Morgunblaðið - 31.05.1980, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ1980
45
miður ekki með hvaða hljómsveit
síðarnefnda lagið er.) í stað þess
að spila bæði lögin, hvort með
þeim kveðjum sem þeim fylgdi,
eða saman í syrpu, þá tilkynnti
kynnirinn að lagið „5-4-3-2-1" yrði
látið fylgja öllum kveðjunum!
• Furðulegt val
Það sem ég hef út á þetta að
setja er þetta: „Lagið „2-4-6-8
Motorway" með Tom Robinson
Band var af flestum breskum
poppblöðum kosið og útnefnt
besta lag ársins 1977. Fyrir þetta
lag var Tom Robinson Band einnig
kosið og útnefnt „Bjartasta vonin"
í Bretlandi þetta sama ár. Eitt
þessara blaða nefndi Tom Robin-
son Band og lagið „2-4-6-8 Motor-
way“ ástæðu númer eitt fyrir því
að árið 1977 var gott og mikið
rokkár. Virtir poppsérfræðingar
eins og Ásmundur Jónsson
(Áfangar) fullyrtu að platan
„Power in the Darkness", sem
inniheldur m.a. “2-4-6-8 Motor-
way“, hafi verið ein af 5 bestu
plötum ársins 1978. En þegar
unglingar senda kveðju með þessu
stórgóða rokklagi þá er spilað
fyrir þá í staðinn þriðja klassa
lagleysa.
Hvers vegna þetta var gert veit
ég ekki. En hvort sem það var gert
vegna þess að nöfn laganna eru
svipuð eða „5-4-3-2-1" er léleg
eftirlíking af „2-4-6-8 Motorway“,
þá fannst mér þessi framkoma
kynnisins ósmekkleg.
Rokkunnandi.“
• Reka á íran úr SÞ
Þá er hér loks bréf frá „V.S.“,
sem finnst linlega tekið á málefn-
um írans á alþjóðavettvangi:
„Enn eru gíslarnir í ömurlegri
fangavist víða um Iran og á valdi
svokallaðra námsmanna, en það er
fínt orð sem ýmsir misindismenn
nota nú óspart eins og flestum
mun kunnugt. En eitt er það, sem
sem ég furða mig á, hvernig má
það vera að íran er enn fullgildur
meðlimur Sameinuðu þjóðanna, og
gegna fulltrúar þar sínum störfum
eins og ekkert sé eðlilegra? íran,
eða þeir sem þar stjórna, hefur
þverbrotið öll alþjóðalög varðandi
friðhelgi sendiráða, en samt gegna
fulltrúar írans störfum sínum hjá
Sameinuðu þjóðunum.
• Aðalritari SÞ
hunsaður
Mönnum er í fersku minni, að
þegar aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna var í íran var hann hunsaður
og hæddur af skrílnum með fullu
samþykki ráðamanna, en samt eru
þessir menn fullgildir meðlimir
Sameinuðu þjóðanna. Ég legg til
að fulltrúi íslands beri fram
tillögu um að Iran verði rekið úr
Sameinuðu þjóðunum og öllum
stofnunum á vegum þeirra. ísland
getur vissulega lagt sitt af mörk-
um, og aldrei má gleyma veslings
gíslunum í íran. Við verðum að
standa með bestu vinaþjóð ís-
lands, Bandaríkjunum, og það
kröftuglega. Enn einu sinni lýsi ég
yfir skömm minni á þögn ráða-
manna á Norðurlöndum, ekki
stendur á að fordæma Israel og
Suður-Afríku, en það stendur svo
sannarlega á ykkur í nafni mann-
úðar að stöðva villimennskuna í
íran.
V.S.“
Þessir hringdu . . .
• Naglar um allt
Kona í Þingholtunum hringdi:
Sagði hún að verið væri að gera
við tvö hús skammt frá heimili
hennar. Bað hún um að þeim
skilaboðum væri komið til smið-
anna, að þeir sæju til þess að
naglar og annað þeyttist ekki út
um allar götur. Sagði hún að
naglarnir, sem væru þar eftir þá,
gætu verið hættulegir gangandi
vegfarendum og ekki væri heldur
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á skákmóti sovézka skákfélags-
ins Spartak í vetur kom þessi
staða upp í viðureign meistaranna
Malisovs og Janvarevs, sem hafði
svart og átti leik.
31. - Re3+!, 32. fxe3 - Hb2 og
svartur vann auðveldlega.
skemmtilegt að fá þá í bíldekkin.
Ekki þyrfti nú annað en hafa kúst
við höndina og nota hann.
