Morgunblaðið - 30.08.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
Leyfi veitt til að bora
eina holu enn við Kröflu
Áætlaður kostnaður 500 milljónir króna, en sparnaður allt
að 1 milljarður, segir yfirverkfræðingur Kröfluvirkjunar
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hefur
veitt leyfi til að ein hola til
viðbótar verði boruð fyrir
Kröfiuvirkjun í haust. Verður
það 15. borholan á svæðinu og sú
þriðja, sem boruð verður þar í ár.
„Ég tel þarna vera um mark-
verða ákvörðun að ræða og ég
vona að hún sé rétt.“ sagði Einar
Tjörvi Elíasson. yfirverkfræðing-
ur Kröfluvirkjunar, í samtali við
Morsunblaðið í gær. Sagðist Ein-
ar vonast til að Kröfluvirkjun
myndi í vetur framleiða 10—11
mejíawött inn á raforkukerfið.
Áætlað er að byrja borun 15.
holunnar eftir um 10 daga og
tekur borunin væntanlega hálfan
annan mánuð ef allt gengur sam-
kvæmt áætlun. Kostnaður við
borun 2 þúsund metra holu er á að
gizka rúmar 500 milljónir króna
án tengingar. Einar Tjörvi sagði,
að meðalhola væri fljót að borga
sig, en hún sparaði um einn
milljarð króna á 4—5 mestu álags-
mánuðunum, þegar grípa hefur
þurft til raforkuframleiðslu með
dieselvélum.
Þessa dagana er unnið að ýms-
um mælingum á holu 14 áður en
henni verður hleypt í blástur, en
fóðrun holunnar er lokið. Borinn
Jötunn verður tekinn niður af
holunni um helgina, en í næstu
viku á hann að hreinsa betur holu
7, en það verk tókst ekki sem
skyldi fyrr í sumar. Síðan er
fyrirhugað að byrja borun holu 15
eftir rúma viku, en sú hola verður
í austurhluta gamla svæðisins.
Þann hluta svæðisins, þar sem
holur 12 og 13 eru fyrir, telja
sérfræðingar beztan hluta þess
hvað varðar gufumagn og sam-
setningu lofttegunda. Hola 14 er
hins vegar á nýju borsvæði í
suðurhlíðunum.
Viðrædur við
stjómvöld í Luxem-
burg um f lugmálin
Bílvelta í Kjósinni
TALSVERT var um umferðaróhöpp á Reykjavíkur-
svæðinu í gær og þá einkum síðdegis. I nokkrum
tilfellanna urðu slys á fólki. Klukkan 16.36 í gær var
lögreglunni í Hafnarfirði tilkynnt um bílveltu á
Vesturlandsvegi, skammt frá Kiðafelli í Kjós. Farþegi
í bifreiðinni var fluttur á Slysadeild og bifreiðin, sem
er af Lada-gerð, er talsvert skemmd. <Ljó«m. júiíus)
„ÞAÐ HAFA sem kunnugt er farið fram heilmiklar viðræður við aðila
í Luxemburg og meðal annars hefur samgönguráðherra átt viðræður
við stjórnvöld og ráðamenn þar. Meiningin nú er að halda þessum
viðræðum áfram og freista þess að finna þá fleti, sem gætu komið
málinu í höfn,“ sagði Tómas Árnason, sem nú fer með embætti
samgönguráðherra í fjarveru Steingríms Hermannssonar, í samtali
við Mbl. í gær. Mbl. spurði Tómas, hvort þessar viðræður væru
hugsaðar án aðildar Flugleiða. „bað skal ég ekkert fullyrða um,“
sagði Tómas. „En þessar viðræður verða alla vega á vegum
stjórnvalda.“
Forsætisráðuneytið sendi í gær út eftirfarandi frétt:
Forsætisráðherra átti í morgun, möguleika á áframhaldandi sam-
Verkefnakönnun Flugleiða erlendis:
ásamt viðskiptaráðherra og full-
trúum frá samgönguráðuneyti og
félagsmálaráðuneyti, fund með
fulltrúum allra stéttarfélaga
starfsmanna Flugleiða. Á fundin-
um skýrðu fulltrúar stéttarfélag-
anna sjónarmið sín varðandi upp-
sagnir starfsfólks Flugleiða og
rekstrarvanda fyrirtækisins. I
framhaldi af þessum fundi var
ákveðið af hálfu stjórnvalda:
1) Að óska eftir skriflegri grein-
argerð um niðurstöður viðræðna
Flugleiða við aðila í Luxemburg og
hugmyndir félagsins um framhald
slíkra viðræðna,
2) að félagsmálaráðuneytið kanni
næstu daga lagalegt gildi upp-
sagna starfsfólks Flugleiða hvað
varðar samningsbundinn upp-
sagnarfrest launþega og einnig
hvort uppsagnir þessar samrýmist
ákvæðum laga og reglugerðar um
tilkynningaskyldu fyrirtækja til
vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytis um samdrátt í rekstri,
3) að stjórnvöld beiti sér fyrir
viðræðum við yfirvöld í Luxem-
burg svo fljótt sem kostur er um
vinnu landanna á sviði flugmála.“
Tómas Árnason sagði varðandi
fyrsta liðinn, að þau mál lægju
ekki „nægilega ljóst fyrir", og því
væri talið nauðsynlegt að fá um
þau tæmandi greinargerð til að
unnt væri að meta stöðuna. Könn-
un félagsmálaráðuneytisins sagði
Tómas setta af stað samkvæmt
óskum fulltrúa stéttarfélaganna.
