Morgunblaðið - 20.01.1981, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981
Bill féll í Reykjavikurhöfn:
15 ára stúlka
drukknaði
UNG stúlka. Mariana Eiriksdótt-
ir drukknaði þegar bifreið, sem
hún var farþegi í, féll í Reykja-
vikurhöfn aófaranótt sl. sunnu-
dags. Mariana heitin var 15 ára
gömul, fædd 27. april 1965 og átti
heima að Furugrund 75, Kópa-
vojíí.
Mariana hafði verið í afmælis-
Mariana EiriksdÓttir.
veizlu í húsi á Seltjarnarnesi
ásamt fleiri unglingum. Um
fimmleytið fór hún úr veizlunni
ásamt tveimur 17 ára piltum og
annarri stúlku. Þau voru á bíl,
.sem annar piltanna ók. Fyrst var
haldið heim til hinnar stúlkunnar,
þar sem hún fór úr, en síðan lá
leiðin niður að höfn. Unglingarnir
áttu ekkert erindi þangað heldur
átti þetta að vera smá krókur á
leiðinni til Kópavogs, þar sem
unglingarnir bjuggu.
Ekið var út á Norðurgarð og var
ætlunin að aka hringinn í kring-
um frystihús Isbjarnarins, en sú
leið reyndist þá vera lokuð. Öku-
maðurinn ætlaði þá að snúa við á
opnu svæði austan frystihússins
en bakkaði of langt og bifreiðin
valt út af grjótkanti sem þarna er
og í sjóinn. Piltunum tókst að
komast út úr bifreiðinni en stúlk-
unni ekki. Piltarnir hlupu í Kaffi-
vagninn og þaðan var boðum
komið til lögreglunnar, sem kall-
aði kafara strax á vettvang.
Nokkrum erfiðleikum var bundið
að ná upp bifreiðinni, þar eð hún
hafði borizt 10-15 metra frá landi
og var á allmiklu dýpi. Náðist
bifreiðin
átta.
upp um klukkan hálf
Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra:
„Mun ef til vill athuga eitt-
hvað með Gervasonimálið“
FRIÐJÓN Þórðarson dómsmála-
ráðherra hélt utan í morgun.
Ferð hans er heitið til Stokk-
hólms með viðkomu i Kaup-
mannahöfn. Friðjón sagði i gær i
viðtali við Mbl., að hann myndi ef
til vill athuga eitthvað með Gerva-
soni-málið i þessari ferð sinni.
Þá sagði Guðmundur Benedikts-
son ráðuneytisstjóri í forsætis-
ráðuneytinu, að Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra komi til
landsins nk. fimmtudag.
Friðjón Þórðarson vildi í gær
ekki svara beint þeirri spurningu,
hvort hann myndi hafa afskipti af
0'
INNLEIMT
svonefndu Gervasoni-máli í Kaup-
mannahöfn, þegar hann kemur
þar við í dag. „Eg mun ef til vill
athuga það eitthvað," sagði hann.
„Það fer eftir aðstæðum." Hann
sagðist heldur ekki vita hversu
lengi hann hefði þar viðdvöl, að
það færi eftir aðstæðum „ef til vill
einn dag,“ sagði hann. í Stokk-
hólmi mun Friðjón sitja fund á
vegum Norðurlandaráðs og verður
þar til umræðu réttarstaða Fær-
eyja, Álands og Grænlands í
Norðurlandaráði. Baldur Möller
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu fór utan með Friðjóni í
morgun.
Gunnar Thoroddsen flýgur frá
Bergen þar sem hann hefur dvalið
á sjúkrahúsi, til Osló á morgun og
dvelur þar fram á fimmtudag.
Hann mun síðan fljúga beint frá
Osló til íslands á fimmtudaginn.
Pálmi Jónsson landbúnaðarráð-
herra gegnir starfi forsætisráð-
herra í fjarveru Gunnars og Frið-
jóns.
Alþjóðleg bænavika fyrir einingu hins dreifða kristindóms stendur nú yfir og á vegum kristinna
safnaða i Reykjavik verða i vikunni haldnar samkomur þar sem fram koma fulltrúar hinna ýmsu
safnaða. Á sunnudagskvöldið var slik samkoma i Bústaðakirkju og eru á myndinni taldir frá vinstri:
Guðni Einarsson, hvitasunnusöfnuðinum, Sigurður Pálsson, þjóðkirkjunni, Erling Snorrason frá
aðventistum, Sigurbjörn Einarsson biskup, Hinrik Frehen, biskup kaþólskra, séra Ágúst K.
