Morgunblaðið - 30.08.1980, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
Átökin í frönskum höfnum,
sem fiskimenn hafa iokað til að
leggja áherslu á kröfur sínar
um bætt kjör, hafa með róttæk-
ari hætti en flest annað beint
athygli manna að erfiðleikum
Efnahagsbandalags Evrópu við
mótun sameiginlegrar fiskveiði-
stefnu fyrir bandalagsríkin niu.
Vandræði bandalagsins í þessu
efni eru ekki ný af nálinni. í
mörg ár hefur verið unnið að
þvi að móta sameiginlega fisk-
veiðistefnu þess. Má í því sam-
bandi rifja það upp, að í maí
1977 afhentu þeir Einar Ág-
ústsson, utanrikisráðherra, og
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, Finn Gundelach
fulltrúa stjórnarnefndar banda-
lagsins drög að fiskverndar-
samningi milli íslands og Efna-
hagsbandalagsins. Umræður
um þessi drög hafa aldrei kom-
ist á neinn rekspöl vegna þess,
að Efnahagshandalagið hefur
ekki verið með neina samræmda
stefnu i þessum málum.
í sumar fór nefnd íslenskra
embættismanna undir forystu
Hannesar Hafsteins, skrifstofu-
stjóra í utanríkisráðuneytinu, til
fundar við embættismenn Efna-
hagsbandalagsins í Briissel.
Nauðsynlegt var fyrir stjórnvöld
hér að taka upp þráðinn við
bandalagið vegna þess að eftir
útfærslu fiskveiðilögsögunnar
Þessi niðurstaða viðræðna ís-
lensku embættismannanna við
fulltrúa Efnahagsbandalagsins
frá því í sumar er ekki til
frambúðar. Hún gildir aðeins
fyrir árið 1980. Fyrir dyrum
standa frekari viðræður af Is-
lands hálfu við Efnahagsbanda-
lagið. Undir lok september munu
íslenskir fiskifræðingar fara til
fundar í Brússel og ræða þar um
fræðileg atriði við starfsbræður
sína, sem starfa í höfuðstöðvum
bandalagsins og ef til vill taka
fiskifræðingar frá einstökum að-
ildarlöndum bandalagsins einnig
þátt í þeim viðræðum. Síðan er
gert ráð fyrir því, að í fyrri hluta
októbermánaðar fari fram fyrsta
lota í viðræðum íslands og Efna-
hagsbandalagsins um framtíð-
arskipan á fiskveiðisamskiptun-
um. Stjórnarnefnd bandalagsins
ákveður veiðikvóta fyrir hvert ár
í upphafi þess og mun því stefnt
inu fái skip bandalagsrikja rétt
til veiða á móti. Bandalagið vill
einnig að litið sé á samskipti
viðkomandi þjóðar við bandalag-
ið í heild, þannig að viðskipta-
fríðindi séu metin jafnt og önnur
fríðindi. íslendingar hafa fylgt
þeirri stefnu, að ekki skuli bland-
að saman fiskveiðihagsmunum
og viðskiptahagsmunum, þannig
að í þessu efni er um grundvall-
armun á afstöðu að ræða. Ljóst
er, að við erum ekki í stakk búnir
til að heimila veiðar erlendra
þjóða á þorski eða öðrum fiskteg-
undum, sem nú eru fullnýttar
hér við land. Undir þá skilgrein-
ingu fellur ekki kolmunni og
kann því að koma til álita að
heimila skipum frá Efnahags-
bandalagslöndum veiðar á þeim
fiski í stað réttinda til loðnu- og
rækjuveiða í grænlenskri lög-
sögu. Eins og málum er nú
háttað eru það aðeins þrjár
Hagsmunir
íslands og
fiskveiðistefna
Efnahagsbandalagsins
við austurströnd Grænlands í
200 sjómílur fyrir norðan 67.
gráðu féllu loðnumið íslenskra
fiskiskipa innan grænlensku
lögsögunnar, sem er hluti af
sameiginlegu hafsvæði Efna-
hagsbandalagsins. Niðurstaða
þessa embættismannafundar var
sú, að bandalagið mun á þessu
ári ekki koma í veg fyrir veiðar
íslenskra skipa innan græn-
lensku lögsögunnar leiti loðnan
þangað. Enn hefur ekki verið
skýrt frá efni reglugerðar á
vegum bandalagsins, sem heimil-
ar þessar veiðar Islendinga, svo
að ekki er endanlega vitað um
kvótann, sem úthlutað verður.
