það er mannlegt að
borða; það er guðlegt að melta —
Mark Twain, bandarískur rithöf-
undur (1835—1910).