Morgunblaðið - 20.01.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1981
11
Hreinræktaður
Jón Birgir Pétursson:
EINN A MÓTI MILLJÓN
141 bls. örn og Örlygur
Þetta er einn hinna nýju ís-
lensku reyfara og önnur bók
höfundar, en í fyrra kom út eftir
Jón Birgi sagan VITNIÐ SEM
HVARF. Af þessari nýju bók að
dæma er Jón Birgir ekki á sænsku
línunni og ekkert að reyna að gera
spæjarasögur að þjóðfélagslega
meðvituðum heimsósómabók-
menntum. Hér virðist mér vera á
ferðinni býsna hreinræktaður
reyfari, meira að segja með skot-
bardögum í kirkjum og skugga-
legum vörugeymslum í útlöndum.
Ekki er ráð að rekja söguþráð
svona bóka, en óhætt mun að
segja að spæjarinn Elías er hér að
Bðkmenntlr
eftir SVEINBJÖRN
I. BALDVINSSON
reyna að hafa uppi á íslenskum
manni sem horfið hefur á dular-
fullan hátt og sennilega farið í
sjóinn. Sögusviðið er einkum ís-
land og Holland og inn í söguna
fléttast rík og voldug ætt manns-
ins sem hvarf, sem og eiturlyfja-
bófar í Rotterdam og víðar. Sögu-
þráðurinn er ekkert síðri en í
útlensku spennusögunum og
spennan oft töluverð.
Enda þótt þessi bók standist
reyfari
ekki samanburð við erkireyfara á
borð við „Dag sjakalans" eftir
Frederick Forsyth virðist mér
höfundurinn einatt sýna einkar
sannfærandi tilburði og held að
engu sé að kvíða í reyfaradeild
íslenskra bókmennta. Ýmsir ágæt-
ismenn eru farnir að fást við þetta
og vonandi kemur brátt að því að
þetta verður umtalsverður gjald-
eyrissparnaður fyrir þjóðina.
Mér finnst dálítið freistandi að
bera saman þessa bók Jóns Birgis
og bók Gunnars Gunnarssonar,
„Margeir og spaugarinn". Þessar
sögur eru næsta ólíkar enda þótt
þær teljist til sömu bókmennta-
greinar. í bók Gunnars fá persón-
urnar sjálfar meira rými og verða
því skýrari. Hins vegar fannst
mér sú saga ekki eins spennandi
Jón Blrgir Pétursson.
og þessi og feginn var ég að vera
laus við karlhlunkinn hann Mar-
geir. Þar eð ég hef takmarkaðan
áhuga á sálarlífi og stjórnmála-
skoðunum leynilögreglumanna
kunni ég ágætlega við hinn fyrir-
ferðarlitla Elías, spæjara Jóns.
Niðurstaðan af þessum saman-
burði er því sú að mér finnst
„Einn á móti milljón" betri reyf-
ari, en „Margeir og spaugarinn"
betri skáldsaga.
Bókmenntafræðilega séð er
„Einn á móti miiljon" afskaplega
íhaldsöm bók og þjóðfélagslega
meðvitundarlaus. En ég held að
henni sé ekki ætlað annað, og
finnst það allt í lagi. Þar fyrir
utan held ég að ef bókmenntir eiga
nokkurn tíma eftir að frelsa heim-
inn, þá verði það alltént ekki
reyfarar.
Stíllinn á bókinni er ákaflega
hversdagslegur og málið rislítið. Á
stöku stað hnaut ég um ambögur í
málfari, en þær voru ekki margar.
Sú hvimleiðasta var eftirfarandi
setning (bls. 78V. „Hún hafði skilið
að hann einnig hafði verið
blekktur.“ Þetta er útlensk orða-
röð og hefði prófarkalestur átt að
útrýma slíku og þvílíku. Annars
stendur þessi bók að flestu leyti
mjög vel fyrir sínu.
Tvcir Verðlauna
hafar
með
reksturskostnað
í lágmarki
A mjög tiagstæðu verði
TOYOTA er bíllinn sem
heldur í við hvaða
verðbólgu sem er...
TOYOTA COROLLA:
Metsölubíll um allan heim.
Glæsilegur fjölskyldubíll.
Rúmgóður og vel gerður að innan
með stórt farangursrými.
Bíll, sem eins og aðrir Toyota bílar
er traustur, öruggur, viðhaldsléttur
og eyðir litlu bensíni.
TOYOTA TERCEL:
Framhjóladrifinn bíll, sem er
óvenju rúmgóður.
WTOYOTA
Sportlegur, hljóðlátur, og með
frábæra aksturseiginleika.
Bíll sem eyðir ótrúlega litlu
og er eins og aðrir Toyota bílar,
traustur, öruggur og viðhaldsléttur
Bílar, sem komast langtá litlu ...
til afgreiðslu nú þegar
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI8
KÓPAVOGI SÍMI 44144
UMBOÐIÐ A AKUREYRI; BLÁFELL S/F ÖSEYRI 5A —SÍMI 96-21090
Vandaðir bílar fyrir vandláta kaupendur