Morgunblaðið - 30.04.1981, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
95. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Reagan vel fagnað á Bandaríkjaþingi:
Efnahagstillögur af-
greiddar á næstunni
WashinKton. 29. apríl. AP.
BÚIZT ER við því, að
Reagan Bandaríkjaíorseti
hafi með ræðu sinni á
sameiginlegum fundi
beggja deilda þingsins,
tryggt framgang efna-
hagstillagna sinna í þing-
inu. Deildir þingsins
munu hefja afgreiðslu til-
lagnanna á fimmtudag og
Þingko.sninKar í
Suður-Afríku
— I k»t fóru
frant þinnkosn-
infjar í Suður-
Afríku ok á
myndinni sést
Pieter Botha for-
sætisráðherra
Kreiða atkvæði i
kjorda’mi sinu.
Aðeins hvitir
menn hafa kosn-
inKarétt i kosn-
inKiinum. Talið
er vist að þjóðar-
flokkurinn. flokk-
ur Bothas. verði
öruKKur sÍKur-
veKari í kosninK-
unum. en flokkur-
inn hefur verið
nær alls ráðandi i
stjórnmálum i
S-Afríku frá ár-
inu 1948. Útlit
var þó fyrir að
flokkurinn tapaði
nokkru fyIkí.
(Simamynd-AP)
er talið að þær hafi nú
meirihluta í báðum þing-
deildum.
Reagan flutti ræðu sína í
þinginu í gærkvöldi og var það í
fyrsta sinn, sem hann kom
fram opinberlega eftir að til-
ræðismaður reyndi að bana
honum fyrir um mánuði síðan.
Reagan sagði, að sér hefði farið
fram, en langt í frá væri að
efnahagslífið hefði tekið fram-
förum.
Reagan hvatti þingmenn til
að hraða meðferð tillagna hans
um samdrátt ríkisútgjalda og
skattalækkanir, og sagði að
kjósendur biðu óþolinmóðir eft-
ir að þingið afgreiddi þessi mál.
„Frekari tafir munu aðeins
draga lækningu efnahags-
meinsins á langinn og gera
hana kvalafyllri," sagði Reag-
an.
Forsetinn talaði í 20 mínútur
og varð margoft að stöðva
flutning ræðunnar, þegar fagn-
aðarlæti þingmanna yfir-
gnæfðu hann. Talsmaður Hvíta
hússins, Larry Seakes, sagði í
dag, að þar væru menn vongóð-
ir um skjóta meðferð þingsins á
efnahagstillögum forsetans.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta var ákaft fagnað. þegar hann flutti
ræðu á sameÍKÍnlegum fundi beggja deilda Bandarikjaþings i
fyrrakvöld. Á myndinni eru auk Reagans Bush varaforseti og Thomas
O’Neill, forseti fulltrúadeildarinnar. (Símamynd-AP)
Líbanon:
Aukinn hernaðarvið-
búnaður Sýrlendinga
Beirut. VVashington. 29. april. AP.
SÝRLENDINGAR fluttu í dag
fullkomnar sovézkar loftvarna-
byssur inn i austurhluta Líban-
Flokksþing pólska komm-
únistaflokksins í júlí nk.
Varsjá. 29. apríl. AP.
STANISLAW Kania. leið-
togi pólska kommúnista-
flokksins, gerði um það
tillögu á fundi miðstjórnar
flokksins í dag, að næsta
þing kommúnistaflokks-
ins verði haldið um miðjan
júlí nk. Ákvörðunar um
þingiö hefur verið beðið
með nokkurri eftirvænt-
ingu, þar sem það verður
fyrsta þingið eftir að
verkamönnum í Póllandi
var heimilað að stofna
sjálfstæð verkalýðsfélög.
Margir ræðumanna á fundi
140 manna miðstjórnar flokks-
ins, sem töluðu á eftir Kania,
gagnrýndu afstöðu flokksins
til Samstöðu, samtaka hinna
frjálsu verkalýðsfélaga, og
hvöttu til aukinnar þátttöku
almennings í flokksstarfinu.
Var einnig hvatt til þess, að
fleiri verkamenn og bændur
fengju sæti í stjórnarnefnd
flokksins.
Frá því var greint í pólska
útvarpinu í dag, að fjölda
áhugamanna, sem sitja vildu
fund miðstjórnarinnar og
hlýða á umræður, hafi verið
vísað frá.
