Morgunblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980 23 IJósm. sor Gunnar Blondal skorar tiunda mark KA í lciknum mcA þrumuskoti. KA tók Austra í kennslustund Þeir 470 áhorfendur sem borg- uðu sig inn á leik KA og Austra i 2. deild á Akureyri á sunnudag- inn fengu svo sannarlega eitt- hvað fyrir peningana sína. Það er skemmst frá þvi að segja, að KA sigraði i leiknum með 11 mörkum gegn 1, eftir að hafa leitt 2:0 i leikhléi. Eins og tolurnar gefa til kynna voru yfirburðir KA alger- ir og hefði sigurinn hæglega getað orðið stærri, t.d. misnotaði Gunnar Gislason vitaspyrnu i síðari hálfleik. Lítum nú á gang leiksins. Fyrsta mark leiksins kom á 15. mínútu. Elmar Geirsson skoraði þá utan úr teig eftir að hafa leikið á markvörðinn. Segja má að KA hafði haldið uppi stöðugri pressu allan fyrri hálfleikinn, en engu að síður skoruðu þeir aðeins 2 mörk. Seinna markið kom á 43. mínútu, er Gunnar Gíslason skoraði með góðu skoti utan úr teig. Einni mínútu síðar fékk Austri sitt eina tækifæri í fyrri hálfleik. Steinar Tómasson renndi sér þá í gegnum KA-vörnina, lék skemmtilega á Aðalstein í markinu en skoti hans var bjargað á línu. Aðeins voru liðnar 5 mínútur af seinni hálfleik er Gunnar Gíslason hafði skorað sitt annað mark og 3. mark KA. Hann skallaði í netið af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Elmari. Á 58. mínútu skoruðu Austramenn öllum á óvart. Bjarni Kristjánsson skoraði þá með skalla eftir að þvaga hafði mynd- ast í markteig KA, 3:1. Á 60. mín. skoraði Gunnar Gíslason enn einu sinni fyrir KA. Var markið keim- líkt 3. markinu, Elmar gaf fyrir og Gunnar skallaði í netið af stuttu færi. Aðeins einni mín. síðar skoraði Gunnar Blöndal 5. markið með þrumuskoti utan úr teig, knöttur- inn söng í netinu. Strax í næstu sókn skoraði Gunnar Blöndal aft- ur, nú með skalla eftir fyrirgjöf Elmars, staðan orðin 6:1. Á 70. mín. skoraði svo Óskar Ingimund- Kristinn skoraði þrennu SKAGAMENN unnu á laugar- daginn góðan sigur á UBK á Akrancsi og léku um Icið sinn besta leik á heimavelli á þessu sumri. Lokatölur leiksins urðu 3—1 fyrir ÍA, eftir að staðan í hálflcik hafði verið 1—0 fyrir ÍA. Leikir Skagamanna hafa verið sveiflukcnndir það sem af er sumri , en tveir síðustu leikir liðsins í deildarkeppninni hafa lofað góðu. Það cr líka eins gott að liðið standi sig í deildarkcppn- inni, þvi það er fallið út úr bikarkeppninni. Kristinn Björns- son var sannarlega hetja Skaga- manna í þessum leik. Ilann hcfur ekki sýnt sínar bestu hliðar í háa herrans tíð, en gegn UBK var hann mcð öllu óstöðvandi. Hann skoraði öll mörk ÍA og var óheppinn að skora ckki fleiri. Fyrri hálfleikuF var fremur daufur og Skagamenn voru þá áberandi sterkari aðilinn. Blikarn- ir léku án Ingólfs Ingólfssonar, Helga Bentssonar og Hákons Gunnarssonar og náðu fyrir yikið afar sjaldan að ógna marki ÍA í fyrri hálfleik. Liðið lék þó betur um hríð í síðari hálfleik. Kristinn Björnsson komst í dauðafæri strax á 3. mínútu leiksins, Krist- ján Olgeirsson sendi þá laglega sendingu á kollinn á Kristni, sem hitti ekki knöttinn. Nokkru síðar varði Guðmundur Blikamarkvörð- ur naumlega skot Júlíusar Ing- ólfssonar og síðan laglegan skalla Sigþórs. Öðru sinni fór fram óskaplegur darraðardans í mark- teig Blikanna, en bjargað var á IA — UBK 3:1 síðustu stundu. Fyrsta markið kom á 35. mínútu. Kristján Olgeirsson tók þá aukaspyrnu frá vinstri. Hann sendi stutta send- ingu út á Árna Sveinsson og þrumuskot Árna skaust í netið af fótum Kristihs. Síðari hálfleikur var mörgum gæðaflokkum betri en sá fyrri. Blikarnir, með Sigurð Grétarsson í fararbroddi sóttu án afláts framan af síðari hálfleik og slapp þá mark ÍA nokkrum sinnum