Forsætisráðherra
til Finnlands
GUNNAR Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, verður viðstaddur 80 ára
afmæli Kekkonens Finnlandsfor-
seta næstkomandi miðvikudag.
Mun hann flytja árnaðaróskir frá
íslendingum og taka þátt í hátíða-
höldum í tilefni afmælisins. Með
forsætisráðherra í förinni verða
Guðmundur Benediktsson, ráðu-
neytisstjóri og Ingvi S. Ingvars-
son, sendiherra. Gunnar Thor-
oddsen heldur utan á morgun,
sunnudag og er væntanlegur til
landsins föstudaginn 5. septemb-
Útlit fyrir 40 ný störf flug-
manna og flugvélstjóra
í ÞEIRRI könnun sem nú fer fram á vegum Flugleiða til þess að afla
nýrra starfa fyrir flugmenn og flugvélstjóra félagsins er útlit fyrir
um það bil 40 ný störf að flugi í leiguflugi erlendis. Gangi saman í
þeim samningum sem nú eru í deiglunni kann svo að fara að allar
DC-8 vélar Flugleiða fari í verkefni erlendis tii lengri tíma, en ein
Boeing 727-200 þota annist allt millilandaflug Flugleiða fyrir
tslendinga.
Könnun Flugleiða á vinnu fyrir
þá flugmenn, sem ekki verður þörf
fyrir eftir boðaðan samdrátt,
beinist nú fyrst og fremst að
mögulegum verkefnum fyrir Air
India og hins vegar leiguflugi á
vegum Air Bahama milli Evrópu
og Bahama-eyja. Nú þegar hefur
verið tryggt starf fyrir 12—15
flugmenn og flugvélstjóra í árs-
verkefni fyrir áttu í Senegal eins
og sagt var frá í Mbl. í gær. Air
Bahama hefur um skeið annazt
leiguflug fyrir Air India milli
Englands og Indlands og eru 5—6
áhafnir Air Bahama í því verkefni
eða 15—18 menn en þar af eru nú
4 íslenzkir flugmenn og væntan-
legir eru tveir íslenzkir flugvél-
stjórar í það starf. Þá er ráðgert
að fjöldi íslenzkra flugmanna og
flugvélstjóra aukist smám saman
í því verkefni. Að sögn Leifs
Magnússonar, framkvæmdastjóra
flugrekstrarsviðs Flugleiða, eru
nú möguleikar á því að leigja aðra
DC-8 til Air India og þá væntan-
lega fyrir 15—18 íslenzka flugliða.
Skýrist það á næstu vikum. Þá er
einnig útlit fyrir að Air Bahama
taki að sér leiguflug milli Evrópu
og Bahama-eyja, en óvíst er hvort
áætlunarflugi Air Bahama verður
haldið áfram. Taki Air Bahama að
sér leiguflug er ráðgert að áhafnir
flugmanna og flugvélstjóra verði
bæði frá Flugleiðum og Air Ba
hama, þ.e.a.s. flugmenn og flug-
vélstjórar, en ekki er útlit fyrir
nein slík ný störf fyrir flugfreyjur.
Semjist um þessi verkefni sem
að framan greinir, en líkur á því
eru talsverðar, þá verður allur
DC-8-floti Flugleiða leigður í
„Höfum samið jöfnum höndum
fyrir Arnarflug og Flugleiðir“
„VIÐ reynum nú al fullum
krafti að afla nýrra verkefna
svo ekki þurfi að koma til þess
að 40 flugliðar hætti störfum
hjá okkur í haust, en meirihlut-
inn er fólk, sem var ráðið til
sumarverkefna í vor, en vill
halda störfum sinum áfram,“
sagði Magnús Gunnarsson for-
stjóri Arnarflugs i samtali við
Mbl. i gær.
