Morgunblaðið - 08.07.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLI 1980
3
Rætt um breytt fyrirkomulag sjúkraflutninga í Reykjavik:
Unnið að slökkvistaríi að Sogavegi 28 en eldur var laus í kjallara
og lagði reyk um allt húsið. Ljósm. Július.
Töluverðar skemmd-
ir af völdum reyks
SLÖKKVILIÐ Reykjavikur var
um klukkan hálf fimm á laug-
ardag kallað að húsinu Soga-
vegi 28. Mikiil reykur og hiti
var í húsinu. þegar að var
komið, að sogn varðstjóra hjá
slökkviliðinu. en ekki mikill
eldur. Við athugun kom i ljós að
eldur var laus í geymsluher-
bergi i kjallara en húsið er tvær
hæðir og kjallari. Lagði reyk-
inn um allt hús og urðu tölu-
verðar skemmdir á húsinu og
aðallega af völdum reyks.
Greiðlega gekk að slökkva
eldinn en reykkafarar fóru inn í
húsið.
Heimilisfólk var heima,
þegar eldurinn kom upp. Ókunn-
ugt var í gær um eldsupptök og
vinnur Rannsóknarlögregla
ríkisins að rannsókn máisins. Á
brunastað fundu lögreglumenn
meðal annars úðabrúsa en ekki
var í gær vitað hvaða efni kann
að hafa verið á honum. Er talið
hugsanlegt að eldsupptök megi
rekja til brúsans.
Sjúkrabíll staðsettur
við Borgarspítalann?
HILLARY, forseti írlands, kom hingað til lands í
gærmorgun í einkaerindum. Davíð Scheving Thorsteins-
son, aðalkonsúll írlands á íslandi. tók á móti forsetanum.
en með honum voru kona hans og vinafólk. Forsetinn mun
dvelja hér á landi í vikutíma að sögn Davíðs. Ljósmyndari
Mbl. Július tók þessa mynd af forsetanum við komuna í
gærmorgun.
SJÚKRAFLUTNINGANEFND
Reykjavíkur hefur nú til umfjöll-
unar tillögur slökkviliðsstjóra
um breytt rekstrarfyrirkomulag
sjúkraflutninga. Meginhugmynd-
in cr sú að keyptur verði nýr
neyðarbíll, stærri og búinn fleiri
tækjum en fyrri neyðarbfll, en
síðan eru þrjár hugmyndir um
notkun hans.
Rúnar Bjarnason slökkviliðs-
stjóri sagði í samtali við Mbl. að
tillögur hans byggðust á hug-
myndum lækna og erlendum fyrir-
myndum. Væri ein hugmyndin sú
að hafa lækni tiltækan á slökkvi-
stöðinni, er færi með útköll, önnur
hugmynd að neyðarbíllinn yrði
staðsettur á slysadeild og með
honum vakt frá slökkviliðinu, en
kostnaður við báða möguleikana
er svipaður, kringum 65 m. kr. á
ári. Þriðja hugmyndin er að
sjúkrabíll og læknir komi á slys-
stað hvor frá sinni bækistöð eða
vinnustað. Rúnar Bjarnason sagði
Kærði 2 menn
fyrir nauðgun
Úrskurðaðir í
gæsluvarðhald
og geðrannsókn
TUTTUGU og tveggja ára gömul
stúlka kærði aðfaranótt sunnu-
dags tvo menn fyrir nauðgun í
húsi i Reykjavik þá um nóttina.
Rannsóknarlögregla rikisins
handtók mennina tvo og voru
þeir á sunnudagskvöld úrskurð-
aðir i gæsluvarðhald og til að
sæta geðrannsókn.
Hefur annar mannanna játað að
hafa komið fram vilja sínum við
stúlkuna með valdi en hinn hefur
játað að hafa aðstoðað hann og
beitt valdi í þeim tilgangi.
Mennirnir eru báðir liðlega þrí-
tugir og átti atburðurinn sér stað í
heimahúsi í Reykjavík. Annar
maðurinn hafði fyrir nokkru aug-
lýst í svonefndum einkamálaaug-
lýsingum dagblaðanna að hann
óskaði eftir að komast í kynni við
unga konu á tilteknum aldri. Mun
stúlkan hafa svarað auglýsingunni
og var þetta fyrsti fundur þeirra.
að um skeið hefði nokkuð verið
rætt að endurskipuleggja neyðar-
þjónustuna og væri nú verið að
ræða ýmsar hugmyndir í sam-
bandi við það. Sagði hann að
sérstök hjartatilfelli væru kring-
um 50 á ári, en ef telja ætti öll
neyðartilfelli þar sem sérstakur
neyðarbíll kæmi að notum væru
þau kringum þúsund.
Þá sagði slökkviliðsstjóri að
verið væri að innrétta tvo nýja
sjúkrabíla, sem kæmu til með að
kosta kringum 12 milljónir hvor,
en neyðarbíll, sem hugsanlegt er
að keyptur verði t.d. á næsta ári
kostar um 25 m.kr. Rauða kross
deild Reykjavíkur rekur nú 4
sjúkrabíla og hefur undanfarin ár
verið stefnt að því að endurnýja
þá með því að kaupa einn á ári.
Verðlækkun á 79 árgerðum
TVÖ bilaumboð í Reykjavík aug-
lýstu sl. helgi mikla verðlækkun
á bílum og er hér um að ræða
1979 árgerðir. Nemur lækkunin
jafnvel nokkrum milljónum
króna. Véladeild SÍS auglýsir
Chevrolet Malibu og Vökull
Chrysler Le Baron.
