Morgunblaðið - 30.08.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
15
Átökin vegna hugmyndanna um
hina nýju stefnu eru hörð en
margt knýr á um haldgóða lausn.
Þegar Bretar, Danir, Norðmenn
og Irar sóttu um aðild að banda-
laginu 1970, ákváðu upphaflegu
aðildarlöndin sex, að stofnskrá
bandalagsins krefðist frjáls að-
gangs skipa frá öllum banda-
lagslöndum að fiski á sameigin-
legu hafsvæði þeirra. Norðmenn
höfnuðu aðild að bandalaginu í
þjóðaratkvæðagreiðslu og réðust
úrslit hennar ekki síst af ótta
sjómanna við þessa ákvörðun um
frjálsar fiskveiðar. Með aðild
sinni samþykktu Bretar í reynd
þessa stefnu bandalagsins. Síðan
hefur togarafloti þeirra verið
rekinn af bestu fjarlægu miðum
sínum, svo sem við Island og
Noreg. í janúar 1977 lýsti Efna-
hagsþandalagið yfir 200 mílna
efnahagslögsögu sinni og stjórn-
arnefnd þess var falið að semja
um fiskveiðiréttindi fyrir skip
aðildarþjóðanna utan banda-
lagssvæðisins og utan-banda-
lagsskip innan EBE-lögsögunn-
ar. Þá lagði stjórnarnefndin
einnig fram tillögur um fisk-
vernd í EBE-lögsögunni og skipt
ingu afla þar milli bandalags-
þjóðanna. Þar með hófst inn-
byrðis rifrildi aðildarþjóðanna.
Bretar hafa verið hörðustu
andstæðingar hugmyndanna um
sameiginlega fiskveiðistefnu
Efnahagsbandaiagsins og segja
má, að í þrjú ár hafi þeir komið í
veg fyrir, að hún yrði mótuð.
Afstaða þeirra hefur breyst
nokkuð á þessu ári, og þegar
tekið var tillit til krafna bresku
ríkisstjórnarinnar við gerð sam-
eiginlegra fjárlaga Efnahags-
bandalagsins 30. maí síðastlið-
inn, fólst í því samkomulagi, að
Bretar samþykktu yfirlýsingu
um meginatriði fiskveiðistefnu,
sem nánar verður samið um nú í
haust. Peter Walker, sjávarút-
vegsráðherra Breta, hefur látið í
ljós þá skoðun, að Bretum væri
betur borgið með fiskveiðisam-
komulagi en án þess.
Eins og okkur íslendingum er
kunnugt um af átökum okkar við
breska fiskiðnaðinn hefur hann
mikil pólitísk áhrif í Bretlandi. 9
af 22 „fiskveiði-þingsætum" í
Bretlandi eru það, sem þar í
landi er kallað „marginal", en í
því felst að smávægilegur til-
flutningur á atkvæðafylgi ræður
úrslitum um, hvaða stjórnmála-
flokkur fær þingmann kjörinn í
kjördæmunum. í flestum þessara
kjördæma eru þingmennirnir úr
Ihaldsflokknum og Skoski þjóð-
ernissinnaflokkurinn fylgir fast
á hæla honum. Sem dæmi um hin
miklu pólitísku áhrif má nefna,
að ríkisstjórn Margaret Thatch-
ers, sem haldið hefur fast við það
meginsjónarmið, að atvinnuveg-
irnir verði að bjarga sér án
ríkisstyrks, ákvað fyrir skömmu
að veita fiskiðnaðinum 14 milljón
punda styrk úr ríkissjóði.
★
Breskir sjómenn eru vel skipu-
lagður þrýstihópur. Um það bil
20 manna hópur þeirra fylgir
ráðherrum til Efnahagsbanda-
lagsfunda um fiskveiðimál. Þeir
kenna bandalaginu um mörg
vandamál sín. Helsta krafa sjó-
mannanna er sú, að Bretar fái
stærsta hlutann af leyfilegum
hámarksafla í EBE-lögsögunni,
þar sem í breska hluta hennar
veiðist 60% af sameiginlegum
fiski. Telja þeir sanngjarnt, að
hlutdeild þeirra verði um 45% af
hámarksaflanum. Upphaflega
bauð stjórnarnefndin Bretum
sömu hlutdeild og þeir höfðu,
áður en miðin við Island og
annars staðar lokuðust, eða um
28%. Síðustu hugmyndir stjórn-
arnefndarinnar miðast við það,
að Bretar fái að veiða 31% af sex
mest veiddu fisktegundunum í
sameiginlegu lögsögunni.
