Morgunblaðið - 31.05.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ1980
. HLAÐVARPINN .
Hluti af íslcnzka dansflokknum scm æfir nú nýjan ballett um Galdra-Loft.
Ljósmynd Mbl. RAX.
LISTDANS
Umsjón Árni Johnsen
íslenzki dansflokkurinn
æfir Galdra-Loft
íslenzki dansflokkurinn hefur
hægt og sígandi unnið sér merkan
sess í menningarlífi landsíns þótt
hann hafi búið við þröngan kost.
Brautryðjendurnir í dansflokkn-
um hafa unnið mikið og óeigin-
gjarnt starf, en þeir hafa skilað
mörgum ánægjustundum til
áhorfenda. Um þessar mundir
æfir íslenzki dansflokkurinn fyrir
Listahátíð og er verið að æfa
nýjan ballett eftir ballettmeistara
Þjóðleikhússins, Kenneth Tillson.
Ballettinn byggist á þjóðsögunni
og leikritinu um Galdra-Loft og er
hér um 30 mínútna verk að ræða.
Nær 15 dansarar dansa í ballettin-
um, sem verður sýndur á Lista-
hátíð 16. og 18. júní á sýningum
þar sem íslenzku ballettdansmeyj-
arnar María Gísladóttir og Svein-
björg Alexanders dansa ásamt
karldönsurum af erlendu bergi.
María starfar í Vestur-Berlín og
Sveinbjörg í Köln.
ÞJÓÐMÁL
í Óslóarsól
Þessi mynd var tekin í garðin-
um í sendiráði íslands i Osló að
loknum samningum við Norð-
menn um Jan Mayen, er sendi-
herrahjónin Páll Ásgeir
Tryggvason og Björg Ásgeirs-
dóttir buðu islenzku sendinefnd-
inni heim, en alls voru fjórir
íslenzkir ráðherrar staddir i Ósló
þennan dag, því auk ólafs og
Steingríms sem voru í sendi-
nefndinni voru þeir á ferðinni
Gunnar og Hjörleifur Guttorms-
son.
Á myndinni eru í hópi kvenna
frafvinstri: Kristín Guttormsson,
Ragnheiður Hafstað, Björg Ás-
geirsdóttir, Kristín Ingimundar-
dóttir, Vala Thoroddsen og Auður
Rútsdóttir. Frá vinstri í hópi
karla eru Hjálmar Vilhjálmsson,
Már Elísson, Gunnar Thoroddsen
Sigurður Hafstað, Ólafur Egils-
son, Börkur Karlsson, Sighvatur
Björgvinsson, Ólafur Jóhannes-
son, Guðmundur Eiríksson, Björn
Þorfinnsson, Páll Ásgeir Tryggva-
son, Hans G. Andersen, Guð-
mundur Benediktsson, Jón Arn-
alds, Matthías Bjarnason,
Steingrímur Hermannsson, Þór-
arinn Þórarinsson, Ólafur Ragnar
Grímsson, Hjörleifur Guttorms-
son og Gunnar G. Schram. Ljós-
mynd Mbl. Árni Johnsen.
14. SEPTEMBF.R
Skopuningur givið plátu út saman viö kendum islendskum
poppbólki:
Verður at hoyra
í útvarpinum
í kvold
— Er upptikin í einum av tslands bestu
upptokustudium, sigur Elis Poulsen,
Skopun.
•• Poker og Elis- er heitið á
n.VRKjarí plátu. sum hós-
dagin kom i fsroysku
platuhandlamar.
A plátuni. ifl ber tveir
sangir á hvorjari aiðu. eru
m.a. tveir gamlir kenning-
jbh, ið Bimi
Tónleikabólkv
eitt ár á bakij
- Spæla mest gomui feroysk I
kend útlendsk dansíleg, siguri
Joensen, Hvalvik.
Tað er nerum eitt ár aið-
ani. at tónleikabólkurín
••Flian- varð settur á
stovn
Teir sum mynda bólkin i
dag eru: Súni Joensen.
trummur. 19 ár Hvalvík,
Jargen Andreassen. aolo.
23 ar Oyrabakka. Eilif
Hajsted. bass 18 ár
Langasandur og Jóhan
Hansen. rytmu & sang, 25
ár Langasandur.
Umframt nevndu spæl-
arar. hevur 16 ára gamla
Aðalgunn Jacobsen av
Langasandi vant við bólk-
inum ta seinastu tíðina.
og er ætlanim at hon i
framtiðini skal syngja við
«Fliuni».
Manningin broytt
Síðan bólkurín byrjaði at
spæla fyrí slekum árí sið-
ani. er manningin oftani
broytt.
— Tað fyrstu tiöina spæ-
i nurn^
h.ial
Rinda ikki
leigu
feroyskum tt
bólkum. eru
viðurskiftini
heldur ikki tey
«Flian» byrjaí
i nyggju
ungmannafelag
«Eydnan»
og rindaðu
pening fyrí at n
Eftir at kappro
tið hjá Hvalvilj
nesar Kapprl
nærum er
hevur bólkurin rl
tið til venjingij
leiðis uttan at r
ing fyri leiguna.l
Súni upplýsir. j
fyri at gjalda ’
húsið. havateirá
TÓNLIST
Hljómsveitin Póker á plötu
með Færeyingnum Elis Poulsen
I FÆREYSKA blaðinu 14. sept-
ember segir frá því í maíbyrjun
að Færeyingurinn Elis Poulsen
hafi sungið inn á hljómplötu
færeysk lög með íslcnzku hljóm-
sveitinni Póker. Er vakin athygli
á þvi að þarna sé um nýja tegund
af samvinnu að ræða i frændsemi
og búskap Færeyinga og íslend-
inga, en platan sem heitir Sköp-
un hefur fengið góðar undirtekt-
ir í Færeyjum.
Elis Poulsen bjó um skeið á
Islandi, talar íslenzku reiprenn-
andi og hér nam hann bæði
kokkamennsku og garðyrkju. Elis
Poulsen var einnig í skipshöfn
færeysku skútunnar sem sigldi
fyrir seglum til íslands þjóðhátíð-
arárið 1974 til þess að færa
íslenzku þjóðinni 6 manna far,
glæsilegan og vandaðan bát, sem
okkur er því miður ekki kunnugt
um hvar er niðurkominn.
SÖNGUR
Dató syngjandi um landið
DATO Triffler kallar þessi ungi
söngvari sig, en hann hélt fyrir
skömmu tónleika í Laugarásbíói
þar sem hann söng og lék eigin lög
og texta með tilþrifum. Nú hyggst
söngvarinn leggja land undir fót
og fara vítt og breitt um landið í
tónleikaferð, m.a. til ísafjarðar,
Hornafjarðar, Akureyrar, Vest-
mannaeyja, Egilsstaða, Húsavíkur
og Reykjavíkur.
Tæki bóndans í þjón-
ustu útvegsbóndans
Magnús Kristinsson heitir þessi ungi maður en þótt hann sé
svo vel vopnum búinn sem bóndi til sveita í dag, þá er hann ekki
bóndi í eiginlegri merkingu, heldur útvegsbóndi í Vestmanna-
eyjum sem hefur tekið tæknina í sína þjónustu. Magnús er
framkvæmdastjóri og útgerðarstjóri og sér m.a. um skuttogara
og fleiri stór fiskiskip. Þeir keyptu dráttarvél með fimm tonna
sturtukerru til þess að notá við alhliða verkefni í kring um
útgerðina og framkvæmdastjórinn ók traktornum frá Reykjavík
til Þorlákshafnar í Herjólf.