Morgunblaðið - 30.08.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
5
Kaffisala í Kaldárseli
STARFRÆKSLA sumarbúða í
Kaldárseli fyrir ofan Hafnarfjörð
hefur í mörg ár verið liður í
sumarstarfi KFUM og K í Hafn-
arfirði. í sumar dvöldu á vegum
félaganna um 240 börn, telpur og
drengir, í 6 dvalarflokkum á tím-
abilinu 28. maí til 27. ágúst. Á
hverju hausti ljúka Kaldæingar
sumarstarfinu með samkomu og
kaffisölu í Kaldárseli. Á morgun,
sunnudaginn 31. ágúst, verður
samkoma í Kaldárseli er hefst kl.
14.30 e.h. Á samkomunni talar
cand. theol. Benedikt Arnkelsson,
er hefur verið starfsmaður í
drengjaflokkunum um árabil. Þeg-
ar að lokinni samkomu verður
borið fram kaffi og kökur og gefst
þá samkomugestum og öðrum,
sem heimsækja Kaldársel, kostur
á að kaupa kaffi og styrkja
sumarbúðirnar í Kaldárseli. Kaffi
verður selt frá kl. 15.30 til kl.
23.30.
Nikulás Sigfússon
í Nýja galleríinu
NIKULÁS Sigfússon opnar í dag
málverkasýningu í Nýja galleríinu
að Laugavegi 12.
Þetta er þriðja einkasýning Niku-
lásar. Á sýningunni eru 30 vatnslita-
myndir málaðar síðastliðin tvö ár.
Sýningin verður opin kl. 14—22
daglega til 8. sept. Aðgangur er
ókeypis.
Messað í Hafnarfjarðarkirkju
á sunnudag eftir lagfæringar
í SUMAR hefur Hafnarfjarðar-
kirkja verið máluð að innan-
verðu og ýmsu þar breytt.
Fyrsta guðsþjónustan eftir þær
breytingar verður haldin næst-
komandi sunnudag og hefst kl.
14.
Kvenfélag kirkjunnar stóð
fyrir fjársöfnun í söfnuðinum í
maímánuöi síðastliðnum, sem
tókst mjög vel og eru safnaðar-
fólki þakkaðar góðar undirtektir.
Verður það fé, sem þá safnaðist
notað til að kosta meginhluta
framkvæmdanna. Breytingar eru
þær helstar að altarið hefur verið
fært í upprunalegt horf — enn er
þó unnið að lagfæringu altaris-
töflunnar, nýtt teppi er á gólfum
og sæti á kirkjubekkjum eru nú
bólstruð og klædd.
Þó svo að fyrri litum sé haldið
að mestu í kirkjunni hefur þess
verið gætt að fá fram betra
samræmi þeirra á milli en áður
var.
Kannist þið ekki
við stílinn?
Mikið úrval
af fallegum
furuhúsgögn-
um á sýning-
unni
Heimilið
og í verzlun
okkar.
JSÍdsícó
Símar: 86080 og 86244
ar
Húsgögn'
Ármúli 8
'"hi in»«°
TÍZKUSÝNING
á sýningunni Heimilið
I dag og á morgun kl.
3.15, 6.15 og 9.15.
sýnum viö hausttízkuna á
sviöinu í Laugardalshöllinni
Austurstræti 22. Siml fré skiptiboröi 85055
^ TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS 1
<§
augavegi 66 Simi fra skiptiborði 65055