Morgunblaðið - 30.08.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
21
18 handteknir vegna
sprengingar í Bologna
Romaborg. 29. áKÚst. AP.
ÍTALSKA lögreglan skýrði frá því í dag. að handteknir hefðu
verið í dag sex nýfasistar er grunaðir væru um að hafa verið
viðriðnir sprenginguna í járnbrautarstöðinni í Bologna 2.
ágúst síðastliðinn er 83 manns fórust. Hafa þá alls 18 menn. er
grunaðir eru um aðild að sprengingunni, verið settir á bak við
lás og slá frá því í gærmorgun.
Hinum grunuðu hefur verið
gefið að sök að hafa stofnað
„vopnaða flokka“ og að hafa
myndað „undirróðurssamtök".
Eru sumir hinna handteknu
grunaðir um að hafa endur-
reist nýfasistasamtökin Ordine
Nuovo, er bönnuð voru árið
1973.
Enginn hinna handteknu
hefur beinlínis verið sakaður
um að hafa átt aðild að spreng-
ingunni í Bologna, en lögregl-
una grunar að höfuðpaurarnir
á bak við sprengjutilræðið séu í
hópi hinna handteknu. Enn er
leitað sex manna í sambandi
við sprenginguna.
í sprengingunni í járnbraut-
arstöðihni var eitt stöðvarhús-
ið af þremur jafnað við jörðu.
Auk þeirra er fórust slösuðust
200. Milljónir ítala lögðu niður
vinnu 4. ágúst síðastliðinn til
að láta í ljós andúð á verknað-
inum, og um 200.000 fylgdu
hinum föllnu til grafar við
allsherjargreftrun í Bologna 6.
ágúst.
Talið er að markmið nýfas-
istanna sé að skelfa almenning
með aðgerðum sínum og skapa
glundroða, og leggja þannig
grundvöll að pólitískri kreppu í
landinu í þeirri von að hagnast
á henni.
Bani-Sadr, forseti Irans:
Andvígur að gíslarnir
verði dregnir fyrir rétt
I>ondon. París, 29. ágúst. AP.
ABOLHASSAN Banisadr forseti
írans lýsir sig andvígan því í
viðtali við franskt blað i dag. að
handarísku gísiarnir verði
dregnir fyrir rétt. þar sem þá fái
Bandaríkjamenn tylliástæðu tii
íhlutunar í íran.
Ýmis öfl á íranska þinginu hafa
róið að því öllum árum að réttar-
höld verði sett yfir gíslunum.
Einkum er um að ræða klerka í
islamska lýðveldisflokknum, en
bæði Banisadr og Sadegh Ghotbz-
adeh utanríkisráðherra hafa lagst
gegn réttarhöldum af þessu tagi.
Fulltrúi írans hjá Sameinuðu
þjóðunum hvatti í dag Banda-
ríkjamenn til að afhenda stjórn-
völdum í Iran íranskar eignir sem
frystar voru í Bandaríkjunum
eftir töku bandaríska sendiráðsins
í Teheran í nóvember sl. Sagði
fulltrúinn að það gæti líklega flýtt
fyrir afgreiðslu máls gíslanna á
þinginu í íran. Gíslarnir voru í
dag sinn 300. dag í gíslingu.
Áætlað er að íranskar eignir, er
frystar voru í Bandaríkjunum,
nemi um átta milljörðum Banda-
ríkjadala.
Sextán manns voru teknir af lífi
í Teheran í dögun, en þeir voru
allir sakaðir um að hafa brotið
gegn fíkniefnalöggjöf landsins.
Aftökurnar eiga sér stað aðeins
einum degi eftir að samtökin
Amnesty International hvetja yf-
irvöld í íran til að láta af öllum
aftökum.
James
McDonnel
látinn
JAMES S. McDonnel, stofn-
andi McDonnel-flugvélaverk-
smiðjanna. er látinn.
McDonnel-verksmiðjunum
var breytt árið 1967 og hlutu
þá nafnið McDonnel-Douglas.
James McDonnel var 81 árs
gamall þegar hann lést.
McDonnel-Douglas-flugvéla-
verksmiðjurnar hafa átt í
miklum erfiðleikum síðustu
misserin eftir að hönnunar-
gallar komu fram í DC-10-þot-
um verksmiðjanna. Þann 28.
ágúst 1977 birtist viðtal í
Morgunblaðinu við James
McDonnel en þá var hann
staddur hér á landi á ATA-
þingi.
Blaðamenn
The Times
af lýsa verk-
falli sínu
Lundúnum. 29. áKÚst. AP.
BLAÐAMENN viö Lundúna-
blaöiö The Times aflýstu í dag
verkfalli — hinu fyrsta sem
þeir hafa fariö í í 175 ára sögu
hlaösins, eftir að útgáfustjórn-
in haföi samþykkt 27% launa-
hækkun, sem dreifist yfir 18
mánuöi. The Times kemur því
út á morgun.laugardag.
