Morgunblaðið - 17.05.1980, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ1980
„Takmarkið er að aðstoða
fólk við að finna i sjálfu sér það
jafnvægi hugans, sem styður að
Kóðri heilsu til líkama og sálar“
sagði Jón Sigurgeirsson fyrr-
verandi skólastjóri á Akureyri
á fundi með blaðamönnum, þar
scm hann kynnti opnun á hress-
ingar- og hvíldarheimili að
Varmalandi í Borgarfirði í
sumar.
Forstöðumenn hressingar-
heimilisins eru Jón og Úlfur
Ragnarsson, yfirlæknir, en þeir
stóðu fyrir rekstri slíks heimilis
að Laugalandi í Eyjafirði sumrin
1976-1977 og 1977-1978. Mark-
mið þessa reksturs hefur verið
að hjálpa fólki til þess að losna
við þreVtu og streitu sem getur
hlaðist upp í hinu daglega lífi.
Dagskrá á hressingarheimilinu
er mjög frjálsleg, boðið er upp á
ýmislegt, en enginn þarf að taka
þátt í neinu nema hann sjálfur
hafi áhuga á því. En allt er við
það miðað að byggja upp and-
lega, tilfinningalega og líkam-
lega velferð dvalargesta.
Varmaland í Borgarfirði.
Hressingarheimili að
Varmalandi í sumar
Dagskráin hljóðar á þennan
veg að sögn Jóns að á morgnana
kl. 8—8.30 er hugleiðslustund, kl.
10—11 kenna Asta Guðvarðar-
dóttir og fleiri yogaæfingar og á
kvöldin kl. 8.30 er helgistund
með tónlist. Síðdegið er frjálst,
en á staðnum verða hljómburð-
artæki og bókasafn m.a. Um-
hverfið laðar til gönguferða,
sundlaug er að Varmalandi og
sólböð munu bjóðast. Ennfremur
nudd og ekki sízt aðstoð m.a.
erlendra huglækna. Erlendis
hefur það stöðugt farið í vöxt að
læknar og huglæknar hafi sam-
starf að hluta, — í Bretlandi t.d.
mega huglæknar stunda sjúkl-
inga á sjúkrahúsum í ákveðnum
tilvikum.
A kvöldin verða frjálsar
kvöldvökur með tónlist og söng,
erindi verða flutt, lesið verður
upp og myndasýningar. Ymsir
listamenn í tónlist m.a. og skáld
sækja gesti heimilisins heim í
sumar, og má þar nefna Sigríði
Ellu Magnúsdóttur, Kristján frá
Djúpalæk, Þorvald Steingríms-
son og fleiri.
Helgistundir verða með prest-
um en helgistundir á kvöldin
verða fastur liður, með tónlist á
undan og eftir, og verður þar
lögð áherzia á kyrrð hugans að
sögn Jóns.
Hressingarheimilið verður op-
ið frá 28. júní til 23. águst en
þegar er dvöl pöntuð fyrir 60
gesti af 160 mögulegum yfir
sumarið. Hægt er að panta dvöl í
viku eða lengur, og jafnvel í 2—3
daga til reynslu í byrjun og fleiri
daga ef vel líkar. Jón sagði að
aðstæður væru fyrir 20—25 gesti
að staðaldri, en 11 þriggja
manna herbergi væru í skóla-
húsinu að Varmalandi þar sem
heimilið verður rekið, svo nýt-
ingin á herbergjum yrði e.t.v.
ekki eins góð sem skyldi.
Vikudvöl að Varmalandi mun
skólastjóri.
kosta rúmlega 100 þúsund krón-
ur með öllum máltíðum, en þar
sem reksturinn er ekki styrktur,
er helzt líkur rekstri á heima-
vistarskóla að sögn Jóns, þá er
ætlast til að gestir komi sjálfir
með ver með sér um sængurföt
og handklæði t.d. — þannig megi
m.a. gera reksturinn ódýrari.
Við rekstur þessa fyrirtækis
verður lagt kapp á að friðsæld
ríki á staðnum og í daglegu
umhverfi gestanna svo að þeir
njóti sem bestrar hvíldar og búi
sem lengst að henni. Það má
geta þess hér í lokin að erlendis
hafa heimili sem þessi verið sett
á stofn eftir fyrirmyndinni
Laugalandi í Eyjafirði sem þess-
ir sömu aðilar og reka heimilið
að Varmalandi stóðu fyrir.
Pantanir um dvöl á hress-
ingarheimilinu tekur Jón Sigur-
geirsson sjálfur í síma á Akur-
eyri alla daga milli 13.00 og 14.00
og 18.00 og 20.00.
Fjárhagsáætlun Búða-
hrepps samþykkt:
Halli
áætlaður
um 2,5
milljón-
ir króna
Fáskrúðsfirði, 14. maí.
F JÁRH AGSÁÆTLUN fyrir
Búðahrepp í Fáskrúðsfirði
var samþykkt fyrir skömmu
og var þar samþykkt að
hækka útsvarsprósentuna um
0,5% og verður hún því 11,5%.
Heildartekjur eru áætlaðar
ríflega 381 milljón króna og er
þá miðað við hækkað útsvar.
