Morgunblaðið - 17.05.1980, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1980
33
30 þátttakendur á
ráðstefnu um hafið
DAGANA 15.—20. maí verður
haldin hérlendis Evrópuráð-
steína um hafið. Það eru Sam-
band ungra framsóknarmanna í
samvinnu við International Fe-
deration of Liberal and Radical
Youth (IFLRY) sem gangast fyr-
ir ráðstefnunni sem fer fram þrjá
fyrstu dagana í Samvinnuskólan-
um Bifröst og þrjá þá seinni i
Reykjavík í húsakynnum hótel
Heklu.
Meðal þeirra sem flytja erindi á
ráðstefnunni er Guðmundur Ei-
ríksson, lögfræðilegur ráðunautur
utanríkisráðuneytisins. Hann
fjallar um hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna og þau drög
að nýjum hafréttarsáttmála sem
nú liggja fyrir.
Hilmar Hauksson, fiskifræðing-
ur, flytur tvö erindi. Annað ber
yfirskriftina: Hafið, matvæla-
forðabúr framtíðarinnar, og er um
verndun fiskstofna og varnir gegn
mengun sjávar. í seinna erindinu
gerir Hilmar grein fyrir sjávar-
dýraræktun og ónýttum möguleik-
um á því sviði.
Berthold Mayer frá háskólanum
í Tiibingen í Vestur-Þýskalandi
talar um efnið: Hafið og vígbúnað-
arkapphlaupið. Ráðstefnunni lýk-
ur á mánudag með ræðu utan-
ríkisráðherra Olafs Jóhannesson-
ar um samninga Islendinga og
Norðmanna um hafsvæðið í kring-
um Jan Mayen og væntanlegar
samningaviðræður vegna útfærslu
efnahagslögsögunnar við Græn-
land.
Þátttakendur í ráðstefnunni
verða rúmlega 30, þar af 20
erlendir gestir frá flestum löndum
Vestur-Evrópu. Evrópusjóður
æskunnar (European Youth
Foundation) ein af sérstofnunum
Evrópuráðsins hefur veitt styrk til
að standa straum af kostnaði
vegna ráðstefnuhaldsins.
Gullbrúðkaup
Gullbrúðkaup eiga í dag 17.
maí, hjónin Jóhanna Helga Bene-
diktsdóttir og Jóhann Björnsson,
Seljateigi í Reyðarfirði.
Þau hjón stunduðu búskap í
Seljateigi í meira en fjóra áratugi,
en Jóhann var einnig kennari á
fyrstu búskaparárum þeirra.
Seljateigur er í þjóðbraut og þar
var gestkoma mikil fyrr á árum og
gestrisni rómuð mjög.
Jóhann lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborg 16 ára.
Hann gekk í lýðháskólann Voss
í Noregi og Askov í Danmörku og
um nokkurn tíma var hann í
Vancouver og vann þar ýmisleg
störf, m.a. við skógarhögg. Hann
var aðalstofnandi Verkamannafé-
lags Reyðarfjarðar og í stjórn þess
lengi, formaður um hríð.
Um áratugi var hann í stjórn
Búnaðarfélags Reyðarfjarðar.
I skólanefnd sat hann um fjölda
ára og var formaður hennar um
skeið. Sýslunefndarmaður Reyð-
firðinga var hann í fjögur ár.
Heiga kona hans hefur um árabil
verið virkur félagi í Kvenféiagi
Reyðarfjarðar og er nú heiðursfé-
lagi þess. Helga er hagyrðingur
góður og hefur marga stökuna
gert um dagana.
Kjördóttir þeirra hjóna er Guð-
rún Asa húsmóðir á Reyðarfirði,
en fóstursonur Helgi Seljan al-
þingismaður.
Þau hjónin verða að heiman í
dag.
Gróska í starfsemi
Ættfræðifélagsins
ÆTTFRÆÐIFÉLAGIÐ hélt aðal
fund sinn 30. april sl„ en almennan
félagsfund hélt það 7. nóv. f.ó. Á
þeim fundi var minnst Jóhanns
Gunnars ólafssonar, fyrrum bæjar-
fógeta, en hann hafði verið ritari
féiagsins fró 1972 og unnið talsvert
að útgófu Manntals 1816. Þær flutti
Theódór Árnason verkfræðingur er-
indi um ættir norsku biskupanna ó
Hólum, en ó aðalfundinum flutti
Jón Gislason póstfulltrúi erindi um
varðveislu ættfræðigagna ó írlandi.