Eyjólfsson kaþólskur prestur, sr. ólafur Skúlason dómprófastur og sr. Ólafur Oddur Jónsson
sóknarprestur í Keflavík. LjÓ8nl Jón Svav«r»«on
Versta rekstrartruflun í Búrfellsvirkjun:
Framleiðslan hrapaði
úr 180 megawöttum í 5
í GÆR varð versta rekstrartrufl-
un, sem orðið hefur i Búrfells-
virkjun síðan virkjunin tók til
starfa. Hrapaði raforkufram-
leiðslan úr 180 megawöttum í 4—5
megawött á skömmum tima.
Hávaðarok var við Búrfell í gær
og svo mikið skóf af snjó í Þjórsá
að hún stíflaðist. Að sögn Ingólfs
Ágústssonar rekstrarstjóra
Landsvirkjunar batnaði ástandið í
gærkvöldi þegar tókst að gera
rennu í krapið og auka rennslið til
virkjunarinnar.
Ingólfur sagði að grípa hefði
þurft til ýmiss aðgerða í gær
vegna þessa ástands. Allar tiltæk-
ar olíurafstöðvar voru gangsettar,
m.a. varastöð ISAL i Straumsvík
og Álverið og Járnblendiverksmiðj-
an notuðu eins litla orku og
frekast var unnt. Sagði Ingólfur
að í gær hefði raforkuframleiðsla
með olíuvélum numið 80-90 meg-
awöttum.
Vegna hins alvarlega ástands í
raforkumálum hefur almenningur
verið hvattur til að spara rafmagn
eins og frekast er kostur.
Enn fóru togara- og báta-
kjarasamningar út um þúfur
SÁTTAFUNDUR hefur ekki ver-
ið boðaður í báta- og togarakjara-
samningunum, sem fóru út um
þúfur á laugardag. í raun kom-
ust samningar aldrei í gang, þótt
rikissáttascmjari hafi boðað fund
eftir fund í lok vikunnar, til þess
að grandskoða alla möguleika á
að koma viðræðum af stað. Sjó-
menn vildu ekki ræða samning-
ana, nema í heild sinni, en
útvegsmenn buðu viðræður um
lífeyrismálin.
_ *
Tómas Arnason viðskiptaráðherra:
„Mun kanna hugsanleg olíu-
viðskipti við Saudi-Arabíu44
„ÉG MUN fara að huga að þessu máli og ætla að fara að athuga með
að koma á viðræðum um hugsanleg oliuviðskipti við Saudi-Arabiu. Ég
geri mér ekki grein fyrir á þessu stigi hvort slík viðskipti yrðu
skynsamleg eða ekki, en ókyrrð er mikil i arabalöndunum og þvi
skynsamlegt að fara sér hægt,“ sagði Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra í tilefni af því að rikisstjórnir íslands og Saudi-Arabiu hafa
tekið upp stjórnmálasamband, skv. fréttatilkynningu sem barst Mbi.
frá utanrikisráðuneytinu i gær.
Tómas sagði einnig: „Þegar ég
tók við starfi viðskiptaráðherra
voru olíumálin ofarlega á baugi.
Ég óskaði þá eftir því við utanrík-
isráðuneytið að reynt yrði að ná
þessu stjórnmálasambandi og
hafði þá í huga að í framhaldi af
því yrði reynt að ná sambandi við
Saudi-Araba og samningum um
olíuviðskipti milliliðalaust."
Þá sagðist Tómas telja að við
værum vel sett eins og stæði hvað
varðar olíuinnkaup. „Við höfum
hagkvæma samninga við Ráð-
stjórnarríkin, einnig við Breta. Þá
hefur verið rætt við Norðmenn um
hugsanleg kaup á benzíni." Tómas
sagði aðspurður að hann vissi ekki
hvort hugsanlegir benzínkaupa-
samningar við Norðmenn gætu
orðið hagkvæmir, en Norðmenn
væru jákvæðir gagnvart okkur og
nálægir.
