Morgunblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1980
35
Nr. 5
Nr. 6
Nr. 7
Nr. 8
Hreinræktunin
i landi???
Þegar árið 1976 var ráðuneytinu
bent á, að sæðingar í landi ættu að
geta hafizt fyrir árslok 1979, eins
og líka varð, og þá þyrfti að vera
til aðstaða til hreinræktunar í
landi sem ríkið á að sjá um skv.
lögum. Farið var fram á nokkurt
framlag í þessu skyni árið 1978 við
undirbúning fjárlaga, og bent hef-
ur verið á þörfina við undirbúning
fjárlaga á hverju ári síðan. Þó
voru fjárlög 1980 afgreidd án þess,
að nokkurt fjármagn væri veitt til
þessa. Kerfið hefur áður reynzt
dýrt í þessu ræktunarmáli. Ódýr-
ast væri, að hreinræktunin færi
fram á nokkrurn stöðum, þar sem
búskapur er hvort eð er rekinn, en
aðstaða í fjósi þarf að vera góð.
Það liðu 30 ár frá því, að
höfundur þessa þáttar var fyrst
beðinn að semja áætlun um inn-
flutning holdagripa til landsins,
unz fyrstu blendingarnir fæddust.
Hvað skyldi það „stríð“ verða
langt að koma í framkvæmd
ákvæðum iaga um hreinræktun-
ina í landi?
NIÍIA OMIC fiEIKNIVÉUN Efi HELMINGI
FVfilfiFERBAfiMINNI OC TÖLUVEKT ÓBÍfiARl
Nú hefur ný reiknivél bæst í Omic fjöl-
skylduna, - Omic 410 PD. Þessi nýja
Omic vél er lítil og lipur. Hún gengur
fyrir rafhlöðum jafnt sem rafmagni.
Omic 410 PD skilar útkomu bæði á
strimli og með Ijósatölum. Hún vinnur
að öllu leiti verk stærri véla bæði fljótt
og vel.
Við byggjum upp
framtíð fyrirtækis þins.
Þegar Omic reiknivélarnar komu fyrst
á markaðinn voru þær sérhannaðar
samkvæmt óskum viðskiptavina Skrif-
stofuvéla h.f. Á örfáum vikum urðu
Omic 312 PD, Omic 210 PD og Omic 210
P, sannkallaðar metsöluvélar.
Komið og kynnist kostum Omic.
Verðið og gæðin tala sínu máli.
4?'<&>%
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
+ = 4- &
Hverfisgötu 33
Simi 20560