Morgunblaðið - 30.08.1980, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
Pólskt herlið æfir í
Austur-Þýzkalandi
F'rankfurt am Oder. Húdapest. Honn. Hrivthton. Varsjá. 29. ávjúst. AP.
PÓLSKAR hersveitir komu í da>? til Austur-Þýzkalands til að taka
þátt í heræfinKum VarsjárbandalaRsríkja ok fóru fram hátíðlexar
móttökur skammt innan landamæra A-Þýzkalands. þar sem m.a. var
lýst yfir að æfinKarnar væru til marks um sameÍKÍnlegan vilja ríkja
VarsjárhandalaKsríkjanna til að viðhalda friði ok sósíalisma.
Jafnframt var tilkynnt í dag, að
lokið hefði í dag sameiginlegum
æfingum ungverskra og sovézkra
hersveita á ungverskri grundu, er
hófust sl. sunnudag. Hermt var að
æfingarnar hefðu tekizt „með
ágætum".
Brezku alþýðusamtökin til-
kynntu í dag, að ekki hefði verið
hætt við fjögurra daga „bróður-
lega heimsókn" sex verkalýðsleið-
toga til Póllands í næsta mánuði,
þrátt fyrir andstöðu hægri sinn-
aðra verkalýðsleiðtoga. Ferðin er
mikið hitamál í brezku alþýðu-
samtökunum í kjölfar verkfall-
anna í Póllandi, en í dag lagði
meirihluti miðnefndar samtak-
anna til, að ferðaáætlunum yrði
ekki breytt, en búast má við að
endanleg ákvörðun í málinu verði
tekin á ársþingi samtakanna í
170 Kúbumenn
hertóku flugvél
Lima. 29. áKÚst. AP.
TALSMAÐUR Branifí flug-
félagsins bandaríska skýrði
frá því í dag, að um 170
Kúbumenn er vildu komast
tii Bandarikjanna hefðu í
morgun tekið þotu félagsins
á sitt vald á flugvellinum í
Lima. og væru 11 farþegar
og þrír úr áhöfninni gisiar
Kúbufólksins.
Þrír Kúbumannanna særð-
ust er lögreglan í Perú skaut
að fólkinu er það streymdi út á
flugvélastæðið fyrir framan
flugstöðvarbygginguna meðan
þotan, sem millilenti í Lima á
leiðinni frá Rio de Janeiro til
Los Angeles, tók eldsneyti.
Flestar hafnir
aftur opnaðar
I’arís. 29. áifúst. AP.
UMFERÐ skipa um vel flestar
hafnir Frakklands var með
eðlilegum ha*tti í dag, og virðist
sem sjómenn hafi hætt aðgerð-
um sínum, eða laKt þær niður í
bili a.m.k., í þeirri von að
samningar takist um úrbætur
þeim til handa vegna hás olíu-
verðs og áa-tlaðs niðurskurðar í
frönskum sjávarútvegi.
Fyrirhugaðir voru tveir við-
ræðufundir sjómanna og fulltrúa
stjórnvalda í dag, og annar fund-
ur er ráðgerður næstkomandi
þriðjudag. Enginn árangur varð
hins vegar af sex klukkustunda
fundi sjómanna með útvegs-
mönnum í gær, og gætir óánægju
í röðum sjómanna af þeim sökum.
Enn efndu aðeins sjómenn í
Boulogne, Fecamp á Normandy
og Lorient og Concarneau á
Bretaníuskaga til aðgerða í dag
og lokuðu viðkomandi höfnum, en
annars staðar var hafnbanninu
aflétt í gærkvöldi.
næstu viku. Len Murray, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, sagði í
dag, að „meiriháttar" kúvendingar
yrðu að eiga sér stað í Póllandi til
að hætt verði við ferðina.
