Morgunblaðið - 08.07.1980, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 08.07.1980, Qupperneq 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980 MfO MOBöJK/ KAFf/NU § ÍSíÚ Ásí er... ... að vera henni styrkur á örlajía- stund. TM Reg U S Pat Ott aH rtghts reaerved • 1978 Los Angetes Times Syndicate COSPER Útivist á Hornströndum í Hlnðuvík. Krækliniíavcisla undirbúin. Ljósxn.: Emil t»ór. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Hér kemur eitt aí þessum skemmtileKU spilum. þar sem eina vunin viróist vera að búa til sla«i á óeðlileKan hátt — eða með sérstökum klókindum. Gjafari austur, allir á hættu. Nnrður S. K II. D983 T. 6532 L. 7542 Suður S. A542 H. Á54 T. ÁK8 L. ÁK8 Suður er sagnhafi í 3 gröndum en austur og vestur hafa alltaf sagt pass. Vestur spilar út spaða- sexi og hvernig ætlar þú að fá 9 slagi? Ur því, að bara 7 slagir sjást beint þarf að búa til tvo. Ekki þýðir að reyna láglitina vegna innkomuleysis blinds og hjarta- kóngur ásamt tveim smáspilum í vestur dugir ekki heldur því hon- um dugir að láta lágt þegar spilað er að drottningunni. En samt er möguleikinn í hjartalitnum. Eftir fyrsta slaginn má spila hjartaáttu eða níu frá blindum í von um, að spil vesturs og austurs séu þessu lík. Vestur Austur S. G9763 S. D108 H. G1076 H. K2 T. D9 T. G1074 L. G6 L. D1093 Væntanléga lætur austur lágt en þá er hleypt og vestur fær slaginn. Eflaust spilar hann aftur spaða, sem er tekinn og þegar hjartakóngurinn kemur í ásinn verður auðvelt að nýta svíningar- aðstöðuna, sem búið er að búa til í hjartanu. Sama verður þó austur láti kónginn þegar hjartaáttunni er spilað frá blindum. Þá fær vestur að eiga næsta slag á hjartatíu eða gosa og svíningarstaðan þar með aftur fyrir hendi. Og úr því legan er þessi verða 9 slagir staðreynd. UM næstu helgi fer Útivist sína árlegu Hornstrandaferð. lagt verður af stað á fimmtudags- kvöld og eða föstudagsmorgun og flogið til ísafjarðar. Þaðan verð- ur svo farið með Fagranesinu til Hornstranda. Gist verður í tjöldum og verður aðalbækistöðin í Hornvík. Þaðan liggja svo leiðir til allra átta: Á Hornbjarg, Hælavíkurbjarg, Rekavík, Hlöðuvík, Kjaransvík, Hælavík, Látravík og Langakamb, svo að nokkuð sé nefnt. Siglt verður inn fyrir Hornbjarg þegar farið verður til baka. Bjarni Einarsson og „Daglegt már Heiðraði Velvakandi. Ég sit mig aldrei úr færi að hlusta á Daglegt mál Bjarna Einarssonar lektors. Það er með eindæmum hvað hann er bein- skeyttur og laus við alla mælgi, enda hentar hún ekki þessum fimmmínútna þáttum þótt fyrir- rennarar hans hafi stundum syndgað upp á náðina að þessu leyti. Dæmi hans um vandbeygð orð, svo sem faðir, bróðir, móðir og dóttir, .eru skýr og festast í minni. Þá verða ambögur í þýðing- um eftirminnilegar til varnaðar, ekki síst hráar þýðingar á erlend- um orðtökum. Bjarni umyrðir ruglingslegar langlokur, lítt skilj- anlegar, á tæra íslensku — venju- lega með miklu færri orðum — svo hugsunin verður hverju barni ótvíræð. Af sjálfu sér leiðir að gagnrýni Bjarna Einarssonar bcinist fyrst og fremst gegn fjölmiðlum enda áhrif þeirra geipileg um fram- vindu íslensks máls. Segja mætti mér að allir kennarar, frá fyrstu bekkjum barnaskóla til loka há- skólanáms, kæmust þar ekki í hálfkvisti. Anna Bjarnason, blaðamaður, tekur upp hanskann fyrir starfs- bræður sína, þykir handrita- og prófarkalesarar komast ómaklega óséðir fyrir horn. Ég býst við að Bjarna Einarsyni fari líkt og mér að gera lítinn greinarmun á þess- um hópum, telji þá blaðamenn þótt heiti þeirra kunni að skipta máli á launalistum. Höfundur er ekki mergurinn málsins heldur texti. Annars hef ég fyrir satt að vandaðir blaðamenn renni augum yfir prófarkir greina sinna. Ég vil eindregið hvetja alla fjölmiðlamenn til að hlusta á þætti Bjarna Einarssonar. Þeir eru öllum lærdómsríkir og rætn- islausir með öllu. J.Á.G. • Góð útvarps- dagskrá „Ágæti Velvakandi. Mig langar til eða réttara sagt okkur hjónin að koma smá orðsendingu til útvarpsins okkar í Reykjavík. Kvöldlestur úr bók Birgis Kjarans hefur glatt okkur mikið þessi þrjú skipti sem hann hefur verið. Áuðnu stundir eru virkilega falleg bók og skemmti- leg. Það fer einkar vel á því að hafa slíkan lestur á þessum tíma árs. Við fjörubál I Ilornvik. in.t.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.