Morgunblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 15
hasla sér völl um víða veröld. Þetta eru hlutafélög, en meirihluti hlutabréfa er í eigu einnar og sömu fjölskyldunnar. Petrogal-olíuhreinsunarstöðin. Ég skal viður- kenna að það var með eilitlum beyg í brjósti, að ég kvaddi þar dyra ásamt Mariu Idalenu frá Fundo. Olíuhreinsunarstöðvar eru nú. ekki beinlínis á mínu sérsviði, en undan þessu varð ekki vikizt, enda höfum við átt nokkur viðskipti við Petrogal. Keyptum af þeim töluvert magn af gasolíu og bensíni í fyrra og hitteðfyrra, sem þeir töldu, að hefði munað nokkuð um til að jafna viðskipta- hallann milli landanna. Þegar rætt var síðan um frekari kaup kom í ljós að þeir treystu sér ekki til að bjóða olíuvörur á lægra verði en Rotterdamverði og því varð ekki af viðskiptum um sinn. Hins vegar hafa þeir látið í ljós áhuga á að hreinsa olíu fyrir okkur, ef mál skipast svo, en allt er það óráðið að svo stöddu. Rodolfo Almeida forstjóri Petrogal í Matosinhos, fyrir utan Oporto, tók á móti mér ásamt með aðstoðarforstjórum sínum tveimur. Almeida for- stjóri var ekki tiltakanlega mjúkur á manninn til að byrja með, ég held honum hafi þótt hálfgerð tímasóun að sitja þarna og þylja upplýsingar, sem áhöld voru um hvort áheyrandinn botnaði í. Lyktir urðu reyndar þær að við urðum hinir mestu mátar. Maria Idalena sagði mér á eftir, að á tímabili hefði hún verið að hugsa um að skríða undir borðið vegna framkomu forstjórans. Svo hefði hann hvíslað að henni í kveðjuskyni: „Island er kannski kalt land, en það mætti segja mér þar byggi heitt fólk.“ En áfram með smérið. Petrogal er samsteypa fjögurra olíufélaga sem var skellt saman í eitt 1976, en öll höfðu félögin verið þjóðnýtt árið áður. Petrogal er algerlega í eigu Portúgala sjálfra. Ekki þarf verulega þekkingu til að átta sig á því að hlutverk Petrogal er framleiðsla og rannsókn á olíu og gasolíu, hreinsun á hráolíu, flutningur og dreifing og sala á bensínvörum og annað sem tengist olíuiðnaði. Með yfirstjórn Petrogal fara fimm menn sem eru skipaðir af iðnaðarráðherra til þriggja ára og þeir hafa síðan aðskiljanlega aðstoðarmenn og sérfræðinga sér til ráðuneytis. Almeida forstjóri hélt vitanlega mjög á lofti gæðum framleiðslunnar í stöðinni. Hann tók fram að sér þætti það hið versta mál, að ekki hefði samizt við íslendinga um meiri kaup í bili, en auðvitað mætti taka málið upp hvenær sem væri. í stöðinni vinna 908 manns. Allar aðstæður fyrir starfsfólk virðast mjög til fyrirmyndar, ókeypis lyf og læknishjálp, óskert laun greidd í veikindum, verzlun er á svæðinu, þar sem vöruverð er mun lægra en í venjulegum búðum. Þá er þarna sundlaug og leikfimisalir og hver maður fær 30 daga sumarfri sem er með því lengsta sem þekkist. Almeida forstjóri sagði að það væri ekki síður markmiðið að gera starfsfólkið ánægt og m.a. væru starfsmenn styrktir og örvaðir til endurmenntunar og sérhæf- ingar hver í sinni grein. Olíuhreinsunarstöðin tekur yfir 29 hektara svæði. Önnur stöð er í Sines og sú þriðja við Lissabon og samtals vinna hjá Petrogal 6.800 manns. Olían héðan er leidd um 2ja km leið frá stöðinni til hafnarinnar í Leixoes. Framleiðslan þarna hófst 1969 og var í byrjun 2 milljónir tonna af hráolíu á ári, en eftir stækkun og endurbætur mun hún nú vera um 7,5 milljónir tonna árlega. Eftir að við höfðum lokið viðræðum okkar, sem undir lokin voru orðnar ákaflega hjartanlegar, spurði Almeida lengi og marga um ísland og síðan fórum við í ökuferð um svæðið með aðstoðarforstjór- unum hans tveimur, að loknum virktavænum kveðjum. Og til þess að kóróna nú kæti sjálfrar mín og lesenda bregð ég mér síðan á skrifstofu hjólbarða- verksmiðjunnar Mabor og hitti þar fyrir þýðan forstjóra hennar Augusto Pacheco de Andrade. Hann segir mér að fyrirtækið hafi byrjað viðskipti við ísland þótt í smáum stíl sé. Fyrirtækið er búið að vera til síðan árið 1940, en það var í reynd ekki fyrr en eftir stríð, sem framleiðslan komst í gang fyrir alvöru og 1970 var fyrst selt til útlanda, það urðu Skotar sem voru fyrstu viðskiptavinirnir, en síðan komu fleiri á eftir. Verksmiðjubyggingin sjálf er í Lousado, 25 km frá Oporto, og þar eru framleidd um 4,8 þús. dekk á degi hverjum. Verksmiðjan hefur útibú í Cimbra og Lissabon. Varla þarf að taka fram að búnar eru til allar hugsanlegar gerðir af dekkjum, á smábíla jafnt sem tuttugu hjóla trukka, sumar- sem vetrardekk, mynstur eftir hvers manns smekk. Hjá Mabor er sem víðar hjá hinum stærri P fyrirtækjum í Portúgal sérlega vel hlúð að högum starfsfólks og ýtt undir félags- ög tómstundastarf. De Andrade forstjóri sagði mér að hinkra við, þegar ég ætlaði að kveðja; þeir ætluðu að færa mér smágjöf. Ég hugsaði með mér hvort það mundi nú fara svo að ég sæti uppi með hjólbarða til að fara með heim til Islands og leizt ekki meira en svo á blikuna. En það fór þó á annan veg. Ljómandi dægilegur öskubakki — úr dekki að vísu, alls konar smágripir litblýantar og kveikjari svo að ég dró andann léttar og við kvöddumst með virktum. Að loknum slíkum degi er eiginlega ekki um nema tvennt að ræða, annað hvort að skríða lémagna í kojuna eða fara á diskótek. Og það gerði ég. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1980 15 Frá Cotcsi. Frá Quintas & Quintas. sardinhas com limáo RAMIREZ IX sardines portugaises aux citron RAMIREZ... vx 1(lí i ||| „V1 ingredíentes sardtnhas. límfto, 6ieo vagetat Sýnishorn af portúgölskum sardínum. portuguese saraines in tomato sauce RAMIREZ bran ingredients: sardines. tomato oil, satt «ET wm I Qujp'ofeöRTUðSu. sardinas portuguesas em tomate RAMIREZ brano Niðursuðuverksmiðja Ramirez.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.