Standa vonir til þess, að hann
þrengi að engu leyti umsvif
veiðiskipanna frá því sem verið
hefur.
að því, að um næstu áramót verði
einhver niðurstaða fengin varð-
andi loðnuveiðar á árinu 1981. Af
íslands hálfu verður lögð áhersla
á að fá viðurkenningu bandalags-
ins á því, að Islendingar ráði
ákvörðun um heildaraflamagn
loðnu, en slík viðurkenning
fékkst frá Norðmönnum í Jan
Mayen-samkomulaginu frá því í
maí.
I öllum fiskveiðisamskiptum
sínum við ríki utan bandalagsins
leggur stjórnarnefndin áherslu á
gagnkvæmni, það er að í stað
veiðiréttinda á bandalagssvæð-
þjóðir, sem stunda loðnuveiðar á
norðurslóðum, íslendingar, Fær-
eyingar og Norðmenn. Aðrar,
þjóðir eins og til dæmis Danir,
ráða yfir fiskiskipum, sem auð-
veldlega gætu veitt loðnu. Ekki
er ólíklegt, að þessi skip vildu
sækja á Grænlandsmið. Hins
vegar gætu þau ekki með góðu
móti komið aflanum frá sér til
bræðslu nema honum yrði annað
hvort landað hér á landi eða um
borð í bræðsluskip á miðunum.
Mun hafa verið á það minnst, að
íslendingar heimiluðu skipum
frá Efnahagsbandalagslöndum
að landa afla í verksmiðjur hér
Ljósm. Mbl. Kmilía Íijorií Björnsdóttir
og kæmi slík aðstaða til álita,
þegar gagnkvæmni yrði metin.
Greinilegt er, að hér er um
flókin mál að ræða og þannig
verður að halda á málum, að
engum dyrum sé lokað, því að í
framtíðinni getum við áreiðan-
lega haft mikla hagsmuni af
góðum samskiptum við Efna-
hagsbandalagið, bæði varðandi
fisksölur og veiðar í lögsögu þess,
og má þar minna bæði á Norður-
sjávarsildina og botnfiskveiðar
við Austur-Grænland. Markvisst
er unnið að því að byggja upp
þorskstofninn við austurströnd
Grænlands með ströngum veiði-
takmörkunum, þannig mega í ár
ekki aðrir veiða þar þorsk en
Grænlendingar og er veiði þeirra
takmörkuð við 3000 lestir.
★
Samkvæmt ákvörðun æðstu
manna Efnahagsbandalagsland-
anna er nú stefnt að því, að 31.
desember næstkomandi liggi
fyrir sameiginleg fiskveiðistefna
þess. Slíkar lokadagsetningar
eru ekki nýjar af nálinni, svo að
engum kæmi sérstaklega á óvart,
þótt endanlegar ákvarðanir
drægjust fram yfir áramótin.
„Þetta er afleiðing af
því sem koma skal“
Skiljanlega setti það Jónas
Kristjánsson á Dagblaðinu. sið-
degisblaðafulltrúa rikisstjórn-
arinnar. i vanda, þegar Gunnar
Thoroddsen iýsti því yfir í
þýzku pressunni, að hann væri
forsætisráðherra í miðvinstri-
stjórn. Jónas hafði nefnilega
haldið. að Gunnar Thoroddsen
væri hægri maður eins og Indr-
iði G. Þorsteinsson, en þeir hafa
báðir haft i flimtingum að
stofna nýjan stjórnmálaflokk.
