Morgunblaðið - 17.05.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.05.1980, Blaðsíða 31
HVAD ER AD GERAST I RÆNUM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ1980 31 Ur brúðuleikritinu um sálina hans Jóns mins. „Sálin hans Jóns míns“ á Kjarvalsstöðum Brúðuleikhúsið sýnir „Sálina daginn 17. maí og sunnudaginn 18. hans Jóns míns“ á Kjarvals- maí, kl. 15 en ekki kl. 17 eins og stöðum í dag og á morgun, laugar- stóð í Mbl. s.l. þriðjudag. „Saga“ sýnir „Blómarósit“ LEIKKLÚBBURINN Saga á Ak- ureyri frumsýnir leikritið „Blóma- rósir" eftir Ólaf Hauk Símonarson í Samkomuhúsinu á Akureyri næstkomandi sunnudag, 18. maí, kl. 20.30. Leikstjóri er Sólveig Halldórsdóttir, en Valgerður Bergsdóttir gerði búningana. Höf- undurinn endurskrifaði mikinn hluta verksins sérstaklega fyrir Leikklúbbinn Sögu. Saga er áhugaleikhús ungs fólks, sem sett var á stofn í ársbyrjun 1976 og hefur síðan sýnt a.m.k. eitt verk árlega. Næstu sýningar á „Blóma- rósum" verða á mánudags- og þriðjudagskvöld. Helgi Már Barðason i hlutverki sinu í „Blómarósum". Vorfagnaður Systrafélagsins HINN árlegi vorfagnaður systrafé- lags Ytri-Njarðvíkurkirkju verður haldinn í Stapa sunnudaginn 18. maí kl. 20.30. Að venju verða ýmis skemmtiatriði á dagskrá, til dæmis munu tveir efnilegir söngvarar úr Njarðvík syngja og ungt fólk sýna dans. Þá verða kaffiveitingar og tískusýning. Kynnir og gestur á skemmtuninni verður Bryndís Schram. Allur ágóði rennur til kirkjunnar í Ytri-Njarðvík. Verðandi blásarakennarar ÁRLEGIR tónleikar blásarakenn- aradeildar Tónlistarskólans í Reykjavík verða haldnir í Bú- staðakirkju sunnudaginn 18. maí kl. 5 síðdegis. Á efnisskránni eru tónsmíðar og útsetningar nem- enda deildarinnar ýmist skrifaðar fyrir lúðrasveit eða blásara kammersveit og stjórna nemendur sjálfir öllum flutningi. Að þessu sinni útskrifast fimm nemendur. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Hátíðahöld í tilefni 100 ára skólahalds í tilefni hundrað ára afmælis skólahalds á Akranesi gangast skólar staðarins fyrir sýningu í íþróttahúsinu dagana 17.—24. maí n.k. Sýningunni er ætlað að gefa yfirlit um þróun og starf- semi skóla á Akranesi allt fr'á því fyrsti skólinn var vígður árið 1880 til dagsins í dag. Undanfarnar vikur hafa kenn- arar aflað heimilda af marghátt- uðu tagi um skólahald fyrr og nú. Safnað hefur verið gömlum skólabókum, myndefni, handa- vinnumunum, smíðagripum o.fl. verkum nemenda. Ætlunin er að nýta þessar uppiýsingar við ritun skólasögu Akraness. Á sýningunni verður sýnd þróun einstakra kennslugreina, félagslífs nemenda, heilsugæslu, fullorðinsfræðslu, auk annarra þátta skólastarfsins í myndum og máli. Fjölbreytt dagskrá verður alla dagana meðan sýningin stendur bæði skemmtidagskrá, ýmiskon- ar mynd- og handmenntaverk- efni, t.d. leirvinna , málun, teiknun, vefnaður auk mynda- sýninga og frásagna frá ýmsum tímum. Sem dæmi má nefna að end- urvakin verður árshátið Grunnskólanemenda, tónlist- arskólinn endurflytur vortón- leika frá 1956, boðið er upp á barnaskemmtun o.fl. o.fl. Lýkur burt- fararprófi frá Tónlist- arskólanum UNNUR Pálsdóttir nemandi á tónlistarbraut til stúd- entsprófs er fyrsti nemand- inn sem lýkur burtfararprófi frá Tónlistarskólanum i Keflavík. Unnur lýkur VIII. stigi i fiðluleik og jafnframt stúdentsprófi frá Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Unnur Pálsdóttir Tónleikarnir verða haldnir laugardaginn 17. maí kl. 18 í Keflavíkurkirkju og er öllum heimill aðgangur. Undirleik á píanó annast frú Ragnheiður Skúiadóttir. Unnur Pálsdóttir hóf ung nám í fiðluleik viðf Tónlist- arskóla Keflavíkur eða á átt- unda aldursári. Árni Arin- bjarnarson, hljómlistamaður, hefur verið kennari hennar og leiðbeinaridi allan hennar námstíma, í tólf ár. Skólaslit fara fram í húsa- kynnum skólans sunnudaginn 18. maí kl. 16. Tvær aukasýningar hafa verið ákveðnar á „Stundarfriði" og verður önnur þeirra á morgun. Hin sýningin verður föstudaginn 23. maí. Sýningar í Reykjavík Leikfélag Reykjavikur Þjóðleikhúsið Smalastúlkan og Er þetta ekki mitt líf, laugardag útlagarnir, laugardag kl. 20. kl. 20.30 Stundarfriður, sunnudag kl. 20. Rommy, frumsýning sunnudag kl. 20.30. Síðustu sýningar á Þorláki þreytta Leikfélag Kópavogs hefur að undanförnu sýnt gamanleikinn Þorlák þreytta í Félagsheimili Kópavogs. Leikstjóri er Guðrún Þ. Stephensen en lýsingu annast Lárus Björnsson. Með aðalhlutverk fara Magnús Ólafsson og Þórunn Yngvadóttir. Ráðgert var að ljúka sýningum um síðustu mánaðamót en þar sem ekkert lát hefur verið á aðsókn verða nú tvær síðustu sýningarnar í kvöld kl. 20.30 og á mánudagskvöld kl. 20.30. Sviðsmynd úr Þorláki þreytta. Magnús ólafsson (Þorlákur er annar frá hægri).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.