Magnús kvað dylgjur hafa
gengið um það að undanförnu að
áhrifamenn í Flugleiðum vildu
kaupa viðbótarhlutabréf í Arnar-
flugi, en slíkt ætti ekki við rök að
styðjast né sá málflutningur
„ýmissa aðila", sagði Magnús,
„að Arnarflug hafi tekið upp flug
frá Flugleiðum. Miðað við flug-
tíma hefur Arnarflug flogið
minna á Evrópuleiðum sl. tvö ár
en t.d. árið 1978 þegar félagið
stóð eitt sér og Flugleiðir hafa
ekki síður tekið flug frá Arnar-
flugi á þessum tímum. Við höfum
- segir Magnús
Gunnarsson
forstjóri
Arnarflugs
t.d. eytt miklu starfi í öflun
leiguflugs erlendis og þar semj-
um við jöfnum höndum fyrir
Flugleiðir. Flugleiðamenn nutu
t.d. góðs af verkefnum í Guate-
mala þótt við hefðum alveg eins
getað leigt okkar 720-vél þangað,
en hún beið ónotuð á meðan. Ég
varð ekki var við að FÍA mót-
mælti vandræðum okkar vegna
þessa. Þá áttum við aðild að
samningum um pílagrímaflug
Flugleiða í haust og samningar
um leigu á DC-8-þotu Flugleiða
til Senegal var í gegn um okkar
sambönd. Það kom til greina að
leigja okkar vél þangað, en DC-8
var hagkvæmari fyrir þá og því
otuðum við okkar vél ekki fram.
Okkur sárna því yfirlýsingar
ýmissa flugmanna úti í bæ þar
sem sagt er að velgengni Arnar-
flugs eigi rætur að rekja til þess
að molar hafi fallið af borði
Flugleiða. Arnarflug og Flugleið-
ir hafa samstarf í þessum efnum
og það hefur verið gott og með
samkomulagi. Það kemur okkur
hins vegar spánskt fyrir sjónir
þegar bryddað er upp á því að
vandi Flugleiða verði leystur með
því að skera niður starf Arnar-
flugs. Við höfum stuðlað að því
að tryggja flugmönnum Flug-
leiða störf á næstunni, en hins
vegar höfum við ekki náð að
tryggja atvinnuöryggi okkar
starfsfólks í vetur með öflun
verkefna ennþá og við sjáum ekki
fram á neinar endurráðningar á
fyrrnefndum 40 flugliðum.
Það er ljóst að íslenzk flugmál
eiga við mikinn vanda að glíma
um þessar mundir og ég held að
það sé sameiginlegt álit okkar
Arnarflugsmanna að nú sé tími
til þess að standa saman og hefja
þá vinnu sem þarf til að byggja
upp á ný íslenzk flugmál í stað
þess að standa í karpi og ala á
tortryggni í íslenzkum flugmál-
um.“
verkefni fvrir erlenda aðila og þá
getur sú staða komið upp á næstu
mánuðum að ein Boeing 727-200
muni sjá um allt millilandaflug
Flugleiða til og frá íslandi. I
samtalinu við Mbl. í gær sagði
Leifur Magnússon að miðað við
þetta þyrfti að meta hvað væri
hagkvæmast, t.d. varðandi flug til
Bandaríkjanna, því áætluð sæta-
þörf milli íslands og New York
væri ein átta á viku, en hins vegar
kæmi til greina að fara fleiri
ferðir á minni vél. Kvað Leifur
þessi mál öll í skoðun og yrði tekin
endanleg afstaða í málinu í næsta
mánuði.
Flugleiðir:
Kunnir yfir-
menn hætta
störfum
MEÐAL þeirra starfsmanna
Flugleiða á skrifstofum fé-
lagsins, sem hættu störfum í
gær, eru nokkrir sem hafa
gegnt stjórnunarstörfum í
allt að liðlega þrjá áratugi í
flugþjónustunni. Má þar
nefna Ásbjörn Magnússon,
sem hefur verið sölustjóri
Flugleiða, og íslaugu Aðal
steinsdóttur sem hefur verið
yfirmaður farskrár. Þá hættu
störfum í gær þeir Gunnar
Ililmarsson, deildarstjóri
Ferðaþjónustunnar, Flemm-
ing Holm, yfirmaður innra
eftirlits Flugleiða, og Geir R.
Andersen fulltrúi í viðskipta-
deild.
Prestskosning-
ar í Seljasókn
PRESTSKOSNINGAR fara fram í
Seljasókn í Breiðholti á morgun og
verður kosið í Ölduselsskóla. Kjör-
fundur stendur frá klukkan 10 til
klukkan 23. í framboði eru séra
Ulfar Guðmundsson, prestur á
Ólafsfirði, og séra Valgeir Ást-
ráðsson, prestur á Eyrarbakka.
2540 manns eru á kjörskrá og
verða atkvæði talin á Biskups-
stofu fimmtudaginn 4. september.