Morgunblaðið - 31.05.1980, Page 26
/
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ1980
Ar trésins
Gróðursett á 30 stöð-
um í Reykjavík í dag
SKÓGRÆKTARDAGUR er í
Reykjavík í dag og er þá ætlunin að
íbúar borgarinnar leggi hönd og
plóg og gróðursctji tré í nágrenni
sínu. Hafa 30 svæði verið tekin til
þcss og þeir sem ekki búa í nánd við
þau eru hvattir til að gróðursetja í
Rauðavatnsstöðinni við Suður-
Iandsveg. Hefst vinnan kl. 13.15 og
þeir sem geta, þurfa að hafa með
sér verkfæri, skóflur, haka, fötur
og hjólbörur.
Fjölmargir sjálfboðaliðar ásamt
verkstjórum frá garðyrkjudeild
borgarinnar og Skógræktarfélaginu
munu leiðbeina. Reykjavíkurborg
leggur til plöntur, 30 þúsund alls.
Svæðin sem gróðursetning verður í á
skógræktardeginum í Reykjavík eru:
ÍÁrbæjarhverfi:
a. Milli Bæjarháls og Hraunbæjar,
b. við Árbæjarkirkju og
c. svæði íþróttafélagsins Fylkis.
í Fella- og Hólahverfi:
Svonefnd Grænagróf í hlíðinni aust-
an við Suðurfell og Keilufell.
í Seljahverfi:
Svonefnt Bláskógasvæði í dalnum
upp af Stekkjarbakka við gróðrar-
stöð Alaska.
í Breiðholti I:
a. Svonefnt Fálkabakkasvæði milli
Fálkabakka og Stekkjarbakka og
b. Stangarsvæði sem afmarkast af
Arnarbakka, Stöng og Breiðholts-
braut.
í Fossbogi:
Þrjú opin svæði:
a. Milli Eyrarlands og Hörgslands,
b. milli Hörgslands og Óslandsog
c. milli Hörgslands og Óslands og
1 Smáibúðahverfi:
a. Víkingssvæðið við Réttarholtsveg
og Hæðargarð og
20 þús. watta hljóm-
kerfi til landsins
Hljómtækjaverzlunin STERÍÓ
hefur nú flutt til landsins magn-
ara og hátalarabúnað sem er af
þeirri stærðargráðu sem algeng er
meðal stærstu hljómsveita heims.
Hátalarakerfið er frá Electro-
Voice sem er eitt stærsta fyrir-
tæki Bandaríkjanna á þessu sviði.
Með tilkomu þessa hátalara-
kerfis opnast mögluleikar á aukn-
um heimsóknum erlendra hljóm-
sveita til landsins, jafnframt því
að hægt verður að bjóða uppá
frambærilega tónleika í Laugar-
dalshöll jafnt sem utan dyra.
Kerfið er hægt að nota í heild
sinni en auk þess verður hægt að
skipta því upp í smærri einingar.
Heildarverð tækjanna mun nema
um 30 milljónum króna.
Með þessu framtaki sínu vill
verzlunin STERÍÓ leggja áherslu
á sérhæfingu verzlunarinnar á
sviði vandaðra hljómtækja fyrir
atvinnumenn jafnt sem hinn al-
menna neytanda.
Stálu bíl og eyðilögðu
ÞRÍR ungir menn tóku Lada-
fólksbifreið '79 traustataki á
flugvellinum á ísafirði í fyrra-
kvöld og óku honum í jarðgöngin
á leiðinni til Súðavíkur, þar sem
þeir óku á og skemmdu bílinn.
sem nú er talinn ónýtur.
Málavextir voru þeir, að eigandi
bifreiðarinnar var að koma pakka
Nafn mis-
ritaðist
NAFN eins nefndarmanna í
stuðningsnefnd Alberts Guð-
mundssonar á Dalvík misritaðist
undir mynd í Morgunblaðinu í
gær. Nafn nefndarmannsins er
Sigyn Georgsdóttir og er hún
beðin velvirðingar á þessari mis-
ritun.
í flugvél Flugfélags íslands, sem
fór þetta kvöld til Reykjavíkur.
Gekk hann inn í flutstöðvarbygg-
inguna með pakkann og skildi
bifreiðina eftir fyrir utan.
Á meðan tóku piltarnir, sem eru
á aldrinum 16 til 17 ára, bifreið-
ina. Þeir höfðu ekki fengið far með
flugvélinni til Reykjavíkur, þar
sem hún var fullbókuð. Ákváðu
þeir þá að verða sér úti um bifreið.