Hér verða vandamál Efna-
hagsbandalagsins í fiskveiðimál-
um ekki rakin frekar. Þau verða
nánar á dagskrá á næstu mánuð-
um. Viðfangsefnin koma okkur
íslendingum ekki á óvart. Fjallað
verður um ákvörðun hámarks-
afla, skiptingu hans, einkalög-
sögu strandríkja, möskvastærð,
forréttindi sjómanna á heima-
miðum, framkvæmd fiskveiðieft-
irlits, óeðlilega samkeppnisað-
stöðu vegna niðurgreiðslna og
ríkisstyrkja og fjárgreiðslur til
að auðvelda útgerðarmönnum að
rífa gömul skip. Eins og upphaf-
legu Efnahagsbandalagsríkin
sömdu um fiskveiðafrelsi, áður
en þau samþykktu aðild fisk-
veiðiþjóða að bandalaginu, munu
aðildarlöndin níu nú telja mikil-
vægt að sameina afstöðu sína,
áður en Spánn gerist 10. aðild-
arríki bandalagsins, en Spán-
verjar eiga þriðja stærsta fiski-
skipaflota í heimi.
(Stuðnt við yíirlit The Economist)
Björn Bjarnason
oft kallað „gömlu íhaldsúrræð-
in“ og markmiðið er m.a. að
skera niður kaupmáttinn hjá
fólkinu. Gengissigið eða gengis-
fellingin kemur þess vegna í
kjölfarið á innlendu kostnaðar-
hækkununum. En hið villuráf-
andi hnoða, sem á undan veltur
og fylgir engri átt, er ríkis-
stjórnin sjálf og vondir ráðgjaf-
ar hennar.
Eftir á að hyggja og út af því
Hvort út eða suður einn ég íer,
upp eða niður — sama er
mér...
að gengissigið sé „einn helzti
verðbólguhvatinn": Eg man ekki
,hver voru tildrög þess, að kerl-
ingin sagði: Þetta er afleiðing af
því sem koma skal. — Nema hún
hafi numið stjórnmálasögu og
hagfræði í Bretlandi!
Það er nú svo
Jón Ormur Halldórsson lýkur
viðtalinu í Vísi með þessum
orðum:
„Ég tel að það sem kom í veg
fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn
gekk til samstarfs við núverandi
stjórnarliða hafi verið ágrein-
ingur um menn en ekki málefni.
Og með þessari afstöðu dæmi
meirihluti þingmanna flokksins
sig til áhrifaleysis í íslenzkum
stjórnmálum, að mínum dómi að
tilefnislausu."
Flokksráð Sjálfstæðisflokks-
ins hafnaði aðild að og stuðningi
við þessa ríkisstjórn, meira að
segja með þorra atkvæða. Það
eitt er ærið tilefni til þess, að ég
og aðrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, sem viljum virða þær
leikreglur sem við höfum sjálfir
sett, séum í stjórnarandstöðu.
Og svo er nú þetta um móral-
inn. Kjósendur stjórnmálaflokks
verða að geta treyst því, að
hrossakaup innan flokksins færi
ekki andstæðingum hans undir-
tökin að gjöf í stjórn landsins. _
Halldór Blöndal.
Mönnum áætluð laun án til
lits til afkomu fyrirtækja
Kærufrestur vegna skatta
víðast hvar að renna út
HIN NÝJU skattalög gera ráð
fyrir, að skattayfirvöld á hverj-
um stað geti áætlað mönnum í
sjálfstæðum atvinnurekstri
laun, sem séu sambærileg við
það, sem viðkomandi myndi
bera úr býtum, væri hann við
sambæriiega vinnu annars
staðar. Morgunblaðið hafði
samband við Bjarna Snæbjörn
Jónsson. hagfræðing Verzlun-
arráðs íslands. og spurði hann
nánar um þessar reglur og
hvernig þær kæmu út fyrir
einstaklinga.