Yfirvöld í Póllandi lýstu því yfir
í dag, að náinn vinskapur væri og
gagnkvæm tryggð ríki milli Pól-
lands og Sovétríkjanna. Við sama
tækifæri var vísað á bug fregnum
í vestrænum blöðum um að sam-
skipti ráðamanna í Kreml og
Varsjá færu ört versnandi.
Ludwig Dorn, ritstjóri mál-
gagns pólskra andófsmanna, var í
dag sakaður um óhróðursstarf-
semi gegn landi og stjórn. Hann er
einn ellefu pólskra andófsmanna,
sem mikið hafa látið að sér kveða,
er nú sitja í fangelsi. .
Veður
Akureyri 11 skýjaó
Amsterdam 21 skýjaö
Aþena vantar
Berlín 24 skýjaó
BrUssel 23 heíðskírt
Chicago 35 skýjað
Denpasar vantar
Dublin vantar
Feneyjar 26 léttskýjaó
Frankturt 24 skýjaó
Faereyjar 10 alskýjað
Genf 23 heióskírt
Helsinki 19 heíóskírt
Hong Kong vantar
Jerúsalem 29 skýjað
Jóhannesarborg 18 heiöskirt
Kaupmannahöfn 21 skýjaó
Las Palmas 26 léttskýjað
Líssabon 32 heiðskírt
London 19 rignina
Los Angeles 29 skýjaó
Mexicoborg 23 skýjað
Madrid 30 heióskirt
Malaga 28 heióskírt
Mallorca 28 léttskýjaö
Miami 31 skýjað
Moskva 14 heióskírt
Nýja Delhi vantar
New York 35 heióskírt
Oslo 14 heióskírt
Parfs 25súld
Rio de Janeiro 23 heióskírt
Reykjavík 12 skýjaó
Rómaborg 25 heióskírt
San Francisco vantar
Stokkhólmur 18 skýjaó
Tel Aviv 30 skýjaó
Tókýó 27 skýjaó
Vancouver 17 skýjað
Vínarborg vantar
Mugabe
Walls
Mugabe vill reka
Walls frá Zimbabwe
Salisbury, 29. áKÚst. AP.
ROBERT Mugabe, forsætisráð-
herra Zimbabwe, sagði í Salis-
bury í dag, eftir komuna frá New
York, þar sem hann var viðstadd-
ur inntöku Zimbabwe i Samein-
uðu þjóðirnar, að eins og málum
væri háttað væri ekki hægt að
heimila Peter Walls, fyrrum yfir-
manni hersins að dvelja í land-
inu. „Við getum ekki liðið fólki
að vera landi sinu ótrútt," sagði
Mugabe í Salisbury.
Ástæða deilna Mugabes við
fyrrum yfirmann hersins er, að
Walls hefur oftar en einu sinni
lýst svartsýni í blaðaviðtölum, á
að Zimbabwe fái staðist undir
stjórn blökkumanna. Fyrr en síðar
muni allt fara í kaldakol. Peter
Walls vildi ekkert tjá sig um
ummæli Mugabes þegar frétta-
menn hittu hann að máli. Walls er
54 ára gamall og hann var yfir-
maður herafla hvítra manna í
borgarastyrjöldinni, sem geisaði í
landinu. Hann sagði af sér í
síðasta mánuði.
Mótmæli gegn
Pinochet
Santiago. Chile. 28. ágúst. AP.
í FYRSTA skipti síðan Aug-
usto Pinochet velti frá völdum
Salvador Allende í Chile fyrir
sjö árum, fóru tugþúsundir
manna um götur Santiago og
létu í ljós óánægju sína gegn
stjórn Pinochet.
Flóöbylgja á Bengalflóa:
Yfir 100 fiski-
báta nú
I)acca, 29. ágúst. AP.
YFIR 100 fiskibáta er saknað
með áhöfn eftir að mikil flóð-
bylgja gekk yfir Bcngalflóa.