Fannst bifreiðin seint um kvöldið
og um nóttina handtók lögreglan
mennina þrjá, sem í gær sátu í
fangageymslum lögreglunnar á
ísafirði. _
0'
INNLENT
b. Fákssvæðið neðan Byggðarenda.
t Ilvassaleiti:
Milli Stóragerðis og Brekkugerðis
við Hvassaleitisskóla.
Vogar, Kleppsholt og Langholt:
a. Við Steinahlíð meðfram Elliða-
vogi,
b. svæðið milli Elliðavogar og
Njörvasunds og
c. Þróttarsvæðið við Holtaveg.
t Laugarneshverfi:
a. Meðfram Sundlaugavegi milli
Laugalækjar og Dalbrautár,
b. við Laugarneskirkju og
c. við hús Öryrkjabandalagsins
meðfram Kringlumýrarbraut.
d. Félagssvæði Ármanns.
í Ármúlahverfi:
Við Ármúlaskóla að Síðumúla.
í gamla Vesturbænum:
Leikvöllur við Framnesveg.
I Vesturbæ
munu KR-ingar planta í félagssvæði
sitt við Kaplaskjólsveg og einnig
verður plantað við Sundlaug Vestur-
bæjar og við Hjónagarða við Suður-
götu.
I Hliðahverfi
munu Valsmenn planta í félagssvæði
sitt við Flugvallarveginn.
í Álftamýri
munu Framarar planta í félagssvæði
sitt við Safamýri.
t Elliðaárhólma
mun Stangveiðifélag Reykjavíkur
planta.
t Golfvallarsvæðið
mun Golfklúbbur Reykjavíkur
planta.
Við Réttarholtsskóla
verður gróðursett 2.—15. júní á
vegum æskulýðsráðs og Bústaða-
kirkju.
1 Rauðavatnsstöð
meðfram Suðurlandsvegi.
Sýnir í fyrsta skipti
í Eden Hveragerði
SVEINBJÖRN Þór Einarsson opn-
ar málverkasýningu í Eden,
Hveragerði í dag, laugardaginn,
31. maí. Þetta er fyrsta sýning
hans og eru á henni 55 myndir.
Sveinbjörn stundaði nám í
Myndlistaskóla Reykjavíkur og
síðan framhaldsnám í Englandi.
Meðfylgjandi
málverkanna,
mynd er af einu
sem á sýningunni
Blómamarkað-
Garðabæ
ur
/
1
KVENFELAG Garðabæjar heldur
sinn árlega blómamarkað í Gagn-
fræðaskólanum við Vífilstaðaveg
á morgun, sunnudaginn 1. júní,
klukkan 14 eftir hádegi, en ekki í
dag eins og tilkynnt hafði verið. Á
boðstólum verða fjölærar jurtir
svo sem blóm, jarðaberjaplöntur,
graslaukur, rabarbari, tré og
runnar, inniblóm og útsæði. Allur
ágóði af markaðnum rennur til að
byggja upp Samkomuhúsið á
Garðaholti, sem kvenfélagið hefur
rekið undanfarná áratugi.
Lektorsstaða í dönsku:
Hallast að þvi að eðli-
legt sé að auglýsa
— segir menntamálaráðherra
„HÁSKÓLARÁÐ hefur
óskað eftir því að staðan
verði auglýst og persónu-
lega hallast ég að því, að
það sé eðlilegt að auglýsa
stöðuna. En málið er til
meðferðar hjá mér,“ sagði
Ingvar Gíslason mennta-
málaráðherra, er Mbl.
spurði hann um afstöðu
hans til auglýsingar á
stöðu lektors í dönsku við
Háskóla íslands.
„Það er algjör firra að um
einhverjar pólitískar aðgerðir sé
að ræða í þessu máli,“ sagði
menntamálaráðherra. „Þessi lekt-
orsstaða varð til svo leysa mætti
úr vandræðum vegna dönsku-
kennslu — og hún var bráða-
birgðalausn. Hitt er svo aftur, að
ég hef persónulega tiltrú á Peter
Söby Kristiansen, sem hefur
starfað í tengslum við mennta-
málaráðuneytið og ég hef nýlega
skipað hann ráðunaut varðandi
dönskukennslu í sjónvarpi.
Þessa ósk háskólaráðs um að
auglýsa stöðuna er á engan hátt
hægt að túlka sem aðgerðir gegn
Peter Söby persónulega. Eins og
málum er háttað finnst mér hún
ekki óeðlileg."
