Morgunblaðið - 30.08.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
3
„Getum verið full-
komlega ánægðir“
Þegar Mbl. ræddi við
Hans G. Andersen. for-
mann íslenzku sendinefnd-
arinnar í lok funda Ilaf-
réttarráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Genf í
gærkvöldi sagði hann. að
allt það sem við íslend-
ingar hefðum lagt megin-
áherzlu á, hafi liíað þessa
síðustu eldraun af og að
við getum verið fullkom-
lega ánægðir nú. þegar nýr
texti að hafréttarsáttmála
er lagður fram. „Nýi text-
inn var lagður fram sem
uppkast að alþjóðasamn-
ingi um hafréttarmál. Eins
og áður er miðað við, að
landhelgin sé 12 milur.
sbr. 3. grein uppkastsins.
efnahagslögsaga 200 míl-
ur, sbr. 25. grein, réttur
ríkis yfir landgrunninu
nái út fyrir 200 mílur, svo
langt sem það er talið
framlenging af landinu.
sbr. 76. grein. Ýmsar regl-
ur er að finna varðandi
fiskveiðar í greinum 61 til
68 og 116 til 120. Réttindi
landluktra og landfræði-
lega afskiptra ríkja eru í
69. til 70. grein, en „ís-
lenzka greinin“, það er að
segja 71. grein stendur
óhögguð þannig að þessi
riki mundu engin réttindi
öðlast innan okkar efna-
hagslögsögu, þótt þau
fengju slík réttindi í efna-
hagslögsögu annarra.
- segir Hans G.
Andersen um stöðu
mála í lok 9. fundar
3. Hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu
þjóðanna
Viðamiklar og flóknar reglur
eru um hafsbotnssvæðið og er
þær að finna í 11. kafla þessa
nýja uppkasts."
Hvaða breytingar telur þú
mikilvægastar?
„Aðalatriðið er, að þau mál,
sem við höfum lagt mesta
áherzlu á, hafa lifað af þessa
eldraun og verður ekki breytt úr
þessu. Efnahagslögsagan og
landgrunnsréttindin halda velli.
í landgrunnsgreinina hefur verið
bætt ákvæðum, sem ættu að
tryggja okkur réttindi á Reykja-
neshryggnum. Við getum verið
fullkomlega ánægðir með stöðu
mála. Sannleikurinn er sá, að
mestallur tíminn núna fór í að
ræða alþjóðahafsbotnssvæðið og
þar náðist geysimikill árangur,
því að þessi mál voru í sjálf-
heldu, aðallega að því er varðar
skipan alþjóða hafsbotnsráðsins
og atkvæðamagn. En þegar það
mál loksins leystist, þá leystust
ýmis önnur mál í leiðinni. I þetta
mál hefur verið lögð alveg
óskapleg vinna og maraþonfund-
ir haldnir oft í mörgum hópum
samtímis."
Ertu ekki orðinn dauðþreytt-
ur á þessum ósköpum?
„Spurningar á þennan veg eru
nú oft lagðar fyrir fulltrúa hér
og ræddar manna á meðal í
öllum sendinefndum. Og auðvit-
að verða menn langþreyttir en
endurnærast þegar árangur
næst. Þess vegna er ánægjan
efst í huga nú.
Næsti fundur, sem verður
lokafundur Hafréttarráðstefn-
unnar, fyrir utan undirskriftar-
fund í Caracas, verður að öllum
líkindum í New York 9. marz til
17. eða 24. apríl 1981. Það er ekki
endanlega útséð um það og urðu
um það nokkuð snarpar umræð-
ur hér í Genf í dag. Þróunarríkin
leggja ríka áherzlu á að fundur-
inn fari fram í New York en á
sama tíma eru fyrirhugaðar
svokallaðar norður-suður-við-
ræður í New York í Allsherjar-
þinginu. Nokkuð ljóst er, að
báðir þessir fundir rúmast ekki í
New York og annar hvor verður
að víkja. Dr. Amerashinghe,
forseti Hafréttarráðstefnunnar,
sagði í umræðum í dag, að ef
fundur Hafréttarráðstefnunnar
eigi að fara fram í New York, þá
verði fulltrúar þróunarríkja að
sjá til þess, að norður-suður-
viðræðurnar fari ekki fram á
sama tíma. En undirskriftar-
fundur hafréttarsáttmálans fer
fram síðar á næsta ári í Cara-
cas.“
FRANSKI kafbáturinn Morse kom í heimsókn til Reykjavíkur í
ga'rmorgun og verður hér til þriðjudags. Báturinn verður almcnningi
til sýnis dag hvern frá klukkan 14 — 17. (Uósm. Kristinn).
Greiðslur til lækna
fyrir lyf og sérfræði-
aðstoð hækka um 10%
GREIÐSLUR sjúkratryggðra til samlagslækna fyrir lyf og sérfræði-
læknishjáip, rannsókn og röntgen,
með 1. september.
Samkvæmt hinni nýju reglugerð
skulu samlagsmenn í sjúkrasamlög-
um greiða samlagslækni eða lækni,
er í hans stað kemur, krónur 700
fyrir hvert viðtal á lækningastofu
og krónur 1400 fyrir hverja vitjun
til sjúklings. Fyrir hækkun voru
þessar upphæðir 600 og 1200 krón-
ur.
Fyrir hverja afgreiðslu sam-
kvæmt Lyfjaverðskrá I og af inn-
lendum sérlyfjum greiðir samlags-
maður fyrstu 1100 krónurnar og
fyrir hverja afgreiðslu samkvæmt
Lyfjaverðskrá II greiðir hann
fyrstu 3000 krónurnar. Áður
greiddi samlagsmaður 1000 og 2700
krónur. Elli- og örorkulífeyrisþegar
skulu greiða hálft gjald eins og
áður, þ.e. 550 og 1500 krónur-fyrir *
hverja afgreiðslu.
hækkar um sem nemur 10% frá og
Fyrir hverja komu til sérfræð-
ings eða fyrir rannsóknir á rann-
sóknastofu eða röntgengreiningu á
röntgendeild greiðir samlagsmaður
kr. 3000, áður 2700 krónur. Elli- og
örorkulífeyrisþegar skulu greiða
hálft gjald, þ.e. krónur 1500 fyrir
hvert skipti.
Tvær sölur
í Englandi
TVEIR skuttogarar lönduðu afla
sinum i Englandi i gær. Aðalvik
KE seldi 101,4 tonn í Grimsby
fyrir 68 milljónir, meðalverð 670
krónur á kíló. Gullver NS seldi
122.9 tonn í Hull fyrir 68.1 milljón.
meðalverð 558 krónur.
oNV