Þar er reiknað með því að halli
á bæjarsjóði verði um 2,5
milljónir króna, en ef út-
svarsprósentan hefði verið
hækkuð um 1%, hefði hagur
bæjarsjóðs verið jákvæður um
ríflega 5,5 milljónir króna.
Stærsti útgjaldaliðurinn í
fjárhagsáætluninni eru út-
gjöld vegna varanlegrar
gatnagerðar, en til þess er
áætlað að verja um 73 milljón-
um króna. Þá koma fræðslu-
málin með um 47 milljónir
króna.
Áætlunin var samþykkt með
atkvæðum beggja fulltrúa
sjálfstæðismanna og fulltrúa
Álþýðubandalagsins, en þeir
mynda meirihluta hrepps-
nefndar. Þá greiddi annar
fulltrúi Framsóknarflokksins
atkvæði með áætluninni, en
hinn sat hjá og lýsti þeirri
skoðun sinni að nýta ætti
útsvarsprósentuna að fullu.
Þá var einróma samþykkt
að nýta alla aðra tekjustofna
sem fyrir eru.
— Albert.
Teppaland nemur
land á Akureyri
Akureyri 10. maí.
VERSLUNIN Teppaland í Reykja-
vík hefir í dag opnað útibú í
Tryggvabraut 22 á Akureyri.
Verslunin er þar í björtu og
rúmgóðu húsnæði á 180 fermetra
gólffleti. Þennan mánuð munu
starfa þar tveir starfsmenn aðal-
verslunarinnar í Reykjavík, þeir
Sigmundur Guðbjarnason, versl-
unarstjóri, og Ingimundur Hákon-
arson, en frá næstu mánaðamót-
um veita versluninni forstöðu
hjónin Stella Kristín Víðisdóttir
og Guðjón Gíslason. Eigandi fyrir-
tækisins er Víðir Finnbogason.
í versluninni eru 25 rafknúðar
tepparúllur, og með þeim er hægt
að sýna teppi á stórum fleti. Þar
að auki eru til sýnis og sölu stök
teppi og sýnishorn um 50 lita og
gerða, sem unnt er að panta frá
versluninni í Reykjavík. Flest
teppin, sem á boðstólum eru, eru
frá Kanada, Bandaríkjunum, Eng-
landi, Hollandi og Belgíu, og eru
þau flutt inn milliliðalaust. Yfir-
leitt nýtur Teppaland magnaf-
sláttar hjá framleiðendum, og
þess vegna er hægt að bjóða
teppin á lægra verði en ella.
Sv. P.
Við opnun verslunarinnar Teppalands: Viðir Finnbogason, Sigmund-
ur Guðbjarnason, Jón H. Karlsson, framkvæmdastjóri Teppalands í
Reykjavik, og Ingimundur Hákonarson.
Frá fundi kaupmanna á Akurcyri.
Ályktanir Kaupmannafélags Akureyrar
Akurcyri. 10. maí.
KAUPMANNAFÉLAG Akureyr-
ar hélt félagsfund í dag. þar sem
m.a. var rætt um vanda dreifbýl-
isverslunar. Nokkrir forystu-
menn kaupmannasamtakanna
komu á fundinn og fluttu erindi.
1 fundarlok voru eftirfarandi
ályktanir samþykktar einróma:
P’undurinn vekur athygli á þeim
erfiðleikum sem landsbyggðar-
verzlunin á við að glíma og telur
það skyldu stjórnvalda að hlutast
nú þegar til um úrbætur, þannig
að smásöiuverzlunin geti gegnt
því hlutverki sem til er ætlast í
nútíma þjóðfélagi.
Fundurinn bendir sérstaklega á
það mikilvæga hlutverk sem verzl-
unin gegnir til byggðarjafnvægis í
landinu. Verzlunin sem atvinnu-
grein nýtur engra opinberra
styrkja eða ívilnana, þvert á móti
má segja að hún hlaupi undir
bagga með öðrum atvinnugreinum
landsmanna, svo sem iandbúnaði,
sjávarútvegi og iðnaði, með því að
taka að sér nauðsynlega þjónustu
fyrir gjald, sem er ákveðið af hinu
opinbera og í mörgum tilfellum
undir kostnaðarverði.
Á hverju ári gera þingmenn og
ríkisstjórn sérstakar ráðstafanir
til þess að bæta hag annarra
atvinnugreina landsmanna, en lit-
ið er framhjá þeim vanda sem
verzlunin í landinu á við að etja.
Við þetta verður ekki lengur
unað af hálfu verzlunarinnar og
áskilur hún sér allan rétt þar að
lútandi.
Almennur fundur í Kaup-
mannafélagi Akureyrar, haldinn
að Hótel Varðborg laugardaginn
10. maí, mótmælir harðlega þeirri
fyrirætlun ríkisstjórnarinnar sem
fram kemur í frumvarpi til láns-
fjárlaga fyrir árið 1980, um að
skerða ráðstöfunarrétt lífeyris-
sjóða landsmanna, með því aö
skylda þá til þess að láta af hendi
40% af ráðstöfunarfé þeirra til
hins opinbera. Lífeyrissjóðir eru
stofnaðir í frjálsum kjarasamn-
ingum milli launþega og atvinnu-
rekenda og eiga því þessir aðilar
fullan rétt til ráðstöfunar á því fé
sem rennur til þeirra.