Flóðbylgjan hraut niður varn-
argarða nærri Chittagong og yfir
hálf milljón húsa eru skemmd
vegna flóðbylgjunnar. Hálf millj-
ón manna hefur orðið fyrir barð-
saknað
inu á flóðbylgjunni. Leit fer nú
fram að fiskibátunum og áhöfn-
um þeirra.
Þá hafa yfir 350 manns farist
vegna flóða, sem stafa af mikilli
rigningu þessa vikuna. Yfir 10
milljónir manna hafa orðið fyrir
barðinu á flóðinu og gífurlegar
skemmdir hafa orðið á uppskeru.
Pétur Pétursson þulur:
Skoðun og ritskoðun
Þjóðviljinn, blað þjóðfrelsis og
verkalýðsbaráttu, birtir viðtal við
tvo opinbera forystumenn í gær.
Þeir tjá þar hug sinn til samninga-
mála BSRB. Er ég hafði lesið
boðskap þeirra félaga hringdi ég til
ritstjórnar Þjóðviljans og bað um að
fá að svara staðhæfingum tvímenn-
inganna nokkrum orðum. Ræddi við
ritstjóra helgarblaðsins, Guðjón
Friðriksson, en við erum góðkunn-
ingjar og auk þess tengdir ættar-
böndum, þótt hvorki sé það nú
Thors né Briem. Það væri þá helst
einhver Ástarbrím úr Bergsættinni
er við gætum rakið ættir til báðir.
Nóg um það. Ekki nægði skyldleiki
til þess að Guðjón léði mér rúm.
Hann hafði hvorki svigrúm né
skoðun. Bara ritskoðun. Að henni
gekk hann vísri. Hann þurfti ekki
einu sinni að tala við kirkjugarðsvin
minn og hreppsfélaga minn, Kjart-
an ritstjóra. Nú á amma bágt á
Sviðinsvík. Ekki einu sinni ráð á
kirkjugarðsballi. En verðbólgubálið
stígur til himins, eins og sjálf Höll
sumarlandsins stæði í loga. Eina
bótin að Ragnar og ráðunautar eru
að reyna „að koma böndum á
verðbólgubálið" eins og einhver
málsnillingurinn orðaði það. Ætli
þeir reyni ekki næst að handjárna
það, ef annað bregst.
En það var viðtalið sem ertil álita
og umræðu.
Haukur Helgason skólastjóri,
mætur maður og góðvinur minn og
baráttufélagi síðan 1977, en fjand-
vinur og félagi úr 3% stríði, er
hnípinn í bragði er hann segir hug
sinn. Hann minnir helst á dapran
farkennara er hótað hefir verið
hreppaflutningi á frostavetri og
skipað að skrifa á töfluna:
Palli vill alls ekki róla sér.
Það er ekkert svigrúm.
Svo talar hann um „almennar
grunnkaupshækkanir". Hver hefir
rætt um „hækkanir"? Við sem ekki
viljum una samningnum förum
fram á að endurgoldin sé kjara-
rýrnun. Það er kjarni málsins.
Þeir sem muna kjaradeiluna 1977
minnast e.t.v. uppákomu í matstofu
stjórnarráðsins. Þar var leikinn
smáþáttur með kaffibrúsakörl-
unum. Leikendur: Jón Sigurðsson
þáv. ráðuneytisstjóri og Örlygur
Geirsson. Jón hafði nýlega ritað
grein og ráðlagt opinberum starfs-
mönnum að samþykkja sáttatillögu.
Hlaut hann hæðiyrði frá ýmsum,
m.a. frá undirrituðum, sem er enn
þeirrar skoðunar að tilboð það hafi
hvergi nægt. Er Jón ráðuneytis-
stjóri hugðist ganga til kaffistofu
urðu átök milli Örlygs og hans.