Stefan Olszowski, einn helzti
ráðamaður í kommúnista-
flokknum, kvartaði undan því
á fundinum, að hann og fleiri
lægju undir ásökunum um að
vera íhaldssamir, þegar fyrir
þeim vekti það eitt að verja
flokks- og þjóðarhagsmuni.
Olszowski gagnrýndi Sam-
stöðu fyrir að hafa afskipti af
stjórnmálum og varaði við
andsovézkum hægri sinnuðum
áróðri í landinu.
ons. að sögn heimildarmanna á
svæðinu. ísraelsmenn skutu
niður tvær þyrlur Sýrlendinga i
ga*r á þessu sama svæði og
þotur ísraelshers gerðu i dag
margar árásir á búðir palestínu-
skæruliða í suðurhluta landsins.
Vopnahlé virðist haldast milli
kristinna hægri manna í Líbanon
og Sýrlendinga, en loft er lævi
blandið á öllum vígstöðvum í
landinu. Margir óttast að frekari
viðbúnaður sýrlenzka hersins í
Líbanon nú geti leitt til nýrrar
styrjaldar ísraels og Arbaríkj-
anna.
Haig utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna skoraði í dag á Sovétrík-
in að beita áhrifum sínum í
Sýrlandi til að koma í veg fyrir
frekari átök í Líbanon. Haig sagði
að ástandið í landinu væri nú
mjög alvarlegt. Hefði sovézki
sendiherrann í Washington verið
kallaður til viðræðna í bandaríska
utanríkisráðuneytið um málið.
Utanríkisráðherra Egyptalands,
Butros Ghali, fordæmdi í dag bæði
aðgerðir Sýrlendinga og ísraels-
manna í Líbanon og sakaði þá um
að stefna í hættu möguleikum á að
koma á friði í landinu. Franska
stjórnin lét i ljósi vaxandi áhyggj-
ur yfir þróun mála í Líbanon og
skoraði á alla að gera vopnahlé.
Almenningur í Belfast
hamstrar nauðsynjavörur
Belfast. 29. april. AP.
MÓTMÆLENDUR úr röðum ka-
þólskra á Norður-írlandi lentu i
minni háttar átökum við lögreglu
i dag. en óttaslegnir borgarar i
Belfast hömstruðu mat og ýmsar
nauðsynjar til að eiga, komi til
alvarlegra átaka i borginni á
næstunni. Skæruliðinn Bobby
Sands var meðvitundarlaus við og
við i dag. en hann hefur ekki
neytt matar i 60 daga. og er
talinn eiga skammt eftir ólifað.
Sands og þrír aðrir fangar í
Maze-fangelsinu í Belfast, sem
einnig eru í hungurverkfalli, höfn-
uðu í dag beiðni sendimanns páfa
um að þeir hættu mótmælasvelt-
inu. Sr. John Magee, sendiboði
páfa var í fangelsinu í tæpar fimm
klukkustundir í dag, en fékk ekki
talið Sands á að breyta afstöðu
Magee átti í dag viðræður við
Humphrey Atkins, sem fer með
málefni N-írlands í brezku stjórn-
inni, til að kanna hvort stjórnin
sæi sér fært að koma til móts við
Sands með einhverjum hætti og
reyna að bjarga lífi hans. Brezkir
embættismenn sögðu eftir fund-
inn, að áður en á hann hefði verið
fallizt, hefði öllum verið gert Ijóst,
að stjórnin myndi ekki hvika frá
afstöðu sinni gagnvart hungur-
verkfallinu.
Sósíalistar í röðum þingmanna á
Evrópuþinginu skoruðu í dag á
Thatcher forsætisráðherra Bret-
lands að gera ráðstafanir til að
bjarga lífi Sands.
Fréttir um
skilnaðarmál
Margrétar
og Henriks
„hreinn
uppspuni“
IIANS Solvhoj. hirðmark-
skálkur dönsku hirðarinnar.
hefur lýst því yfir í viðtali við
hlaðið Aktuclt. að frétt blaðs-
ins um hugsanlegan skilnað
Margrétar drottningar og
Henriks prins sé hreinn upp-
spuni.
Aktuelt, sem er málgagn
danska Jafnaðarmannaflokks-
ins (ríkisstjórnarflokksins),
byggði frétt sína um erfiðleika
í hjónabandi þeirra Margrétar
og Henriks á grein í enska
blaðinu Daily Express. Frétt
Morgunblaðsins sl. sunnudag
sama efnis var byggð á Aktu-
elt.