ótrúlega. T. d. var skoti Gísla Sigurðssonar bjargað af marklínu og öðru sinni varði Bjarni mark- vörður svo naumlega skoti Þórs Hreiðarssonar, að nokkrir Blik- anna voru þegar byrjaðir að fagna marki. Kristinn skoraði annað mark ÍA á 59. mínútu og var þá skorað gegn gangi leiksins. Krist- inn fékk laglega stungusendingu fram völlinn, komst einn í gegn og skoraði með góðu skoti, 2—0. Þegar hér var komið sögu, tóku Skagamenn öll völd á vellinum og bókstaflega óðu í dauðafærum. Jón Gunnlaugsson átti þrumu- skalla í stöng og annan naumlega framhjá, Kristján Olgeirsson komst einn í gegn en brenndi af, Sigþór hitti ekki knöttinn í góðu færi og þannig mætti halda áfram. Það kom því eins og skrattinn úr sauðarleggnum þegar Blikarnir komust skyndilega á blað á 77. mínútu leiksins. Sigurð- ur Grétarsson komst þá skyndi- lega á auðan sjó við mark ÍA og skoraði örugglega. Tveimur mín- útum síðar innsiglaði Kristinn hins vegar sigur ÍA. Þá kom fyrirgjöf frá vinstri og Kristinn skallaði að marki. Björguðu Blik- arnir af marklínu, en Kritsinn fékk knöttinn aftur og skoraði þá örugglega með hörkuskoti. Krist- inn hefði hæglega getað skorað mun fleiri mörk, því 3 dauðafæri nýtti hann ekki. Skagamenn léku á köflum mjög vel að þessu sinni. Mest bar að sjálfsögðu á Kidda Björns, en margir aðrir máttu einnig vel við una. T. d. léku bæði Júlíus Ing- ólfsson og Kristján Olgeirsson mjög vel. Árni Sveinsson átti góða spretti og Sigurður Halldórsson var drífandi kraftur í liðinu og öskraði ótæpilega á félaga sína er honum þótti þeir vera of linir. Blikarnir voru með daufara móti að þessu sinni, enda vantaði marga af fastamönnum liðsins. Sigurður Grétarsson bar af, en hann er sérlega leikinn og hættu- legur framherji. Ólafur Björnsson er einnig mikið efni, en í heild geta Blikarnir miklu meira. I STUTTU MÁLI: ÍSLANDSMÓTIÐ í 1. deild, Akra- nesvöllur. ÍA—UBK 3—1 (1—0). MÖRK ÍA: Kristinn Björnsson (33., 59. og 77. mínútum). MARK UBK: Sigurður Grétarsson (75. mín.). ÁMINNINGAR: Engin. ÁHORFENDUR: 960. — gg. arson sjöunda markið af stuttu færi, eftir að Jóhann Jakobsson hafði átt gott skot á markið. Einni mínútu síðar skoraði Gunnar Blöndal enn með skalla eftir fyrirgjöf Elmars, staðan orðin 8:1. Stuttu síðar braust Gunnar af harðfylgi inn í vítateig Austra og var felldur, og dæmdi dómarinn umsvifalaust vítaspyrnu. Mark- vörðurinn gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði spyrnu Gunn- ars Gíslasonar. Á 75. mín. skoraði Jóhann Jakobsson með þrumuskoti eftir að hafa einleikið í gegnum vörn- ina, þrem mín. síðar skorar Gunn- ar Blöndal sitt fjórða mark og tíunda mark KA af stuttu færi, eftir að Elmar hafði enn einu sinni splundrað Austravörninni. Síðasta mark leiksins skoraði svo Elmar sjálfur. Hann braust upp hægri kantinn og inn í teiginn, og skoraði af öryggi í hornið nær með föstu skoti, og innsiglaði þar með stórsigur KA. Eins og sjá má af þessari upptalningu hér að framan, var það Elmar Geirsson sem var maðurinn á bak við flest mörk KA. Hann skoraði 2 mörk sjálfur og átti eigi færri en 5 sendingar sem gáfu mörk. Þrátt fyrir að Austri lé.ki varnarleik, gátu KA- mennirnir nánast farið inn í gegnum vörnina hvenær sem var, en enginn gerði það þó eins oft og Elmar, sem bókstaflega tætti Einkunnagjöf LIÐ lA: Bjarni Sigurðsson 6 Guðjón Þórðarson 6 Árni Sveinsson 7 Sigurður Halldórsson 7 Jón Gunnlaugsson 6 Jón Áskelsson 4 Kristján Olgeirsson 7 Sigurður Lárusson 5 Július Ingólfsson 7 Kristinn Björnsson 8 Sigþór Ómarsson 6 Markaregn á Isafirði LIÐ UBK: Guðmundur Ásgeirsson Valdemar Valdemarsson Helgi Ilelgason Bencdikt Guðmundsson Einar Þórhallsson Vignir Baldursson Þór Hreiðarsson Gisli Sigurðsson