Tómas sagði einnig að dönsk
stjórnvöld hefðu gert samninga
við Saudi-Araba. Hann sagðist
hafa rætt við dönsku ríkisstjórn-
ina og kynnt sér þá samninga. Sú
samningagerð hefði tekið langan
tíma og ekki væri gott að gera sér
grein fyrir hvort slíkir samningar
væru hagkvæmir fyrir okkur.
Tómas sagði í lokin: „Hugsan-
legir samningar eru eiginlega
fremur framtíðarverkefni. Olíu-
kaupamálin eru í góöu lagi í dag,
en auðvitað verður einnig að
hugsa til framtíðarinnar. Ég mun
kanna þessi mál með tilliti til
þess. Þá má í lokin benda á, að ef
við keyptum frá Saudi-Arabíu þá
þyrftum við að kaupa jarðolíu,
sem ekki er hagkvæmt því við
yrðum þá að selja mikið frá
okkur."
Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra kvað mikla
þrjózku komna í málin, er Morg-
unblaðið ræddi við hann í gær, og
kvað hann þau standa “bölvan-
lega“ eins og hann komst að orði.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ-sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að sjómenn væru nú langt
yfir þeim kröfum, sem þeir upp-
haflega hefðu lagt fram og kvað
hann útvegsmenn líta svo á að
sjómenn hefðu komið fram af
algöru alvöruleysi í samningun-
um. Sjómenn hefðu alls ekki ætlað
sér að semja við útvegsmenn um
lífeyrissjóðsmál.
„Þeir hækka kröfur sínar frem-
ur en lækka frá því að viðræður
hófust. Við teljum okkur vera með
40% hærri viðmiðun heldur en
verkafólk í tilboðinu. Það finnst
okkur vera sanngjarnt og við
ætlum að verðtryggja það á árinu.
Þannig höfum við virkilega komið
til móts við þá,“ sagði Kristján
Ragnarsson.
Ingólfur Ingólfsson, formaður
Vélstjórafélags íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að vafalaust yrði stefnt að því að
boða verkfall í þessari viku, en
seint hefði gengið að smala saman
þeim umboðum, sem samþykkt
hefðu verið. Hann kvað fund verða
með samninganefnd og stjórn
Sjómannasambandsins á fimmtu-
dag, þar sem ákvörðun yrði tekin.
Þá kvað hann hafa verið rætt
innan Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins að full samræming
yrði á verkfallsaðgerðum milli
sambandanna tveggja.
Þrír sækja um emb-
ætti sýslumanns
Á FÖSTUDAG rann út umsókn-
arfrcstur um embætti sýslu-
manns Norðmýlinga og bæjar-
fógotans á Seyðisfirði.
Umsækjendur eru þrír:
Hafþór I. Jónsson, héraðsdóms-
lögmaður, Reykjavík.
Sigurður Helgason, hæstarétt-
arlögmaður, Kópavogi
Valgarður Sigurðsson, fulltrúi
bæjarfógetans í Hafnarfirði.
Forseti íslands veitir embættið
en dómsmálaráðherra gerir til-
lögu um veitinguna. Erlendur
Björnsson, sem síðast gegndi emb-
ættinu, lézt á sl. ári.
Kanadískrar flugvélar saknað
LAUST fyrir miðnætti i gær-
kvöldi hófst leit að tveggja
hreyfla kanadiskri fiugvél, sem
lagði upp frá Goose Bay i Kanada
í gær og átti skv. áætlun að lenda
í Reykjavik kl. 21.45 í gærkvöldi.
Um borð í vélinni voru tveir
menn.
Síðast heyrðist frá flugvélinni,
sem er af gerðinni Cessna 402, er
hún var yfir Hvarfi á Grær.landi.
Fljótlega eftir að vélin kom ekki
fram á tilsettum tíma var farið að
grennslast fyrir um hana og laust
eftir klukkan 23.30 fór leitarflug-
vél af stað frá varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli og fleiri vélar
hófu leit upp úr miðnætti. Leitar-
skilyrði voru þá mjög slæm vegna
veðurs á leitarsvæðinu og ekki
nema fyrir stærstu og beztu flug-
vélar að fara í slíkt flug.