Morgunblaðið - 20.01.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1981
3
Armúla 23, sími 85870 og 39179
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs ’81
NK. FÖSTUDAG, 23ja janúar,
kemur saman í Reykjavík „bók-
menntaverðlaunanefnd Norður-
landaráðs", ok ákveður hún þá
hver skuli hljóta bókmenntaverð-
laun ráðsins 1981. Árlega síðan
1962 hefur þessum verðlaunum
verið úthlutað, og nú i ár er
verðlaunaupphæðin 75.000 ný-
krónur (7,5 milljónir >?amlar).
Verðlaunin verða afhent við há-
Kynning á
íslenzkri
útflutnings-
verzlun
SAMTÖKIN Viðskipti oj? verzlun
efna i daK til kynningar á
islenzkri útflutningsverzlun i
samvinnu við Verzlunarráð ís-
lands. Fer kynnins þessi fram að
Hótel Loftleiðum. I fréttatilkynn-
ingu um þessa kynningu segir
m.a.:
„Lögð verður áhersla á þann
þátt sem fer fram erlendis, dreg-
inn fram mismunur á óskráðum
viðskiptalögmálum hinna ýmsu
landa og mikilvægi þess að þekkja
þau ef árangur á að nást. Einnig
verður leitast við að skýra hvers-
vegna þjóðir sækjast eftir að vera
í fríverzlunarbandalögum.
Ræðumenn eru allir ungt fólk
sem gegnir ábyrgðarstörfum í
atvinnulífinu og hefur þekkingu
og reynslu á því sem fjallað er um.
Sautján ára nemandi í Verzlun-
arskólanum, Eyjólfur Sveinsson,
steur kynninguna og stjórnar
henni, en Ingvi Hrafn Jónsson
fréttamaður stjórnar umræðum,
sem eru annarsvegar þegar kynn-
ingin er hálfnuð og hinsvegar í lok
hennar. Þá svara ræðumenn
spurningum fundarmanna og
stjórnanda.
Ræðumenn eru: Árni Árnason,
framkvæmdastjóri Verzlunarráðs
Islands, Friðrik Pálsson, fram-
kvæmdastjóri SIF, Guðmundur
Karlsson, alþingismaður, Valgerð-
ur Björgvinsdóttir, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Lýsis hf. Þrá-
inn Þorvaldsson, framkvæmda-
stjóri Hildu hf. Tómas Óli Jóns-
son, viðskiptafræðingur hjá
Skipulagsdeild SÍS, Bergþór Kon-
ráðsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Iðnaðardeildar SÍS, Andrés
Svanbjörnsson, verkfræðingur
Hönnunar hf.,Sturlaugur Daða-
son, efnaverkfræðingur SH.
Þetta er ekki fagráðstefna í
þeim skilningi að hún sé fyrir
sérfræðinga og áhugamenn um
útflutningsmál eingöngu. Þessi
kynning er fyrir almenning og
ætluð til að vekja áhuga manna og
skilning á mikilvægi þess að
þekkja þá markaði sem við skipt-
' um við, fremur en skýra til hlítar
allar hliðar þessara mála.
Athygli nemenda á fram-
haldsskóla- og háskólastigi er
sérstaklega vakin á kynningunni,
ekki síst þeirra sem eru á við-
skiptabraut. Einnig er nemendum
í grunnskóla sem eru í starfs-
fræðslu bent á að þarna geta þeir
kynnt sér þennan mikilvæga at-
vinnuveg á skemmtilegan hátt.
Það er hagsmunamál allra
landsmanna að hægt sé að selja
framleiðslu þjóðarinnar á sem
bestum kjörum. Þessvegna er
áhugavekjandi að fá upplýsingar
um hvernig er að selja íslenska
framleiðslu í löndum búa við aðra
menningu og lífskjör og hafa
kannski allt önnur viðhorf til
viðskipta en íslendingar.
Ekkert þátttökugjald er á kynn-
inguna og það er von þeirra sem
að henni standa að sem flestir
notfæri sér þetta tækifæri til að
kynnast því hvernig er að verzla
með íslenskar vörur í hinum ýmsu
heimshlutum.