Sigurjón Kristjánsson ólafur Björnsson Sigurður Grétarsson Gunnlaugur Hclgason (vm) 4 Dómari: Guðmundur Sigur- björnsson 7 ÍBÍ OG Ármann skildu jöfn, 4—4, i 2. deild íslandsmótsins i knattspyrnu, eftir að staðan i hálfleik hafði verið 2—1 fyrir Ármann. Ármann komst í 2—0 með mörkum Odds Hermanssonar á 3. mínútu og vítaspyrnumarki Þrá- ins Ásmundssonar á 30. mínútu. Rétt fyrir hlé tókst Halldóri Ólafssyni að laga stöðuna fyrir ísafjörð. Heimaliðið byrjaði síðari hálf- leikinn með hamagangi og látum og eftir átta mínútur var staðan orðin 4—2 fyrir ÍBÍ, með mörkum Haraldar Leifssonar, Haraldar Stefánssonar og Andrésar Krist- jánssonar. Ármenningar voru ekki af baki dottnir, Þráinn skoraði enn úr víti nokkru síðar og rétt fyrir leikslok skoraði Egill Stein- dórsson jöfnunarmarkið. Fylkir hefur skorað 11 mörk í 3 leikjum LIÐ Fylkis sigraði Völsung, írá Húsavík 2—0, er liðin mættust á Laugardalsvellinum á laugar- dag. Lið Völsunga var allan tímann bctri aðilinn í leiknum og sigraði verðskuldað. Mörk þeirra skoruðu Kristinn Guðmundsson og Hilmar Sighvatsson, bæði voru mörkin skoruð i síðari hálfleiknum. Lið Fylkis verður greinilcga i toppbaráttunni i 2. dcild. Liðið cr i mikilli framför og hefur skorað 11 mörk í siðustu þremur leikum og sigrað auð- veldlega i þeim öllum. — þr. Staðaní 2. deild Staðan í 2. deild er nú þessi eftir leiki helgarinnar. Fylkir—Völsungur 2—0 KA —Austri 11 — 1 Þór sigraði Hauka ÞÓR frá Akureyri sigraði Hauka 3—1. á Kaplakrikavelli á laugar- dag. Leikur liðanna var allan timann jafn. Nói Björnsson skor- aði cina mark Þórs í fyrri hálf- leiknum. Sigurður Aðalsteinsson jafnaði fyrir Hauka á 60. minútu síðari hálfleiksins. Þórsarar áttu svo siðasta orðið i leiknum og skoruðu tvö mörk bæði voru laglega skoruð. Það fyrra gerði Oddur Óskarsson og hið síðari Óskar Gunnarsson. Þór er nú í efsta sæti í 2. deild ásamt KA með 11 stig i 7 leikjum. — þr. hana í sig hvað eftir annað og Haukar —Þór 1 -3 virtust Austramenn lítið reyna til ísafj, — Ármann 4 -4 að loka fyrir leka vörnina. Auk KA 7 5 1 1 23-5 11 Elmars, bar mest á Gunnari Þór 7 5 1 1 15-5 11 Blöndal og Gunnari Gíslasyni, og Fylkir 7 4 1 2 14-4 9 skoruðu þeir samtals 7 mörk í ísafj. 7 3 3 1 18-15 9 leiknum. I liði Austra stóð ekki Haukar 7 3 2 2 14-15 7 steinn yfir steini í þessum leik. Völsungur 7 3 1 3 9-9 7 Þróttur.N. 6 2 1 3 8-12 5 Leikmenn liðsins virtust oft á Ármann 7 1 2 4 10-17 4 tíðum ekki vera með í leiknum, og Selfoss 6 1 1 4 6-14 3 ef þeir leika ekki betur en þeir Austri 7 0 1 6 7-28 1 Efling skoraði 5 gerðu í þessum leik bíður þeirra ekkert annað en fall í þriðju deild. Dómari var Björn Björnsson. — sor Knattspyrna 4 leikir voru á dagskrá í Norðurlandsriðlum 3. deildar i knattspyrnu á laugardaginn. 2 leikir voru i D-riðli; HSÞ sigraði Magna 2:1 með mörkum Jónasar Þórs Hallgrímssonar og Árna Bóassonar en Hringur Hrcinsson svaraði fyrir Magna. Þá urðu þau óvæntu úrslit. að Lciftur frá ólafsfirði sigraði KS 2:1 og fór leikurinn fram á Siglufirði. Guð- mundur Garðarsson skoraði bæði mörk Leifturs en Jakob.Kárason skoraði fyrir KS. I E-riðli voru einnig leiknir 2 leikir. Efling sigraði USAH 5:3 og Tindastóll vann Reyni 2:0. Mörk Eflingar skoruðu Þórarinn Illuga- son (3) og Guðmundur Jónsson (2), en Hafþór Gylfason (2) og Guðjón Rúnarsson (1) skoruðu mörk USAH. Björn Sverrisson skoraði bæði mörk Tindastóls gegn Reyni. Við látum fylgja hér með úrslit í leik Leifturs og Árroðans sem leikinn var fyrir skömmu en hafði áður verið frestað. Leikið var á Ólafsfirði og sigraði Árroðinn 2:0. Hafberg Svansson og Baldvin Þór Harðarson skorðuðu mörk Árroð- ans. — sor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.