Séra Jón M. Guð-
jónsson fyrrv.
prófastur 75 ára
Vorkvöldin eru fögur á Vatns-
leysuströndinni. Þessi græna vin
milli svartra hraunfláka og blás
sjávar baðast þá ljóma hnígandi
sólar. Og öldurnar loga ...
Á vordægri fyrir þrem aldar-
fjórðungum fæddist þar inn í
birtu náttleysunnar sveinn sem
síðan hefur verið ljósberi samtíð
sinni. — Honum hefir fylgt, hvar
sem hann hefir farið, ljómi vor-
kvöldsins, hlýja sumardagsins og
sú hressandi hafgola sem hrekur
brott lognmollu og værugirni.
Tvisvar áður hefi ég minnst
þessa vinar míns, séra Jóns M.
Guðjónssonar, á merkisdögum.
Því skyldu einhverjir ætla að nóg
væri kveðið. Síður er þó en svo.
Liðið er á annan áratug síðan
við fluttumst frá Akranesi — en
böndin, sem knýta okkur prófasts-
hjónunum þar efra, hafa styrkst
með ári hverju. Hvert skyldi hafa
verið leitað þegar hughreystingar
var þörf, þegar ógnir blöstu við á
næsta leiti, þegar dauðinn virtist
aðeins bíða færis? Hver átti þann
hógværa kraft, það hlýja þel og þá
öruggu trú sem bar birtu vonar og
vissu inn í myrkur kvíða og
órósemi? Það var vinurinn handan
Flóans, fermingarfaðir barnanna
okkar, sá mildi og skilningsríki
Guðs þjónn, séra Jón M. Guðjóns-
son. Hann tók, ásamt konunni
sinni elskulegu, þátt í áhyggjum
okkar og kvíða og naut síðan jafn
traustur og þelhlýr gleðinnar
djúpu þegar sigur vannst.
Víst er þetta persónuleg játning
en sú er réttlæting þess að setja
hana á blað að slíkur hefir séra
Jón verið ótalmörgum öðrum.
Sóknarbörn hans áttu í honum
skjólið hlýja og örugga. Handtakið
þétta var mörgum styrkur á erfið-
um stundum, orðin smyrsl á opnar
undir, samkenndin með þeim sem
höllum fæti stóðu tákn þess kær-
leika sem „leitar ekki síns eigin".
Við hjónin rifjum það oft upp
hver fögnuður var jafnan að
heimsóknum hans er við áttum
heima á Skaga. Viðmót hans og
viðhorf eru þeim töfrum slungin
að lengi eftir fundum við and-
blæinn styrka og milda „sem
titrandi óm í auðum kór og angan
úr tómu keri“.
Á sjötugsafmæli séra Jóns sagði
ég lítið eitt frá störfum hans á
Skaga. Ég drap til að mynda á
Byggðasafnið í Görðum sem lofar
meistara sinn, séra Jón. Frásögn
af lífsstarfi hans er fremur bókar-
efni en stuttrar blaðagreinar. Og
sóknarbörn hans hafa sýnt hvers
þau meta hann með því að gera
hann að heiðursborgara Akraness.
Vinir prófastshjónanna á Akra-
nesi vita vel að með þeim er
jafnræði. Frú Lilja Pálsdóttir er
ein þeirra kvenna sem stækka
menn sína. Hún á því sinn hlut í
þeirri virðingu og því þakklæti
sem manni hennar hlotnast.
Það sem dýpstum rótum stend-
ur í hjarta mannsins verður seint
með orðum tjáð. Andspænis undri
lífsins er óðurinn til gleðinnar
orðlaus þakkargjörð. Það veit séra
Jón manna best. Þess vegna er
þjónusta hans við Guð um leið
skerfur til gróanda lífs.
Við hjónin, börn okkar, tengda-
börn og barnabörn sendum honum
og konu hans hugheilar kveðjur á
merkisdegi og þökkum þeim vin-
áttuna góðu árin öll. Sú þökk er
dýpri en þessi fátækleg orð fá
tjáð.
Fögur eru vorkvöldin á Vatns-
leysuströnd. Fegra miklu er þó í
hugartúnum prófastsins á Skaga
sem fæddist þar á ströndinni inn í
birtu vorsins fyrir hálfum áttunda
áratug. Þar mun vart nokkru sinni
hausta. — Verði honum ókomin ár
jafnfögur sem blítt vorkvöld í
bernskuhögum.
Hann verður að heiman.
ólafur Haukur Árnason