Þá sagðist hún vilja þakka
sjónvarpinu fyrir myndina „Lítil
þúfa“. Það hefði verið yndisleg og
góð mynd. Sagði hún að þar hefði
sannast að til væru íslendingar,
sem kynnu að taka myndir. Hvatti
hún til þess að það fólk, sem kynni
til verka, fengi fleiri verkefni hjá
sjónvarpinu en hinum gefið frí.
HÖGNI HREKKVÍSI
29. JUNI
PÉTUR J. THORSTEINSSON
Aöalskrifstofa stuöningsfólks Péturs J. Thorsteins-
sonar í Reykjavík er á Vesturgötu 17, símar:
28170 — 28171 — 28518
★ Allar upplýsingar um forsetakosningarnar.
★ Skráning sjálfboöaliöa.
★ Tekiö á móti framlögum í kosningasjóð.
Nú fylkir fólkið sér um Pétur Thorsteinsson.
Stuðningsfólk Péturs.
Dagskrá 43. Sjómanna-
dagsins í Reykjavík, 1.
júní 1980.
Kl. 08:00
Fánar dregnir aö hún á
skipum í Reykjavíkurhöfn.
Kl. 10:00
Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur létt sjómannalög viö
Hrafnistu Reykjavík. Stjórn-
andi Þorvaldur Steingríms-
son.
Kl. 11:00
Minningarguðsþjónusta í
Dómkirkjunni, Biskup
íslands Herra Sigurbjörn
Einarsson prédikar og
minnist drukknaöra sjó-
manna, séra Þórir Steph-
ensen aðstoðar. Hróbjartur
Lúthersson les pistil dags-
ins og Rafn Sigurðsson
guðspjall dagsins. Dómkór-
inn syngur undir stjórn Sig-
uröar ísólfssonar, einsöngv-
ari er Garðar Cortes.
Hátíðahöldin í Nauthólsvík
Kl. 13:30
Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur létt sjómannalög, stjórn-
andi Þorvaldur Steingríms-
son.
Kl. 14:00
Samkoman sett og kynnt,
þulur er Anton Nikulásson.
Ávörp:
A: Fulltrúi ríkisstjórnarinn-
ar, Ólafur Jóhannesson
utanríkisráðherra, í fjar-
veru sjávarútvegsráö-
herra.
B: Fulltrúi útgerðarmanna
Ólafur Biörnsson út-
gerðarmaður frá Kefla-
vík.
C: Fulltrúi sjómanna, Björn
Þorfinnsson skipstjóri,
formaður Skipstjórafé-
lagsins Öldunnar.
D: Garðar Þorsteinsson rit-
ari Sjómannadagsráðs
heiörar aldraða sjómenn
með heiðursmerki Sjó-
mannadagsins.
Skemmtiatriði dagsms
Kl. 15:00
Kappsigling á seglbátum.
Unglingar í æskulýðsklúbb-
um Reykjavíkur og ná-
grannasveitafélaganna
ásamt félögum úr Siglinga-
sambandi íslands keppa.
Kappróður fer fram á
Nauthólsvík. Margar sveitir
keppa.
Björgunar- og stakkasund.
Hinn vinsæli koddaslagur
fer fram milli atriöa.
Snarfaramenn sýna listir
sínar á skemmti- og sjórall-
bátum.
Merki Sjómannadagsins og
Sjómannadagsblaðið,
ásamt veitingum veröa til
sölu á hátíðarsvæðinu í
Nauthólsvík.
Strætisvagnaferöir veröa
frá Lækjargötu og Hlemm-
torgi frá kl. 13:00 og verða á
15 mínútna fresti.
Þeir sem koma á eigin
bílum er sérstaklega bent á
aö koma tímanlega til að
foröast umferöaröngþveiti.
Hringakstur er um Naut-
hólsvík og yfir Öskjuhlíðina.
Sjómannahóf verður að
Hótel Sögu og hefst með
boröhaldi kl. 19:30.
Hrafnistuheimilið í Hafnarfirði
Sýning og sala á handa-
vinnu vistfötks frá kl.
14.30—17.00. Á sama tíma
er kaffisala og rennur allur
ágóöi í skemmti- og feröa-
sjóö vistmanna heimilisins.
Sölubörn athugið
Há sölulaun og auk þess
aðgöngumiði að kvik-
mvndasýningu í Laugarás-
Sé'S«te,ao„ Sjó-
mannadagsblaðsins eru í
Blaðsölunni Austurstræti
18, Kaffivagninum Granda-
garði, Sjóbúðinni Granda-
garði, Neskjöri.
Sjómannahóf að Hótel Sögu:
Miðasala fer fram á laugar- 17:00 til 19:00 — Borð hjá
dag 31/05 aö Hótel Sögu kl. yfirþjóni á sama tíma.