Morgunblaðið - 31.05.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1980
25
LISTAHÁTÍÐ Á KJARVALSSTÖÐUM:
ar á verkum Gerðar
'gKristínar Jónsdóttur
Yfirlitssýningar á verkum tveggja lát-
inna listakvenna á Kjarvalstöðum hljóta
að teljast einn helzti viðburður á þeirri
Listahátíð, sem nú er að hefjast. Hér er
um að ræða Kristínu Jónsdóttur listmálara og
Gerði Helgadóttur myndhöggvara, og enda þótt
báðar hafi um langt skeið verið á fremstu röð
íslenzkra myndlistarmanna og fjölmargar sýningar
hafi verið haldnar á verkum þeirra, bæði hér og
erlendis, er þetta í fyrsta sinn, sem efnt er til
yfirlitssýninga á verkum þeira. Hér er í raun um að
ræða tvær sýningar, sem þó mynda samstæða heild.
Sýningarsvæðið á Kjarvalsstöðum hefur verið
stúkað sundur, þannig að í báðum aðalsölum
hússins er komið fyrir verkum beggja listakvenn-
anna. Sýningarsvæðið hannaði Leifur Breiðfjörð í
samvinnu við Þóru Kristjánsdóttur listráðunaut
Kjarvalsstaða.
í tengslum við sýninguna á Kjarvalsstöðum er
sýning á grafíkmyndaröð Ragnheiðar Jónsdóttur.
Röðina, sem nefnist „Ég er ...“, gerði Ragnheiður að
tilhlutan Listahátíðarnefndar.
Að sögn Þóru Kristjánsdóttur er langt síðan
hugmynd um yfirlitssýningu á verkum Kristínar
Jónsdóttur var fyrst hreyft, en svo viðamikii sýning
sem hér er á ferð hefði ekki verið möguleg nú hefðu
afkomendur listakonunnar ekki byrjað að skrá-
setja verk hennar í fyrrahaust. Slíkt starf er
vandasamt og að sögn Þóru Kristjánsdóttur er þessi
skrásetning líklega einsdæmi hér á landi. Heimilda
hefur verið leitað í gömlum skrám og dagbókum,
en án þess að auglýst hafi verið eftir verkum til
skrásetningar hefur tekizt að hafa upp á yfir 500
myndum eftir Kristínu, og hafa öll þessi verk verið
ljósmynduð. Listmálararnir Þorvaldur Skúlason
og Jóhannes Jóhannesson völdu síðan um 200 verk,
sem eru á sýningunni á Kjarvalsstöðum flest
olíumyndir.
Á yfirlitssýningunni á verkum Gerðar Helga-
dóttur eru rúmlega 200 myndir, — höggmyndir frá
30 ára tímabili, mósaíkmyndir, lágmyndir, skartgrip-
ir, vatnslitamyndir, frumdrög og vinnuteikningar,
en flest eru þetta verk, sem hafa ekki verið sýnd
opinberlega áður. Loks, en ekki sízt, eru á
sýningunni 40 steindir gluggar, sem fengnir voru að
láni frá Þýzkalandi í tilefni sýningarinnar. Þunga-
miðjan i sýningunni er stórgjöf sú, sem ættingjar
listakonunnar gáfu Kópavogskaupstað að henni
látinni en fjöldi verka hefur jafnframt verið fenginn
að láni hjá stofnunum og einstaklingum.
Elín Pálmadóttir, sem var náin vinkona Gerðar
Helgadóttur, hefur á undanförnum árum unnið
mikið starf við skrásetningu á verkum listakonunnar,
en Elín og Snorri Helgason, bróðir Gerðar, hafa
aðstoðað Leif Breiðfjörð við uppsetningu á verkum
Gerðar.
Við opnun sýningarinnar kl. 18. á sunnudag
flytur Gylfi Þ. Gíslason fyrrum menntamálaráð-
herra stutt erindi um listakonurnar, og Unnur María
Ingólfsdóttir og Gísli Magnússon leika kafla úr
vorsónötu Beethovens.
Sýningarnar verða síðan opnar daglega kl. 14—22
til 27. júlí.
- Á.R.
Reykjavíkurmynd eftir Kristínu Jónsdóttur. (i.jósm. Emiiia Bjðrs:)
i
Verk Gerðar Helgadóttur í and-
dyri Kjarvalsstaða.
(Ljósm. Emilia Bjórg)
Þjóðarsál í fjötrum heitir þessi
mynd eftir Gerði Helgadóttur.
Myndin er í eigu Mörtu Thors,
ekkju Péturs Benediktssonar, en
myndina gaf Gerður Pétri eftir
að hann hafði flutt ræðu á fundi
sem Stúdentafélag Reykjavíkur
efndi til vegna blóðbaðsins i
Ungverjalandi 1956.