Laust í bardaga og hugðu menn að
Öriygur ætlaði að jafna um gúlana á
Jóni og félögum hans fyrir að bjóða
smánarkjör. Naut hann óskiptrar
samúðar og fékk mynd í Þjóðviljan-
um. Nú hefir komið í ljós að Örlygi
gekk allt annað til. Hann mun hafa
haft í hyggju að koma Jóni á kné
vegna þess að hann áleit að sátta-
tillagan væri allt of há og væri
verðbólguvaldandi. A.m.k. er ekki
annað að sjá af viðtalinu í Þjóðvilj-
anum. Þar kemur hann eins og
kórdrengur í Játningarkirkjunni.
Þylur Agsborgarjátningu og segist
hafa verið Verðbólguvaldur No. 1 og
erkióvinur Þjóðfélagsins en vill nú
setja upp hring með Ragnari og
ganga í Vinabandið og gefa bág-
stöddum atvinnurekendum hálfa
milljón á ári frá hverjum launa-
manni sem tannfé handa ríkis-
stjórninni og skorar á félaga BSRB
að kynda undir jólapottinum. Hótar
tveggja ára Rasphúsi ella. En vel á
minnst. Hvaðan kemur herrum
þessum vald til þess að mæla fyrir
munn sáttasemjara og ógna með
tveggja ára samningsfjötrum? Segir
ekki reynsla allra verkalýðssamtaka
að sáttatillaga gangi nær ævinlega
lengra en næsta boð á undan? Það
er hugarburður einn og blekking ef
forystumenn BSRB ætla sér að bera
slíkan þvætting á borð. Að sjálf-
sögðu sér hver skynbær maður að
sáttasemjara og sáttanefnd er
heimilt að bjóða hver þau boð og
hafa gert það, að flytja skilaboð frá
ríkisstjórn, að hún skuldbindi sig til
þess að beita sér fyrir samþykkt
margskonar mála á Alþingi og
tryggja lagaheimild, samningstíma,
sem annað. Ofríki það og ógnanir er
BSRB forystan beitir er verð for-
dæmingar og ætti að veita þeim er
þannig hegða sér verðuga ráðningu í
atkvæðagreiðslu þeirri er fer í hönd.
Það tók söguhetjur Jules Verne 80
daga á liðinni öld að fara umhverfis
jörðina. Þjóðkunnir elskhugar eru
tvo mánuði milli kvenna.
Kristján Thorlacius er 14 mánuði
milli samninga. Hann er að bauka í
flatsænginni á annað ár áður en
hann rís undan feldi með samnings-
ómynd.
Að lokum línurit og fáein orð til
hagfræðings BSRB.
Góður vinur minn, löngu látinn,
komst oft vel að orði. Hann sagði
eitt sinn um athafnamann er farn-
aðist vel að hann ætti velgengni
sína ekki hvað síst því að þakka, að
hann hefði vitsmuni til dagsins.
Þannig leið hver dagur farsællega
að kvöldi. Sumum nægir ekki starfs-
orkan nema fram að hádegi. Það er
vel skiljanlegt. Þá er að taka því og
fá sér bjútíslíp og hlaða battaríið til
næstu umferðar. Síst grunaði mig
að það hefði úrslitaáhrif að við
mæltum okkur mót kl. 4.
Eg hafði beðið um útreikninga á
sáttatilboði 1977. Um það má lesa í
greinum mínum þá er ég auglýsti
eftir því. Það fer ekki milli mála um
hvað var beðið. Svarið leiðir það
einnig í ljós.
Gamlir menn sögðu: Með sjálfum
sér verður hver lengst að fara. Hér
er línurit handa hagfræðingum.
Gamansamir menn halda því
fram að samningamönnum hafi
verið talin trú um að það væri
linurit viðskiptakjara og væri há-
tindi náð, en komið niður í gilbotn-
inn. Á það að hafa ráðið úrslitum í
samningsgerð BSRB. Þá var skrifað
undir án tafar.
Lausnin birtist á morgun.