Jónas Kristjánsson hefur að
sjálfsögðu reynt að gera gott úr
þessu með því að sýna fram á,
að „miðvinstri“ í munni Gunn-
ars Thoroddsens þýddi sama og
„hægri“ hjá Indriða, sbr. leiðar-
ann „Út og suður, norður og
niður“, sem birtist í Dagblaðinu
hinn 22. ágúst sl„ en þar segir
m.a„ „Staðreyndin er, að hug-
tök eins og hægri og vinstri,
íhald. framsókn og kommún-
ismi hafa ekki hið minnsta gildi
í islenzkum stjórnmálum...“
Þetta minnir á góða dátann
Sveijk, þegar hann á leiðinni frá
Tábor til Budejovice (allir héldu
að hann væri liðhlaupi) gekk
beint í vestur í stað þess að fara
í suður í áttina til téðrar borgar,
þangað sem ferðinni var þó
heitið. Þá kvað hann við raust í
myrkri næturinnar:
lllt er að halda áttum hér,
austur og vestur jafngott er.
Hvort út eða suður einn ég fer,
upp eða niður — sama er mér.
The Blue Boy
Meðan Vilmundur Gylfason
var á uppleið urðu þau ummæli
hans fræg, að bláeygir menn
ættu ekki að hætta sér að
samningaborðinu með kommún-
istum og framsóknarmönnum.
— í helgarblaði Vísis 23. ágúst
segir Jón Ormur Halldórsson,
hægri hönd forsætisráðherra og
formaður efnahagsmálanefndar-
innar: „Nefndarmenn voru sam-
Hugleiðingar
vegna viðtals
við formann
efnahagsmála-
nefndar
mála um, að gengissig væri röng
leið og þess vegna er lagt til að
gengið verði sett fast, og gengis-
aðlögun á hálfs eða eins árs
fresti sé mun heppilegri."
Það er satt að segja ekki
undarlegt, þótt hagfræðilegur
ráðunautur skuli hafa verið ráð-
inn að forsætisráðuneytinu, eftir
að efnahagsnefndin skilaði áliti,
ef annað er jafngáfulegt hinum
tilvitnuðu orðum, (Vitaskuld er
heppilegast að ástæður séu
þannig, að gengið þurfi hvorki að
síga né falla, ef út í það er farið.)
Og raunar ekki skrýtið heldur,
þótt Steingrímur Hermannsson
hafi misst eitt og annað út úr sér
síðan, því eins og skín í gegnum
ummæli hans: Hvernig er hægt
að fara með blaður eins og þetta
inn á fund hjá fulltrúum útflutn-
ingsatvinnuveganna? Sennilega
vita allir óháskólagengnir menn,
að sjávarútvegurinn hefur hald-
ið okkur íslendingum uppi:
Stjórnarráðið, bankarnir, há-
skólinn og raunar kerfið allt
hangir á þeim „bláþræði", sem
sjávarútvegurinn er. Ef þessi
bláþráður slitnar, hrynur allt
annað líka eins og spilaborg. Svo
kemur nýútskrifaður maður í
stjórnmálafræði og hagsögu í
Bretlandi og segir við okkur:
„Þetta stöðuga gengissig sem
hér hefur verið um langt skeið,
hefur verið einn helzti verð-
bólguhvatinn."!!!
Það er rétt, að gengið hefur
ýmist sigið eða fallið um 25—
30% eða svo síðan í marz. Þetta
versnar með degi hverjum. Samt
sem áður hefur komið til stöðv-
unar hjá sumum frystihúsum og
önnur eru við það að stöðvast.
Og ástandið er enn verra í ullar-
og skinnaiðnaðinum, ef marka
má viðtal við Hjört Eiríksson,
forstjóra Iðnaðardeildar SÍS í
Morgunblaðinu fyrir skömmu.
Þetta stöðuga verðfall krón-
unnar er óhjákvæmilegt vegna
þess að innlendu kostnaðar-
hækkanirnar hafa orðið miklu
meiri en auknir tekjumöguleikar
erlendis. Bilið er brúað með því
að skera af krónunni. Þetta hélt
ég nú raunar að allir vissu, —
fulltíða menn á íslandi. Þetta er