Félagið heldur áfram útgáfu
Manntals 1801, og nýtur til þess
aðstoðar Þjóðskjalasafns Islands og
styrks úr ríkissjóði og Þjóðhátíðar-
sjóði. Kom 2. bindi þess út sl. haust
og nær yfir Vesturamt. Eru þar nöfn
13.956 manna ásamt heimilisfangi,
aldri, stöðu á heimili og hjúskapar-
stétt og ennfremur greind atvinna
húsráðenda. Útgáfa 3. bindis —
Norðuramts og Austuramts — er vel
á veg komin svo að það kemur
væntanlega út með haustinu.
Stjórn félagsins skipa: Ólafur Þ.
Kristjánsson fyrrum skólastjóri,
formaður, Bjarni Vilhjálmsson þjóð-
skjalavörður, Jakobína Pétursdóttir
skrifstofum., Jón Gíslason póstfltr.
og Pétur Haraldsson kaupmaður.
(Fréttatilkynning).
ólafur Þ. Kristjánsson formaður
Ættfræðifélagsins.
50 ára afmælis Kvenfélagasambandsins var minnst á formannafundi, hinum 14. i röðinni. Hér er mynd
af háborðinu, formanni og heiðursgestum.
Ljósm. S.A.
Kvenfélagasambandið 50 ára
Undirskriftasöfnun um frið
Á ÞESSU ári eru 50 ár liðin
frá stofnun Kvenfélagasam-
bands íslands. í tilefni af því
var gerð nokkur grein fyrir
starfsemi og uppbyggingu
sambandsins í fjölmiðlum í
febrúarmánuði s.l.
Stjórn sambandsins taldi
rétt að bíða með að minnast
afmælisins, þar til formenn
héraðssambanda kæmu saman
til fundar. Var sá fundur
haldinn 17. og 18. apríl s.l., en
afmælishátíð að kvöldi dags
þann 19. apríi. Þetta var í 14.
sinn, sem formannafundur er
haldinn, en þeir hafa verið
annað hvert ár um skeið, þau
árin sem ekki eru landsþing.
Auk venjulegra fundarstarfa
flutti Sigríður Ingimarsdóttir
erindi til að kynna tillögur að
verkefnum og undirbúningi
vegna alþjóðaárs fatlaðra 1981.
Þá var gerð grein fyrir undir-
skriftasöfnun kvenna á Norður-
löndum undir fyrirsögninni
Ákall kvenna um frið, sem
Norrænu húsmæðrasamböndin
standa m.a. að. Voru formenn
hvattir til að segja frá þessu í
sínu héraði og hvetja til öflugr-
ar samstöðu og hraða verki
eftir föngum, þar sem undir-
skriftasöfnun lýkur þann 31.
maí. Verða listarnir þá sendir
til bækistöðva Sameinuðu þjóð-
anna í New York. Ennfremur
verður fjallað um friðarmálin á
þingi Álþjóðasambands hús-
mæðra í Hamborg og jafnrétt-
isráðstefnunni, sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa boðað til í Kaup-
mannahöfn, dagana 14.—30.
júlí 1980.
Á formannafundinum var
samþykkt tillaga er hljóðar svo:
14. formannafundur Kvenfé-
lagasambands íslands, haldinn
að Hallveigarstöðum dagana
17. og 18. apríl 1980, tekur
heilshugar undir það ákall
kvenna um frið, sem konur á
öllum Norðurlöndum beina til
Sameinuðu þjóðanna. Heitir
fundurinn á allar íslenskar
konur að undirrita ávarp þetta.
Við mótmælum vígaferlum og
vopnabúnaði einum rómi.
Ennfremur voru eftirfarandi
tillögur samþykktar:
1) í tilefni af 50 ára afmæli
Kvenfélagasambands íslands
sendir 14. formannafundur þess
öllum félagskonum sambands-
ins kveðjur og þakkir fyrir
fórnfús mannúðar- og menn-
ingarstörf á liðnum árum. Um
leið minnist fundurinn látinna
félaga sambandsins með virð-
ingu og þökk.
• Fæðingarorlof
í Tryggingastofnun
2) 14. formannafundur
Kvenfélagaáambands Islands,
haldinn að Hallveigarstöðum
dagana 17. og 18. apríl, skorar á
Alþingi að breyta framkomnu
frumvarpi um breytingu á lög-
um um almannatryggingar nr.