Blaðamenn fóru í verkfall á
föstudaginn eftir að útgáfu-
stjórnin hafði lýst því yfir, að
ekki væri svigrúm til launa-
hækkana umfram 18%, sem
boðið var. Verkfallið hefur
kostað blaðið sem nemur 600
milljónum íslenzkra króna. Út-
gáfa The Times stöðvaðist í
tæpt ár eftir harðvítugar vinnu-
deilur og lengi ríkti mikil óvissa
um hvort blaðið kæmi nokkurn
tíma á götuna framar. Það var
síðan í nóvember síðastliðnum,
að The Times kom loks út.
ERLENT
Brezhnev gagnrýn-
ir nýja kjarnorku-
stefnu Carters
Alma Ata. 29. áxúst. AP.
LEONID Brezhnev, forseti Sovét-
rikjanna. gagnrýndi i dag kjarn-
orkumálastefnu Bandarikjanna
harðlega i ra'ðu. sem hann flutti i
borginni Alma Ata og sjónvarpað
var um öll Sovétríkin. Ilann sagði,
að ný stefna Bandarikjanna i
kjarnorkumálum væri „mjög
hættuleg“ og hvatti Vesturveldin
til að bregðast jákvætt við frum-
kvæði Sovétrikjanna um afvopn-
unarmál. eins og forsetinn orðaði
það.
Jimmy Carter, forseti Bandaríkj-
anna lagði fyrir skömmu blessun
Þetta gerðist
sína yfir nýja kjarnorkustefnu, þar
sem ráðist yrði á hernaðarlega og
iðnaðarlega mikilvæga staði ef til
stríðs kæmi, fremur en á sovéskar
borgir. Brezhnev sagði, að með
hinni nýju stefnu sinni væru
Bandaríkjamenn að gera kjarn-
orkustríð hugsanlegt í augum al-
mennings. „En raunveruleikinn er
allt annar," sagði forsetinn. „Þessi
stefna er mjög hættuleg þjóðum
heirns," sagði hann ennfremur. Þá
sagði Brezhnev, að Sovétríkin yrðu
aldrei einangruð frá umheiminum
með viðskiptabanni eða banni við
þátttöku
íþróttamótum.
Ólympíuleikum
1979 — Koma sovézkra vígsveita
til Kúbu staðfest.
1%3 — „Heita línan“ milli
Washington og Moskvu tekin í
notkun.
1951 — Varnarsamningur
Bandaríkjanna og Filippseyja
gerður.
1944 — Rússar sækja inn í
Búkarest.
1932 — Hermann Göring kosinn
forseti þýzka ríkisþingsins.
1916 — Tyrkir segja Rússum
stríð á hendur.
1780 — Benedict Arnold lofar
Bretum að láta af hendi virkið
West Point, New York.
1721 — Friðurinn í Nystadt:
Norðurlandaófriðnum mikla lýk-
ur með samkomulagi Svía og
Rússa.
1645 —Hollendingar og Indíánar
semja frið í Nýju-Amsterdam
(New York.)
1596 — Krýndur Kristján IV
D— ikonungur.
1526 — Suleiman I Tyrkjasoldán
sigrar her Ungverja í orrustunni
við Mohacs og Loðvík
Ungverjalandi fellur.
30 f. Kr. — Kleópatra fyrirfer
sér i Egyptalandi með því að láta
apa bíta sig.
Afmæli. Mary W. Shelley, brezk-
ur rithöfundur (1797—1851) —
Ernest Rutherford, brezkur vís-
indamaður (1871—1937).
Andlát. 1483 Loðvík XI Frakka-
konungur — 1940 Sir J.J.Thom-
son, vísindamaður.
Innlent. 1720 d. Jón bp Vídalín
— 1660 d. Steinn bp Jónsson —
1874 Hátíðarsamkoma í Reykja-
vík — 1886 Fyrsta tölublað „Þjóð-
viljans" — 1905 Jón Ólafsson
afsalar sér þingmennsku — 1954
Steinkista Páis biskups opnuð—
1966 Marsvín á Sundunum.
Orð dagsins. Skemmdu eplin
skemma dllt út frá sér — Benja-
min Franklin, bandarískur
stjórnmálaleiðtogi (1706—1790).
Komið
í sýningardeild
okkar á sýningunni
Heimilið
þar sýnum við úrval þurrkaðra
blóma ogfallegar gjafavörur.
/10% afsláttur.
\Allir sem koma i sýningardeild okkai
fá afsláttarmiða sem gildir sem
10% afsláttur í verzlun okkar
til 15. sept. n.k.
•BLÓM&WEmR
Hafnarstræti 3, sími