Kynningin er haldin í Kristalsal
Hótels Loftleiða og hefst kl.
13.30.“
tiðlega athöfn á fundi Norður-
landaráðs i Kaupmannahöfn dag-
ana 2.-6. mars.
Eftirfarandi tíu verk hafa verið
tilnefnd til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 1981:
Frá fslandi: Hauströkkrið yfir
mér, ljóð Snorra Hjartarsonar, og
Undir kalstjörnu Sigurðar A.
Magnússonar.
Frá Danmörku: „Eva’s ekko“,
skáldsaga Cesil Bödker, og „Vint-
erens hjerte", ljóð Ivan Malin-
owski.
Frá Finnlandi: „Som sanden i
havet“, skáldsaga Eeva Joenpelto,
og skáldsaga Irmeiin Sandman-
Lilius „Frámlingsstjárnan".
Frá Noregi: Ljóð Olav H.
Hauge „Janglestrá" og „Dikt i
samling", og skáldsögur Idar
Kristiansep „Den salte ákaren“ og
„Stiene förer til havet".
Frá Svíþjóð: „Tidigt en morgon
sent pá jorden“, ljóð Werner
Aspenström, og skáldsaga P.C.
Jersild „En levende sjál“.
Nefndina skipa tveir fulltrúar
frá hverju landi, og fyrir Islands
hönd eru Njörður P. Njarðvík,
lektor, og Hjörtur Pálsson,
dagskrárstjóri hljóðvarps; próf.
Mogens Brömsted og rithöfundur-
inn Ulla Ryum frá Danmörku;
Finnarnir Kai Laitinen próf. og
Sven Willner; dr. Jorunn Harleide
og próf. Leif Mæhle frá Noregi; og
frá Svíþjóð Per Olof Sundman og
Áke Leander, rektor.
Einn íslendingur hefur fengið
verðlaunin, Ólafur Jóhann Sig-
urðsson fékk þau 1976. Tvö síðustu
ár hafa Svíar hreppt þau, Sara
Lindman í fyrra og Ivar Lo-Jo-
hansson þar á undan fyrir
sjálfsævisögu.
Nýjar mjólkurvöru-
tegundir á markaðinn
- nýjar umbúðir undir jógúrt
TVÆR nýjar tegundir af
mjólkurvörum koma á markað-
inn á morgun. bá verður jóg-
úrt einnig í nýjum umhúðum á
morgun, sem framleiddar eru
að Reykjalundi. Mjólkursam-
salan mun einnig setja á mark-
aðinn á næstunni óblandaðan
jógúrt.
Nýju mjólkurtegundirnar eru
„Jarðarberja-Jógi“, sem fram-
leiddur er úr léttmjólk og inni-
heldur 1,5% fitu og einnig
bætist við jógurt með blöndu af
banönum og appelsínum. Nýju
umbúðirnar verða svipaðar
þeim gömlu í útliti, en tekin
verður upp ný aðferð við lokun
dósanna. Verður þeim lokað
með plasti í stað málms. Nýju
lokin eiga að falla þétt á
dósirnar og á að verða auðveld-
ara að opna þær en þær eldri.
Þessar umbúðir verða síðar
einnig notaðar undir aðrar
mjólkurvörutegundir s.s. skyr.
Nú fer
hver aö
veröa
aö tryggja sér
DAIHATSU CHARAD
á veröi frá því i fyrra
Gífurleg hækkun á gengi yensins á síðustu 12 mánuðum, hefur hækkaö
verö á japönskum bílum upp úr öllu valdi.
Við eigum nú aðeins fáa Daihatsu Charade 1980 á veröi sem við festum í
haust og getum því boöið þennan frábæra metsölubíl á
aöeins
kr.
59.600
meö ryövörn
og er hér um de luxe
gerö að ræöa.
Ef þú vilt gera góö bílakaup, líttu viö áöur en þaö veröur
um seinan.
Daihatsuumboðiðp