Morgunblaðið - 30.08.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
37
fclk í
fréttum
+ Forsetaefni repúblikana í Bandaríkjunum, Ronald Reagan, er hér að skýra
fréttamönnum frá ástæðu heyrnardeyfu sinnar. Ekki vildi hann kannast við að
þetta væru ellimörk heldur hefði heyrn hans skaddast þegar hann var við
kvikmyndaleik. Hann hafði verið í byssuleik í einum vestranum. Þetta gerðist 1938
eða 1939 þegar mótleikari hans skaut yfir hægri öxl hans aðeins nokkrum
sentimetrum frá eyra hans og þar með missti hann heyrnina á hægra eyra.
+ Um þessar mundir er verið
að búa til kvikmynd um líf og
starf Sophiu Loren. Hún leik-
ur sjálf aðalhlutverkið og
framleiðandi myndarinnar er
stjúpsonur hennar, Alex
Ponti.
Síðasti hluti myndarinnar
og jafnframt hápunktur
hennar er tekinn upp á Clem-
entine Churchill sjúkrahúsinu
í London. Þar upplifir Sophia
á ný sjúkrahúsvist sína og
fæðingu sonarins, Carlo
Ponti. Soninn leikur 11 daga
gömul stúlka, Anita Cookson.
„Að halda á ný á svona litlu
barni gerir það að verkum að
ég næstum óska þess að verða
móðir á ný,“ sagði Sophia
eftir að upptökunum lauk.
Framleiðandinn, Alex Ponti,
sagðist ekki hafa haft hug-
mynd um að litli leikarinn
væri kvenkyns, „en öll 11 daga
gömul börn líta nú líka eins
út“.
+ Þessi mynd var tekin við messu í Róm sem páfinn, Jóhannes Páll II, söng til þess að
biðja fyrir verkfallsmönnum og samlöndum sínum í Póllandi. Fimm hundruð pólskir
pílagrímar voru við messuna. v
á íslandi
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Kristalsal
Hótels Loftleiða fimmtudaginn 4. sept. kl. 20.30.
Allir félagar, sem áhuga hafa á málefnum AFS, eru
hvattir til að mæta.
Stjórnin
Leikfimiskóli
Hafdfsar
Árnadóttur
Lindargötu 7
- Haustnámskeiö -
Jazzdans - Músikleikfimi
2ja vikna námskeiö fyrir kon-
ur og karla hefst 1. septem-
ber. Byrjenda - framhalds -
táningaflokkar.
Innritun laugardag - sunnu-
dag og mánudag frá kl.
13.00, sími 84724.
Jazz — Reggae — Rock — Diskó
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
Austurbær
Lindargata
Bergstaöastræti
Selvogsgrunnur
Kirkjuteigur
Miöbær
Vesturbær
Tjarnargata og Suöur-
gata.
Hringið í síma
35408