Samkvæmt upplýsingum hjá
Véladeild SÍS er hér um að ræða
nokkra Chevrolet Malibu Classic
bíla, sem koma frá Þýskalandi og
fengust hingað til lands á mjög
lækkuðu verði. Eru þeir 8 cyl. og
sjálfskiptir með ýmsum aukabún-
aði og verð þeirra frá 8,3—9,9
m.kr. og mun það um milljón
lægra verð en svipaðir bílar, sem
áður hafa verið til sölu.
Chrysler umboðið Vökull býður
20 bíla af gerðinni Chrysler Le
Baron á kringum 10,5 m. kr. en
venjulegt verð þeirra hefur verið
allt að 15 milljónum króna. Kvað
sölustjóri umboðsins mikið spurt
um bílana, en svo virtist sem
kaupgeta fólks færi nú minnkandi
og sagði hann árið hafa verið
fremur erfitt hjá flestum bíl-
aumboðum nema þeim er flytja
inn japanska bíla, sem náð hefðu
meirihluta markaðarins hér.
150 bátar vilja á
síldveiðar i haust
85 fengu leyfi til þessara veiða í fyrrahaust
MUN FLEIRI hafa sótt um
leyfi til síldveiða í haust
heldur en voru á þessum
veiðum í fyrra. Sótt hefur
verið um leyfi til sjávarút-
vegsráðuneytisins fyrir um
150 skip og báta og inni í
þeirri tölu eru 45 af 52
loðnuveiðiskipum. í fyrra-
haust voru 85 skip á síld-
veiðum og veiddust þá um
44.5 þúsund tonn, en upp-
haflega lögðu fiskifræð-
ingar til að hámarksafli
yrði 35 þúsund tonn. Nú
hafa fiskifræðingar hins
vegar lagt til að leyft verði
að veiða 45 þúsund tonn.
Þeir leggja til, að rekneta-
veiðar verði leyíðar frá 25.
ágúst til 20. nóvember, en
hringnótaveiðar frá 20.
september til 20. nóvember.
í fyrra fengust um 19.1 þús-
und tonn í reknet, en 25.4
þúsund tonn í hringnót. Haustið
1978 var mikið um smásíld og
millisíld á miðunum og algengt
að afla væri sleppt af þeim
sökum. Haustið 1979 var afla
hins vegar mjög sjaldan sleppt
og kom þar tvennt til. í fyrsta
lagi var mun minna af smásíld
og millisíld á miðunum en árið á
undan og í annan stað gátu
sjómenn bætt sér upp með
auknum veiðum ef afli fór í lága
verðflokka. Hringnótaaflinn
fékkst frá Alviðruhömrum að
Hvalnesi, en reknetaaflinn á
mun stærra svæði.
Langmest veiddist í fyrra af 5
ára síld úr árganginum frá 1974
eða um 16 þúsund tonn, en í
aflanum var einnig mikið af 4 og
8 ára síldum. í riti Hafrann-
sóknastofnunar um ástand
nytjastofna og aflahorfur 1980
segir að allt bendi til að árgang-
arnir frá 1975 og 1974 séu
sterkir og af svipaðri stærð og
meðalárgangar á góðæristíma-
bilinu 1953-1963. Gert er ráð
fyrir að um 60% síldaraflans í
haust verði úr þessum árgöng-
um. Árgangarnir frá 1972 og
1973 eru taldir lélegir, en ár-
gangurinn frá 1971 var hins
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
hefur skipað 9 menn í stjórn
Húsnæðisstofnunar ríkisins
og jafnmarga varamenn.
Aðalmenn eru: Þráinn Valdi-
marsson framkvæmdastjóri,
Gunnar Helgason forstjóri, Guð-
mundur Gunnarsson verkfræðing-
ur, Ólafur Jónsson framkvæmda-
stjóri, Jóhann Petersen skrifstofu-
stjóri, Jón H. Guðmundsson skóla-
stjóri, Gunnar S. Björnsson
byggingameistari, Björn Þór-
hallsson formaður Landssam-
bands ísl. verslunarmanna og Jón
Helgason formaður Verkalýðsfé-
lagsins Einingar á Akureyri.
Varamenn eru: Hákon Hákon-
arson vélvirki, Ólafur Jensson
framkvæmdastjóri, Grímur Run-
ólfsson framkvæmdastjóri, Sig-
urður Magnússon rafvélavirki,
vegar talinn mjög sterkur þó svo
að nú sé búið að höggva stór
skörð í hann. Gert er ráð fyrir
að árgangurinn frá 1976 sé
lélegur, en enn þá er ekki vitað
með vissu um styrkleika ár-
gangsins frá 1977.
Hrygningarstofn sumargots-
síldar 1979 er áætlaður um 200
þúsund tonn.
Salome Þorkelsdóttir alþingis-
maður, Gunnar Gissursson tækni-
fræðingur, Óli Þ. Guðbjartsson
bæjarfulltrúi, Grétar Þorsteins-
son formaður Trésmiðafélags
Reykjavíkur og Jón Agnar Egg-
ertsson formaður Verkalýðsfélags
Borgarness.
Tveir síðasttöldu aðal- og vara-
menn eru skipaðir af félagsmála-
ráðherra samkvæmt tilnefningu
Alþýðusambands íslands, en hinir
kjörnir af sameinuðu Alþingi.
Félagsmálaráðherra hefur skip-
að Óla Jónsson, framkvæmda-
stjóra, formann og Þráin Valdi-
marsson, framkvæmdastjóra,
varaformann stjórnar Húsnæðis-
stofnunar ríkisins.
Skipun stjórnar Húsnæðisstofn-
unar ríkisins gildir frá 4. júlí 1980
til fyrsta þings að afloknum al-
mennum alþingiskosningum.
Skipað í stjórn
Húsnæðisstofn-
unar ríkisins