„Að okkar mati eru þetta fyrst
og fremst viðmiðunarreglur sem
Ríkisskattstjóri setur og eru fyrst
og fremst til þess ætlaðar að vera
til viðmiðunar ef uppgefin laun
viðkomandi eru ekki í takt við
tímann. Um er að ræða nokkra
flokka, sem einstaklingar í sjálf-
stæðum atvinnurekstri geta lent í,
en þeir eru engan veginn fullnægj-
andi, því það er með ólíkindum, að
hægt sé að flokka alla þá, sem
sjálfstæðan atvinnurekstur
stunda á íslandi, í örfáa flokka. Þá
er vert að geta þess,að samkvæmt
okkar skilningi er skattayfirvöld-
um hinna einstöku umdæma alls
ekki ætlað að nota þessar viðmið-
unarreglur sem einhvers konar
algildisreglur," sagði Bjarni.
Þær raddir hafa heyrzt, að
einstaka skattayfirvöld og ein-
staklingar í sjálfstæðum atvinnu-
rekstri hafi tekið þessar reglur
sem stórasannleik. — Hefur þú
heyrt einhver dæmi þess, og ef svo
er, fer þá ekki hver að verða
síðastur að fá leiðréttingu á því?
„Því er ekki að neita, að við
höfum heyrt raddir um þetta og
fyrir einstaklinga, sem hafa lent í
því, er ekki annað að gera en
senda þegar í stað inn kæru til
viðkomandi skattstjóra, t.d. renn-
ur kærufrestur hér í Reykjavík út
annað kvöld, sunnudagskvöld, og
annars staðar á næstu dögum.
Viðkomandi einstaklingum er því
ráðlegast að senda inn bréf þar
sem þessi liður álagningarinnar er
kærður, en geta þess jafnframt, að
rökstuðningur verði sendur inn
síðar," sagði Bjarni Snæbjörn
ennfremur.
Morgunblaðið hafði samband
við nokkra endurskoðendur og
innti þá eftir því hvernig álagn-
ingin hefði komið út hjá þeirra
viðskiptavinum. Svör þeirra benda
til þess, að það sé upp og ofan
hvort þessum reglum sé beitt til
hlítar. Það er þó alveg ljóst, að í
nokkrum tilfellum eru mönnum
áætluð laun nákvæmlega eftir
viðmiðunarreglunum, og ekkert
tillit tekið til þess hver afkoma
viðkomandi fyrirtækis hafi verið á
sl. ári. Þá eru dæmi þess, að eldri
menn, sem minnkað hafa umsvif
sín verulega, hafi lent í því, að
þeim hafi verið ætluð mun hærri
laun, en þeir hefðu nokkurn mögu-
leika á að fá.
„Það verður fróðlegt að sjá
heildarútkomuna á álagningu ein-
staklinga í atvinnurekstri, því þá
kemur í ljós hvort ríki túlkar
reglurnar einungis til viðmiðunar,
eins og við gerum, eða hvort þarna
er á ferðinni enn ein aðferðin til
að ná inn meiri peningum í
ríkiskassann, og í því sambandi
má bæta við, að það er ekki
einungis að ríkið fái þá tekju-
skatta, sem menn hafa aldrei
unnið fyrir, heldur verður að
greiða til viðbótar ýmis launa-
tengd gjöld, eins og t.d. launaskatt
og fleira," sagði Bjarni Snæbjörn
Jónsson, hagfræðingur Verzlun-
arráðsins, að síðustu.
Kafbátur
til sýnis
FRANSKUR úthafskafbátur
„Le Morse“ kemur til Reykja-
víkur í dag og verður hann til
sýnis kl. 14—17 í dag og
sunnudag. Miðað er við að
smærri hópar fái leiðsögn um
skipið.
Glæsilegar ítalskar
eldhúsinnréttingar
Höfum opnaö sýningu á ítölskum eldhúsinnréttingum og allskonar
húsgögnum í verzlun okkar aö Skaftahlíð 24.
Opið í dag kl. 1—7
Komiö og skoðið glæsilega hönnun í húsgagnagerö.
Sýningin stendur yfir II
frá 23. ágúst — 7. september ' H
USGAGNA-
MIÐSTÖÐIN
SKAFTAHLÍÐ 24, SÍMI 31633.