67/1971 97. mál á 102. löggjaf-
arþingi, þannig að fjárframlög
vegna fæðingarorlofs verði
greidd af Tyrggingastofnun
ríkisins. Fundurinn lítur svo á,
að ef atvinnurekendur séu
skyldaðir til verulegra fjár-
framlaga vegna fæðingarorlofs
starfsmanna, geti það orðið til
þess að veikja stöðu kvenna á
vinnumarkaðinum. Gengur það
mjög gegn þeirri stefnu, sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa
markað, að unnið skuli að fullu
jafnrétti kynjanna.
3) 14. . formannafundur
Kvenfélagasambands íslands,
haldinn að Hallveigarstöðum
dagana 17. og 18. apríl 1980,
skorar á Alþingi og ríkisstjórn
að veita Kvenfélagasambandi
íslands fjárstyrk til að efla
ráðgjöf í hússtjórn og neyt-
endamálum. Telur fundurinn
eðlilegt að sambandið hefði í
þjónustu sinni einn ráðunaut í
hverjum landsfjórðungi.
4) 14. formannafundur K.Í.,
haldinn að Hallveigarstöðum
17. og 18. apríl 1980, lýsir
eindreginni andstöðu við allar
aðgerðir, sem miða að rýmkun
á dreifingu áfengis.
• Góðar gjaíir
á afmælishátíd
Afmælishátíðin var haldin að
Hótel Loftleiðum og hófst með
því að formaður K.Í., María
Pétursdóttir, setti hátíðina með
ræðu. Því næst minntist Sig-
ríður Thorlacius, fyrrv. for-
maður K.Í., frumherjanna og
Þorbjörn Broddason, lektor,
flutti erindi um atvinnu- og
fjölskyldulífið. Líney Jóhannes-
dóttir, rithöfundur, las kafla úr
óprentaðri sögu, og Selma
Kaldalóns, tónskáld, lék á
píanó undir fjöldasöng. Undir
borðum voru mörg ávörp flutt,
og K.í. bárust margar góðar
gjafir, blóm og símskeyti í
tilefni af afmælinu. Ein af
stofendum sambandsins, Sig-
rún Stefánsdóttir sat hófið.
Kristín Halldórsdóttir afhenti
málverk eftir Ásgrím Jónsson
af móður sinni, Ragnhildi Pét-
ursdóttur frá Háteigi, en hún
var formaður fyrstu 17 árin.
Ólöf og Guðrún Benediktsdæt-
ur gáfu lágmynd af móður
sinni, Guðrúnu Pétursdóttur,
en hún var formaður næstu 12
árin. Bandalag kvenna í
Reykjavík gaf ljósmynd af Sig-
ríði Thorlacius, þar sem hún
ber formannskeðju Norræna
húsmæðrasambandsins. Rann-
veig Þorsteinsdóttir hrl., Helga
Magnúsdóttir á Blikastöðum og
Sigríður Thorlacius, fyrrver-
andi formenn voru gerðar að
heiðursfélögum og þeim afhent
heiðursskjöl og fánar K.í. fyrir
ómetanleg störf í þágu sam-
bandsins. Ennfremur fengu
Elsa E. Guðjónsson, Ólöf Bene-
diktsdóttir, Kristjana
Steingrímsdóttir og Sigríður
Briem Thorsteinsson viður-
kenningu fyrir margra ára
starf fyrir K.í.
• Húsfreyjan
30 ára
Það er osk og von allra sem
að sambandinu standa, að K.í.
eflist í starfi í framtíðinni og
geti haldið áfram að sinna þeim
verkefnum sem því var ætlað í
upphafi, að vinna að heill
heimili og fjölskyldna og efla
samtöðu kvenna.
Skrifstofa K.í. er að Hall-
veigarstöðum, og þar er starf-
rækt Leiðbeiningastöð hús-
mæðra og gefið út tímaritið
Húsfreyjan, sem nú hefur kom-
ið út í 3 ár, fjórum sinnum á
ári. Einnig hefur K.í. gefið út
mörg fræðslurit, svo sem um
frystingu, gerbakstur, glóðar-
steikingu, mataræði, hreinlæti,
fundarstörf og ísl. þjóðbúninga.
(Frétt frá K.í.)